Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 11

Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 11
Föstudagur 29. janúar 1988 Tíminn 11 ÍÞRÓTTIR Hópurinn valinn Sigfried Held landsliðsþjálfari hefur valið eftirtalda leikmenn til undirbúnings fyrir leiki íslands í forkeppni Ólympíuleikanna, gegn Hollandi 27. aprfl og gegn A-Þýskalandi 30. apríl. Markverdir: Friðrik Fridriksson Páll Ólaísson Gudmundur Hreiðarsson Birkir Kristinsson Aðrir leikmenn: Ágúst Már Jónsson Guðni Bergsson Guðmundur Steinsson Guðmundur Toríason Halldór Áskolsson Heimir Guðmundsson Hlynur Birgisson Ingvar Guðmundsson Jón Grétar Jónsson Kristinn Jónsson Kristján Jónsson Loftur ólafsson Ormarr örlygsson ólafur Þórðarson Pétur Arnþórsson Rúnar Kristinsson Siguróli Kristjánsson Sveinbjörn Hákonarson Valur Valsson Viðar Þorkelsson Þorsteinn Guðjónsson Þorsteinn Þorsteinsson Þorvaldur örlygsson B 1909 Víki^ Fram KR 1860 Múnchen Fram Winterslag Þór ÍA Þór Val Val Fram Fram KR Fram ÍA Fram KR Þór Stjörnunni Val Fram KR Fram KA Æfingar hópsins hefjast n.k. laugardag undir stjórn Guðna Kjartanssonar aðstoðarlandsliðs- þjálfara. -HÁ Moli um mola: Sindramenn kærðu ekki Ágætur lesandi blaðsins hafði samband í gær og benti á vitleysu í frétt um íslandsmótið í innanhúss- knattspyrnu. Þar var sagt að Sindri frá Horna- firði hefði kært nýja féiagið Ægi fyrir að nota ólöglega leikmenn en það rétta er að KSÍ dæmdi Ægismenn úr leik eftir að í ljós kom að þeir höfðu verið með leikmenn sem enn voru ekki formlega orðnir löglegir með Ægi. íslandsmótið í handknattleik, 1. deild: Blikarhöfðu betur Breiðablik sigraði Stjörnuna í l.deildarkeppninni í handboita í gærkvöldi. Leikurinn sem fram fór í íþróttahúsi Digranesskóla var jafn og æsispennandi á lokamínút- unum. Stjörnumenn höfðu boltann þegar hálf mínúta tæp var til leiks- Íoka og gátu jafnað en misstu boltann úr höndum sér og Björn Jónsson innsiglaði sigur Blika 28- 26. Sóknarleikur beggja liða var ágætur á köflum en varnirnar held- ur slappar. Það ráð Breiðabliksm- anna að taka Gylfa Birgisson og Einar Einarsson úr umferð mikinn hluta af leiknum tókst ekki nógu vel. Þeir voru hreinlega hættulegri báðir tveir þegar þeir losnuðu. Sigmar Þröstur í markinu og Skúli Gunnsteinsson á línunni áttu að auki ágætan leik. Aðalstein Jónsson, Kristján Halldórsson, Björn Jónsson og Jón Þórir Jónsson áttu góðan leik með Blikum en annars var liðið nokkuð jafnt. Mörkin: Breiðablik: Jón Þórir Jónsson 7(4), Aðalsteinn Jónsson 5, Björn Jónsson 5, Þórður Davíðs- son 3, Kristján Halldórsson 3, Hans Guðmundsson , Svafar Magnússon 1 og Magnús Magnús- son 1. Stjarnan: Gylfi Birgisson 6, Skúli Gunnsteinsson 5, Einar Ein- arsson 5, Sigurður Einarsson 5(2), Sigurjón Guðmundsson 3 og Haf- steinn Bragason 2. hb Skúli Gunnsteinsson Stjörnumaður svífur inn af línunni við lítinn fögnuð Breiðabliksmanna Tímamynd - Pjetur Man. United - Chelsea á Stöð 2 Stöð 2 mun á laugardaginn taka upp þá nýbreytni að sýna beint leik úr ensku bikarkeppn- inni í knattspyrnu. Verður það leikur Manchester United og Chelsea og hefst útsendingin, í læstrí dagskrá, kl. 15.00. Þetta er í fyrsta sinn sem Stöð 2 sýnir beint frá ensku knattspyrnunni en að sögn Heimis Karlssonar er stefnt að því að senda beint frá fleiri bikarleikjum. Þá verða sýndir valdir kaflar úr leik Liverpool og Aston Villa ■ íþróttaþættin- um á þriðjudagskvöldið. -HÁ Cation Rétti tíminn til reiknivélakaupa Mikiö úrval. Lækkað verö. Suðurlandsbraut 12. S: 685277 - 685275 Orð í Tíma töluð... orð í Tíma töluð... orð í Tíma töluð... Orð í Tíma töluð... Orð í Tíma töluð... Hvað geta íþróttafréttamenn gertáð því? „Það þótti táknrænt fyrír stöðu jafnréttismála að engin kona var í hópi þeirra íþróttamanna sem til- nefndir voru við kjör íþróttamanns ársins 1987.