Tíminn - 12.01.1988, Síða 13
Þriðjudagur 12. janúar 1988
Tíminn 13
FRÉTTAYFIRLIT
PEKÍNG — Mikhail Gorbat-
sjov Sovétleiötogi hefur hvatt
til þess aö leiðtogar Sovétríkj-
anna og Kína haldi meö sér
fund. Ekki er talið líklegt aö
Kínverjar fallist á slíkan fund
alveg á næstunni, sem yrði sá
fyrsti í 29 ár, þótt samskipti
ríkjanna hafi vissulega batnaö.
Helsti Þrándur í Götu slíks
fundar er krafa Kínverja aö
Sovétmenn þrýsti á Víetnama
aö draga herlio sitt frá Kamp-
útseu.
KAMPALA — Stjórnarer-
indreki frá Líbýu lést og fimm
manns slösuðust þegar lítil
sprengja sprakk í skrifstofu-
byggingu í Kampala, höfuö-
borg Úganda. Sendiráö Líbýu-
manna og Frakka voru til húsa
í byggingu þessari og franskur
menningarfulltrúi var meöal
þeirra sem slösuðust.
MOSKVA — Pravda, dag-
blað sovéska kommúnista-
flokksins, sagöi aö sovéskir
herir gætu hafiö brottför sína
frá Afganistan þann 1. maí ef
stjórnir Pakistans og Afganist-
ans kæmust aö samkomulagi
í upphafi marsmánaöar.
MOSKVA — T ass fréttastof-
an sagöi aö Sovétmenn n.yndu
taka þátt í Ólympíuleikunum í
Seoul síöar á þessu ári.
ÚTLÖND
Franskir hægrimenn krefjast dauðadóms yfir hryðjuverkamönnum. Nú er réttað í máli 22 manna sem allir eru sakaðir
um að vera meðlimir eða hafa aðstoðað borgaraskæruliðahópinn Action Directe.
Frakkland:
Á Spáni:
Prestur
skaut
syrgjanda
Spænskur prestur kom fyrir rétt
í gær í bænum Orense á norðvestur
Spáni. Hann er sakaður um að
hafa skotið mann í fótinn sem var
viðstaddur útför er presturinn
stjórnaði.
Eladio Blanco heitir prestur
þessi og fann lögreglan tíu byssur
heima hjá honum eftir að hann
hafði skotið á syrgjandann.
Blanco mun hafa misst stjórn á
skapi sínu, rifið upp skammbyssu
og látið vaða á syrgjandann eftir að
hafa rifist við hann um það hvort
hann ætti að fylgja kistunni út í
kirkjugaröinn. Presturinn hafði
messað við athöfnina í kirkjunni
og þótti það víst alveg nóg.
Vcrjendur Blancos segja að
hann hafi átt við gcðræn vandamál
að stríða þegar atburður þessi átti
sér stað á síðasta ári. hb
meðlimum Action Directe
HAMBORG — Vestur-þýsk
kona sem grunuö er um aö
hafa komiö fyrir sprengju á
skemmtistaö í Vestur-Berlín
áriö 1986 hefur veriö handtek-
in. Sprengingin á skemmti-
staönum, þar sem bandarískir
hermenn voru tíöir gestir, leiddi
til loftárása Bandarikjamanna
á Líbýu.
LUNDÚNIR — Hlutabréf á
mörkuðum í Evrópu lækkuðu í
veröi og Bandaríkjadalur einn-
ig. Fésýslumenn virtust tauga-
óstyrkir og seldu stíft en seöla-
bankar keyptu bandaríska
gjaldmiöilinn til aö verja hann
frá of mikilli lækkun.
JERÚSALEM — ísraelskur
maður skaut einn Palestínu-
mann til bana og særöi annan
eftir að hópur haföi gert aösúg
aö honum og grýtt bifreiö hans.
