Tíminn - 11.12.1987, Blaðsíða 19
Föstudagur 11. desember 1987
Tíminn 19
Var
þetta
allt
og
sumt?
Hjónin Bob Geldof og Paula
Yates eru nú skilin að skiptum og
dóttirin Fifi býr hjá móður sinni.
Þegar þau loks giftu sig ekki alls
fyrir löngu, eftir langa.sambúð, tók
allt að ganga á afturfótunum. Bob
og Paula voru 17 og 18 ára, þegar
þau kynntust fyrst. Sitt af hverju
hefur gerst síðan, einna merkast
„Live Aid“ hljómleikarnir, sem
Bob stóð fyrir á sínum tíma og
varð heimsfrægur fyrir vikið.
Frægðin hefur sínar skuggahlið-
MarieOsmond ogslúðrið
Bálreið yfir alls kyns skýrslum
um ástalíf sitt, hefur söngfuglinn
Marie Osmond, sem er nýlega
skilin, skýrt frá sannleikanum í
blaðaviðtali.
- Ég þarf alls ekki á karlmanni
að halda eins og er, fullyrðir hún.
- Síðan ég skildi, fyrir nokkrum
mánuðum, er eins og allir vilji
endilega tengja mig einhverjum
ákveðnum manni. Engir tveir
nefna þann sama til sögunnar. Nú
er ég orðin þreytt á þessu og leysi
hér með frá skjóðunni um ástalíf
mitt til að hreinsa til í slúðurfrum-
skóginum.
Marie, sem er 26 ára, reiddist að
vonum, þegar haft var fyrir satt á
prenti nýlega, að hún ætti ástar-
samband við atvinnuknattspyrnu-
manninn og mormónann Steve Yo-
ung, sem leikur í Tampa í Flórida.
- Ég er fokill og vil binda enda
á svona kjaftæði,segir Marie. - Ég
er hvorki með Steve Young né
nokkrum öðrum manni. Mér
gremst að fólk skuli fá af sér að
skrifa svona endaleysu um mig.
Aðeins nokkrum vikum áður las ég
að ég hugsaði alvarlega um leikar-
ann John Schneider, gamlan vin
minn sem veitir stundum af dýr-
mætum tíma sínum til að hjálpa
mér við að safna fé fyrir barna-
sjúkrahús.
Hvað Steve Young varðar, hafa
fjölskyldur okkar verið vinir í ára-
raðir og tveir bræður mínir nánir
vinir hans. Fyrir mánuði eða svo
var ég með gesti og Steve kom þar.
Við fórum öll út að borða og síðan
í keilu. Það var allt og sumt og svo
les maður svona lagað.
Ég hef hvorki séð Steve né talað
við hannsíðan, veit eiginlega ekki,
hvort við erum sérstakir vinir. Satt
að segja skil ég ekki, hvernig svona
kjaftasögur komast af stað, en nú
vil ég vísa þeim á bug í eitt skipti
fyrir öll.
Marie hefur haft sitthvað fyrir
stafni, síðan hún skildi við mann
sinn, Steve Craig, en hún skilur
ekkert í, hvað fólki finnst liggja á
að hún finni sér nýjan lífsförunaut.
- Það hvarflar ekki einu sinni að
mér, svona fljótt eftir skilnaðinn,
segir hún. - Mig langar síst til þess
núna að vera í föstu sambandi. Ég
hef allt sem ég þarfnast og var að
ljúka við plötu. Ég er að leita mér
að húsi í Nashville og fer bráðlega
í hljómleikaferð. Ég hef son minn
og fjölskylduna.
Ég segi ekki að ég sé á móti
karlmönnum, aðeins að ég þurfi
ekki á slíkum að halda um þessar
mundir. Ef sá rétti skyldi skyndi-
lega birtast á sjónarsviðinu, vissi
ég það og óttaðist ekki að bindast
honum. Væri ég svo heppin að
þykja verulega vænt um hann,
myndiéghrópa það af húsþökum.
Marie brosir og bætir við: - Ef
einhver alveg sérstakur yrði á vegi
mínum, yrði ég sælasta kona á
jarðríki. Ef það gerist, læt ég alla
vita af því og sé um að það birtist
í réttum blöðum.
Bob Geldof ásamt nokkrum ung-
um fulltrúum Band Aid.
ar og það varð Paulu nokkuð áfall,
þegar ung gengilbeina skýrði frá
því opinberlega, að hún hefði stað-
ið í ástarsambandi við Bob í eina
þrjá mánuði. Þrátt fyrir að Bob
sverji að stúlkutetrið sé aðeins að
vekja athygli á sjálfri sér með
þessari staðhæfingu, pakkaði Paula
saman og fór frá honum.
Nú er komin á markaðinn bók
eftir Bob, sem heitir „Var þetta allt
og sumt?“ Kannske von að hann
spyrji.
