Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 9

Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 9
Föstudagur 29. janúar 1988 Tíminn 9 VETTVANGUR llllllllllllll Áskell Einarsson Byggðaröskun - orsök og afleið- ing þenslunnar á Suðvesturlandi í nýjasta fréttabréfi Húsnæðis- málastofnunar ríkisins er yfirlit um dreifingu lánsloforða, miðað við kjördæmi, skilgreint eftir heimili umsækjanda og staðsetningu þeirra íbúða, sem lofað hefur verið lánum til. Þetta yfirlit nær til allra lánaflokka tímabilið 1. september 1986 til 15. nóvember 1987. Á þessu tímabili veitti Húsnæðis- málastofnun 5008 lánsloforð, sem svarar til að 2% íbúa landsins hafi fengið lánsloforð hjá Húsnæðis- stofnun ríkisins. Flest lánsloforð voru veitt vegna íbúða staðsettra í Reykjavík eða 47,9% og 26,5%, vegna íbúða sem eru staðsettar í Reykjaneskjördæmi. Alls voru veitt lánsloforð til íbúða á Suðvest- urlandi 74,4%, en aðeins26,6% til íbúða á landsbyggðinni. Sé stuðst við heimilisfang þeirra er lánslof- orð fengu eru 43,7% þeirra búsettir í Reykjavík, en 24,5% í Reykja- neskjördæmi. Úti á landi eru bú- sett 31,8% þeirra, sem fengu lánsloforð. Þetta eru hlutfallslega fleiri lánshafar, en hlutfall lánslof- orða til landsbyggðar vegna íbúða í heimabyggð til lánshafa búsettra utan Suðvesturlands. Fimmta hvert lánsloforð landsbyggðarmanna fer á Suðvesturhornið Sé gerður samanburður á láns- loforðum til íbúða staðsettra í Reykjavík og lánshafa búsettra þar, sem nýta lánsloforð sín í heimabyggð, kemur í ljós að 18,2% lánsloforða vegna staðsettrá íbúða í borginni eru frá aðilum, sem annaðhvort eru búsettir í Reykjaneskjördæmi eða á lands- byggðinni. Hliðstæður samanburð- ur fyrir Reykjaneskjördæmi sýnir að 23% lánsloforða til íbúða í kjördæminu eru frá Reykvíkingum og landsbyggðarmönnum. Af 421 lánsloforði til utanbæjar- manna, vegna íbúða staðsettra í Reykjavík, eru 197 þeirra frá aðil- um í Reykjaneskjördæmi, en 224 lánsloforð eru frá landsbyggðar- mönnum. Af 305 lánsloforðum utansveitaríbúa í Reykjaneskjör- dæmi eru 198 frá Reykvíkingum, og 107 frá landsbyggðarmönnum. Þetta sýnir að næstum jafnmargir lánshafar færa sig frá Reykjavík vegna íbúðaframkvæmda til Reykjaness, og þeir sem færa sig til Reykjavíkur frá Reykjaneskjör- dæmi. Tilfærslan frá landsbyggð- armönnum er samtals 320 lánslof- orð, sem þeir ætla að nota á Suðvesturlandi. Þetta svarar til 8,6% lánsloforða Húsnæðismála- stjórnar, vegna íbúða staðsettra á Suðvesturlandi, sem er 20,4% af öllum lánsloforðum, sem koma í hlut landsbyggðarmanna. Um 70% tilfærslu lánsloforða frá landsbyggðarmönnum fara til Reykjavíkur, en 30% til Reykjaneskjórdæmis Hlutfall af lánsloforðum til landsbyggðarmanna, eftir kjör- dæmum, sem þeim hafa verið veitt vegna staðsettra íbúða í Reykjavík og Reykjanesi, er hæst hjá Vest- firðingum eða 27,4% af heildar- lánsloforðum til þeirra, sem eru 46 lánsloforð til íbúða staðsettra á Suðvesturlandi. Með