Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 13

Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 13
Föstudagur 29. janúar 1988 Tíminn 13 BÓKMENNTIR SÉRSTÆÐ HRYNJANDI Jón Jónsson, Frcnistafelli: Viðkvæm er jörð, kvædi, Fremstafclli, 1987. Pað er sameiginlegt einkenni á meginhlutanum af kvæðum Jóns Jónssonar í Fremstafelli að hann yrkir þau að hefðbundnum hætti undir reglubundnum bragarháttum, og með rími, stuðlum og höfuðstöf- um. En sérkenni þeirra er að hann fylgir hrynjandi bragarháttanna all- víða hreint ekki nákvæmlega út í æsar. Þvert á móti bregður hann því fyrir sig að sleppa úr eða skjóta inn atkvæðum, allt eftir því sem andinn virðist innblása honum. Þetta veldur því að hrynjandin í kvæðum hans, þeim sem hann yrkir undir hefð- bundnum kvæðaháttum, verður óregluleg og fjarri því eins nákvæm- lega talin atkvæðin í hverja línu og við eigum að venjast úr ljóðum þjóðskáldanna gömlu. Og svo áfram sé haldið með hina bragfræðilegu hlið málanna þá sá ég þarna aukheldur á fleirum en einum stað bragfræðilegt einkenni, sem finna má víða í miðaldakveðskap, en dró síðan verulega úr að skáldin leyfðu sér. Það er tveggja atkvæða forliður, sem felst í því að tveimur atkvæðum er skotið inn fremst í vísuorð á undan höfuðstaf, eða til Jón Jónsson, Fremstafelli. dæmis eins og er í þessum línum úr kvæðinu Ó komdu aftur: og gefðu aftur blómaþyt í bæinn fyrír börn sem urðu menn. Ekki ætla ég mér þó að fara að setja út á þetta hjá bókarhöfundi, því að hún er löngu liðin sú tíð að ritdómarar geti leyft sér að gefa ljóðabókum slaka einkunn fyrir það eitt að höfundar þeirra fylgi ekki gömlu og góðu bragreglunum út í ystu æsar. Enda er það mála sannast að þarna er líka nokkuð af kvæðum sem ort eru undir nútímalegu og frjálsu formi, og sum hver býsna forvitnileg. Ég vil þar til dæmis nefna kvæðið Kvóti. en í því er fyrst brugðið upp vel gerðri náttúrumynd - af fjalli sem speglast í kyrrum vatnsfleti - og síðan dregin af henni líking um þá niðurstöðu sem mcnn geti fengið út úr eigin lífi sínu. Annars eru yrkisefni Jóns Jóns- sonar margvísleg. Meðal annars er þarna talsvert af kvæðum sem ort eru út af eigin hugleiðingum hans og endurminningum. Sögulegum efn- um bregður þarna fyrir, til dæmis í kvæðinu Séra Páll í Selárdal, en líka víðar, svo sem í kvæðinu Sagan sem Jón Hallsson sagði mér, vel gerðu verki um strokuhest sem festist í taumbandi sínu og bar beinin uppi á öræfum. Einnig er þarna talsvert af tækifæriskvæðum, einkum erfiljóð- um um látna sveitunga og vini skáldsins. -esig Hjúkrunar- fræðingar Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu- gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina í Ólafsvík. 2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Þingeyri. 3. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina í Reykjahlíð, Mývatnssveit. 4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð Suðurnesja í Keflavík. 5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina á Skagaströnd. 6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina á Þórshöfn. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 24. janúar 1988 MIKID LÍKINGAMÁL Andlit i bláum vötnum, 73 IjOö eftir Ragnhildi Ófeigsdóttur, Bókrún, Rvk. 1987. Það dylst engum, sem les, að ljóðin hér eru ort af konu. Hér eru kvenleg sérsjónarmið og viðhorf svo ríkjandi að ég hygg að naumast nokkur karlmaður myndi ljóða á þann hátt sem hér er gert. Annað helsta megineinkenni ljóð- anna í þessari bók er svo mikið og ýtarlegt líkingamál sem þarna er hvarvetna beitt. Það er svo annað einkenni á þessu líkingamáli að það er að stærstum hluta sótt til fjarlægra merkingarsviða og er nánast ekki í tengslum við þann félagslega raun- veruleika sem nútímafólk hér á landi lifir og hrærist í. Meðal annars er þarna á ferðinni talsvert mikið af goðsagnaefni og öðru slíku, sem frekar á heima í veruleika bóka og skáldskapar heldur cn í raunheimi fólks í samtímanum. Hér eru með öðruni orðum ekki félagsleg Ijóð á ferðinni, heldur þvert á móti innhverf, lýrísk og gott ef ekki rómantísk. Allur fyrri hluti bókarinnar, ein 19 Ijóð, er ortur til minningar um móður höfundar, Ragnhildi Ásgeirs- dóttur kennara frá Hvammi í Dölum, sem lést 1981. Þau ljóð eru hlýleg og bera dótturlegri ræktar- semi skýrt vitni. Mikil notkun lík- ingamáls er þar mjög áberandi, en jafnframt tekst höfundi þar víða býsna vel upp við það viðfangsefni að túlka sorg sína við móðurmissinn og viðbrögð sín er hún stendur þarna skyndilega augliti til auglitis við dauðann. Einna forvitnilegast í skáldskapar- legu tilliti má telja þar Ijóð sem heitir Koma dauðuns, en í því líkir höfundur lífi hinnar látnu við blátt blóm, sem nú hafi opnast og