Tíminn - 29.01.1988, Qupperneq 6
6 Tíminn
Föstudagur 29. janúar 1988
Árbæjarlæknar og þagnarskyldan:
I borgardóm í dag
Gögn heilsugæslustöðvarinnar í
Árbæ vegna neitunar um að fá
ríkisendurskoðanda sjúklingabók-
hald í hendur þegar hann fór fram á
það voru lögð fram í borgardómi í
fyrradag. Gunnar Ingi Gunnarsson,
læknir í heilsugæslustöðinni, vill láta
reyna á þagnarskyldu lækna að lög-
um með því að fara með mál þetta
fyrir Hæstarétt. Hann vill fá úr því
skorið hvort rétturinn meti hærra,
trúnað lækna við sjúkling eða aðferð
Ríkisendurskoðunar við eftirlit með
reikningshaldi lækna.
Læknar skiptast í tvö horn hvað
þetta varðar. t>eir sem telja að
þagnarskyldunni sé létt með því að
óviðkomandi aðilar fái aðgang að
sjúkraskýrslum óttast að trúnaðar-
brestur verði milli heilbrigðisstéttar-
innar og sjúklinga, sem geti haft
alvarlegar afleiðingar. Til séu jafn
árangursríkar leiðir til að kanna
reikningsskil lækna en þá sem nú er
notuð og verði þá ekki að leggja
fram gögn sem varða sjúklinginn,
nema hann samþykki það sjálfur.
Munnlegur málflutningur um
kröfu Ríkisendurskoðunar fer fram
í borgardómi klukkan hálfþrjú í
dag. Að því loknu úrskurðar undir-
réttur og aðilar taka ákvörðun um
hvort málinu verður skotið til Hæsta-
réttar eður ei.
Telja verður líklegt að varnaraðil-
ar freisti þess að áfrýja málinu, til að
taka af allan vafa í Hæstarétti um
þagnarskyldu lækna. þj
Skaftafellið
selt
Eftir langa og farsæla þjónustu á
vegum Skipadeildar Sambandsins
hefur frystiskipið „Skaftafell"' nú
verið selt og var það afhent nýjum
eigendum 25. þ.m. í Reykjavík.
„Skaftafell", sem er 1.740 burðar-
tonn, var byggt í Búsum í Vestur-
Þýskalandi og afhent Skipadeild
Sambandsins í september 1971. í>að
var sérhannað til þess tíma freðfisk-
flutninga á vegum samvinnuhreyf-
ingarinnar og annaðist lengst af þá
flutninga til Bandaríkjanna.
Skipið er selt aðila í Hong Kong
og verður verkefni þess flutningar á
freðfiski frá Suðaustur-Asíu til
Japans.
Hundrað
skákir
Jóhanns
ábók
Hundrað valdar skákir Jóhanns
Hjartarsonar eru nú komnar á bók í
samantekt Torfa Stefánssonar. Er
ljóst að bók þessi er skákáhuga-
mönnum mikill fengur, sérstaklega í
ljósi þess árangurs sem Jóhann hefur
náð á alþjóðavettvangi.
Bókin spannar valdar skákir Jó-
hanns allt frá því að hann tekur þátt
í Skákþingi íslands í fyrsta sinn árið
1978 þá aðeins fimmtán ára til
svæðismótsins í Szirák í Ungverja-
landi þegar Jóhann vann það fræki-
lega afrek að komast áfram í áskor-
endaeinvígin í skák sem fram fara
um þessar mundir.
Sérstakur fengur er í skákum
Jóhanns frá því á síðustu þremur
stórmótum sem hann tók þátt í,
Moskvumótinu, millisvæðamótinu í
Szirák og Invest-skákmótinu í Júgó-
slavíu, en allar skákir hans á þessum
mótum eru í bókinni ásamt ýtarleg-
um skákskýringum. -HM
Skaftafell, sem nú hefurhlotið nafnið „Shun Sang no. 8“, mun sigla undir Panama-fána úr Reykjavíkurhöfn á næstu dögum og þá fastlega ■ hinsta ' sinn.
SESAM skilar tillögum til úrbóta:
ENDURSKIPULAGN-
ING Á SAMVINNU-
VERSLUNINNI
Stjórnarfundur Sambandsins sam-
þykkti nýlega að hefjast handa við
að endurskipuleggja samvinnuversl-
unina í landinu. Við endurskoðun-
ina verður höfð hliðsjón af niður-
stöðum og farið eftir tillögum SES-
AM hópsins, en SESAM stendur
fyrir Starfshópur um endurskipu-
lagningu samvinnuverslunarinnar,
og var hópurinn skipaður af Sam-
bandsstjórninni á síðasta ári.
