Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 19

Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 19
Föstudagur 29. janúar 1988 Tíminn 19 SPEGILL Allt í sómanum Þegar Olivia Newton-John giftist Matt Lattanzi, sem hún kynntist við tökur á myndinni Xanadu, spáðu sárafáir, að hjónabandið entist nema |Skamma hríð. Ólafía jog Matti hafa þó meira en hangið saman, kunnugir segja að hjónabandið sé einkar ástúðlegt og jafnvel traust. Tíu ára „öfugur" aldursmunur jvirðist ekki skipta neinu máli. Þau eiga dótturina Chloe Rose og búa á myndarlcgum búgarði í Kaliforníu. Nú í fe- brúar er væntanleg ný plata frá Oliviu. Þessi mynd var tekin af fjölskyldunni á samkomu tii styrktar heimilis- lausum börnum. Einstæð móðir fylgist með sjúkdóms- stríði dóttur sinnar - faðirinn, ráðherrann, lætur ekki sjá sig Alltaf er erfitt að horfast í augu við það þegar lítil börn eru svo veik að tvísýnt er um hvort þau lifi eða ekki. Enn erfiðara er það sj álfsagt þegar foreldrarnir taka ekki samhentir þátt í áhyggjunum. í gegnum slíka lífsreynslu er að ganga þessa dagana Sara Keays en fjögurra ára dóttir hennar, Flora, berst nú fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í Englandi en fyrir tveim árum greindist hjá henni flogaveiki á háu stigi. Faðir Floru lætur hins vegar ekki sjá sig. Hann er Cecil Parkinson, núverandi orkumálaráðherra Bretlands, en við lá að pólitískur ferill hans fengi snöggan endi þegar Sara, sem verið hafði ritari hans, kom opinberlega fram og sagðist bera barn hans undir belti. Parkinson neitaði ekki faðerninu en að athuguðu máli ákvað hann að halda kyrru fyrir hjá konu sinni og láta Söru sigla sinn sjó. Enda fóru leikar svo að nú hefur Margaret Thatcher dregið hann inn úr kuldanum og látið hann hafa ráðherrastól. Sara Keays hefur miklar áhyggjur af heilsufari dóttur sinnar en faðir hennar, Cecil Parkinson núverandi orkumálaráðherra Breta, lætur ekki sjá sig. Marlon Brando vill frekar missa kílóin en stúlkuna Marlon Brando, sem var grannur og spengilegur þegar hann varð kvikmyndastjarna, hefur látið undan freistingunum og sankað óspart að sér kílóun- um á lífsleiðinni. Nú er hann orðinn 63 ára og vegur 155.5 kg. Sjálfur er hann ekkert ósáttur við öll þessi kíló af Marlon Brando og kvikmyndaframleiðendum og konum finnst hann jafneftirsóknarverður og fyrr, þ.e.a.s. flestum konum. Sambýliskona hans undan- farin 7 ár, japanska stúlkan Yachio Tsubaki hefur nú sett honum stólinn fyrir dyrnar. Hún ber það reyndar fyrir sig að pabbi hennar vilji ekki að hún leggi lag sitt við þennan útblásna Marlon Brando. Nú er því svo komið að Marlon er kominn í strangan megrunarkúr. Hann vill ekki gera mikið veður út af því en er sagður hafa gengið í klúbb nafnlausra átvagla í Los Angeles. Og kokkurinn hans mun hafa fengið ströng og ófrávíkjanleg fyrirmæli um matreiðsluna. Önnur fræg og vinsæl kvikmyndastjarna sem ber óheyrilegan þunga er Raymond Burr sem leikur m.a. Perry Mason með miklum ágætum. Hann er orðinn sjötugur og vegur rúm 120 kíló, sem er alltof mikið þó að hann sé 185 cm á hæð. „Ég hef alltaf verið stór og þungur,1' segir hann. “Þegar ég fæddist var ég 23 merkur.“ En hann segist aldrei hafa látið fara fyrir brjóstið á sér að hann mældist meira um mittið en flestar leikstjörnur. „Sá sem á í vandræðum með þyngdina ætti aldrei að sökkva sér ofan í sjálfsvork- unnsemi heldur takast á við vandamálið. Áður en langt um líður gleymir fólk útlitinu og dæmir manninn eftir innri rnanni," segir hann. Raymond Burr er salla- ánægður með öll 120 kflóin sín og flnnst þau varla mega vera færrí. Marlon Brando vegur nú yfir 155 kfló og tengdaföður hans finnst nóg komið. Nú er ekki um annað að ræða en að fara í megrun, annars Marlon konuna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.