Fréttablaðið - 23.02.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.02.2009, Blaðsíða 4
4 23. febrúar 2009 MÁNUDAGUR Er mataræðið óreglulegt? LGG+ er fyrirbyggjandi vörn! Skyndibitafæði, sætindi, óreglulegar máltíðir – allt þetta dregur úr innri styrk, veldur þróttleysi, kemur meltingunni úr lagi og stuðlar að vanlíðan. Regluleg neysla LGG+ vinnur gegn þessum áhrifum og flýtir fyrir því að jafnvægi náist á ný. Dagleg neysla þess tryggir fulla virkni. H V Í T A H Ú S IÐ / S ÍA VIÐSKIPTI Ástralski fjárfestirinn Steve Cosser, sem vill kaupa útgáfufélag Morgunblaðsins, fund- aði með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stærsta hluthafa 365 miðla, og for- stjóra félagsins í gær. Á fundinum var rætt um möguleika á samstarfi á sviði prentunar og dreifingar. Cosser er annar tveggja aðila sem nú keppast um að fá að kaupa Árvakur, útgáfufélag Morgun- blaðsins. Hann hafði áhuga á að fara yfir samninga um prentun og dreifingu sem gerðir voru milli Árvakurs og 365 miðla, útgáfu- félags Fréttablaðsins, segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Samkeppniseftirlitið setti ströng skilyrði fyrir slíku samstarfi, meðal annars um stjórnunarlegan aðskilnað og fleiri atriði. Ari segir að þau skilyrði hefðu þýtt að hag- ræði af samstarfinu yrði of lítið, og því varð ekkert úr samstarfinu í bili. Ari segir Cosser tvímælalaust opinn fyrir samstarfi, fái hann að kaupa Árvakur. Forsvarsmenn 365 miðla séu einnig afar áhugasamir um slíka samvinnu. Við blasi að rekstrargrundvöllur blaðaútgáfu sé svo erfiður að full þörf sé á að reyna að hagræða eins og hægt sé í rekstrinum. Ari segir að ekki hafi verið fund- að með Óskari Magnússyni, sem fer fyrir hinum hópnum sem vill eignast Morgunblaðið, um mögu- legt samstarf. Óskar þekki vænt- anlega skilyrði Samkeppniseftir- litsins ágætlega. - bj Stjórnendur 365 miðla funduðu með mögulegum kaupanda Morgunblaðsins: Ræddu mögulegt samstarf SAMSTARF Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir fulla þörf á að hagræða í blaðaútgáfu þar sem rekstrargrundvöllur sé afar erfiður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 16° 9° 2° 4° 8° 3° 0° 3° 3° 19° 10° 16° 4° 20° 2° 9° 16° 0° Á MORGUN Víða allhvasst síðdegis. MIÐVIKUDAGUR Stíf norðaustlæg átt. 5 0 -3 -2 -4 -2 -2 2 2 6 8 9 15 10 6 8 6 8 6 15 13 -2 -1 0 3 5 -2 -3 -4 2 -1 LÆGÐAGANGUR Á eftir lægðinni sem er við landið í dag kemur önnur heldur krappari og útlit fyrir áfram- haldandi úrkoma á öllu landinu á morgun. Það mun hvessa síðdegis á morgun og á miðvikudag verður allhvöss norð- austanátt ríkjandi. Veður verður því ekki mjög skaplegt þessa vikuna. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður STJÓRNMÁL „Ég held að þetta sé misskilningur og víst er að hann á engum að mæta nema vinum, að minnsta kosti í þeim hópi Sam- fylkingarinnar sem ég tilheyri. Þar hefur enginn maður nema gott til hans lagt,“ segir Össur Skarphéðinsson. Sigmundur Davíð Gunnlaugssonar, formaður Fram- sóknarflokksins, hefur sakað Samfylkinguna um rógsherferð gegn sér. „Hann er kominn af slíkum Strandamönnum, til að mynda Magnúsi hreppstjóra á Hróbergi, langafa hans, sem lét klípa af sér löngutöngina þegar hann fékk mein í hana. Þeir sem eiga rætur að rekja til slíks karlmennis eiga ekki að kveinka sér þótt einhverjir strákar híi á þá á vefsíðum.