Tíminn - 10.02.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminrr
FRÉTTAYFIRLIT
VÍNARBORG - Sex sagn- j
fræðingar sem rannsökuðu:
fortíð Kurt Waldheims forseta
Austurríkis sögðu í skýrslu
sinni að Waldheim hefði að-
stoðað í ólöglegum aðgerðum
og greitt þannia fyrir stríðs-
glæpum. Formaður saqnfræð-
inganefndarinnar sagoi hins-
vegar að sexmenningarnir
hefðu ekki fundið sannanir fyrir
því að Waldheim væri stríos-
glæpamaður.
KAIRÓ - Richard Murphy,
sendimaður Bandaríkjastjórn-;
ar, hvatti alla aðila í átökum
ísraelsmanna og araba að
vinna harðar að því að ná
friðarsamkomulagi. Murphy,
sem reyndar er aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,|
sagði eftir að hafa rætt við:
Hosni Mubarak, forseta Eg-
yptalands, að allir aðilar þyrftu
að koma til móts við hver aora.
JERÚSALEM -Arabískur
táningur fannst látinn við götu I
í þorpi á Vesturbakkanum. Pal- j
estínska fréttaþjónustan sak-r
aði ísraelska hermenn um að
hafa skotið hann til bana.
MOSKVA - Eduard She-
vardnadze utanríkisráðherra
Sovétríkjanna hvatti stjórnvöld
í landi sínu til að leggja blessun
sínayfirsamning stórveldanna
um eyðingu meðaldrægra og
skammdrægari kjarnorku-1
vopna og sagði að Sovétmenn
þyrftu ekki að hafa áhyggjur
þótt þeir þyrftu að eyðileggja
fleiri kjarnorkuflaugar en
Bandaríkjamenn. Shevard-
nadze sagði að samkomulagið
sem Mikhail Gorbatsjov og
Ronald Reagan undirrituðu í
Washington væri málamiðlun.
MÖNCHENGLAD-
BACH, Vestur-Þýska-
landi - Einir tvö þúsund
vestur-þýskir bændur lokuðu
landamærunum við Holland í
grennd við Mönchengladbach
til að mótmæla landbúnaðar-
stefnu Evrópubandalagsins.
RÓM - Blaðamenn á Italiu
hófu tveggja sólarhringa verk-'
fall í gær tii að fylgja eftir
kröfum sínum um hærri laun
og endurskoðun á starfsmati.
MOSKVA - Sovéska frétta-
stofan Tass skýrði frá því í gær
að maður einn, sem sakaður
er um aðild að stríðsglæpum 1
nasista, hefði verið leiddur fyrir
rétt í bænum Selidovo í Úkra-
ínu.
NAPÓLÍ - Gamall bíll af
Alfa-Romeo gerð, sem þeir
Adolf Hitler og Benito Musso-
lini notuðu á sínum tíma, verð-
ur seldur á uppboði og er búist
við að miklar fjárhæðir verði í
boði fyrir bifreiðina.
SE
Miövikudagur 10. febrúar 1988
ÚTLÖND
Forsetaslagurinn í Bandaríkjunum:
Gephardt og Dole
unnu fyrstu hrinu
Repúblikaninn Róbert Dole og
demókratinn Richard Gephardt
unnu fyrstu hrinuna af mörgum sem
eftir eru áður en forsetaframbjóð-
endur flokkanna tveggja verða vald-
ir síðar á árinu. Dole og Gephardt
unnu sigur í forvalinu í Iowa en sá
sem kom verst út úr kjörinu var
enginn annar en sjálfur varaforset-
inn George Bush, sem flestir hafa
talið líklegastan til að ná kjöri sem
eftirmaður Rónalds Reagans eftir
tæpt ár.
Bush varð í þriðja sæti í forvali
repúblikana í Iowafylki en bæði
Róbert Dole og sjónvarpspredikar-
inn Pat Robertson skutu honum ref
fyrir rass í kjörinu.
Úrslitin í Iowa þýða að nú verður
Bush helst að sigra í forkosningun-
um í New Hampshire í næstu viku til
að missa ekki af lestinni í ferðinni til
Hvíta hússins.
Bush var hvergi banginn í gær
þrátt fyrir úrslitin, sagðist ætla að
berjast áfram og bjóst við að hann
yrði valinn forsetaframbjóðandi
flokks síns. Dole sagðist hafa sigrað
vegna þess að hann hefði rætt um hin
raunverulegu vandamál og Robert-
son sagði að góð frammistaða sín
sýndi að Bandaríkjamenn leituðu að
„siðferðislegum styrk“ í leiðtogum
sínum.
Demókrataslagurinn var jafnari.
Hinn 47 ára gamli Gephardt sigraði
en var þó ekki langt fyrir ofan þá
Paul Simon öldungardeildarþing-
mann frá Illionis og ríkisstjórann í
Massachusetts Michael Dukakis.
Gary Hart, þekktasti frambjóð-
andi demókrata, fékk aðeins um 1%
fylgi og virtist sem framhjáhalds-
hneykslið hefði slæm áhrif á fylgi
hans í landbúnaðarhéraðinu lowa.
Gephardt sem er þingmaður frá
Missouri fékk 31% atkvæða, Simon
kom næstur með 27% og Dukakis
var þriðji með 22% atkvæða. Fjórði
var blökkumannaleiðtoginn Jesse
Jackson með 9%, Bruce Babitt fyrr-
um ríkisstjóri í Arizona var með 6%
atkvæða, Hart minna en 1% og
Albert Gore frá Tennessee fékk 0%
WKœtí 't
Fullkomið svið í Iowa: Richard Gephardt vann dyggilega að því að kynna kjósendum Demókrataflokksins í Iowafylki
stefnu sína og uppskar sem hann sáði
atkvæða.
