Tíminn - 18.11.1987, Qupperneq 11
10 Tíminn
Miðvikudagur 18. nóvember 1987
Miðvikudagur 18. nóvember 1987
ÍÞRÓTTIR
LEIKVIKA13 Leikir 21. nóvember 1987 Tíminn -Q 2 > Q > *o o !5T Dagur RÚV. Bylgjan C\l *o O 55 Stjarnan
1. Arsenal - Southampton 1 1 1 1 1 1 1 1 1
2. Charlton-Coventry 2 X 2 2 X 1 2 X X
3. Luton-Tottenham 1 2 1 1 2 1 1 1 2
4. Oxford-Watford X 1 1 1 1 1 1 1 2
5. Portsmouth - Everton 2 2 2 2 2 2 2 2 2
6. Q.P.R.-Newcastle 1 1 1 1 1 1 1 1 1
7. West Ham - Nott’m Forest 2 2 2 2 X 2 2 X X
8. Wimbledon-Man. United X X 2 2 1 X 1 2 2
9. Blackburn-Crystal Palace X 1 X X X 1 1 X X
10. Leicester-Bradford X 1 2 2 2 X 2 1 1
11. Man. City-Birmingham 1 1 1 1 1 1 1 1 1
12. Plymouth - Middlesbro 2 1 X 1 X 2 X 1 2
Staðan: 57 66 73 65 67 63 69 63 70
Handknattleikur - kvennalandsliö:
Attatíu lands-
leikir áætlaðir
á fjórum árum
íslenska kvennalandsliðið í hand- tímabili og munu þær leika um 80
knattleik verður á næstu fimm árum landsleiki á þessum tíma. Þá ætlar
byggt upp af ungum stúlkum sem HSÍ að styrkja þátttöku íslands-
munu æfa og keppa saman á þessu meistarakvennaíEvrópukeppninni.
Getraunahaninn
Arsenal-Southampton........1
Lið Arsenal virðist í ótrúlcgu
formi þessa dagana og hefur unn-
ið 10 leiki í röð í deildinni. Einn,
ekki spuming.
Charlton-Coventry ...........2
Hér er það gamla og góða happa
og glappa-aðferðin sem gildir,
botnlið Charlton hefur gengið
illa upp á síðkastið og Coventry
litlu betur.
Luton-Tottenham .......... 1
Tottenham náði ekki nema jafn-
tefii við 10 leikmenn QPR um
síðustu helgi svo þeir hafa ekkert
að gera í Luton á teppinu.
Oxford-Watford ........... X
Ja, nú syrtir í álinn. Það hvíslaði
því að mér lítill fugl að þetta
endaði með markalausu jafntefli.
Portsmouth-Everton........ 2
Þetta er nú svo augljóst að það
hlýtur eiginleg að klikka! Annars
er mér hulin ráðgáta hvað ætti að
koma í veg fyrir sigur Everton.
QPR-Newcastle .............1
Fyrst þeir þurftu ekki einusinni
allir að klára leikinn gegn Totten-
ham þá verður Newcastle engin
fyrirstaða. Nú svo er getraun-
ahaninn „QPR- fan“. Pottþéttur
heimasigur.
West Ham-Nott‘m Forest ... 2
Leikmenn West Ham hafa verið
seigir að ná í jafntefli heima en
Forest er á það góðri ferð að þeir
hljóta að vinna.
Wimbledon-Man. United .... X
Þetta verður jafntefli og ekki orð
um það meir.
Blackbum-Crystal Palace .. X
Æ-i, skelflng getur þessi önnur
deild kvalið mig. Teningurin segir
X.
Leicester-Bradford.........X
Bradford nær ekki nema jafn-
tcfli, það eykur spennuna á
toppnum.
Man.City-Birmingham........1
City er aftur á heimavelli og þó
Birmingham sé ofar í töflunni
dugir það skammt.