“ - kóp Össur Skarphéðinsson: Allir leggja gott til Sigmundar MISSKILNINGUR Össur segir misskilning hjá Sigmundi Davíð að Samfylkingin standi fyrir rógsherferð gegn honum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Slökkt í bálkesti í miðborg Slökkvilið slökkti í bálkesti sem hópur háskólanema tengdur svokölluðum byltingarhópi háskólanema, Öskra, kveikti á Lækjartorgi á laugardags- kvöld. Að sögn lögreglu voru um 20 manns við eldinn, en samkoman leystist upp eftir að hann var slökktur. LÖGREGLUMÁL Nærri 150 ekið of hratt Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði tæplega 150 ökumenn fyrir of hraðan akstur yfir helgina. Flestir mældust á 115 til 125 kílómetra hraða. SAMFÉLAGSMÁL Nú í kreppunni hefur áhugi fólks á því að búa á landsbyggðinni stóraukist og nú þegar fjölgar ungu fólki í nokkr- um byggðum þar sem slíku hefur ekki verið að fagna í áraraðir. Þetta segja Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæj- ar, Ólafur Hr. Sigurðsson, starfs- bróðir hans frá Seyðisfirði, og Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Öryggi og fjölskylduvænt sam- félag er eitt það helsta sem fólkið leitar eftir, segja þeir, auk þess sem margir vilja snúa baki við þeim gildum sem ráðið hafa ríkj- um á suðvesturhorninu. „Ég held að það felist ákveð- in tækifæri fyrir fólk í því und- arlega umhverfi sem við búum við einmitt núna,“ segir Ómar Már. „Og það felst í því að hér [á landsbyggðinni] eru mannlífs- og atvinnulífshættir reistir á betri grunni heldur en það sem hefur verið að byggjast upp á svoköll- uðum þenslusvæðum.“ En ekki geta allir sem vilja flust út á landsbyggðina; Ell- iði segir fjölmarga sitja í átt- hagafjötrum í borginni. „Fólkið hefur elt fjármagnið og atvinn- una sem öll hefur verið á höf- uðborgarsvæðinu en nú þegar bólan er sprungin situr það uppi með ofurskuldsetta eign svo að það er í raun í átthagafjötrum í borginni.“ Ómar segir að ríkið þurfi að styðja betur við bakið á sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum á landsbyggðinni. „Við höfum heyrt mikla umræðu um nýsköpun en því miður virðast orð og æði ekki fara þar saman,“ segir hann. Elliði og Ólafur hafa hins vegar hug á öðruvísi stuðningi. „Veiga- mesti stuðningurinn sem við gætum fengið frá ríkinu væri að fá frið til að byggja upp okkar atvinnuvegi án þess að eiga það sífellt á hættu að fótunum verði kippt undan því,“ segir Elliði. „Það er óþolandi að vinna í sjávar útvegi þegar sífellt er verið að ögra þeim forsendum sem fyrir honum eru.“ Á hann þá meðal annars við umræður um eignarupptöku á kvóta og veiðileyfagjöldum. „Stundum er aðgerðarleysi af hálfu ríkisins það skásta,“ segir Ólafur. „Það sést vel á fyrirtækj- um sem eru alfarið í eigu ríkis- ins, eins og RARIK og Pósturinn. Þar gilda græðgissjónarmið sem reytt hafa af landsbyggðinni út í það óendanlega í nafni óeðlilega mikillar arðsemi. En það sjá allir hvernig þess háttar græðgi hefur reynst þjóðinni.