Tíminn - 18.11.1987, Side 7
Miðvikudagur 18. nóvember 1987
Tíminn 7
Formanna- og sambandsstjórnarfundur Sjómannasambandsins:
Sammála núverandi
fiskveiðistjórnun
Nýverið var haldinn formanna- og
sambandsstjórnarfundur Sjómanna-
sambands íslands og fór hann fram
á Akureyri. Fundurinn gerði nokkr-
ar ályktanir, meðal annars um fisk-
veiðistjórnun, öryggismál sjómanna
og leigu á erlendum kaupskipum.
Fundurinn lagði til að við mótun
fiskveiðistefnunnar yrði stuðst áfram
við núverandi kerfi, með nokkrum
athugasemdum. Þær voru helstar að
kvótinn ætti áfram að skipast á þau
„atvinnutæki, sem ætlað er að sækja
aflann", mótmælt er að afli sem
fluttur er óunninn á erlendan mark-
að skuli skerða aflakvóta um 20% og
andstöðu er lýst við sölu á aflakvót-
um.
Fundurinn lýsti einnig yfir áhyggj-
um sínum vegna þróunar í íslenskri
kaupskipaútgerð og mótmælir harð-
lega „takmarkalausum leigutökum
íslenskra kaupskipaútgerða á erl-
endum kaupskipum sem mönnuð
eru erlendum sjómönnum“ eins og
segir í ályktun fundarins. Ennfremur
sagði að þessi þróun hafi leitt til
fækkunar íslenskra kaupskipa, sem
aftur leiddi til verulegrar fækkunar í
íslenskri farmannastétt.
„Formanna- og sambandsstjórn-
arfundur SSÍ... lýsir áhyggjum sín-
um af aukinni slysatíðni sem orðið
hefur meðal sjómanna undanfarin
ár. Á s.l. 20 árum hefur slysum á sjó
fjölgað verulega. Árið 1966 slösuð-
ust 286 sjómenn við störf sín, en árið
1986 slösuðust 503 sjómenn. Þessi
aukning slysa á sér stað á sama tíma
og veruleg fækkun hefur orðið í
íslenskri sjómannastétt" segir í
ályktun fundarins um öryggismál.
Vill fundurinn aukna fræðslu sjó-
mönnum til handa og skorar á fjár-
veitinganefnd Alþingis að beita sér
fyrir því að verulegu fjármagni verði
veitt á næsta ári til öryggisfræðslu
sjómanna. Ennfremur er fullum
stuðningi lýst við ályktun öryggis-
málaráðstefnu sjómanna, sem hald-
in var í september síðastliðnum um
kaup á fullkominni björgunarþyrlu.
- SÓL
Félag smábátaeigenda á Norðurlandi:
Mótmæla aðför
að lífskjörum
Smábátaeigendur á Norðurlandi
héldu fund í Hótel KEA í vikunni
til að ræða tillögur um kvóta á
smábáta. Fundurinn samþykkti
ályktun, þar sem segir meðal ann-
ars að tillögur sjávarútvegsráðu-
neytisins séu „háskaleg aðför að
lífskjörum smábátaeigenda og at-
vinnulífi víða á landsbyggðinni" og
heitir fundurinn á þingmenn þjóð-
arinnar, sveitasstjórnarmenn, fél-
agasamtök og almenning að „taka
höndum saman og verja lands-
byggðina þeim alvarlegu áföllum
af atvinnuleysi og byggðaröskun
sem augljóslega dynja yfir ef 9.
grein frumvarpsins verður að
lögum.
Sveitarstjórn Raufarhafnar-
hrepps sendi sjávarútvegsráð-
herra, þingmönnum Norðurlands-
kjördæmis eystra, LÍÚ og smá-
bátaeigendum bréf nýverið þar
sem hugmyndum sjávarútvegs-
ráðuneytisins um kvóta á smábáta
er harðlega mótmælt, en má Ijóst
vera „að þær ntunu koma mjög illa
niður á landsbyggðinni og ef af
verður rnun mikil eignaupptaka
eiga sér stað hjá stórum hóp
manna“ segir í bókun sveitar-
stjórnarinnar.
Bæjarstjórn ísafjarðar sam-
þykkti svo ályktun á fundi sínum
um kvóta á úthafsrækjuveiði. Skor-
ar bæjarstjórnin á Alþingi að
tryggja hagsmuni rækjuverksmiðj-
anna við ísafjarðardjúp, ef til þess
komi að kvóti verði settur á úthafs-
rækjuveiði. Feir hagsmunir verða
aðeins tryggöir með nægilegum
kvóta. Rækjuvinnslan er stór þátt-
ur við ísafjarðardjúp, enda eru
elstu og grónustu rækjuverksmiðj-
ur landsins þar saman komnar.
- SÓL
Karólína Lárusdóttir
sýnir í London:
Landslags-
myndir í
stöðugri sókn
Fró fréltaritara Tímans í Lundúnum, David Keys:
Lundúnabúar fengu í vikubyrjun
að berja augum málverkasýningu
íslenska listamannsins Karólínu Lár-
usdóttur, en sýningin, sem saman-
stendur af 30 verkum, var opnuð á
þriðjudag. Karólína, sem er gift
Englendingi, hefur búið á Bretlandi
síðastliðin 20 ár og sækir nú enn
meira í landslagsmyndir en áður.
