Fréttablaðið - 23.02.2009, Side 30
22 23. febrúar 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
LÁRÉTT
2. eyðast, 6. hróp, 8. átti heima, 9.
gilding, 11. belti, 12. erfiði, 14. dans,
16. kallorð, 17. blundur, 18. ennþá,
20. mun, 21. faðmur.
LÓÐRÉTT
1. mats, 3. í röð, 4. kassabók, 5. tæki,
7. skothylki, 10. hyggja, 13. bókstafur,
15. engi, 16. er með, 19. ónefndur.
LAUSN
„Þetta er vefsíða fyrir okkur hin,
okkur sem urðum eftir og verð-
um að nota eitthvað annað en
krónuna til að versla,“ segir Axel
Valdimar Gunnlaugsson, stofn-
andi vefsíðunnnar samlagid.is,
sem vakið hefur mikla athygli.
Síðan er glæný, fór í loftið fyrir
mánuði síðan, en hugmyndin
kviknaði þegar allt fór fjandans
til undir lok síðasta árs. „Þetta
byrjaði bara sem grín en svo vatt
þetta fljótlega upp á sig og í dag
eru þúsund skráðir notendur,“
segir Axel en svo skemmtilega
vill til að meirihluti notenda eru
konur. Og alltaf bætast nýir með-
limir í hópinn, tuttugu til þrjátíu
á hverjum degi. „Þetta byrjaði
allt í miklu bríaríi, kannski er
besta dæmið um það að þarna var
flokkur sem hét þjónustustörf og
þar hafði einn auglýst eftir seðla-
bankastjóra. Ég fjarlægði þá aug-
lýsingu enda vildi ég ekki styggja
sjálfstæðismenn.“
Hugmyndin hjá Axel er sú að
menn geti skipt á hinum og þess-
um hlutum og þannig átt hálf-
gerð vöruskipti á netinu. „Þarna
inni eru til að mynda iðnaðar-
menn sem eru reiðubúnir til að
vinna fyrir unna kjötvöru,“ segir
Axel. Önnur auglýsing er frá ein-
hverjum í fæðingarorlofi sem vill
vinna sér inn smá aur. „Ég hef
nægan tíma,“ skrifar umrædd-
ur aðili. Í þeirri þriðju er auglýst
eftir einhverjum handlögnum
sem getur gert við bílinn hans,
tímareimin sé biluð.
Axel segir að skömmu eftir að
síðan fór í loftið hafi fulltrúar
ríkisskattstjóra hringt og efast
um lögmæti þjónustunnar. „Þetta
er bara svona svipað og ef tveir
menn hittast á Austurvelli og
ákveða að eiga viðskipti. Land-
eigandinn verður þá ekki skatt-
skyldur,“ útskýrir Axel.
Axel starfar sem tæknilegur
arkitekt hjá Símanum og sinnir
þeirri vinnu á daginn. „Það er
svona stjórnunarstarf, ég fæ
síðan alla útrás sem ég þarf á
síðunni,“ segir Axel og hlær.
Hann upplýsir að enn eigi eftir að
koma skemmtilegar viðbætur en
þeir sem eru með Facebook geta
meðal annars nýtt sér síðuna. „Ef
einhver skrifar athugasemd þá
fær hann hana senda með tölvu-
pósti. Ég ætla að reyna að bæta
þetta kerfi þannig að viðkomandi
fái líka sms-skilaboð þegar ein-
hver sýnir viðbrögð við auglýs-
ingunni,“ útskýrir Axel en þess
má geta að öll þjónusta er ókeyp-
is, það eina sem fólk þarf að gera
er að skrá sig sem notendur á síð-
una. freyrgigja@frettabladid.is
AXEL VALDIMAR: SAMLAGIÐ SLÆR Í GEGN Á NETINU
Vöruskipti á netinu það
sem koma skal í kreppunni
ÓKEYPIS SÍÐA Samlagid.is er hugarsmíð Axels Valdimars en þar getur fólk skipst á
hinum og þessum hlutum og þjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég var alveg eyðilagður þegar hann brotnaði í
flutningunum,“ segir tónlistarmaðurinn KK, sem
bíður spenntur eftir að endurheimta forláta Martin-
gítar sinn sem hefur undanfarna mánuði verið fast-
ur í New York.