næsthæsta hlutfall er Vesturland með 26,3%, sem er 74 lánsloforð vegna íbúða staðsettra á Suðvesturlandi. Norðurland vestra er þriðja í röð- inni með 24,3% veittra lánslof- Sklpting lánsloforða 1.9.’86 -15.11 .’87 eftir heimili umsækjenda og staðsetningu íbúðar -Allirlánaflokkar- Heimili umsækianda R.vik R.nes V.land' Stadsetning íbúöar: Vestf. Nl.v. Nl.e. Au.land S.land Ósk.pr. Samtals % Reykjavík 1962 198 5 2 1 7 1 10 0 2186 43.7 Reykjanes 197 1021 3 0 0 2 2 1 0 1226 24.5 Vesturland 53 21 205 0 0 1 1 0 0 281 5.6 Vestfiröir " 35 1! ’ 2 118 0 0 1 1 0 168 3.4 Noröurl. vestra 19 17 0 0 109 2 0 1 0 148 3.0 Norðurl.eystra' ~ 26' 19 0" 0" 0- 378 2 2 0 427 8.5 Austurland 35 8 0 0 2 2 166 0 0 213 4.3 Suðurland 56' .. 20... .... 2. “.. 0 0....... .. U 0. .. 249 ..... 2 329 6.6 Óskilgreint 16 11 0 0 0 2 1 0 0 30 0.6 Samtals ' 2399. 1326“ 217 ' 120 112 394 ._ 174 264 2 5008 100.0 % 47.9 26.5 4.3 2.4 2.2 7.9 3.5 5.3 0.0 100.0 Skýringar: Taflan nær til allra umsókna samkvæmt „nýja kerfinu" þar sem vitaö er um staösetningu þeirrar íbúöar sem umsækjandi er að kaupa eöa byggja. Dæmi: al 281 umsækjendum sem eru búsettir á Vesturiandi þegar þeir sækja um, eru 205ab byggja eöa kaupa á Vesturlandi; 53 aí þeim eru aö kaupa eöa byggja í Reykjavík, 21 í Reykjaneskjördæmi, 1 á Norðurlandi eystra og 1 á Austuriandi. orða, sem eru til íbúða staðsettra á Suðvesturlandi eða 36 talsins. Næst í röðinni er Suðurland með 23,1% og 76 lánsloforð vegna íbúða á Suðvesturlandi. Austurland er með 20,2% og 43 lánsloforð, sem nýtt eru á Suðvesturlandi. Norður- land eystra rekur lestina með 10,5% og 45 lánsloforð, sem færast til Suðvesturlands. Aðeins fjórðungur lánsloforða Húsnæðismálastjórnar er veittur landsbyggðarmönnum til íbúða staðsettra í heimabyggðum þeirra Tæplega 40% þjóðarinnar eru búsett í kjördæmum utan Suð- vesturlands. Þessi hluti þjóðarinn- ar fær um 25% allra lánsloforða Húsnæðismálastofnunar ríkisins á áðurnefndu tímabili, til fjárfesting- ar í íbúðahúsnæði í heimabyggð- um, sem er alls 1225 lánsloforð. Af þessum samanburði er ljóst að fjarri því er að byggingarframkvæmd- á landsbyggðinni fylgi þeirri öru uppbyggingu, sem nú á sér stað í landinu. Þetta svarar til að 1,29% af íbúum landsbyggðar hafi lánslof- orð vegna íbúða í heimabyggð, á móti 2-2,5% á Suðvesturlandi. Til- færsla lánsloforða landsbyggðar- manna til Suðvesturlands er meira en fjórðungur miðað við þau láns- loforð, sem þeir nýta heima fyrir. Misvægi efnahagsþróunar bitnar á landsbyggðinni Almennt er litið svo á að bygg- ingaþörfin eigi að vera í eðlilegu hlutfalli við íbúafjölda. Reykjavík er eina kjördæmið, þar sem hlutfall heimilisfastra lánshafa er hærra en íbúahlutfallið. Þetta svavar til 98 lánsloforða til Reykvíkinga, vegna íbúða í heimabyggð, sem væri umfram íbúahlutfall borgarinnar. Ef bætt er við þessa tölu lánsloforð- um vegna staðsettra íbúða í Reykjavík á vegum utanbæjaraðila er