Forsaga málsins er sú, að á aðal-
fundi Sambandsins á Akureyri síð-
astliðið sumar, var gcrð samþykkt
þess efnis að nauðsyn bæri til að
endurskipuleggja samvinnuverslun-
ina með það fyrir augum að nýta til
fulls samtakamátt hennar.
í samþykktinni stóð ennfremur að
„breytingar undanfarinna ára á
verslunarháttum, kröfur neytenda,
byggðaröskunin í landinu, gera það
Leiðrétting:
AnnaekkiArna
í viðtali Tímans við skólahjúkrun-
arfræðing Fossvogsskóla nú í vik-
unni urðu þau leiðu mistök aða nafn
hennar var rangt ritað - átti að vera
Anna Björg Aradóttir en ekki Arna
Björg. Tíminn biður Önnu Björgu
afsökunar á þessum mistökum. Má
geta þess, að athygliverðar upplýs-
ingar Önnu, í áðurgreindu viðtali,
vöktu m.a. athygli ríkisfjölmiðla
’sem tóku málið upp til enn frekari
umfjöllunar. - HEI
m.a. að verkum að samvinnuhreyf-
ingunni er nú nauðsynlegt að bregð-
ast hratt við til að koma í veg fyrir
áframhaldandi minnkun á markaðs-
hlutdeild verslunarinnar, bæta af-
komu hennar og samkeppnisað-
stöðu.“
Ákveðið var að styðjast við þau
meginmarkmið að samtakamáttur
samvinnumanna um land allt yrði
nýttur sem grundvöllur fyrir arð-
bæra, samkcppnisfæra samvinnu-
verslun, þar sem áhersla yrði lögð á
gæði, þjónustu og hagstætt vöru-
verð.
SES AM hópinn skipuðu þeir Axel
Gíslason, formaður, Ingólfur Ólafs-
son, Snorri Egilsson, Valur Arn-
þórsson, Þorsteinn Sveinsson og Örn
Ingólfsson. Þá starfaði Sigurður
Jónsson, verslunarráðgjafi með
hópnum, auk ýmissa sérfræðinga.
1 nýlegri samþykkt Sambands-
stjórnarinnar segir m.a., að stjórnin
leggi til, að „sambandsfélögin stofni
með sér sérstakt hagsmunafélag,
landssamtök urn samstarf og sam-
vinnu á sviði vcrslunar. Tilgangur
félagsins verði að koma á skiplögðu
samstarfi á sviði smásöluverslunar
með það fyrir augum að samtaka-
máttur á landsvísu verði nýttur sem
grundvöllur fyrir samkeppnishæfa,
arðbæra samvinnuverslun.“
Gerður verður samningur milli
Sambandsins og hagsmunafélagsins
um að endurskipulögð Verslunar-
deild Sambandsins annist þá sameig-
inlegu þjónustu er smásöluverslun
félaganna er nauðsynleg. -SÓL
Rifist um
nidurstöðuleysi
Háarifrildi stendur nú yfir vegna
könnunar á lestri tímarita og þykja
sunium niöurstööur incð ólíkind-
um.
Kona scm varð fyrir þvi að lenda
í úrtaki og var spurð spjörunum úr
um tímaritalestur sinn komst að
því eftir ágang spyrjanda að hún
væri einn mesti tímaritalesandi á
landinu þótt islensk tímarit komi
nær aldrei inn á hennar heimili.
Spyrjandi könnunarinnar sann-
aði það fyrir konunni að hún hefði
séð þetta eða hitt nafngreinda
tímaritið einhvers staðar. Lítið var
gert úr því hvort sú sem verið var
að kanna hefði lesið eða flett
blöðunum, aðeins að hún hefði séð
þau.
Konan vinnur á sjúkrahúsi þar
sem starfsfólk og sjúklingar skipta
hundruðum. Könnunin gerði hana
að áfjáðum tímaritalcsanda vegna
þess að hana minnti að hún hafi séð
eitthvað af blöðunum á borðum
sjúklinga og á setustofum.
Von er að rifist sé um niðurstöð-
ur.
Sannleikanum verður
hver sárreiðastur
Tíminn sagði frá því á dögunum,
að Heimdallur, félag ungs íhalds-
fólks í Reykjavík, rambaði á barmi
gjaldþrots vegna slælcgs við-
skilnaðar fyrri stjórnar. Núverandi
stjórn brást hin versta við og ritaði
Tímanum grein um að fréttin væri
röng og umrnæli höfð eftir gjald-
kera uppspuni. Sá uppspuni var þó
ritaður orðrétt eftir gjaldkeranum
af hljóðsnældu.
