Fréttablaðið - 23.02.2009, Side 10

Fréttablaðið - 23.02.2009, Side 10
10 23. febrúar 2009 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is TB W A \R E Y K JA V ÍK \ 09 42 36 S ænska Saab-bílasmiðjan fór fyrir helgi fram á greiðslu- stöðvun, eftir að móðurfélagið GM í Detroit hafði tilkynnt að það myndi ekki leggja sænska dótturfélaginu til meira fé og sænsk stjórnvöld höfnuðu beiðni um að gangast í ábyrgðir fyrir nýju rekstrarfé. Þar með stefnir allt í endalok merks kafla í sögu bílaiðnaðarins, sem hófst upp úr síðari heimsstyrjöld þegar sænska herflugvélasmiðjan SAAB (Svenska Aeroplan-AB) vantaði ný verkefni og brá á það ráð að fela verk- fræðingum sínum að þróa fólksbifreið til að skjóta frekari stoðum undir reksturinn á friðartímum. En að bandaríski bílarisinn skuli nú varpa Saab fyrir borð, ára- tug eftir að GM eignaðist næststærsta sænska bílaframleiðandann að fullu, er aðeins ein af mörgum birtingarmyndum heimskrepp- unnar sem leikur bílaiðnaðinn sérstaklega grátt. Saab er undir- deild í GME, General Motors Europe. Stærsta einingin í GME eru Opel-verksmiðjurnar þýzku, sem GM eignaðist um miðjan þriðja áratug 20. aldar. Sú nána tenging evrópsks og bandarísks bílaiðnað- ar hefur sem sagt haldið í yfir 70 ár. Meðal annarra eininga GME eru Vauxhall í Bretlandi og samsetningarverksmiðjur á Spáni og víðar á meginlandinu. Eins og Opel er dæmi um hófst hnattvæðing bílaiðnaðarins snemma, þótt hún hafi náð nýjum hæðum á síðustu 15 árum. Tákn- rænust fyrir það samrunaæði sem rann á bílaframleiðendur á síð- asta áratug var sameining þýzku eðalbílasmiðjunnar Daimler-Benz og eins bandarísku risanna þriggja, Chrysler (hinir tveir eru Ford og GM). Sú tilraun fór illa. Þýzku fjárfestarnir, sem í raun yfir- tóku Chrysler, hrökkluðust aftur heim til Stuttgart eftir að hafa tapað milljörðum á að reyna að bæta samkeppnishæfni bandaríska „systur fyrirtækisins“. Nú virðist það vera eina leiðin fyrir GM að bjarga sér frá algeru þroti að aðskilja og helzt selja í heilu lagi alla starfsemi samsteypunnar í Evrópu – skilyrði fyrir að GM fái að halda þeirri neyðarfjárhagsaðstoð sem fyrirtækið hefur þegar þegið frá banda- rískum yfirvöldum er að umfang samsteypunnar verði minnkað til muna. Viðraðar hafa verið hugmyndir um að stofnað verði eignar- haldsfélag um rekstur GME, sem opið verði fyrir fjárfestingar bæði frá ríkisstjórnum þeirra landa sem eiga mest í húfi (þ.e. þar sem flest störf myndu tapast við gjaldþrot GM) og öðrum fjárfestum. Hvernig sem þessir gerningar æxlast, þá virðist starfsemi GM í Evrópu ætla að aðskiljast frá starfseminni vestanhafs. Sú upprakn- ing hnattvæðingar sem í því felst er tímanna tákn í efnahagskrepp- unni sem nú hefur skollið á allri heimsbyggðinni og einna þyngst á þróuðustu iðnríkjunum. Vandi GM er líka táknrænn fyrir stöðu fjölþjóðlegra samsteypna í greiðsluvanda við slíkar aðstæður, þegar einu þrautalánveitendurnir eru ríkiskassar þjóðríkja, sem eðlilega vilja bara gangast í ábyrgðir fyrir þá starfsemi sem fer fram innan viðkomandi ríkis. Á sama tíma eru bílaframleiðendur í Kína og fleiri nýmarkaðs- löndum í útþensluham. Þrátt fyrir heimskreppu telja þeir sig hafa bolmagn til að kaupa sig inn í starfsemi stórra rótgróinna bílafram- leiðenda á Vesturlöndum. Sú staða er ekki síður tímanna tákn: Asía rís, „gömlu Vesturlönd“ hníga. Hnattvæðingin heldur áfram, undir breyttum formerkjum. Bílarisinn General Motors að brotna upp: Upprakning hnattvæðingar AUÐUNN ARNÓRSSON SKRIFAR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Válistinn Alti Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, lagði það til í Silfri Egils í gær að komið yrði á fót sérstökum lista yfir útrásarvíkinga. Þennan lista nefndi Atli válista og á honum ættu heima 40 til 50 manns sem bank- arnir ættu ekki að skipta við. Nú mun flestum tamara að nota orðið válisti á annan hátt. Á heima- síðu Náttúrufræðistofnunar Íslands segir: „Válistar eru skrár yfir lífveru- tegundir sem eiga undir högg að sækja eða eru taldar vera í útrýming- ar hættu í tilteknu landi eða svæði.“ Það má svo sem færa rök fyrir því að hvor skýringin sem er eigi við um útrásar- víkingana; klárlega eru þeir í útrýmingarhættu. Stjórnarandstaðan Lengi vel var Vinstri grænum legið á hálsi fyrir að vera á móti því sem kom frá ríkisstjórninni. Nú virðist sem stjórnarliðar – og stuðningsmenn þeirra – hafi snúið þessari gagnrýni upp á Sjálfstæðisflokkinn. Oftar en ekki er eins og menn hafi búist við því að flokkurinn gengi úr ríkisstjórn, settist til hliðar og segði ekki múkk. Þvert á móti hafa sjálfstæðismenn gert það sem stjórnar- andstaða á að gera; gagnrýnt það sem þeim þykir miður fara. Bloggbók? Björn Bjarnason gerir þetta að umtalsefni á heimasíðu sinni. Hann er nú að hætta á þingi og fer til ann- arra starfa; hverra er ekki vitað. Björn hefur haldið úti dagbók á netinu allan ráðherraferil sinn og ræðir um þau mál á heimasíðu sinni. „Ég þarf ekki að endurtaka neitt af því, en hins vegar getur verið, að mér gefist tími til eða ég gefi mér tíma til að vinna úr þessu efni og breyta því í heildstæðari mynd en lesa má með því að fletta síðunni.“ Er Björn að boða bók byggða á bloggi sínu? kolbeinn@frettabladid.is Það vantaði tónlistarhús. Árum saman bentu tónlistarmenn og tónlistarunnendur á að óviðun- andi væri að hér skyldi ekki vera sérstakt hús fyrir tónlist, líkt og sérstök hús eru fyrir íþróttir í hverjum hreppi eins og vera ber, sérstök hús eru fyrir guðsdýrkun (eins og vera ber), sundiðkun, leik- list, jafnvel bækur, að ógleymd- um öllum verslunarhöllunum. Hér hafa verið reist hús sérstaklega í því skyni að þar sé hægt að spila badminton. En ekki tónlist … Jafn- vel þótt Íslendingar séu miklu meiri tónlistarmenn en íþrótta- menn – og upp til hópa miklu áhugasamari um tónlist en til dæmis hinn ofmetna fótbolta – þá hefur ekki verið til tónlistarhús í höfuðborginni fram að þessu. Kannski er það vegna þess að stjórnmálamenn eru almennt ekki mjög músíkalskt fólk. Kannski ekki. Þetta er ráðgáta: tónlistin, drottning listanna, hefur í höfuð- borginni verið iðkuð í bíóum og búllum, kirkjum og – íþróttahús- um. Með glerhjúp Það vantaði sem sé tónlistarhús – og við fengum glerhjúp. Þegar voru komnir yfirgengilega og óheyrilega og fáránlega miklir peningar til landsins sem menn vissu hreinlega ekkert hvað þeir áttu að gera við og kepptust við að finna eitthvað – bara eitthvað – til að eyða peningunum í var um síðir svo komið í hinu glórulausa auð- magni að ráðamenn féllust meira að segja á að byggja tónlistarhús. En jafnvel þá – í miðju auðæðinu þegar menn vildu eyða peningum í bara einhverja vitleysu – jafnvel þá sáu ráðamenn og peningafurst- ar ekki alveg hvers vegna ætti að reisa tónlistarhús sem væri bara tónlistarhús – bara til að njóta tón- listar – bara fyrir þær tugþúsund- ir Íslendinga sem stunda tónlist og njóta hennar – nei: þetta varð að vera tónlistar- og ráðstefnuhús. Með glerhjúp. Það bráðvantaði tónlistarhús. Sal þar sem sinfónían gæti leik- ið og önnur tónlist notið sín – þótt Kópavogur bjóði upp á hinn ágæta Sal þá hentar hann eingöngu fyrir smærri sveitir, og þar er ekki hægt að setja upp óperur. Reynd- ar kom á daginn að ekki var pláss í tónlistarhúsinu væntanlega fyrir óperur – fyrir öllum ráðstefnun- um. Svo var hafist handa af hinum heimskunna íslenska dugnaði. Þegar maður gúglar „tónlistar- hús“ fær maður svona fréttir: „Tónlistarhúsið – stærsti steypu- dagur Íslandssögunnar.“ Þetta er fyrirsögnin á frétt frá 19. apríl árið 2007 og er að finna á vef ÍAV sem er skammstöfun Íslenskra aðalverktaka. Í fréttinni segir: „Ein stærsta steypa Íslandssög- unnar hófst eldsnemma að morgni sumardagsins fyrsta, þegar steypubílar BM – Vallár byrj- uðu að losa fyrstu rúmmetrana af steypu í grunn tónlistar- og ráð- stefnuhússins við austurhöfnina í Reykjavík. Steyptur var stærsti hluti botnplötunnar en í þennan áfanga fóru um 2.300 rúmmetrar eða um 5.700 tonn, sem jafngild- ir steypu í um 120 einbýlishús. Í verkið þurfti nærri 300 farma fulllestaðra 8 rúmmetra steypu- bíla og kláraðist það á ellefu klukkustundum. ÍAV eru með mörg stórverk- efni í framkvæmd, langstærsta verkefnið er þó Austurhafnar- verkefnið svokallaða á um 60.000 fermetra svæði sem teygir sig frá Ingólfsgarði að Lækjartorgi. Byggingamagn svæðisins alls er um 200 þúsund fermetrar en tón- listar- og ráðstefnuhúsið sjálft er um 24 þúsund fermetrar.“ Það vantaði tónlistarhús. Við fengum stærstu steypu Íslands- sögunnar. Með glerhjúp. Hvað er auður og afl og hús Hvað er þetta eiginlega með Íslendinga og hús? Það er svo margur Bjarturinn sem reist hefur sitt alltof stóra hús án þess að huga að því hvort nokkur jurt vex í „þinni krús“ – gleymt aðal- atriðinu en hamast þeim mun meir við að steypa. Er ekki dugn- aður annars ofmetnasta dyggðin á Íslandi? Við höfum ótal dæmi um félagasamtök sem hafa upp- lifað það að ströggla árum saman við að afla fjár til húsbyggingar undir starfsemi sína – og þegar svo húsið er loks risið er eins og allt deyi inni í kaldri, grárri og dugnaðarlegri steypunni. Því sé dugnaður ofmetnasta dyggðin hér á landi þá er steypa ofmetnasti efniviðurinn. Annaðhvort er ekkert hús – eða stærsta steypa Íslandssögunnar. Það vantaði tónlistarhús. Og við fengum þessa monthrúgu þarna á hafnarbakkanum. Með glerhjúp. Ríkisstjórnin sem náð hefur að vera farsælli í störfum sínum en nokkur fyrri ríkisstjórn í manna minnum og borgarstjórnin ætla að sjá til þess að tónlistarhúsið rísi. Það er lofsvert. En ættum við ekki að láta slíkt hús snúast um tón- list? Gleyma þessu ráðstefnu- og World-trade-center-bulli og ein- beita sér að tónlistinni. Ráðstefn- ur geta farið fram í bíóum og búll- um, kirkjum og íþróttahúsum en hins vegar vill svo furðulega til að það vantar tónlistarhús. Mesta steypan GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Í DAG | Tónlistarhúsið UMRÆÐAN Sigrún Elsa Smáradóttir skrifar um jöfnunaraðgerðir Konur hafa frá stofnun lýðveldisins verið færri á þingi en karlar. Í dag eru 23 konur á þingi en 40 karlar. Í sveitarstjórn- um er hlutfall kvenna svipað, eða um 36%. Ekki er staðan betri í atvinnulífinu. Á athafnaárinu 2007 voru aðeins 8% stjórn- arsæta skipuð konum í 100 stærstu fyrir- tækjum landsins. Það hallar því verulega á konur við stjórnun landsins. Óhætt er að fullyrða að ekki er um tilviljun að ræða, heldur kerfislægt óréttlæti í samfélaginu. Þegar hugmyndir um aukið persónu- kjör til Alþingis eru skoðaðar er því ástæða til að spyrja hvort við séum nógu langt komin í jafnréttis- málum til að valda því að velja kynin jöfnum hönd- um með slíkum aðferðum. Af illri nauðsyn hafa þeir stjórnmálaflokkar sem láta sig þessi mál varða beitt sértækum aðgerðum eins og fléttulistum og kynjagirðingum í prófkjör- um til að bregðast við þeim lýðræðisvanda sem skertur hlutur kvenna í stjórnmálum er. Markmiðið hlýtur þó alltaf að vera að leggja slíkar aðgerðir af, þegar árangri er náð. Engin rök eru fyrir því að slíkar aðgerð- ir virki í báðar áttir þ.e. lyfti einnig körlum. Nái konur meiri árangri en karlar í próf- kjörum á einstaka framboðslistum, ber að fagna því. Slíkur árangur kvenna kemur þá til, þrátt fyrir kerfislægt óréttlæti. Engin rök eru fyrir því að færa karla upp fyrir konur í slíkum tilvikum, þar sem ekkert kerfislægt óréttlæti hamlar framgangi karla og möguleikum þeirra til áhrifa í samfélaginu. Kjördæmaskipting landsins er svo sjálfstætt vandamál í jafnréttismálum þar sem karlar raða sér að jafnaði í örugg sæti hringinn í kringum landið og konum oftar en ekki skipað í „baráttusætin“ sem enda flest sem varaþingmannssæti. Það er því áleit- in spurning hvort nauðsynlegt sé að gera landið að einu kjördæmi til að jafnvægi náist milli kynjanna á Alþingi. En þar til óréttlætinu hefur verið útrýmt og jöfnum hlutföllum kynjanna er náð, eiga jöfnunarað- gerðir, sé þeim beitt, aðeins að virka í eina átt. Í átt til kvenfrelsis. Höfundur er borgarfulltrúi. Óþolandi óréttlæti SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.