Gítarinn, sem er handsmíðaður af gerðinni D-35,
skemmdist í flutningum síðsumars í fyrra og sendi
KK hann þá út til Martin-verksmiðjunnar í New
York til viðgerðar með dyggri aðstoð Tónastöðv-
arinnar. Vegna mikils frosts í stórborginni hafa
starfsmenn verksmiðjunnar ekki þorað að senda gít-
arinn til Íslands og hefur hann því setið þar fastur í
marga mánuði. „Þeim er svo annt um hljóðfærin að
þeir senda þau ekki fyrr en sendingarleiðin er orðin
örugg,“ segir KK og kann vel að meta þessi vönduðu
vinnubrögð. Hann er engu síður orðinn óþolinmóður
að fá gítarinn í hendurnar, enda hefur hann samið
öll sín bestu lög á hann, þar á meðal Vegbúann.
Vegna viðgerðarinnar sá KK sig tilneyddan til
að kaupa sér nýjan Martin sem hann ætlaði síðan
að selja en telur nú ólíklegt að svo verði. Þar með
á hann fimm Martin-gítara í glæsilegu safni sínu.
„Þetta eru bestu gítarar í heimi,“ segir hann og
nefnir Johnny Cash, Bob Dylan og Woody Guthrie
sem dygga Martin-aðdáendur í gegnum tíðina.
KK er sérlega ánægður með liðlegheit Tónastöðv-
arinnar í málinu. „Þeir komu mér á framfæri því
það er erfitt að fá gítara uppgerða hjá Martin. Þeir
eru með góð sambönd og kannski sögðu þeir að ég
væri frægur á Íslandi,“ segir hann og glottir. Von-
ast hann til að endurheimta gítarinn á næstu dögum
eftir langa og erfiða bið. - fb
Gítar KK frystur í New York
KK Tónlistarmaðurinn KK bíður spenntur eftir að endurheimta
Martin-gítar sinn frá New York. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Maður er eiginlega bara skelfingu
lostinn, ekkert annað. Þetta er mjög
slæmt fyrir fólk í mínum bransa,“
segir Jóhanna Kristín Ólafsdóttir,
innanhússarkitekt hjá AVH. Í frétt-
um Sjónvarpsins á fimmtudags-
kvöld var greint frá því að
lífsstíls- og hönnunar-
búðinni Saltfélaginu hefði
verið lokað og að til stæði
að loka Habitat sem
löngum hefur verið
þekkt fyrir smekk-
legar innanhússvör-
ur.
„Ég myndi nú
kannski ekki segja
að góðærinu væri
formlega lokið. En
vissulega á þetta
eftir að gera fagurkeranum erfitt
fyrir að nálgast flottar hönnunar-
vörur,“ segir Arnar Gauti Sverr-
isson, framkvæmdastjóri GK og
fyrrum stjórnandi lífsstílsþáttarins
Innlit/útlit. Hann viðurkennir hins
vegar að þetta hafi kannski verið
komið út í svolítið rugl, sér í lagi
verðið. Í sama streng tekur fyrr-
um samstarfskona hans, Nadia
Banine. „Það er alltaf sorglegt
þegar maður hefur úr minna
að velja. Saltfélagið hefur
verið svolítið sér á báti
með sínar vörur en það
að verið sé að loka Habitat
er skelfilegt. Þar var hægt
að nálgast mjög smekkleg-
ar vörur á viðráðanlegu
verði,“ segir Nadia. „Von-
andi verður þetta hins
vegar til þess að
fólk líti sér nær og
kaupi jafnvel frekar
íslenska hönnun.“
Eyjólfur Pálsson,
forstjóri Epal, hefur
starfrækt sína versl-
un í yfir þrjátíu ár. Og
ekki er að sjá að það
sé neitt fararsnið á
honum þrátt fyrir
erfitt árferði. Eyj-
ólfur segist hóflega
bjartsýnn á fram-
haldið. „Við höfum
nánast aldrei greitt
út arð í þessu fyrir-
tæki, höfum eytt
öllum okkar pening-
um í fyrir tækið
og hönnunina.