Atburður þessi átti sér staö á
Vesturbakkanum. Þá er vitað
um að minnsta kosti 32 Palest-
ínumenn sem látist hafa síðan
nýjustu mótmæli þeirra gegn
yfirráðum ísraelsmanna á her-
teknu svæðunum, Vesturbakk-
anum og Gazasvæðinu, hófust
þann 9. desember.
BAHREIN - Irakar röskuöu
ró síöustu tíu daga í gær
þegar herþotur þeirra geröu
árásir á írönsk olíuflutninga-
skip. Þessar loftárásir minnk-
uöu vonir manna um aö tilraun-
ir Sýrlendinga til aö minnka
spennuna í Persaflóastríðinu
bæru árangur.
Fyrstu pólitísku fjöldaréttarhöld-
in í Frakklandi síðan eftir stríð
hófust í gær yfir 22 mönnuni sem
grunaðir eru um að tilheyra hinum
vinstrisinnaða borgaraskærulið-
ahópi Action Directe.
Allir mennirnir eru sakaðir um
pólitískt samsæri gegn franska ríkinu
fyrir að hjálpa eða tilheyra Action
Directe. Þessi hópur hefur lýst átta
aftökum og meira en áttatíu öðrum
árásum á hendur sér síðan hann var
stofnaður árið 1979.
Mikil öryggisgæsla var í kringum
dómshúsið í miðborg Parísar þar
sem réttarhöldin fara fram, svo mikii
að annað eins hefur ekki þekkst.
Vopnaðir lögreglumenn voru á verði
með hunda og upp á þökum var
fylgst með öllu umhverfinu. Inn í
réttarsalnum voru sakborningarnir
hafði í skotheldu búri scm sérstak-
lega var byggt fyrir rétarhöldin.
Nokkra athygli vakti að fjórir
helstu sakborningarnir, allir grunað-
ir um að vera leiðtogar samtakanna,
mættu í dómshúsið. Þeir hafa verið
í hungurverkfalli í frönsku fangelsi
síðan 1. desember og var búist við
að þeir myndu neita að mæta.
„Það mætti halda að við værum í
Chilc," hrópaði Regis Schleicher
einn sakborninganna þegar komið
var með fjórmenningana inn í réttar-
salinn. Þeirra á meðal var kona
Schleichers Joelle Aubron en hinir
þrír voru Nathalie Menigon og tveir
karlmenn, Jean-Marc Rouillan og
Georges Cipriani. Fjórmennin-
garnir voru handteknir í febrúar
fyrir tæpu ári eftir árás lögreglunnar
á afskekkt bóndabýli og töldu margir
að það hefði nánast gert út af við
samtökin.
Lögreglan telur þó að Action
Directe tengist Rauðu herdeildinni
vestur-þýsku og borgaraskæruliðum
kommúnista í Belgíu og óttast sumir
að þrátt fyrir að leiðtogar franska
hópsins og mcirihluti félaganna séu
á bak við lás og slá, séu enn nokkrir
eftirsem vinni að því aðendurskipu-
leggja samtökin með hjálp frá borg-
araskæruliðahópum (eða því sem
eftir er af þeim) í Vcstur-Evrópu.
Meðal þeirra átján scm auk fjór-
menninganna ciga dóm yfir höfði sér
er hin 57 ára gamla Helyete Besse,
þckkt undir nafninu „La Mamma".
Hún er sökuö um að hafa notað
bókabúð sína í París til að styðja viö
samtökin.
Action Directc stóðu meðal ann-
ars fyrir morðinu á Georges Besse,
yfirmanni franska bílafyrirtækisins
Renault. hb
Sovétmenn segjast ekki hafa neitt að fela innan sænskrar landhelgi:
„Varpið sprengjum á
okkur fyrir alla
Sovéskur hershöfðingi, sem nú er
í Svíþjóð vegna komu Nikolai Ryz-
hkov forsætisráðherra til landsins,
sagði um helgina að sænski sjóherinn
mætti alveg varpa sprengjum á það
sem þeir héldu að væru sovéskir
kafbátar að njósnum innan landhelgi
Svía. Hann fullyrti að Svíarnir
myndu ekki finna neitt ofan í
sjónum, alltjent ekki sovéska kaf-
báta.