Plymouth-Middlesbro........2
Plymouth eru sterkir heima en
ekki nógu sterkir og Middlesbro
kemst nær toppsætinu.
Áætlað er að gera mikið átak í
kvennalandsliðsmálum og hefur í
því sambandi verið ráðinn júgó-
slavneskur þjálfari. Þá hefur verið
samin fimm ára áætlun sem miðar að
uppbyggingu framtíðar landsliðs í
kvennaflokki. Er áætlað að byggja
liðið upp af stúlkum sem nú eru í
þriðja flokki (15-16 ára) og munu
þær væntanlega leika um 80 lands-
leiki á fjórum árum.
Þetta kom fram í máli Jóns Hjalta-
líns Magnússonar formanns HSÍ á
blaðamannafundi á mánudag. Þá
sagði Jón að HSÍ hefði hug á að
styrkja þátttöku kvennaliða í Evr-
ópukeppninni í handknattleik.
Myndi HSÍ þannig borga ferða-
kostnað íslandsmeistara kvenna í 2.
umferð Evrópuképpni meistaraliða.
Hefur sá kostnaður einkum staðið í
vegi fyrir þátttöku kvennaliða í
keppninni fram til þessa. - HÁ
ÍÞRÓTTIR
Atli Hilmarsson skorar hér gegn Pólverjum í landsleik árið 1986 en í þeim leik sigruðu íslendingar
22-19.
Island-Pólland í kvöld
íslenska landsliðið í handknattleik mætir
Pólverjum í Laugardalshöll í kvöld og hefst
leikurinn kl. 20.30. Á eftir, kl. 22.00, leika 21-
árs lið íslands og Portúgalir. Leikur A-lands-
Iiðsins er sá fyrsti af flmm á jafn mörgum
dögum, aftur verður leikið gegn Pólverjum í
Laugardalshöll annað kvöld og síðan haldið
norður fyrir heiðar á Fjögurra þjóða mót
KEA.
Lið íslands og Póllands mættust síðast á
Eystrasaltsmótinu í janúar og sigruðu íslend-
ingar þá 29-28.
Handknattleikur - Supercup:
Júgóslavar steinlágu
Keppni hófst í gærkvöldi á Super-
cup í handknattleik í V-Þýskalandi.
Á mótinu keppa þau lið sem orðið
hafa heims- eða ólympíumeistarar
og er mótið haldið annaðhvert ár.
A-Þjóðverjar og Sovétmenn unnu
stóra sigra í sínum leikjum gegn
Júgóslövum og Rúmenum en úrslitin
urðu annars þessi:
A-riðUl:
Ungverjaland-Svíþjód........... 22-21
V-Þýskaland-Tékkóslóvakía 17-15
V-Þýskaland . 1 100 17-15 2
Ungverjaland . 1 1 0 0 22-21 2
Svíþjóð . 1 0 0 1 21-22 0
Tókkóslóvakia . 1 0 0 1 15-17 0
B-riðill:
A-Þýskaland-Júgóslavía 26-17
Sovótrikin-Rúmenía . . . 28-20
A-Þýskaland . 1 1 0 0 26-17 2
Sovétríkin . 1 1 0 0 28-20 2
Rúmenía . 1 0 0 1 20-28 0
Júgóslavía . 1 0 0 1 17-26 0 -HÁ/Reuter
íslandsmótið í blaki:
Þróttarsigur
Þróttarar úr Reykjavík sigruðu
Framara 3-2 (15-10, 10-15, 15-8,
13-15, 15-0) í hörkuleik í 1. deild
karla á íslandsmótinu í blaki í Voga-
skóla í gærkvöldi. Bæði lið léku vel
lengst af en í síðustu hrinunni var
Frömurum öllum lokið og endaði
hún 15-0 á aðeins níu mínútum.