Auðvitað er það
sorglegt ef það
fækkar í þessum
bransa, maður
getur bara ekkert
annað sagt.“ - fgg
Fagurkerar bíða skipbrot eftir góðærið
SORGLEGT Arnar
Gauti og Nadia
Banine segja það
vera sorglegt að
sjá á eftir Habitat og
Saltfélaginu.
SKELFILEGT Jóhanna
Kristín Ólafsdóttir innan-
hússarkitekt segir þetta
eiga eftir að þrengja
hringinn hjá sér.
„Ég er bara rosalega stolt af
henni og vissi alltaf að hún
myndi ná langt. Ég treysti henni
fyrir allri þessari athygli sem
fylgir þessu, sem er bæði jákvæð
og neikvæð, og veit að hún á eft-
ir að standa sig vel í Moskvu.“
Margrét Steindórsdóttir um dóttur sína
Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur sem keppir
fyrir Íslands hönd í Eurovision í Moskvu
í maí.
LÁRÉTT: 2. mást, 6. óp, 8. bjó, 9. mat,
11. ól, 12. streð, 14. rúmba, 16. hó,
17. mók, 18. enn, 20. ku, 21. fang.
LÓÐRÉTT: 1. dóms, 3. áb, 4. sjóðbók,
5. tól, 7. patróna, 10. trú, 13. emm,
15. akur, 16. hef, 19. nn.
A
u
g
lý
si
n
g
as
ím
i
– Mest lesið
Eins og Fréttablaðið greindi frá á
laugardag er lögmaðurinn Vilhjálm-
ur H. Vilhjálmsson með mörg mál
í gangi á hendur Birtíngi. Og virðist
nokkuð ágengt. Hæstirétt-
ur Íslands hefur hafnað
beiðni lögmanna Birtíngs
um leyfi til þess að
áfrýja dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur þar sem
útgáfufélagið
Birtíngur og
blaðamaður-
inn Atli Már
voru dæmd til refsingar og til þess
að greiða Ingu Birnu Dungal skaða-
bætur vegna ólögmætrar birtingar
Séð og heyrt á myndum Ingu Birnu
af leikstjóranum Quentin Tarantino.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur
er þannig endanlegur og því verða
Birtíngur og Atli Már að greiða Ingu
Birnu skaðabætur og málskostnað.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson telur
þessa niðurstöðu án efa lofa góðu
fyrir mál sem verður flutt
í dag í Héraðsdómi
Reykjavíkur og er
svipaðs eðlis. Um er
að ræða samkynja mál
sem Ívar Örn Þórhallsson,
sonur Ladda, höfðaði
á hendur Birtíngi
vegna myndastuldar
af vefsvæði hans, en
myndirnar voru birtar
í Séð og heyrt undir yfirskriftinni
„Hommi á Barnalandi“. Ívar höfðaði
meiðyrðamál á hendur blaðamanni
og Eiríki Jónssyni, ritstjóra Séð og
heyrt, vegna þeirra ummæla.
Sverrir Stormsker er snúinn aftur
til Asíu þar sem hann dvaldi fyrir
nokkrum árum. Að sögn Sverris
er talað um Íslendinga í
asískum fjölmiðlum sem
„einhverja spilltustu, óheið-
arlegustu og heimskustu
þjóð sem sögur fara af“.
Eins gott að Sverrir er
mættur til að redda
málunum. - jbg, drg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Þremur milljörðum króna.
2. Steve Cosser.
3. Atli Örvarsson.