“ Á þessum orðum hefst viðtal Ómars Fríðrikssonar við Kristínu Einarsdóttur alþingismann í janú- artölublaði Þjóðlífs. Undirritaða rak í rogastans en las þó áfram. Viðtalið reyndist allt á svipuðum nótum. „... við (kvennalistakon- ur) höfum ... verið óánægðar með hversu keppnisíþróttimar hafa fengið mikla athygli, sérstaklega keppnisíþróttir karla" segir Kristín og bætir við nokkru síðar: „Stráka- íþróttir fá að mínu mati óeðlilega mikla athygli í fjölmiðlum og það hefur sýnt sig að fólk hefur gaman að ýmsu öðru á íþróttasviðinu en kar lagreinum eingöngu...“. „Kon- ur eru miklu síður gefnar fyrir það að standa gegn andstæðingi og tefla öllu sínu frani í bcinharðri keppni.“ Það var og. Satt að segja er langt síðan sú er þessa grein rítar fékk nóg af umræðunni um „stráka- íþróttir" og „konuíþróttir“ eða hvað menn kjósa að uppnefna þær. Þessi litla grein í Þjóðlífi varð þó dropinn sem fyllti mælinn. Byrj- um á aðalefni greinarínnar, kynja- misinunun á íþróttasviðinu. Það virðist ekki veita af að benda sumum á að konur og konur eru sitthvað. Það er svo gersamlega út í hött að ætla að halda því fram að allar konur séu eins að vart þarf að ræða það frekar. Fullyrðing eins og sú að konur séu „miklu síður gefnar fyrir það að standa gegn andstæðingi og tefla öllu sínu fram í beinharðri keppni“ er þar af leiðandi alveg út í bláinn sem alhæfing þó vissulega eigi hún við hluta kvenna - og karla. Það hefur töluvert verið fjarg- viðrast yfir því að kvennaíþróttir fái litið pláss á íþróttasíðum og í íþróttaþáttum. Það er alveg rétt að það er skrifað meira um karlmenn- ina á íþróttasíðunum. En það er líka skrifað miklu meira um karl- mennina sem spila í 1. deild eða eru bestir heldur en þá sem spila í 4. deild. Umfjöllunin um kvenna- íþróttirnar hefur nefnilega ekkert með það að gera að það er kvenfólk sem stundar þær. Hvers vegna mæta 2000 manns að horfa á 1. deildarleik karla í handknattleik? Af því að þar eigast við tvö góð lið sem spila handknatt- leik sem skemmtilegt er að horfa á, það er spenna, hraði, skemmtun og stemmning. Hvers vegna mæta þá ekki nema 20 á 1. deildarleik kvenna í handknattleik? Af því að þar er sama íþróttin í gangi en spiluð miklu hægar, fleiri mistök og skemmtunin minni. Af ná- kvæmlega sömu ástæðu mæta heldur ekki nema 20 manns á 3. deildarleik karla í handknattleik. Svo einfalt cr það og kemur jafn- rétti kynjanna ekkert við. íþróttaviðburðimir eru svo margir og framboðið svo mikið að fólk velur úr það besta. Það sama verða ijölmiðlarnir að gera. Á flestum ef ekki öllum hérlend- um fjölmiðlum eru íþróttadeildirn- ar mjög undirmannaðar og plássið eða tíminn þar að auki mjög af skornum skammti. Það sem fyrst er skrifað um, talað um eða sýnt frá hlýtur að vera það sem flestir vilja heyra um, lesa eða sjá. Þar koma stóru boltaíþróttirnar