“ jse@frettabladid.is Segir fólk í átthaga- fjötrum í borginni Áhugi fólks á að flytja út á landsbyggðina eykst, segja forráðamenn þriggja sveitarfélaga. Fólkið hefur elt vinnu og fjármagn á þenslusvæðin og sitja nú margir þar í átthagafjötrum, segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. SÚÐAVÍKURHREPPUR Meðal nýsköpunarfyrirtækja og verkefna í hreppnum eru sjóstang- veiðifyrirtæki, katta- og hundamat- arverksmiðja, pokabeituverksmiðja og sala á niðursoðinni þorsklifur. SEYÐISFJÖRÐUR Á sex mánuðum hefur leikskóla- börnum á Seyðisfirði fjölgað úr 25 í 43. Könnun Capacent leiddi í ljós að 40% bæjarbúa á aldrinum 20 til 65 ára hafa háskólapróf eða sambæri- legt próf. ELLIÐI VIGNISSON Bæjarstjórinn var á fundi með útgerðarmönnum í Vestmanna- eyjum í gær. Hann segir að stjórnvöld gerðu vel ef þau hættu að ögra stöðugleik- anum í sjávarútvegi. MYND/ÓSKAR FRIÐRIKSSON GRIKKLAND, AP Sómalskir sjóræn- ingjar rændu í gær grísku flutn- ingaskipi með vopnavaldi. Skipið var á siglingu um Aden-flóa á leið til Slóveníu með kolafarm. Skipið var í eigu grísks fyrir- tækis, en skráð á Möltu. Alls voru 22 í áhöfn skipsins. Breskt her- skip var skammt undan þegar skipið var tekið, en þar sem sjó- ræningjarnir höfðu náð skipinu á sitt vald þegar þyrla frá skipinu kom á vettvang aðhafðist áhöfn herskipsins ekki frekar. Mikil skipaumferð er um Aden- flóa við Sómalíu. Sjóræningjar réðust á sex skip í síðustu viku, en öll komust undan. - bj Sómalskir sjóræningjar: Rændu grísku flutningaskipi DEILUMÁL „Það er undarlegt ef menn telja sig geta hent verðmæt- um,“ segir Þórður Vormsson, fyrr- um grásleppu- sjómaður. Hann krefur nú sveit- ar stjórn Voga á Vatnsleysu- strönd um 82 þúsund þar sem bærinn fleygði 41 grásleppu- neti hans þegar hreinsunarátak fór fram síð- sumars. Netin voru í körum utan við atvinnuhúsnæði á staðnum. „Ég hef farið yfir þetta með Þórði en málið er að það var haft samráð við hann áður en netin voru tekin,“ segir Róbert Ragnars- son bæjarstjóri. Þar ber þeim ekki saman og segist Þórður ætla að setja lögfræðing í málið. „Ég var búinn að selja netin fyrir 82 þús- und krónur og kaupandinn ætlaði að sækja þau en tveimur dögum áður var þeim fleygt.“ - jse Deila um netfæri í Vogum: Grásleppunetin fóru á haugana ÞÓRÐUR VORMSSON FJÖLMIÐLAR Þóra Kristín Ásgeir- dóttir, blaðamaður hjá mbl.is, var valin blaðamaður ársins 2008, af Blaðamannafélagi Íslands. Verð- launin hlaut Þóra fyrir vandaðar fréttir og frumlega nálgun. Umfjöllun Sigurjóns M. Egils- sonar, um íslenskt efnahagslíf í Mannlífi og DV, þótti besta rann- sóknarblaðamennska. Þá hlutu Ragnar Axelsson og Önundur Páll Ragnarsson verðlaun fyrir bestu umfjöllun ársins, um virkjana- kosti í Morgunblaðinu. Brjánn Jónasson, blaðamaður Frétta- blaðsins, hlaut tilnefningu í þeim flokki, fyrir greinar um framboð Íslands til Öryggisráðs SÞ. - kóp Blaðamannaverðlaunin: Þóra valin besti blaðamaðurinn GENGIÐ 20.02.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 177,7134 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,70 114,24 162,27 163,05 143,3 144,10 19,232 19,344 16,414 16,51 12,974 13,050 1,2078 1,2148 167,42 168,42 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.