„Varpið sprengjum á okkur fyrir
alla muni. Við höfum ekki veriö
innan lögsögu ykkar og erum þar
ekki núna,“ sagði Nikolai Chervov í
viðtali við sænska sjónvarpið.
Chervov er yfirmaður afvopnun-
ardeildar sovéska hcrsins og ávarp-
aði ráðstefnu um sovésk málefni er
haldin var í Stokkhólmi uni helgina.
1 gær kom svo Nikolgi Ryzhkov
forsætisráðherra Sovétríkjanna f op-
inbera heimsókn til Svíþjóðar þar
sem hann mun ræða við sænsk
yfirvöld um leiðir til að ná sáttum í
nítján ára gamalli deilu er snýst um
lögsögu yfir hafsvæðinu austur af
Gotlandi.
Ingvar Carlsson forsætisráðherra
tók á móti Ryzhkov og konu hans
Lyudmilu þegar þau komu til Ar-
landa flugvallarins norðan við
Stokkhólm í gærmorgun. Forsætis-
ráðherrarnir tveir héldu strax til
viðræðna um hvernig eigi að skipta
hinu 8.500 fermílna hafsvæði milli
Gotlands og strandar sovéska lýð-
veldisins Lettlands. Ryzhkov veröur
í Svíþjóð fram á fimmtudag en þá
heldur hann yfir landamærin til
Noregs.
Samkvæmt sænskum heimildum
hefur Sovétmönnum verið boðin
yfirráð yfir 25% af þessu hafsvæði í
Eystrasaltinu en sænsk blöð birtu
muni“
fréttir þess cfnis í gær að þeir vildu
ráða yfir 30% hafsvæðisins.
Almenningur í Svíþjóð virðist
ekki vera hrifinn af því að gefa eftir
í samningum við Sovétmenn í þessu
máli og spila þar sjálfsagt inn í fréttir
um að að minnsta kosti þrjátíu
óþekktir kafbátar hafi siglt óboðnir
um í sænskri landhelgi síðasta sumar
og haust.
Carlsson og stjórn hans hafa
einnig tekið upp harða stefnu í
kafbátamálinu og í síðasta mánuði
skipaði forsætisráðherrann fyrir að í
stað þess að reyna að neyða óþekkta
kafbáta upp á yfirborðið yrði þeim
sökkt. Víst er að þetta mál á eftir að
bera á góma á fundum Ryzhkovs og
Carlssonar í tengslum við samninga-
viðræðurnar um hið umdeilda haf-
svæði. hb
Hinn
fullkomni
þjófnaður
Bíræfnir þjófar í borginni Co-
ventry í miðlöndum Englands
hafa Íagt ritfangaverksmiðju þar
í borg í einelti og stolið úr henni
sjö sinnum á síðustu níu vikum.
Þeir frömdu svo hinn fullkomna
þjófnað á dögunum þegar þeir
stálu sjálfu þjófavarnarkerfinu úr
verksmiðjunni.
Þjófarnir virtust hafa áhuga á
tækniútbúnaði ýmiskonar, stálu
símum, símaleiðslum og loksins
sjálfu þjófavarnarkerfinu eins og
það lagði sig.
Forsvarsmaður verksmiðjunn-
ar var að sjálfsögðu sár út í
þjófana en skopskynið missti
hann ekki og sagði við fréttamenn
að illvirkjarnir hefðu örugglega
þurft að nota þjófavarnarkerfið
til að gæta þeirra hluta sem þeir
hefðu stolið á síðustu vikum. Þeir
hlutir eru andvirði um sex hundr-
uð þúsund íslenskra króna. hb