Nokkrar nýjar myndir af íslensku
landslagi munu verða til sýnis á
sýningunni, sem stendur til 10. des-
ember. Verðin eru margvísleg og
allt upp í 1.200 pund.
Að minnsta kosti 100 gestir mættu
á „kampavínsfrumsýningu" sýning-
arinnar. Karólína sýndi síðast í
Lundúnum fyrir þremur árum.
I Reykjavík selur hún í gegnum
Galleri Borg, en sýning hennar í
Lundúnum er haldin í Gallery Ten í
West End hluta Lundúna.
Stúdentaráð HÍ:
JAFNAN RÉn
TIL MENNTUNAR
Stúdentaráð Háskóla íslands telur
það vera hlutverk Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna, að tryggja jafn-
an rétt allra til menntunar. Til þess
að sjóðurinn fái sinnt þessu hlutverki
sínu, verða námslán að nægja náms-
mönnum til að standa straum af
eðlilegum náms- og framfærslu-
kostnaði. Þetta kemur fram í nýlegri
ályktun stúdentaráðs.
Þá telur stúdentaráð að í dag séu
upphæðir námslána löngu úr takt við
þann kostnað sem námsmenn þurfa
að mæta meðan á námi stendur.
Þetta stafi af því meðal annars að
námslán fylgdu ekki verðlagsþróun í
níu mánuði á síðasta ári.
í ályktuninn fordæmir stúdenta-
ráð afgreiðslu meirihluta stjórnar
Lánasjóðs íslenskra námsmanna á
tillögu frá fulltrúa námsmanna í
stjórn sjóðsins um að gerðar yrðu
nauðsynlegar leiðréttingar á upp-
hæðum námslána, en tillögunni var
vísað frá. Bendir stúdentaráð á að
eitt af hlutverkum stjórnar lána-
sjóðsins sé að tryggja framkvæmd
laganna um sjóðinn og þar með gera
honum kleift að sinna hlutverki
sínu. Stúdentaráð HÍ skorar á
stjórnvöld að viðurkenna nauðsyn
Mesta blóðtakan í MORFÍS,
ræðukeppni framhaldsskólanna á
fslandi, fór fram í lok síðustu viku
þegar fyrsta umferð af fjórum fór
fram. Keppt er með útsláttarfyrir-
komulagi og féllu því átta lið úr
keppni strax, en alls tóku sextán
skólar þátt að þessu sinni.
MORFfS meistararnir frá í fyrra,
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, vann
sigur á Iðnskólanum í Reykjavík,
Menntaskólinn í Reykjavík sigraði
Fjölbrautaskólann í Breiðholti,
Menntaskólinn við Hamrahlíð vann
Fjölbrautaskólann við Ármúla,
þess, að námsmönnum sé tryggð
örugg afkoma meðan á námi
stendur. Að öðrum kosti sé allt tal
um jafnrétti til náms hjóm eitt.
Menntaskólinn á ísafirði sigraði
Menntaskólann á Akureyri, Mennta-
skólinn við Sund hafði sigur yfir
Menntaskólanum í Kópavogi, Versl-
unarskólinn vann Samvinnuskólann
á Bifröst, Flensborgarskóli sigraði
Menntaskólann á Laugarvatni og
loks vann Fjölbrautaskóli Suður-
nesja Fjölbrautaskólann á Sauðár-
króki.
Dregið verður í beinni útvarps-
sendingu sem endranær í lok janúar
en önnur umferð fer fram í fyrstu
viku febrúar á næsta ári.
Þj
I. umferö MORFÍS:
ÁTTA ÚR LEIK
Frístandandi eldavél með blásturs-
ofni og venjulegum. Gerð EK 2034
Glæsileg vél meö 4 hellum,
1 meö termostati,
3 hraösuðuhellur. Höggvarin
emalering. Emaleraðar hliöar.
Sjálfhreinsandi ofn, grill, blástur,
yfir og undirhiti, geymsluskúffa.
íslenskar leiöbeiningar fylgja.
Blomberq
Verð:
kr. 39.950.-
kr. 37.950.- stgr.
Þvottavél gerð VM 818
Stillanlegur hiti 30-90°. Ullar og
gardínuval. Hraöþvottur,
vindustopp. Vinding 400-800
snúningar. Stórt op. Mjög góð
reynsla. íslenskur leiöarvísir.
Blomberq
Verð:
kr. 29.900.-
kr. 28.400.- stgr.
Kæliskápur fyrir minni heimili.
Gerð KS 145/KS 150
143 lítra kælir. Fæsteinnig með
15 lítra frystihólfi.
Mál H85 x B50 x D54.
Blomberq
Verð:
kr. 15.450.-
kr. 14.680.- stgr.
Frystiskápur fyrir minni heimili.
Gerð FS120
113 lítra djúpfrystir. 4 skúffur.
Frystir 14 kg. á sólarhr., lítil
rafmagnseyösla.
Mál H85 x B50 x D54.
Blomberq
Verð:
kr. 25.520.-
kr. 24.245.- stgr.
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 1S995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI