Fréttablaðið - 23.02.2009, Side 13

Fréttablaðið - 23.02.2009, Side 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Maðurinn minn ættleiddi þennan sófa fyrir fáeinum árum, sem þá var í reiðileysi vegna plássleysis á öðrum stað,“ segir Elsa Nielsen, grafískur hönnuður og listmálari, þar sem hún kúrir uppi í sláandi flottum anítksófa með hvítu leð- uráklæði. „Sófinn kemur frá ömmu manns- ins míns; Línu í Lindarbrekku. Þetta er aldargömul mubla sem henni hlotnaðist frá Danaveldi, en amma Lína var mikill fagur- keri og hennar ær og kýr að hafa fínt í kringum sig. Þannig var hún fastagestur hjá bólstrurunum á Langholtsvegi því hún var sífellt að breyta til og bólstra húsgögn upp á nýtt,“ segir Elsa sem fyrst naut sófans í antíkbleiku, en þá var áklæðið orðið lúið og gormakerf- ið ónýtt. „Þegar við fluttum svo í nýtt hús á Nesinu skapaðist loks nóg pláss fyrir sófann að njóta sín sem skyldi, svo við tókum 2007-pakk- ann á hann og bólstruðum upp á nýtt, ásamt tveimur stólum í stíl. Áður hafði sófinn verið bannaður börnum upp á klíning í áklæðið að gera, en nú þolir hann allt, enda auðvelt að strjúka af leðrinu.“ Elsa segist aldrei finna öfund út í sófann fína, því aðrir í fjöl- skyldunni hafi einnig erft sitt- hvað af gersemum ömmu Línu. „Hins vegar þykir dætrum hennar gott að sjá augnayndi móður sinn- ar lifa í stofunni okkar og setjast þar alltaf saman þegar þær gleðja okkur með heimsóknum sínum. Okkur þykir líka ósköp vænt um þetta fágæta sófasett og víst að það mun fylgja okkur um ókomna tíð,“ segir Elsa sem margir muna eftir sem helstu badmintonstjörnu þjóðarinnar, en Elsa er margfald- ur Íslandsmeistari og fór með bad- mintonspaðann á Ólympíuleikana fyrir Íslands hönd árin 1992 og 1996. „Ég er aðeins farin að spila aftur með gömlu landsliðsmönnunum og hef tvisvar keppt í tvíliðaleik og tekið titil að undanförnu. Það er óneitanlega voða gaman.“ thordis@frettabladid.is Dönsk antík ömmu Línu Í fórum Íslendinga finnst margt forvitnilegt og fagurt, eins og aldargamall danskur sófi sem varla á sér annan líkan en frískar nú upp á gleði áhorfenda sinna og sessunauta í sjaldgæfni sinni og stórkostleik. Elsa Nielsen í sófanum gullfagra. Málverkið er eftir hana sjálfa, en verk hennar eru seld í Gallerí List og verða meðal annars á afmælissýningu Stígamóta 8. mars. Rauða kjólinn saumaði Elsa sjálf, sem getur illa setið auðum höndum eftir að badminton- spaðanum sleppti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BORÐSKRAUT gerir veisluborðið alltaf enn þá glæsilegra en gaman getur líka verið að skreyta borðið annað slagið fyrir fjölskylduna. Heima tilbúið borðskraut þarf ekki að vera flókið og jafnvel yngstu fjölskyldumeðlimirnir geta lagt sitt af mörkum. Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins og við flest þekkjum hana, fararstjóri Bændaferða, verður á skrifstofu Bændaferða mánudaginn 23. febrúar til föstudagsins 27. febrúar frá kl. 9.00 - 16.00. Hún mun kynna sínar ferðir og svara spurningum, svo það er alveg upplagt að kíkja í Síðumúlann í kaffi, hitta Hófý og fá upplýsingar um ferðirnar. Sp ör - R ag nh ei ðu r In gu nn Á gú st sd ót tir s: 570 2790 www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Hófý, fararstjóri Bændaferða verður á skrifstofunni 23. - 27. febrúar Bændaferðir • Síðumúla 2 Alla þriðjudaga Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn...

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.