En nóg um það. í jólariti Heiin-
dallar, Gjallarhorni, kveður við
HEIMDALLUR
F • U • S
annan tón og ekki eins óhreinan.
Þar segir: „Tíminn birti grein þann
3. desember s.l. þar sem fullyrt var
að Heimdallur hefði í haust ramb-
að á barmi gjaldþrots sökum mikil-
la skulda. Þaö skal fram tekjð að
þessi fullyrðing Tímans erstórlega
ýkt“
Þar er stigsmunur á og sannast
enn, að menn geta betur sætt sig
við sannleikann, þegar lengra frá
líður. Að sjálfsögðu verður fréttin
orðin sönn áöur en yfír lýkur.
Yfirsjón á SUS-þingi
En í Gjallarhorni scgir meira frá
högum Heimdallar. „Félagsgjöldin
eru smám sanian að skila sér inn,
en betur má ef duga skal, enda er
hér ekki um háa upphæð að ræða.
Það skal tekið fram að hafí menn
ekki greitt félagsgjöld, fá menn
hvorki kjörgengi né kosningarétt
til embætta innan f!okksins.“
Nú er rétt að álykta, að félagi
sem hvorki hcfur kjörgengi né
kosningarétt er alls enginn félagi í
raun, þar sem hann hcfur engin
félagsréttindi. Síðustu stjórn gekk
líka illa að heimta inn félagsgjöld,
sem voru um 200 kr. Skv. reikn-
ingsskilum fyrri stjórnar var inn-
heimta félagsgjalda kr. 19.000 alls.
Það þarf ekki reikningsglöggan
mann til að sjá að fullgildir félagar
í Heimdalli það árið voru ckki
fleiri en 95 talsins. Skv. áður-
nefndri reglu höfðu þeir einir
kjörgengi og fulltrúar þcirra kosn-
ingarétt á iandsþingi SUS í fyrra.
Einn fulltrúi á hverja tuttugu
meðlimi félaga ungra íhaldsmanna
um allt land hefur rétt til setu á
landsþingi SUS. Þrátt fyrir aðeins
95 manna félag í Reykjavík, sátu
u.þ.b. 120 fulltrúar Heimdallar á
þinginu með kosningarétt, sem
með réttu áttu að vera 19, að stjóm
Heimdallar meðtalinni. Flestir
þeirra eru sagðir hafa stutt Árna
Sigfússon gegn Sigurbirni A.
Magnússyni í kjöri uin formann
SUS og þar sem munaði aðeins 25
atkvæðum í kosningunum má
reikna með að fulltrúamergö
Heimdallar hafí vegið þungt.
Ætli sessan í formannsstólnum
sé ekki orðin ylvolg?
Ensk bréf send
innan fyrirtækis?
Það hefur hrotið úr Dropum að
samgönguráðuneytið hafí ráðið
starfsmann, sem hefur það hlut-
verk með höndum að fá ísienska
flugmenn til að tala hið ástkæra,
ylhýra. Flugleiðafréttir taka virkan
þátt í baráttu þessa ráðuneytis-
manns og birta málfarsþátt í hverju
fréttabréfí, sem sérstaklega cr til-
einkaður flugfólki. Nú síðast var
starfsfólki Flugleiða kennt hvernig
beygja skuli nafn fyrirtækisins.
En meira kom fram í þætti
þcssum. Þar scgir að sú spurning
hafí vaknað hvort bréf séu send á
ensku niilli íslendinga innan fyrir-
tækisins.
Ódýr Hafnarfjörður
Yfirlýstur krati í Kópavogi, sem
sýndist á fasteignagjöldum sínum
sem slagorðið „vinin í íhaldscyði-
mörkinri“ væri ekki að öllu lcyti á
rökum reist, fór að forvitnast um
það hjá öðrum bæjarfélögum hver
gjöldin væru þar. Þegar hann
spurði um lóðaleigu miðaði hann
við 200 m! lóð.
Þá kom I Ijós, þar sem lóðaleiga
var tekin, að spiidan af Hafnarfirði
var langsamlega ódýrust. Þar kost-
aði lcigan 6 kr., eða 3 aura á hvern
fermetra, enda hefurgleymst síðan
fyrir stríð að hækka hana. Síðan
hefur orðið gjaldmiðilsbreyting og
verðbólga o.s.frv. o.s.frv.