Tíminn - 10.02.1988, Side 15
Miðvikudagur 10. febrúar 1988
Tíminn 15
iiiiiniiiii
iiiiiiiiiiiiii
lllllllll
á þennan veg: „Það hlýtur að hafa
verið erfið ákvörðun fyrir flokks-
forystuna vegna þess að margir af
þessum glæpamönnum, u.þ.b.
helmingurinn, voru flokksbundnir
og nutu góðs álits. Kannski hafa
stjórnvöld ákveðið að láta til skarar
skríða vegna þess að flestir þeirra
ákærðu eru Mið-Asíumenn og það
er ríkjandi viðhorf evrópskra Sov-
étmanna að hafa vissa fyrirlitningu
á Asíumönnum. Yfirvöld eru vís
með að líta svo á að hér sé frekar
um spillingu Asfumanna að ræða
en að hægt sé að tengja hana
kommúnistum".
Það kann að vera, en það er
langt frá því vissa fyrir því að þessi
spilling hafi aðeins viðgengist í
þeim lýðveldum Sovétríkjanna
sem eru í Asíu. í greininni sem
ekki birtist í Ogonek var að finna
lista yfir nokkrar glæpaættirnar í
Tashkent og sumar þeirra bera
greinilega rússnesk nöfn. í ofaná-
lag hefur verið gefið í skyn að
glæpakerfi hafi teygt anga sína um
stóran hluta Sovétríkjanna á valda-
tímum Brésnjefs. Aðalbækistöðv-
ar þess eru sagðar hafa verið í
Krasnodar, héraðshöfuðborg í
suðurhluta Rússlands þar sem
Brésnjef átti sterk ítök.
Allt hægt að kaupa á
„markaðnum“ í Krasnodar
Sovéskur lögfræðingur, Arkadi
Vaksberg að nafni, skrifaði í Lit-
eraturnaya Gazeta í október síð-
astliðnum að slík samtök hefðu
vissulega starfað í Krasnodar og
meðal félaga hafi verið margir
háttsettir embættismenn. Lög-
fræðingurinn lýsti þeim sem „geysi-
stórum hópi mútuþega og fjársvik-
ara, sem notuðu þessi háu embætti
sín til að ræktagraftarkýli, markaði
þar sem allt, bókstaflega allt, var
til sölu - stöður, heiðurstitlar og
verðlaun, prófskírteini og sveita-
setur“.
Arkadi Vaksberg sakaði Chur-
banov og fyrrverandi yfirmann
hans í innanríkisráðuneytinu,
Nikolai Shchelokov um þátttöku í
þessum viðskiptum og gaf í skyn að
Brésnjef kynni sjálfur að hafa tekið
þátt í leiknum. í grein Vaksbergs
stendur m.a.: „Þræðirnir lágu til
valdamikilla afla, til Churbanovs,
Shchelokovs, annarra ráðherra -
og hærra og hærra“.
Hvað sem þessum ásökunum
lögfræðingsins líður þarf Shchelok-
ov ekki að standa skil á gerðum
sínum fyrir dómstóli. Meðan mál
hans var til rannsóknar 1984 dó
hann og virðist hafa svipt sig lífi.
endurbótastefna Gorbatsjovs orð-
ið til að bjarga lífi þessa fólks, þó
að kaldhæðnislegt sé, þar sem nú
fer fram endurskoðun á sovéskum
lögum þar sem lagt er til að dauða-
refsing verði lögð niður, nema í
þeim tilfellum þar sem ofbeld-
isverk hafa verið framin.
í október 1982 prýddi þessi mynd
af Brésnjef, leiðtoga Sovétríkj-
anna, margra hæða húsvegg í Kis-
hinev, höfuðborg Sovétlýðveldis-
ins Moldavíu. Mánuði síðar var
hann allur.
Af hverju uppljóstranir nú?
Vestrænir fréttaskýrendur velta
nú vöngum yfir því hver sé ástæðan
til þess að aflétt er fréttabanni af
hneykslismálunum víðtæku í Uz-
bekistan. Einn vestrænn stjórnar-
erindreki í Moskvu hugsar upphátt
Brésnjef í faðmi fjölskyldunnar
1977. Churbanov tengdasonur
lengst til vinstri og Galina dóttir
fjórða frá vinstri. Nú er gengi
fjölskyldunnar annað en þá var.
Akurnesingar
Fjárhagsáætlun
Fundur um fjárhagsáætlun Akranesbæjar og stofnana hans verður
þriðjudaginn 16. febr. kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut.
Gísli Gíslason bæjarstjóri gerirgrein fyriráætluninni. Bæjarfulltrúarnir
Ingibjörg, Steinunn og Andrés svara fyrirspurnum.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna
Þorrablót Reykvíkinga
Framsóknarfélögin í Reykjavík munu halda árlegt þorrablót sitt í
Risinu að Hverfisgötu 105 föstudaginn 19. febrúar kl. 20.00.
Dagskrá verður auglýst síðar.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna
Bú^ngar og höfuðföt
í yfir 20 gerðum
ásamt miklu
úrvali af
byssum og
botum.
Einnig
grínvörur
i úvali
Senclum í póstkröfu um land allt.
VERSLUNIN UNDRALAND
Glæsibæ, Reykjavík
Sími: 91681640
ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
Skóladagheimilið
Brekkukoti
Viltu vinna í notalegu umhverfi á góðum stað í
bænum? Okkur vantar aðstoðarmann á Skóladag-
heimilið Brekkukot.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 19600/
260 virka daga.
Reykjavík 9. febrúar 1988
FLUGMÁLA STJÓRN
Útboð vegna
fluggagnakerfis
Flugmálastjórn hefur leitað tilboða utanlands í
þróun fluggagnakerfis. í útboðslýsingum er gert
ráð fyrir þátttöku íslensks fyrirtækis sem undirverk-
taka við gerð hugbúnaðarins.
Hér með er auglýst eftir fyrirtækjum, sem hafa
áhuga á ofangreindu verki. Útboðsgögn ásamt
kröfum um hæfni og reynslu þeirra fyrirtækja, sem
koma til greina, fást afhent í afgreiðslu flugmála-
stjórnar, 1. hæð, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Flugmálastjóri
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Höllu G. Larsdóttur
Útstekk
Eskifiröi
Sjöfn Gunnarsdóttir
ojg systklnl hlnnar látnu....-• ; ...................