Lengi vel voru menn sannfærðir
um að Ivan Lendl, hinn 27 ára
tékkneski tennismeistari gæti
hreint ekki brosað, hvað þá hlegið.
En svo gerðist kraftaverk og nú
brosir hann og hlær við öllum
heiminum bæði í austri og vestri.
Kraftaverkið kom í mynd hinnar
það er önnur ástæða til þess að ég
hef verið svo lokaður, bætir hann
við. - Pað var allt annað en auðvelt
að koma til Bandaríkjanna. Allir
hlutir voru öðruvísi en í Tékkó-
slóvakíu, tungumálið, tæknin og
fólkið. Þetta var hreinasta áfall.
Nú líður Lendl öllu betur fyrir
handan og hann hefur áttað sig á
að brosandi, glaður og opinskár
Lendl er betri markaðsvara en
kuldalegt vélmenni að austan. Sú
sem á drjúgan þátt í að Lendl þorir
nú að sýna á sér betri hliðina er
Samantha. Hún er alltaf meðal
áhorfenda og fylgir unnustanum á
keppnisferðalögum hans um heim-
inn.
Samantha veit nákvæmlega hvað
hún á að leggja að mörkum til að
lvan geri sitt besta með tennisspað-
anum og hún léttir honum hið
leiðinlega hótellíf, sem óneitanlega
fylgir.
Annars líkar Ivan best heima
hjá Samönthu og hundunum sex,
en heima er glæsihýsi í Greenwich
í Connecticut. - Það besta við
hundana er að þeint er alveg
sama, hvort ég sigra eða tapa
segir Ivan og hlær glaðlega. Hann
slakar gjarnan á við bílana sína eða
golfkylfurnar.
í bílskúrnum eru fimm hrað-
skreiðar glæsikerrur, sem hann
hefur orðið sér úti um til að láta
æskudraumana rætast.
- Við gátum ekki einu sinni
leyft okkur að tala um svona lagað
heima í Ostrava, segir Ivan Lendl,
sem árlega fær tugmilljónir fyrir
tennisleikinn. Varla nema skiljan-
legt, að hann fái sér einn og einn
bíl, þegar hann langar til.
- Ég skil alls ekki að konum
skuli enn finnast Paul kynþokka-
fullur. Hann er 61 árs, fimm barna
faðir og hrýtur á næturnar, segir
Joanne Woodward. Hún hefur ver-
ið gift Paul Newman í 28 ár, en
fullyrðir að þau séu engin sérstök
fyrirmyndarhjón þess vegna, - það
er þreytandi að bera þennan stimp-
il og þetta hljómar líka, eins og við
séum hundleiðinleg, en það erum
við alls ekki, segir Joanne.
Sjálf er hún 57 ára og nú eru liðin
30 ár sfðan hún fékk Oscarsverð-
laun fyrir leik sinn í myndinni
„Þrjár ásjónur Evu“. Hún er skap-
gerðarleikkona og hefur raunar
starfað með eiginmanninum við
margar mynda sinna, þegar hann
leikstýrir.
Paul og Joanne eiga þrjár dætur
19 ára gömlu Samönthu Frankel.
Ivan Lendl er talinn einn besti
tennisleikari heims og einn hinna
mest misskildu af stórstjörnunum.
Hann hefur lagt hart að sér á
vellinum til að vinna hylli áhorf-
enda, en iðulega verið baulaður
niður fyrir leiðinlegan leikstíl.
- Ég leik til vinnings og það er
ekki hægt að vera eftirlæti áhorf-
enda jafnframt, segir Lendl. - En
saman, 21, 25 og 27 ára og fjöl-
skyldan eyðir miklum tíma saman
í stórkostlegu húsi sínu, sem er frá
1700 og eitthvað og úti í sveit í
Connecticut.
- Frami minni hefur liðið vegna
barnanna og þau aftur vegna hans,
segir Joanne. - Ég hef ekki getað
verið bæði góð leikkona og móðir,
svo ef ég mætti velja aftur, myndi
ég einbeita mér að öðru hvoru.
Joanne og Paul eiga mjög fátt
sameiginlegt, en hafa gert
samning. Hún fer með honum á
kappakstur einu einni í mánuði,
gegn því að hann fari aftur með
henni á ballettsýningu eða í óper-
una. Þó hafa þau bæði áhuga á
félags- og stjórnmálum og eftir að
Scott, sonur Pauls frá fyrra hjóna-
bandi lést af ofneyslu áfengis og
lyfja, hafa þau unnið mikið starf til
hjálpar ungu fólki. Þess má geta,
að allur ágóði af sölu Newmans
salatsósu, tómatsósu og^ ör-
bylgjupoppkorns, sem fæst í mörg-
um verslunum á íslandi líka, renn-
ur til styrktar ungu fólki í vanda.
Joanne Woodward hefur verið
gift Paul Newman í 28 ár . -
Við eigum nær ekkert sameig-
inlegt, en björgumst ágætlega,
þrátt fyrir það.