Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 7
Föstudagur 29. janúar 1988 Tíminn 7 Hólmavík: Hluti skreiðarlána afskrifaður í ár? Eftirstöðvar afurðalána til skreið- arframleiðenda eru stöðugt að minnka að mati Helga Bergs, banka- stjóra Landsbankans. Lánin hjá þeim banka einum nema þó enn um 252 milljónum. Jakob Ármannsson, aðstoðarbankastjóri Útvegsbank- ans, sagði á hinn bóginn að ekki væri rannhæft að gera ráð fyrir öðru en að afskrifa þurfi hluta lánanna á þessu ári. Nú eru að berast um 12-15 milljónir til landsins og dreifist sú upphæð á nokkuð marga framleið- endur. Ekki kemur þó öll upphæðin til með að greiða niður afurðalánin þar sem ekki eru allir framleiðendur með útistandandi afurðalán. Staða skreiðarframleiðenda er 1 ekki alveg Ijós, þrátt fyrir að telja megi að þeir skuldi samanlagt hátt í 400 milljónir í afurðalánum hjá Landsbanka, Útvegsbanka og Bún- aðarbanka. Margir skreiðarfram- leiðenda eru stöndug fyrirtæki eins og Helgi Bergs sagði og væru sumir þeirra búnir að borga upp lán sín frá fyrri árum. Afurðalán hjá Útvegsbanka eru talin nema um 115-120 milljónunt og hefur því eilítið saxast á upphæð- ina frá því í haust, en þá nam hún um 140 milljónum. Staða afurðalána hjá Landsbanka var í ágúst nálægt 308 milljónum. Aðrir bankar hafa lánað mun minna, eins og t.d. Bún- aðarbanki íslands. KB Heildartekjur um 28 milljónir Á fundi hreppsnefndar Hólma- víkurhrepps 13. jan. sl., var fjár- hagsáætlun hreppsins tekin til fyrstu umræðu. I áætluninni er gert ráð fyrir því að heildartekjur sveitarsjóðs á árinu 1988 verði tæpar 28 milljónir króna. Stærsti útgjaldaliður áætlunar- innar er gatna- og holræsagerð, en til þeirra hluta verður varið um 17% af tekjum hreppsins samkvæmt áætluninni. Af öðrum stórum liðum má nefna almanna- tryggingar og félagshjálp (14%), yfirstjórn sveitarfélagsins (12%), fræðslumál (12%) og heilbrigð- ismál (9%). Stefnt er að því að afgreiða fjárhagsáætlun Hólmavíkur- hrepps í byrjun febrúar. Stefán Gíslasun Akranes: Dreyri byggir Hestamannafélagið Dreyri á Akranesi sem varð 40 ára á síðasta ári stendur nú í byggingarfram- kvæmdum við félagsheimili fyrir fé- lagið. Dreyramenn eru búnir að steypa grunn og slá upp húsinu. Félagsheimilið verður mjög myndar- legt eins og sjá má á myndinni sem Óskar ljósmyndari Tímans á Akra- nesi tók fyrir nokkrum dögum. Tímamynd: Ó.A. Þriðja skák Jóhanns Hjartarsonar og Viktors Kortsnoj dauflegt jafntefli: Lognið á undan storminum Þriðja einvígisskák Jóhanns og Kortsnoj var í engu samhengi við tvær þær fyrstu, sem voru mjög líflegar. Jóhann hóf taflið með því að leika kóngspeði sínu fram um tvo reiti alveg eins og í fyrstu skákinni, en Kortsnoj kom á óvart og tefldi svonefnda Caro-Kann vörn sem er mjög traust byrjun og hefur nú að undanförnu verið þekkt fyrir að Karpov hefur notað hana með góðum árangri gegn Sokolov og Kasparov. Sá árangur felst í jafn- teflum. Það kemur á óvart að Kortsnoj skuli feta í fótspor erkióvinar síns Karpovs, en um leið er þetta augljóst merki þess að Kortsnoj er farinn að taka Jóhann mjög alvar- lega og þorir ekki að tefla sína uppáhaldsbyrjun, Opna afbrigði spánska leiksins á ný. Þeir kappar eyddu fremur mikl- um tíma á byrjunina og það má e.t.v. segja að hún hafi komið báðum á óvart. Lítum á skákina sjálfa. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Viktor Kortsnoj Caro-Kann vörn 1. e4 - c6 2. d4 - d5 3. Rd2 - dx3 4. Rxe4 - Hér má leika 4. - Bf5, 5. Rg3 - Bg6, 6. h4 - h6, 7. Rf3 o.s.frv., en Kortsnoj velur sama afbrigði og Karpov, sem er það traustasta og einkum nothæft þegar svartur vill fá jafntefli og ekkert annað. 4. - Rd7 5. Rf3 - Rgf7 6. RxRf6+ - RxRf6 7. Re5 - Hvítur vill ekki láta leppa riddar- ann með 7. - Bg4 og leikur honum því áfram. Slík leppun gæti haft í Ólafur Helcri Plf Árnason SKÁKSKÝRANDI för með sér óþægilegan þrýsting á peðið á d4. Bc4 væri hvassara. 7. - Be6 8. Be2 - g6 Kortsnoj þarf að koma biskupn- um út á g7 og um leið myndast þrýstingur á d4 reitinn. 9. 0-0 - Bg7 10. c4 - Tilraun til að hressa upp á skák- ina. Tal lék á stórmótinu í Wijk aan Zee gegn Adgestein 10. c3 og skákin varð fljótlega jafntefli. Þess má geta að Karpov sigraði í því móti. 10.- 0-0 11. Be3 - Rd7 Hugsanlega er betra að leika 11. - Re4, en þetta er öruggari leið. Jóhann Hjartarson I 111 ■ i ■ 111 Á IIIIIIIIIIH lil Á ■ Á 1111 A11 u. Á 11 fflU 1111 All 3 II H 11 A Bl IA 01 01 01 llllll ^llllllll n m 12. Rf3 - Rf6 13. Re5 - Rd7 14. Rf3 - Rf6 15. Re5 - Hér voru pappírar undirritaðir. Ekki var boðið jafntefli, því Korts- noj gat krafist þess, af þeirri ein- földu ástæðu að sama staðan myndi koma upp í þriðja sinn ef hann léki Rf6. Að vísu var Kortsnoj dágóða stund að gera þetta upp við sig og má af því ætla að hann hafi ekki verið fullkomlega ánægður með jafntefli. Jóhann getur varla heldur verið ánægður með jafntefli með hvítu mönnunum, en hann tapar þó ekki á meðan. Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi. 1 kvöld má búast við að Kortsnoj komi sem organdi Ijón og ef Jó- hanni tekst að halda jafntefli, nú eða sigra, þá hef ég trú á því að allir möguleikar í þessu einvígi séu Jóhanns megin. Staðan: Kortsnoj 1 vinningar Jóhann 2 vinningar Einvíginu er lokið þegar annar hvor hefur náð 3,5 vinningum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.