dauðinn risið þar upp úr. Þetta er hvað sem öðru líður óvanaleg líkinganotkun í íslensku erfiljóði, þótt um hitt megi kannski vera skiptari skoðanir hversu sterk hún sé að því leytinu til að hún varpi nýju eða óvæntu ljósi á líf hinnar látnu. í seinni hlutanum kennir fleiri grasa en svo að hér verði talið, en yrkisefni eru þar sótt í margar áttir. Margs konar myndir eru þó áberandi þar, ásamt ýmsum ævintýra- og goðsagnaminnum. Sameiginlegt ein- kenni Ijóðanna þar er einnig að í þeim ber mikið á kyrrlátum myndum með rólegu yfirbragði, og líkinga- máli er áfram beitt óspart. Af ein- stökum verkum má til dæmis ncfna Ijóðið Næturfjólan, þar sem sjálf- stæðiskennd er túlkuð með mynd af illgresi í blómagarði, Haustið, sem felur í sér líkingu á haustkomu við sært dýr, og Hin þríeina, þar sem kveneðlið er túlkað með mynd af konu mitt á milli gyðju og nornar, og verður konan að fyrirkoma báð- um til að tryggja eigin tilveru. í heild verður ekki annað sagt en að það sé veruleg rósemi og kyrr- staða ríkjandi í Ijóðum þessarar bókar. En þau eru vel og vandvir- knislega unnin, og þrátt fyrir þá staðreynd að þau eru mun innhverf- ari og draumkenndari en flest annað sem fram hefur komið síðustu árin í íslenskri Ijóðagerð, þá er í heild yfir þeim viss þokki. Þá er sérstök ástæða til að geta um hönnun og ytra útlit bókarinnar, sem er smekklega af hendi leyst af Elísabetu Önnu Cochran. -esig ■...........IIIIIII. tónlist ':|!|liiii:i.i. •'"iiiiííii ':!!i!il:;l itiinin:; ':'iiiií!ii- ::|hii:;;. ';:niiiiiii,: "aiiiiiiiiiin- Myndbandagerð (video) innritun 6 vikna námskeiö í myndbandagerð hefst 1. febrúar nk. Kennt verður 2 sinnum í viku, mánu- daga og miðvikudaga, 4 klst. hvert kvöld. Megin- áhersla er lögð á: Kvikmyndasögu, mynduppbygg- ingu, eðli og notkun myndmáls í kvikmyndum, handritsgerð auk æfinga í meðferð tækjabúnaðar ásamt upptöku, klippingu og hljóðsetningu eigin myndefnis nemenda. Kennari Ólafur Angantýs- son, kennslustaður Miðbæjarskóli. Kennslugjald er kr. 5.000,- Innritun í símum 12992 og 14106 kl. 13-19 þessa viku (til föstudags 29. jan.) Þorrablot Reykvíkinga Framsóknarfélögin í Reykjavík munu halda árlegt Þorrablót sitt í Risinu að Hverfisgötu 105 föstudaginn 19. febrúar kl. 20.00. Dagskrá verður auglýst síðar. Framsóknarfélögin í Reykjavík Gítar á háu plani Tónleikanefnd Háskólans ýtti úr vör á nýju misseri sl. miðvikudag (13. janúar) með gítartónleikum Einars Kristjáns Einarssonar, sem lék Prelúdíu, fúgu og allegro eftir Bach og fimm af „12 æfingum" eftir Villa-Lobos. Einar stundar nú fram- haldsnám í listgrein sinni í Manch- ester, en hafði áður lokið burtfarar- prófi árið 1982 frá Tónskóla Sigur- sveins. Klassískur gítar virðist vera mjög á uppleið hér á landi, því af 14 hádegistónleikum síðara misseris verður gítar eða lúta á sjö! Bach mun hafa samið þetta verk, ásamt með fjölmörgum öðrum ver- aldlegum og afar vinsælum verkum, meðan hann var tónlistarstjóri í Köthen árin 1717-1729. Tónleika- skrá segir það hald sumra fræði- manna að prelúdían og fúgan hafi orðið afgangs í fyrsta hluta „Das wohltemperierte Klavier“ og allegro-þátturinn verið prjónaður við seinna. Ekki trúi ég öðru en þetta verk sé æði þvælið í flutningi á köflum; bæði er Bach þannig í endalausum „kombínasjónum" sínum, og auk þess sjálfsagt illt að halda mörgum röddum aðgreindum á gítar. En þetta tókst prýðilega hjá Einari; ef hann villtist einu sinni eða tvisvar eitt augnablik, þá rataði hann þegar og hiklaust inn á rétta braut aftur, og má af slíku þekkja hinn örugga kúnstner. Seinna verkið var Æfingar nr. 8, 3, 5, 11 og 12 eftir Villa-Lobos (1929). Tónleikaskrá segir þessar æfingar vera einn af bakfiskum tón- bókmennta gítarsins, enda hafi And- rés Segovia komist efnislega svo að orði í formála sínum að þeim: „af ást á hljóðfærinu hefur Villa-Lobos gert það sama fyrir gítarinn og þeir Scarlatti og Chopin fyrir sín hljóð- færi“. Þetta spilaði Einar ef ennþá meiri íþrótt en Bach. Verður ekki annað séð en að Einar K. Einarsson sé hinn mesti efnishljóðfæraleikari, og óskum vér honum til hamingju með tónleikana. Sig.St. t Móðir mín, Margrét Jónsdóttir lést að Droplaugarstöðum að morgni 28. janúar Jón Þór Einarsson t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Björn Konráðsson fyrrverandi bústjóri á Vífilsstöðum Hagaflöt 5, Garðabæ verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Garðabæ latigardaginn 30. janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög Signhild Konráösson Sigurður Björnsson Helga Magnúsdóttir Ragnheiður Björnsdóttir Þorleifur Björnsson Borgþór Björnsson Signhild Birna Borgþórsdóttir Elísabet Björnsdóttir Grétar Karlsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.