Tíminn - 11.12.1987, Qupperneq 5

Tíminn - 11.12.1987, Qupperneq 5
Föstudagur 11. desember 1987 Tíminn 5 Bókatitlum fjölgar og eintökum einnig í stórum dráttum hefur bókasala verið að aukast gífurlega síðustu áratugi og síðustu árin hafa útgefendur ráðist í mun stærri og viðameiri útgáfur en nokkurn gat órað fyrir. Nú eru gefnir út hart nær 400 titlar og margir þeirra eru vandaðar og þar með dýrar bækur. Á sjötta áratugnum, þegar sjónvarpið hóf göngu sína, voru gefnir út um 150-200 titlar, eða helmingi færri en nú. „Það var ekki fyrr en haustið 1940 að bækur fóru að seljast á Islandi og það er vegna þess að þá hafði almenningur fyrstu ráðstöfunarpen- inga sína undir höndum eftir fyrsta Bretavinnusumarið," sagði Valdi- mar Jóhannsson, bókaútgefandi, er Tíminn bað hann að líta með sér yfir þróun bókaútgáfu á íslandi. í gróf- um dráttum virðist hún hafa orðið þannig að hún vex mjög hratt fram undir 1951. Þá verður “bókaslys“ og bókasala brást algerlega. „Þá fóru menn mjög varlega næstu árin á eftir. Síðar á sjötta áratugnum voru menn svo farnir að ná að gefa út um 150-200 titla á ári. Þá var góð sala bókar miðuð við 2-4000 eintök og það hefur ekkert breyst. Það er ennþá gott að selja bók í 2000 eintökum og afbragðsgott að þær seljist í 4-5000 eintökum." í aðalat- riðum virðist titlum hafa fjölgað Mun meira er nú um bækur sem seljast afburða vel, eða allt upp í 8000 eintök. jafnt og þétt fram undir 1982-3. Þá er almennt talið að hún hafi náð algjöru hámarki með útgáfu um 5-600 titla. En nokkrar eftirtektarverðar grundvallarbreytingar er nú talað um í útgáfumálum. Nú er ekki óalgengt að titlar seljist ekki neitt. Nefndi Valdimar í því sambandi að það hafi komið fyrir að bækur seljist niður í 70 eintök og ekki sé óalgengt að þær seljist ekki nema f 150-160 eintökum. Á hinn bóginn er líka orðið mun algengara að bækur seljist afburða vel. Áður hafi það ekki verið nema ein og ein bók. Nú séu það alltaf fáeinar á hverju ári. Mesta sala sem búast má við er talin vera hátt í 8000 eintök, en slíkt hafi ekki þekkst nema í seinni tíð. En það fjölgar ekki bara titlum sem gefnir eru út á íslandi. Vegleg- um bókum hefur fjölgað verulega og nú eru að koma út bækur sem ekki þýddi að tala um að gefa út fyrir aðeins áratug síðan. Þar fyrir utan er einnig því við að bæta að gífurleg aukning hefur orðið á útgáfu svokall- aðra pappírskilja. Þannig er hægt að segja að útgáfumál okkar séu að taka sífelldum framförum og að fjölbreytni sé stöðugt að aukast á sama tíma og útvarps- og sjónvarps- stöðvum fjölgar. Ekki virðist því staðan ætla að verða önnur en sú að bókunum vaxi ásmegin á mynd- bandaöld. KB íslenskar kartöflur í norskum kjörbúðum Um síðustu helgi fór reynslusending af nýjum, íslenskum kartöflum áleiðis til Noregs og er búist við að þessar kartöflur' verði á matborðum norskra neytenda í næstu viku. Þessi sending kemur í framhaldi af könnun markaðssviðs Búnaðarbankans á möguleikum þess að selja 10.000 tonna umframbirgðir kartaflna eftir dæmalausa uppskeru hér á landi í haust. Það voru samtök kartöflubænda sem óskuðu eftir því að Búnaðarbankinn gerði þessa könnum. Sendinefnd frá fslandi fór til Osló í lok nóvember, en í forsvari fyrir henni var Heimir Hannesson, frkvstj. markaðssviðs Búnaðar- bankans, og ræddi við norska fram- leiðslu- og sölufyrirtækið Gartner- hallen, sem er öflugasta fyrirtækið í Noregi á sviði jarðávaxta. Niður- staða þessa fundar í Osló var sú að undirritað var rammasamkomulag þar sem fram kom að Norðmenn væru tilbúnir að kaupa allar fyrir- liggjandi umframbirgðir af íslensk- um kartöflum ef þær fengjust á verði sem væri nálægt markaðs- verði og ef þær stæðust ákveðnar gæðakröfur. Fyrst vildu Norð- mennirnir kaupa 12-15 tonn til reynslu á neytendamarkaði í Osló, og er það sendingin sem fór út nú um helgina. Líki kartöflurnar verða gerðir endanlegir samningar um verð fyrir þennan útflutning. Markaðsverð í Noregi er nú um 1,50-2,00 n.kr., en er breytilegt eftir