{ repúblikanaslagnum fékk Dole
38% atkvæða, Robertson kom á
óvart og fékk 24%, Bush var með
19%, Jack Kemp fulltrúadeildar-
þingmaður frá New York var með
11%, Pete Du Pont fyrrum ríkis-
stjóri í Delaware var með 7% og
Alexander Haig fékk 0% atkvæða.
Hvorki Haig né demókratinn Gore
héldu úti kosningabaráttu í Iowa-
fylki og fylgisleysi þeirra kemur því
varla á óvart.
Bush sagðist ekki vera svo ó-
ánægður með frammistöðu sína en
kosningastjóri Doles sagði úrslitin
vera hrun fyrir varaforsetann. Bush
taldi að hann yrði að reyna að koma
skilaboðum sínum betur út til fólks-
ins en vissulega settu úrslitin pressu
á hann fyrir forkosningarnar í New
Hampshire. Að vísu hafa skoðana-
kannanir bent til þess að Bush sigri
í repúblikanakjörinu í New Hamps-
hire en nái Dole einnig að standa sig
vel þar tekur hann frumkvæðið í
sínar hendur og má sjálfsagt fara að
trúa því að hann eigi góða möguleika
að hljóta útnefningu sem forsetaefni
repúblikana.
Baráttan milli demókrata er öllu
jafnari og ólíklegt verður að teljast
að Gephardt nái að sigra í forkosn-
ingunum í New Hampshire. Gep-
hardt er frá Missouri sem er ná-
grannafylki Iowa og það kom honum
vel í kjörinu þar. Auk þess höfðar
málflutningur Gephardts vel til
manna í landbúnaðarfvlkjunum í
mið-vesturhluta landsins. Hann hef-
ur t.d. talað um nauðsyn þess að
taka hart á löndum sem hefta itin-
flutning á bandarískum vörum og
það hefur fallið vel að skoðunum
bænda og verkafólks í lowa.
Líklegast þykir að Dukakis sigri í
New Hampshire enda er hann þekkt-
ur á þessu svæði sem ríkisstjórinn í
Massachusetts. Dukakis sagðist í
gær hafa verið mjög ánægður með
að lenda í þriðja sæti í forvalinu í
Iowa enda nær óþekktur þar fyrir
tæpu ári. Sigri hann aðrademókrata-
frambjóðendur í New Hampshire
gæti það styrkt kosningabaráttu hans
verulega. hb
Kína:
„Gangandi“
reiknitölva
kennir börnum
Fátækt sveitaþorp í Innri-Mongól-
íu er orðið frægt um allt Kínaveldi
vegna þess að þaöan kemur hvert
undrabarnið í stærðfræði á fætur
öðru. Að sögn fréttastofunnar Nýja
Kína eiga börnin afar auðvelt með
að reikna og eru næstum jafnfljót að
því og reiknitölvur.
Börnin eru nemendur í grunn-
skólanum í Yihe fjallaþorpinu í
Innri-Mongólíu og hefur þeim verið
kennd stærðfræði samkvæmt ákveð-
inni aðferð. Árangurinn er víst
ótrúlegur.
Erlendir gestir hafa fengið að
kynnast þessum krökkum og hefur
verið komið með þá til Pekíng til að
sýna snilli sína. Nýlega var þar á ferð
hin ellefu ára gamla Liu Guoqin sem
reiknaði í huganum hvað 856 sinnum
758 væri og lauk því á sex sekúndum.
Liu sagði að skólafélagar sínir í Yihe
þorpinu ættu auðvelt með að reikna
úr kvaðratrót og önnur flókin stærð-
fræðifyrirbæri.
Fréttastofan sagði að hin sérstaka
aðferð sem kennd væri í grunnskóla
þorpsins hefði verið fundin upp af 31
árs gömlum stærðfræðingi, Shi
Fengshou að nafni. Hann er gengur
annars undir öðru nafni í Kína, er
kallaður „Gangandi reiknitölva".
hb
Á tímum tölvutækni:
,,Forstjóratakki“
ónauðsynlegur?
Framleiðendur tölvuleikja hafa
komið til móts við þá launaþræla
sem nota tölvur sínar undir leiki
daginn út og daginn inn. Peir hafa
komið fram mcð „forstjóratakk-
ann“, þann ágæta takka sem hægt
er að ýta á þegar yfirmaðurinn
kemur á vettvang og stökkva inn í
eitthvað ábúðarmeira s.s. rit-
vinnslu.
Þessi undankomuleið er þegar
fyrir hendi í allnokkrum tölvuleikj-
um og má nefna Chessmaster 2000
og World Tour Golf.
„Peir munu sennilega verða al-
gengari,“ segir einn bandarískur
sölumaður tölvuleikja um „for-
stjóratakkann".
Ekki er það þó alveg víst því
bæði er að tölvuleikjaforritin eru
oftast svo þéttskipuð nauðsynleg-
urn upplýsingum að varla er rúm
fyrir „forstjóratakkann" og einnig
það að samkvæmt könnunum virð-
ast forstjórarnir ekki síður vera
uppteknir við tölvuleikina í vinnu-
tímanum.
Tölvuleikjafyrirtæki eitt gerði
könnun nýlega og þar kom í ljós að
66% þeirra 750 yfirmanna sem
spurðir voru spjörunum úr viður-
kenndu að nota tölvur sínar til
leikja og margir þeirra gerðu ein-
mitt slíkt í vinnutímanum. hb
Umsjón:
Heimir Bergsson