Fréttablaðið - 23.02.2009, Blaðsíða 26
18 23. febrúar 2009 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
Skotland -
Ísland
Úrval Útsýn stendur fyrir ferð á stórleik Skota og
Íslendinga á Hampden Park í Glasgow 1. apríl nk. Um er
að ræða beint leiguflug til Glasgow, einnar náttar gistingu
á Jurys Inn í miðborginni. Rútuferðir til og frá flugvelli,
sem og rútuferð á leikinn sjálfan og til baka að honum
loknum.
Innifalið: Flug, skattar, gisting í eina nótt með morgunverði, rútur til og
frá flugvelli og á leikinn, miði á leikinn og íslensk fararstjórn
66.500,-
á mann m.v. tvíbýli
Aukagjald f. einbýli 6.000 kr.
Bókanir og nánari upplýsingar með tölvupósti
tonsport@uu.is eða í síma 585-4000
1. - 2. apríl
HANDBOLTI Þetta var góð helgi fyrir
meistaraflokkslið Haukanna sem
eru bæði í toppsætum N1-deild-
anna þegar styttist óðum í lok
deildarkeppninnar.
Haukastrákarnir komust aftur
á toppinn með því að vinna Vals-
menn 25-22 í toppslag N1-deildar
karla en auk þess að vera nú með
eins stigs forustu þá eiga Íslands-
meistararnir einnig leik inni á Val.
Haukar höfðu nokkra yfirburði
í leiknum og voru sex mörkum
yfir í seinni hálfleik en Valsmenn
náðu að skora þrjú síðustu mörkin
í leiknum og laga stöðuna.
Þetta var áttundi deildarsigur
Hauka sem hafa ekki tapað deild-
arleik síðan 5. nóvember. Haukarn-
ir fá síðan tækifæri til að auka for-
skot sitt í þrjú stig þegar þeir fá
botnlið Víkinga í heimsókn á mið-
vikudaginn.
Haukastelpurnar unnu sinn leik
gegn Fylki af öryggi á föstu-
dagskvöldið þar sem Hanna
Guðrún Stefánsdóttir
skoraði 17 mörk en það
voru úrslit laugardagsins
sem komu þeim mjög vel.
Valur vann Stjörnuna í
fyrsta sinn í vetur
sem þýðir að
Haukar eru nú
með þriggja
stiga forskot
þegar fjórar
umferðir eru
eftir. Sigur
Valskvenna
var sá fyrsti
á Íslandsmeisturum Stjörn-
unnar í vetur en áður hafði
Garðarbæjarliðið unnið Val
fjórum sinnum, oft eftir að
hafa verið undir stóran hluta
leiksins. Nú náðu Vals konur
að vinna og sýna um leið að
þær verða skeinuhættar í
komandi úrslitakeppni.
Óvæntur stór-
sigur HK á úti-
velli á móti FH
þýðir að það er
orðið nokkuð ljóst
hvaða lið komast
í úrslitakeppn-
ina hjá konunum
því Fram vann
Gróttu 26-23 og
er með átta stiga
forskot á HK í bar-
áttunni um 4. sætið þegar
aðeins átta stig eru eftir í
pottinum. - óój
Stjarnan tapaði fyrir Val í N1-deild kvenna og missti af mjög dýrmætum stigum:
Góð handboltahelgi fyrir Hauka
ÁTTA MÖRK Kári
Kristjánsson skor-
aði 8 mörk úr 9
skotum gegn Val.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það var mikil spenna í bikarkeppni FRÍ innanhúss um helgina og á
endanum vann FH bikarinn í fyrsta skipti eftir að hafa verið aðeins
einu stigi á undan ÍR sem hafði titil að verja. Spretthlauparinn
Trausti Stefánsson tryggði sveit FH sigur í boðhlaupinu með
góðum lokaspretti.
„Það er bara skemmtilegra þegar þetta er svona jafnt.
Sigurinn var líka enn þá sætari,“ segir Trausti en það var
allan tímann ljóst að þetta yrði hnífjafnt.
„Það var búið að gera spá fyrir daginn þar sem okkur var
spáð sigri með einu stigi. Svo voru allir á taugum allan dag-
inn. Þegar það kom í ljós fyrir boðhlaupið okkar að við
værum einu og hálfu stigi á eftir þá krosslögðu menn
bara fingur og vonuðu það besta. Við vorum
með nákvæmlega sömu sveit á Meistara-
móti Íslands og við vorum með gott
sjálfstraust eftir að hafa náð að vinna
þar. Það lá alveg við að við myndum
vinna þetta en stressið var að Fjöln-
ismenn yrðu í 2. sæti,“ segir Trausti
sem vann einnig báðar sínar greinar. „Ég var sérstaklega ánægður
með 60 metra hlaupið því ég náði að bæta mig þar. Ég var ánægður
með sigurinn í 200 metra hlaupinu en ég hefði viljað ná betri
tíma,“ segir Trausti sem átti því mikinn þátt í að taka bikarinn af
ÍR en hann játar því að hann sé ÍR-ingur í húð og hár.
„Ég er mikill FH-ingur í frjálsum en að sama skapi er ég
ÍR-ingur í öllum hinum greinunum,“ segir Trausti sem skipti
yfir í frjálsar úr körfuboltanum fyrir tæpum tveimur árum. „Ég
var bara á bekknum í körfunni og það var mjög góð ákvörðun
að fara í frjálsar og virkilega gaman að maður hafi uppgötvað
það á gamalsaldri að maður ætti að vera í frjálsum en ekki
körfubolta. Auðvitað saknar maður alltaf körfunnar og ég vil
allavega meina það að ég sé betri körfuboltamaður í dag
heldur en áður en ég hætti því ég orðinn miklu meiri
íþróttamaður,“ segir Trausti sem er farinn að horfa til
utanhússtímabilsins nú þegar öll stóru innanhúss-
mótin eru að baki. „Vonandi helst ég heill, næ að
bæta mig jafnt og þétt og komast einn daginn á
stórmót,“ segir Trausti.
TRAUSTI STEFÁNSSON: TRYGGÐI FH BIKARINN Í FRJÁLSUM INNANHÚSS MEÐ LOKABOÐHLAUPSSPRETTINUM
FH-ingur í frjálsum en ÍR-ingur í hinum greinunum
> Deildarmeistarabikarinn á loft
Haukakonur tóku við deildarmeistaratitlinum í kvenna-
körfunni í gær þrátt fyrir að Hamar hafi spillt bikar-
hátíðinni með því að vinna 54-61 sigur en Haukaliðið
var búið að tryggja sér sigur í deildinni fyrir nokkru. Þetta
voru óvænt úrslit enda fyrsta deildartap Haukakvenna
síðan 19. október. Haukaliðið var búið að
vinna fimmtán leiki í röð í Iceland Express-
deildinni fyrir leikinn á sama tíma
Hamarsliðið hafði tapað öllum
átta leikjum sínum á þessu
ári og hafði aldrei unnið
Hauka í efstu deild.
Kristrún Sigurjónsdóttir,
fyrirliði Hauka, tók við
bikarnum í leikslok.