framboði og gæðum eða sem svarar til um 8,50-11,50 fsl. kr. Það er mun lægra verð en bændur hafa fengið á innanlandsmarkaði. Hér gæti því verið um að ræða sölu upp á allt að 100 milljónir eftir því hversu mikið magn semdist um. Kartöflubirgðir í Noregi munu nú vera á þrotum, en þar var upp- skerubresturí haust. Samtök kartöflubænda munu samkvæmt heimildum Tímans þeg- ar hafa tekið óformlega ákvörðun um innbyrðis verðjöfnun ef það mætti verða til þess að stuðla frekar að því að af þessum útflutn- ingi gæti orðið. Auk þess mun hugmyndin vera sú að fá stjórnvöld til að koma til liðs við þá í þessum útflutningi hugsanlega með því að fá Framleiðnisjóð til að taka þátt í flutningskostnaði. Sá þáttur mun þó enn ófrágenginn, en viðræður hafa átt sér stað. Lúðvík Geirsson, formaður B.Í.: Hátíðin verður hin veglegasta Nú fer að styttast í eitt veglegasta afmælisball í síðari tima sögu Blaða- mannafélags íslands. Það eru um þessar mundir liðin ein 90 ár frá því að félagið var stofnað í salarkynnum Hótels íslands, eins og vel ætti að vera kunnugt, og því er við hæfi að haldið verði upp á tímamótin í samnefndu húsi, sem verið er að ljúka byggingu á fyrir viðburðinn. Formaður B.I., Lúðvík Geirsson, hefur haft veg og vanda af undirbún- ingi þessarar miklu hátíðar ásamt félögum úr stjórninni og því var einni brennandi spurningu beint til hans, er hann leit inn á Tímann: „Verða pressuböllin skrautlegu endurvakin?" Lúðvík: „Ekki veit ég það, en hitt er ljóst að þetta verður mikil hátíð og mikið í hana lagt. Þó hefur þess verið gætt að atriðin komi flestöll frá blaðamönnum sjálfum." Rakti hann síðan ítarlega dagskrá hátíðarinnar og vildi fyrir allan mun hvetja menn til að fjölmenna. Sagði hann að samkomulag hafi orðið um að gefa öðrum en starfandi blaðamönnum kost á að komast yfir miða. Nefndi hann einkum þá til er fyrrum á ferli sínum hafi hrærst í heimi blaðanna. Þeir og aðrir sem telja sig tengda pressunni á einhvern hátt geta því nálgast miða á skrif- stofu félagsins á kristilegum tíma - á meðan sætin endast. KB Andvari 1987 Andvari, tímarit Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélags- ins, er kominn út. Að þessu sinni er aðalgrein Andvara æviágrip Ólafs Jóhannessonar (1913-1984) fyrrum forsætisráðherra og formanns Fram- sóknarflokksins. Greinina ritar Ingvar Gíslason ritstjóri og fyrrum menntamálaráðherra. Annað efni ritsins rita m.a. Þuríð- ur Guðmundsdóttir, Ástráður Ey- steinsson og Baldur Óskarsson. Þá ritar Helgi Skúli Kjartansson um Jónas frá Hriflu og upphaf Fram- sóknarflokksins. Ritstjóri Andvara er Gunnar Ste- fánsson bókmenntafræðingur. Þetta er 112. árgangur ritsins sem er að Aðalgrein Andvara er að þessu sinni æviágrip Ólafs Jóhannessonar fyrr- um forsætisróðherra. þessu sinni 171 blaðsíða að stærð, prentað í Prenthúsinu. Kristinn Vigfússon staöarsmiður Guðmundur Kristinsson ritar fyrir Árnesútgáfuna: Kristinn Vigfús- sonstaðarsmiður Út er komin bókin „Kristinn Vigfússon staðarsmiður". Bókina gefur út Árnesútgáfan á Selfossi en það er Guðmundur Kristins- son sem ritar hér endurminningar föður síns. f bókinni segir frá ævi og starfi Kristins Vigfússonar húsasmiðs á Selfossi. „Hann hlaut í vöggugjöf hagleiksgáfu og mikið vinnuþrek og lagði víða hönd að verki á Suðurlandi og út um land. Hann vann við smíði Rangár- brúar 1912 og reisti fyrstu húsin í Hveragerði, Mjólkurbúið og Fundahúsið. Á endurreisnartíma Þorlákshafnar var hann þar við ýmsar smíðar, stækkun Norður- vararbryggju og upphaf Suður- vararbryggju. Hann var mikil- virkasti húsasmiður á Selfossi í 30 ár. Á yngri árum réri hann 17 vertíðir á Eyrarbakka og í Þor- lákshöfn, þar af 13 sem formaður og dregur hér upp glögga mynd af sjósókn þess tíma.“ segir á bókarkápu. Bókinn er skipt í tíu megin- kafla. Hún er ríkulega skreytt myndum af samferðamönnum, húsum, mannvirkjum ogþjóðlffs- myndum. Henni fylgir nafnaskrá 630 manna, sem við sögu koma.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.