Leifur Harðarson var bestur
Þróttara en Jón Árnason og Lárent-
sínus Ágústsson áttu einnig ágætan
leik. Hjá Fram bar mest á þeim Ólafi
Árna Traustasyni og Kristjáni Má
Unnarssyni en Hilmar Stefánsson,
ungur leikmaður, kom á óvart fyrir
góðan leik. -HÁ
Enski deildabikarinn
Leikið var í 4. umferð enska
deildabikarsins í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Manchester City hélt merki
2. deildar á lofti með því að slá
Watford út, 3-0, en annars voru það
1. deildarliðin sem stóðu uppi sem
sigurvegarar. Arsenal vann Stoke
3-0 þrátt fyrir að misnota tvær víta-
spyrnur en Everton þurfti mun meira
að hafa fyrir 2-1 sigri á Oldham.
Oldham náði forystunni og það var
ekki fyrr en á 55. mín sem Dave
Watson jafnaði fyrir Everton. Neil
Adams íjjargaði svo andliti ensku
meistaranna með marki fjórum mín-
útum fyrir leikslok eftir að Andy
Gorton hafði lengi vel lokað marki
Oldham. Þá sigraði Luton Ipswich
1-0. -HÁ/Reuter
Tíminn 11
Glíman stígur á
alþjóðavettvang
Forsvarsmenn glímuíþróttar-
innar hafa unnið hart að því að
undanförnu að auka veg þessara
merku fangbragða. íþróttin hefur
verið kynnt í skólum, nú síðast
sunnanlands, og Glímusamband-
ið er um þessar mundir að gerast
aðili að alþjóðasambandi um
þjóðleg fangbrögð.
Alþjóðasamband þetta lætur
sig keltnesk fangbrögð skipta en
þau hafa borist víða og reyndar er
skyldleiki með þeim og íslensku
glímunni.
Helstu keltnesku fangbrögðin
eru axlartök, sem eru iðkuð í
Skotlandi og Norður-Englandi,
bretonsk lausatök og glíma kennd
við suðurhéruð Englands, Devon
og Cornwall. Skyldleiki þessara
fangbragða við íslensku glímuna
er nokkur t.d. bendir margt til
þess að glíman hafí fyrst verið
iðkdð með axlartökum hér á
landi.
Fyrsti opinberi landsliðshópur
glímumanna fer út í vikunni til
Glasgow til að keppa í fang-
bragðamóti og þá mun Glímu-
sambandið formlega gerast aðili
að alþjóðasambandinu áður-
nefnda. Gh'mumenn okkar keppa
í lausatökum. Þeir eru Garðar
Vilhjálmsson sem keppir í +100
kg. flokki, Pétur Ingvason sem
keppir í 90-100 kg. flokki, Árni
Unnsteinsson í 80-90 kg. flokki og
Arngeir Friðriksson í 68-74 kg.
flokki.
Glímumenn hafa að undan-
förnu verið að kynna íþróttina í
skólum á Suðurlandi og hefur það
gengið vonum framar. Farið var í
32 skóla og fengu um þrjú þúsund
nemendur nasasjón af þjóðar-
íþróttinni. í kjölfar þessa hafa
verið teknar upp æflngar á Flúð-
um og nú er verið að fara í gang
með æfingar í Vestmannaeyjum.
Námskeið fyrir leiðbeinendur í
glímu verður svo haldið á Selfossi
í lok nóvembermánaðar. hb
Rjóma/jarðar-
berjaskyr
minnir á sunnudag í
sveitinni.
Jógúrt með
brómberjum og
hindberjum
Berjabragðið er betra
þegar maður
sleppur við
bakverkinn af
tínslunni.
S unn udagsjógúrt
með banönum og
kókos
Pað liggur við að
maður drífi sig í
sólfötin.
Pegarmjólkin ermeð er rrdkið fengið.
Dalafrauð
Súkkulaðifrauð Jafnvel rödd
Svona mál þaif ekki morgunhanans
að bíða nammidags. verður að „fagurgali“. Léttur sýrður rjómi