Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 3
Föstudagur 29. janúar 1988 Tíminn 3 Aðgreining dóms- og framkvæmdavalds á næsta leiti: Ráðherra ætlar að hlfta mannréttindasáttmála Nefndin, sem dómsmálaráðherra skipaði til að gera tillögur um betri dómskipan og meiri skilvirkni, hefur ekki enn skilað niðurstöðum sínum. En ráðherra hefur lítillega reifað þær hugmyndir sem ræddar hafa verið í nefndinni og miklar líkur eru að sæst verði á. Eiríkur Tómasson, hrl., á sæti í nefnd þessari og hann lítur svo á nefndarskipan ráðherra að reynt sé að koma til móts við mannréttindasáttmála Evrópuráðs. Skipan nefndarinnar er þó einnig í beinum tengslum við stjórnarsáttmálann. Svo sem kunnugt er hefur Eirík- ur Tómasson rekið mál fyrir mann- réttindadómstóli Evrópuráðs gegn íslenska ríkinu fyrir hönd Jóns Kristinssonar, þar sem deilt er á að sami maður stjórni lögreglu eða framkvæmdavaldi og dæmi í málum. Verði breyting á íslenskri dóm- skipan áður en mannréttindadóm- stóllinn tekur mál Jóns fyrir eru líkur á að sættir náist í málinu og óþarft verði að fá dóm í því hjá mannréttindadómstólnum. „Ég á sæti í þessari nefnd sjálfur og niðurstöður hafa ekki enn verið birtar," sagði Eiríkur í gærkvöld. „Ég skil nefndarskipunina svo að það sé stefnt að því að færa þetta í rétt horf miðað við mannréttinda- sáttmálann. í>að leiddi aftur til þess að sátt náist í málinu fyrir mannréttindanefndinni. t*á færi málið aldrei fyrir dómstólinn. En það er að sjálfsögðu forsenda að þessu verði breytt áður.“ Hugmyndir nefndarinnar eru nú nokkuð mótaðar. Þær fela í sér stórkostlega breytingu á íslenskri dómskipan. Dómsvald verður tek- ið af sýslumönnum og réttarkerfinu úti á landi komið í sama horf og tíðkast í höfuðborginni. Hugmyndir eru um að embætti héraðsdómara taki við störfum fógetaréttar, skiptaréttar og upp- boðsréttar, að svo miklu leyti sem um dómsstörf er að ræða. Sýslu- maður, sem jafnframt er æðsti maður löggæslu, hefur sinnt þeim skyldum til þessa, en það hefur þótt óheppilegt að hann dæmdi í málum, sem lögreglan færi með. Hlutverk fyrrnefndra rétta hafa og verið endurskoðuð og hluti framkvæmda þeirra verður áfram hjá sýslumanni. Auk þess verður sýslumanni falin ný verkefni, sem nú eru leyst í ráðuneytum, svo sem á sviði sifjaréttar. Pá er búist við að sýslumannsembættum muni fækka um fjögur eða fimm, en héraðs- dómurum verði fjölgað í þeim landshlutum, þar sem sérstakir héraðsdómarar hafa ekki verið skipaðir við sýslumannsembættið. Umtalsverðar breytingar verða á skipan mála í Reykjavík einnig. Embætti borgardómara, sakadóm- ara og að hluta sakadómara í ávana- og fíkniefnamálum yrðu sameinuð í eitt embætti. Fógeta- embættinu yrðu falin ýmis stjórn- sýsluverkefni að undanskilinni lög- reglu- og tollstjórn. Það sæi um borgaralega hjónavígslu og skiln- aðarmál. Málflutningur Eiríks Tómasson- ar fyrir mannréttindanefnd Evr- ópuráðs hefur knúið á um breyting- ar, sem margir lögfræðingar hafa talið löngu tímabærar. En málið fellur niður ef íslensk stjórnvöld eru sneggri til að greina að dóms- og framkvæmdavald, skv. tillögum nefndarinnar. t>á verður tilgangin- um náð án