þetta alls 519 lánsloforð umfram hlutfall borgarinnar í þjóðarfjöld- anum. Þetta svarar til 21,6% af lánsloforðum vegna staðsettra íbúða í Reykjavík, sem er einskon- ar umframaukning sé miðað við íbúahlutfallið. Ekki er blöðum um það að fletta að hér eru á ferðinni sterkir efnahagsstraumar, sem í senn spegla verulega þenslu á Reykjavíkursvæðinu og sýnir til- Áhrif af þenslunni í Reykjavík verkar örv- andi fyrir önnur svæði á Suðvesturlandi t.d. höfuðborgarsvæðið. Það alvarlega er að á sama tíma dregur úr trú landsbyggðar- manna að festa fé sitt á heimaslóðum. Þetta er merki um alvarlega þróun í byggðamálum og sýnir vantrú lands- byggðarmanna á eigin framtíð í heimabyggð- um. flutning fjármagns frá landsbyggð- inni frá einkaaðilum. Það merkilega er, að hlutfall veittra lánsloforða heimamanna í Reykjaneskjördæmi vegna íbúða í heimabyggðum, er til muna lægra en íbúahlutfall kjördæmisins, þrátt fyrir þensluna. Þessi munur svarar til að vanti 154 lánsloforð heimaað- ila til að lánsloforðin séu hlutfalls- Iega í samræmi við íbúahlutfall Reykjaneskjördæmis. Hlutfall lánsloforða til íbúða staðsettra í Reykjaneskjördæmi er hærra, og er 163 lánsloforðum fleiri en íbúa- hlutfallið segir til um. Lánsloforð utankjördæmismanna skapa þenn- an mun, sem bætir upp það sem á vantar að lánsloforð úr Reykjanes- kjördæmi, vegna íbúða heima fyrir, nái hærra hlutfalli lánsloforða en íbúahlutfallið. Sá er munurinn á Reykjavík og Reykjaneskjör- dæmi í húsnæðismálum, að spenn- an í Reykjavík er að verulegum hluta vegna aukinna bygginga Reykvíkinga sjálfra, en í Reykja- neskjördæmi er spennan vegna fjárhagsráðstafana manna í íbúða- málum, utan kjördæmisins. Tæp 15% lánsloforða til íbúða stað- settra á Reykjanessvæðinu eru frá Reykvíkingum, en 7,2% frá lands- byggðarmönnum. Hér gætir þess að mestur hluti höfuðborgar- svæðisins telst til Reykjaneskjör- dæmis. Áhrif af þenslunni í Reykjavík verkar örvandi fyrir önnur svæði á Suðvesturlandi t.d. höfuðborgar- svæðið. Það alvarlega er að á sama tíma dregur úr trú landsbyggðar- manna að festa fé sitt á heimaslóð- um. Þetta er merki um alvarlega þróun í byggðamálum og sýnir vantrú landsbyggðarmanna á eigin framtíð í heimabyggðum. Eitt prósent lánsloforða frá Suðvesturlandi fer til landsbyggðar Á árunum 1975-1980 bar tölu- vert á því að heimilisfastir menn á Suðvesturlandi stofnuðu til íbúða- bygginga á landsbyggðinni. f sumum tilvikum voru þetta brottfluttir landsbyggðarmenn, sem leituðu heimahaganna á ný, þegar rofaði til í atvinnumálum hinna dreifðu sjávarbyggða. Þessu er öfugt farið nú. Aðeins 34 heimilisfastir lánshafar á Suð- vesturlandi hafa lánsloforð vegna íbúða á landsbyggðinni. Ellefu þeirra sækja til Suðurlands. Níu þeirra til Norðurlands eystra og átta til Vesturlands. Til annarra kjördæma sækja tveir til Vest- fjarða, þrír til Austurlands og aðeins einn til Norðurlands vestra. Það er að komast í tísku að Reyk- víkingar