fyrst og stjörnurnar þar, stjörnur ein- staklingsgreinanna eru líka á toppi vinsældalistans og þá er því miður oft lítið orðið eftir fyrir það sem eftir er, íþróttagreinar sem eiga ekki eins almennu fylgi að fagna. Það verður því fyrst og fremst á dögum þegar lítið er að gerast ■ stóru greinunum sem þær minni eða lægri deildirnar eða kvenna- deildirnar fá meiri umfjöllun. Fólk hefur vissulega gaman að ýmsu öðru á íþróttasviðinu en „karlagreinum eingöngu sem sýnd- ar eru tímunum saman jafnvel í beinni útsendingu í sjónvarpi." Það er fjöldinn ailur af fólki sem stundar íþróttir sér til ánægju og heilsubótar án þess að keppa nokk- urntíma í þeim. En það er bara engin frétt þó einhver Júlla Jóns úti í bæ fari út að hlaupa með hundinn þrisvar í viku. Það mætti gjarnan segja frá því í víðara sam- hengi í grein eða dálki þar sem fjailað er almennt um heilbrigði eða dægradvöl eða eitthvað þvíum- líkt en það er ekki íþróttafrétt. Það þótti víst einhverjum tákn- rænt fyrir stöðu jafnréttismála að engin kona var í hópi þeirra íþróttamanna sem tilnefndir voru við kjör íþróttamanns ársins 1987. Það er fjarstæða. Kjör íþrótta- manns ársins kemur stöðu jafnrétt- ismála akkúrat ekki nokkrun skapaðan hlut við. Það eru íþróttafréttamenn sem „Konur eru miklu síður gefnar fyrír það að standa gegn andstæðingi og tefla öilu sínu fram í beinharðrí keppni“. Ekki þessar konur sem berjast í l.deild kvcnna í körfuknatt- leik. Tímamynd Pétur kjósa íþróttamann ársins og einn þeirra íþróttafréttamanna er sú sem þetta skrifar. íþróttafrétta- menn leggja metnað sinn í að vanda valið þegar þeir raða upp á listann. Algengt er að atkvæðaseð- illinn sé saminn um svipað leyti og annáil ársins er settur saman en þá les t.d. blaðamaður í gegnum íþróttasíðuna fyrír allt árið. Þá er tryggt að enginn gleymist. I ár var engin kona meðal 11 efstu. Vé- steinn Hafsteinsson kringlukastari sem var 10. á heimslistanum í sinni grein var heldur ekki meðal 11 efstu, ekki Sigurður Einarsson spjótkastari sem var 20. á heims- listanum og ekki heldur Pétur Guðmundsson körfuknattleiks- maður sem hefur staðið sig mjög vel í bandarísku atvinnumanna- deildinni. Þó eru þessir íþrótta- menn allir vel frambærilegir á er- lendum vettvangi. Á listanum voru 11 íþróttamenn sem náðu stórkost- legum árangri á árinu. Það var engin kona á listanum af því að engin kona náði það góðum árangri á árinu að nægði til að skáka þessum afreksmönnum. Konur fara nefnilega ekki á listann yflr bestu íþróttamenn á íslandi fyrír að vera konur. Þær fara á listann fyrir að ná mjög góðum árangrí, árangri scm er eitthvað í líkingu við þann árangur sem karlmennirn- ir ná. Hann var ekki til staðar í ár og þessvegna var engin kona á listanum. Hvers vegna íslenskar íþrót- takonur hafa almennt ekki náð eins góðum árangri í keppnisíþrótt- um og stöllur þeirra erlendis er svo allt annar handleggur og mál sem skrífa mætti heila bók um. Það breytir ekki því að fréttamenn reyna að segja frá því sem er efst á baugi hverju sinni og því sem flestir vilja vita um. Ef íslenskt kvenfólk hefur ekki náð árangri sem stenst samanburð við árangur íslenskra karlmanna þá þýðir ekk- ert að skainmast viö íþrótta- fréttamenn. Þeir geta nefnilega ekkert að því gert. Hjördís Árnadóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.