Tíminn - 11.02.1988, Side 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 11. febrúar 1988
Yfir þriðjungur bóta sumra lífeyrissjóðanna með fullan skatt:
Iðnum öldungum bregður
illa við staðgreiðsluna
Mörgum öldungnum brá í brún þegar staðgreiðslan heimtaði sinn skerf af lífeyrinuni.
Af þeim 76 milljónum króna
sem SAL-lífeyrissjóðirnir greiddu
í bætur fyrir janúarmánuð voru nú
dregnar frá í kringum 8 milljónir
eða um 11% sem fara beint í
staðgreiðsluskatta til ríkissjóðs.
Þetta skatthlutfall var ennþá
hærra, eða um 13%, hjá Lífeyris-
sjóði verslunarmanna. Af bótum
Almannatrygginga fékk ríkissjóð-
ur um 32 milljónir „til baka“ í skatt
og auk þess um 8 milljónir frá
Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.
Nokkuð hefur borið á að bóta-
þegunum hafi brugðið illilega í
brún þegar þeir áttuðu sig á að
bæturnar sem þeir fengu í hendurn-
ar höfðu allt í einu lækkað allt upp
í þriðjung milli mánaða, vegna
skattsins. Þótt afleiðingar skatt-
kerfisbreytingarinnar hafi bæði
verið skýrðar út í fjölmiðlum og í
bréfum sjóðanna til lífeyrisþega
hefur það ekki dugað til skilnings
fyrir alla. Á hinn bóginn sýnist
þetta háa skatthlutfall af bótunum
benda til að ýmsir séu enn í
launuðum störfum þótt 70 ára
afmælið sé að baki. Rétt er að taka
fram að hér er ekki eingöngu um
að ræða bætur til ellilífeyrisþega,
þó þær séu stærsti hlutinn, heldur
einnig örorku- og makalífeyri og
aðrar bætur til yngra fólks.
Hjá þeim almennu lífeyrissjóð-
um, sem Tíminn hafði samband
við, kom í ljós að þeir þurftu að
taka fullan staðgreiðsluskatt af
jafnvel meira en þriðjungi allra
lífeyrisbótanna nú í janúar. Þetta
svarar til þess að yfir þriðjungur
allra þeirra sem njóta bóta frá
almennu sjóðunum noti persónu-
afsláttinn á skattkorti/kortum sín-
um að mestu eða fullu vegna skatta
af launum og/eða bóta frá Trygg-
ingastofnun.
Starfsmenn sjóðanna töldu að
vísu að skatthlutfallið ætti eitthvað
eftir að lækka vegna þess að fleiri
gætu kannski komið með auka-
skattkort með einhverjum ónýttum
persónuafslætti. Jafnframt kom
fram að skattkerfisbreytingin hafi
kostað marga úr hópi elstu borgar-
anna gífurlega snúninga, vegna
þess að margir fái bótagreiðslur úr
jafnvel 3-4 sjóðum. Þetta fólk -
sumt illa ferðafært - var sent fram
og til baka um bæinn til að skipta
skattkortum, og fara síðan með
þau út og suður, ekki síst í snjónum
og hálkunni nú í janaúar. Margir
eru t.d. með allt að 3 aukaskatt-
kort.
Haukur Haraldsson hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins hefur nú í
febrúar auga með útreikningi á 750
milljóna króna bótagreiðslum al-
mannatrygginga og þar til viðbótar
um 128 milljónum í bætur frá
Lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna,
sjómanna og fleiri sjóðum, eða
samtals nær 880 milljónum króna á
mánuði. Varðandi skattahlutfallið
hefur Tryggingastofnun þá sér-
stöðu að algengast er að aðalskatt-
kort lífeyrisþega séu þar. Þeir fá
svo aukaskattkort ef persónuaf-
sláttur þeirra nýtist þar ekki að
fullu, til að skila inn til t.d. annarra
lífeyrissjóða eða launagreiðenda.
Hjá Hauki er skattahlutfallið því
um helmingi lægra en hjá almennu
sjóðunum. Margir þeirra sem hafa
aðalskattkrot hjá Tryggingastofn-
un greiða þá aftur á móti fullan
skatt af þeim tekjum sem þeir
kunna að hafa fyrir einhver hluta-
störf í atvinnulífinu.
Frá byrjun desember og fram
undir þetta sagði Haukur búið að
vera gífurlegt álag hjá stofnuninni
í sambandi við nýja staðgreiðslu-
kerfið. Mjög margir hafi þurft að
leita upplýsinga, sumir verið óör-
yggir og smeykir við breytinguna.
Áfram er mikil vinna í sambandi
við þá sem eru að byrja að fá
bætur, eða fá hækkun eða lækkun
bóta, sem þá þurfa að fá breytta
prósentu á persónuafslættinum og
aukaskattkort.
Haukur taldi víst að sérstakar
aðstæður hér geri staðgreiðslukerfi
þyngra í vöfum en víðast erlendis.