færi búsetu sína til Hvera- gerðis. Einstaklingar og samtök eignast íbúðir á Akureyri, til or- lofsdvalar. Rúmlega eitt prósent lánsloforða til landsbyggðar- manna er vegna íbúða í óðru iandsbyggðarkjördæmi, en heimakjördæmi Fimm lánshafar á landsbyggð- inni, utan Norðurlands eystra, hafa fengið lánsloforð vegna íbúða staðsettra í kjördæminu. Samsvar- andi tölur eru 4 lánsloforð til landsbyggðar vegna staðsettra íbúða í hverju eftirtalinna kjör- dæma: Austurland, Suðurland og Vesturland. Enginn landsbyggðar- maður hefur fengið lánsloforð til íbúðar staðsettrar á Vestfjörðum, utan heimilisfastra Vestfirðinga. Aðeins tveir landsbyggðarmenn utan Norðurlands vestra hafa fengið lánsloforð vegna íbúða staðsettra þar. Alls er hér um að ræða 19 lánsloforð. Sé þetta skoðað eftir heimilis- fangi hafa 4 heimilisfastir Vestfirð- ingar lánsloforð vegna íbúða, sem eru staðsettar í öðrum landsbyggð- arkjördæmum. Vesturland er með jákvæðan mun gagnvart öðrum landsbyggðarkjördæmum, ásamt Suðurlandi og Norðurlandi eystra. Austurland stendur á jöfnu, en Norðurland vestra er með nei- kvæðan mun sem svarar einu láns- loforði. Samstarfshópur Húsnæðis- málastofnunar ríkisins um landsbyggðarmálefni í húsnæðismálum í áðurnefndu fréttabréfi er skýrt frá því að á vegum Húsnæðismála- stofnunar ríkisins starfi sérstakur samstarfshópur innan stjórnarinn- ar er fjalli um úrbætur í húsnæðis- málum byggðarlaga utan höfuð- borgarsvæðisins. Við samanburð á dreifingu láns- loforða eftir búsetu lánshafa og á staðsetningu þeirra íbúða, sem lánsloforðin eru veitt til, má greina suma þá þyngstu strauma sem orsaka tilfærslu einkafjár- magns í landinu. Undirstrauma byggðaröskunar í landinu, sem í mörgum efnum er þyngri á metum, en góð atvinnuaðstaða og bestu félagsleg skilyrði hafa á búsetu- þróun í landinu. Það eru mörg dæmi um það að ekki er hægt að fá raunvirði fyrir góðar fasteignir í byggðalögum, þar sem er uppsveifla í atvinnulífi og meðaltekjur eru háar. Með öðrum orðum víða þar sem fyrir hendir éru atvinnuskilyrði og önn- ur búsetuskilyrði í besta lagi, vill fólk ekki fjárfesta. Það hefur ekki trú á að festa sparnað sinn í þeim byggðalögum, þar sem hann er upprunninn. Þetta orsakar stöðugan fjárflótta til þenslusvæðanna í landinu, sem engar sundurlausar aðgerðir í byggðamálum fá snúið við. Þetta hefur reynslan sannað undanfarin ár á óyggjandi hátt. Aðgerðir í húsnæðismálum á vegum Húsnæðisstofnunar ríkisins er liður í miklu stærra máli og eru góðra gjalda verðar, til að koma í veg fyrir að húsnæðiskostur á landsbyggðinni hamli ekki vexti framleiðslusvæðanna. Meginmálið er að skapa traust á fjárfestingum í framleiðslubyggða- lögum landsins á ný. Þetta kostar uppstokkun kerfisins, með upp- skurð þeirra meinsemda, er valda byggðavandanum í landinu og við- halda vaxandi misvægi þrátt fyrir góðæri undanfarinna ára. Áskell Einarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.