dómsúrskurðar. þj Eiríkur Tómasson, lögfræðingur. Seltjarnames: Arangurslaus leit að roskinni konu Guðríðar Kristinsdóttur, 81 árs, til heimilis að Ráðagerði á Seltjarn- amesi, var sleitulaust leitað myrkra á milli í fyrradag og fram eftir degi í gær. Eftirgrennslan hófst klukkan hálftvö aðfaranótt miðvikudags. Leitin hefur engan árangur borið. Sfðast er vitað um Guðríði um hádegisbilið á mánudag, en þá ræddi aðstandandi við hana í síma. Ekkert hefur spurst til ferða hennar síðan. Aðalleitarsvæðið hefur verið yst á Seltjarnarnesi, frá Ráðagerði og út í Suðurnes, en Guðríður fer oft í gönguferðir um þetta svæði. Gefin hefur verið út lýsing á Guðríði ef vera kynni að einhver hefði séð til hennar. Engin hefurenn gefið sig fram. Talið er sennilegt að Guðríður sé klædd grænleitri kápu og með dökkt höfuðfat. Hún er 160 cm á hæð, áberandi grönn og kvik á fæti. Vegna þess hve hún er frá á fæti biður lögreglan á Seltjarnarnesi fólk að leita hennar í húsagörðum sínum á Seltjarnarnesi og í vesturbænum, en ekíci er talið fráleitt að hún kunni að hafa gengið í þá átt. Hafi einhver orðið hennar var frá því á hádegi á mánudag er hann beðinn að hafa samband við lögregl- una í Hafnarfirði eða Seltjarnarnesi. Þj Fjármálaráðuneytið: Barnabætur að koma Barnabætur fyrsta ársfjórðung hafa verið reiknaðar út og ávísanir sendar innheimtumönnum ríkis- sjóðs og gjaldheimtum til dreifing- ar til rétthafa. Heildarfjárhæð barnabóta fyrsta ársfjórðungs er rúmlega 547 millj.kr. sem dreifist á 69.059 móttakendur. Þeir skipt- ast þannig. Hjón, 50.838 einstaklingar, bæt- ur alls 354 millj.kr. eða um 13.940 kr. á hvert hjóna að meðaltali. Sambýlisfólk 10.962 einstakling- ar, bætur alls 75 millj.kr. eða um 13.720 kr. á hvert par að meðaltali. Einstæðir foreldrar, 5.909, bæt- uralls 111 millj.kr., eða um 18.770 kr. að meðaltali. Aðrir 1.350, bætur alls 7 millj .kr. eða um 4.961 kr. að meðaltali. Fyrirframgreiðsla barnabótaauka verður afgreidd á næstu dögum og mun verða nálægt 100 millj.kr. Áætlað er að barnabætur greiddar 1988 verði alls um 2.250 millj.kr. og barnabótaauki um 550 millj.kr. eða alls um 2.800 millj.kr. Á síðasta ári voru greiddar barnabætur 1.547 millj .kr. og barn- abótaauki 379 millj.kr. eða alls 1.926 millj.kr. og hækka því um 874 millj.kr. milli ára. Greiðsla barnabóta í hverjum ársfjórðungi verður miðuð við framfærendur skv. þjóðskrá í lok næsta ársfjórðungs á undan. Áríð- andi er að rétthafar barnabóta sjái til þess að fjölskylduaðstæður, hjúskaparstaða, börn á framfæri og heimilisfang sé réttskráð hverju sinni. Rétthafar bóta, sem ekki fá þær greiddar á næstu dögum, skulu snúa sér til viðkomandi skattstofu. SUNNUDAGÍNN 31. JANÚAR Á HÓTEL SÖGU Framsóknarvist Framsóknarfélag Reykjavíkur efnir til Framsóknarvistar í Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 31. janúar kl. 14. Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna. Ingvar Gíslason, ritstjóri Tímans, mun flytja stutt ávarp í kaffihléi. Aðgangseyrir er kr. 350 (kaffiveitingar innifaldar) Framsóknarfélag Reykjavíkur Guðríðar Kristinsdóttur, 81 árs, er saknað.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.