Fréttablaðið - 23.02.2009, Side 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í dag er mánudagurinn 23.
febrúar, 54. dagur ársins.
8.56 13.41 18.28
8.46 13.25 18.07
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
18
ÁFANGASTAÐIR
www.icelandexpress.is
Meðal sumaráfangastaða Iceland Express eru þrír suðrænir og
seiðandi, Barcelona, Alicante og Bologna. Bókaðu sól og blíðu á
frábæru verði, skelltu þér núna á www.icelandexpress.is!
Kynntu þér átján áfangastaði okkar og spennandi pakkaferðir
Express ferða í nýjum og glæsilegum ferðabæklingi okkar.
Barcelona • Bologna • Alicante
Sól í suðri!
Opið 07 til 02
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
Frá því í byrjun október hefur réttlætiskenndinni verið
misþyrmt með daglegum frétta-
barsmíðum af afleiðingum sukks-
ins. Á hverjum degi birtast nýjar
sögur af hörmungum fólks sem
engan þátt tók í hrunadansinum
en missir nú atvinnuna, heimilið
og heilsuna.
SAMÚÐIN er meðal annars
þar en síður hjá stofnfjárfest-
unum sem eru miður sín yfir að
hafa ekki fengið nógu margar
milljónir fyrir hlutabréfin, held-
ur verið snuðaðir af einhverjum
gaukum sem blekktu kannski til
sín digran sjóð. Eða því hvort
brottrekinn forstjóri sem tókst
á undraskömmum tíma að sigla
óskabarni þjóðarinnar í glötun
fær samt allan peninginn. Í sam-
anburði við alvöru mál sem fjalla
um stórkostlegan skaða raunveru-
legra fórnarlamba virðist þras um
enn meiri peninga til efnafólks
hreint hjóm. Kannski væri hug-
mynd að stofna sérstakan dómstól
fyrir svona húmbúkk? Hann væri
hægt að manna til dæmis með öllu
því ágæta hæfileikafólki sem nú
gengur um atvinnulaust og blóð-
þyrst.
RÉTTLÆTISKENND er ekki
að öllu leyti náttúrulegt fyrir-
brigði, heldur áunninn þroski
þjóðar. Einu sinni þótti til dæmis
mjög réttlátt á Íslandi að drekkja
konum sem höfðu eignast barn
utan hjónabands. Ekki fór mörg-
um sögum af afdrifum móður-
lausu lausaleiksbarnanna sem
eftir stóðu, en trúlega hafa fáir
haft sérlegar áhyggjur af fín-
hreyfingum þeirra, málþroska og
félagsfærni þegar þau voru boðin
upp til lægstbjóðanda á næsta
hreppsfundi.
Á meðan íslenskir dómstólar spá
í það fram og tilbaka hvort millj-
arðamæringar eigi að fá skaða-
bætur frá íslenska ríkinu – okkur
sumsé – fyrir að hafa ekki feng-
ið evrurnar sínar greiddar út á
hæsta mögulegu gengi sem þá var
ekki í boði fyrir neinn – einmitt á
sama tíma kemst Hæstiréttur að
þeirri niðurstöðu að stúlkubarn
sem var kynferðislega misnot-
að af afa sínum í meira en áratug
eigi heimtingu á einni og hálfri
milljón í skaðabætur. Afinn hlaut
tveggja ára fangelsisdóm á útsölu
frá fjögurra ára úrskurði héraðs-
dóms, fékk helmingsafslátt vegna
aldurs. Þeir sem telja réttlætinu
fullnægt gefi sig fram við sál-
fræðing. Við hin eigum vonandi
tækifæri í nýju þjóðfélagi til að
endurskoða lagabókstafinn vítt
og breitt.
Afsláttur fyrir
eldri borgara