Þar kemur m.a. til hve íslendingar
gera mikið af því að skipta um störf
og eignast þar af leiðandi lífeyris-
rétt í mörgum sjóðum eða eru
jafnvel í mörgum störfum samtím-
is. Miðað við núverandi reglur
lífeyrissjóðanna telur Haukur lík-
legt að eftir nokkur ár verði dæmi
um að fólk fái greiðslur úr jafnvel
5-6 lífeyrissjóðum. Aukaskattkort- |
in gætu því þurft að verða nokkuð
mörg áður en langt um líður.
- HEI
Paata Búrtsjúladse, bassi frá Grúsíu:
Syngur með Sinfóníu-
hljómsveit íslands
Paata Búrtsjúladse, heimsfrægur bassi, í Háskólabíó i kvöld.
Hinn mikli bassi, Paata Búrtsjúl-
adse, syngur í fyrsta sinn á Islandi í
kvöld með Sinfóníuhljómsveit
fslands. Hans var vænst á listahátíð
1986, en tálmar reyndust í vegi hans
það sinnið. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20:30 í Háskólabíó og í gær
var enn ekki uppselt. Sungin og
leikin verður ítölsk og rússnesk óp-
erutónlist.
Þrátt fyrir ungan aldur er Paata
Búrtsjúladse þekktur um allan heim
og hefur sungið á flestum helstu
óperusviðum heims og hljómplötur
hafa verið gefnar út með söng hans.
Upphaf frægðar hans var árið 1981,
þegar hann hlaut önnur verðlaun í
keppni sem kennd er við ítalska
tónskáldið Verdi í borginni Busseto
á Ítalíu. Ári síðar náði hann frábær-
um árangri í Tsjækofskíkeppni í
Moskvu og hlaut fyrstu verðlaun.
Herbert von Karajan hefur líkt hon-
um við meistara Sjaljapín og Pavar-
otti bauð honum að syngja á hátíðar-
konsert sem haldinn var í tilefni af
fimmtugsafmæli hans. Pavarotti og
Búrtsjúladse sungu auk þess saman
í uppsetningu á Aida í hringleika-
húsinu í Verona. Þá sýningu mátti
sjá og heyra í Ríkissjónvarpinu á
síðasta ári.
Búrtsjúladse er Grúsíumaður,
fæddur í Tblisi. Þótt hann lyki námi
í söng og píanóleik hugðist hann
leggja byggingarverkfræði fyrir sig
líkt og faðir hans, en ákvað að fara
að ráðleggingum foreldra sinna og
taka tíma við tónlistarháskólann
samhliða náminu í fjöltæknihá-
skólanum. Þá komst hann að raun
um að tónlistin átti hug hans allan.
Árið 1978 lauk hann þó verkfræði-
námi auk þess að taka lokapróf við
tónlistarháskólann. Hann komst í
nám við Scala-óperuna undir leið-
sögn hinnar kunnu söngkonu Simo-
niato. Búrtsjúladse varð síðar ein-
söngvari við Óperu- og ballet-
leikhúsið í Tblisi. Jafnframt kenndi
hann við tónlistarháskólann. Stöð-
ugt hélt hann námi sínu áfram og
orðspor hans fór víða.
Það má heita að öll helstu óperu-
hlutverk séu á efnisskrá söngvarans
og sérfræðingar halda því fram að
þegar á 35 ára afmæli sínu muni
hann syngja allar perlur óperutón-
listarinnar. Þá er spurning hvað liggi
fyrir bassa í framtíðinni, sem allt
leikur í hendi svo ungum. Sjálfur
segir Paata Búrtsjúladse að hann
muni leitast við að syngja það sem
hann er með á efnisskrá núna enn
betur. þj
(dregid úr grein Olgu Mcrkiilovu, APN)
Norræn skólaskák:
Héðinn sigraði
í sínum flokki
Héðinn Steingrímsson, heims-
meistari í flokki 12 ára og yngri
sigraði örugglega í sínum flokki í
Norðurlandamótinu í einstaklings-
keppninni í skólaskák sem fram fór
í Espoo í Finnlandi um helgina.
Héðinn hlaut 6 vinninga af 6 mögu-
legum í sínum flokki.
Ekki náðust fleiri titlar að þessu
sinni, en keppt var í fimm aldurs-
flokkum. íslenska skáksveitin fékk
þó næstflesta vinninga í heildina, en
skáksveit Svía kom nokkuð á óvart
og hlaut flesta titlana og flesta vinn-
ingana.
Hannes Hlífar Stefánsson sem
unnið hefur sína aldursflokka í ein-
staklingskeppninni undanfarin fimm
ár, varð að bíta í það súra epli að
lenda í 5. sæti að þessu sinni.
Næstbesti árangur íslendinga var
árangur Helga Áss Grétarssonar
semn tefldi í yngsta flokki, hann
lenti í 2. sæti með 4 vinninga.
- HM
Hvemig
væri umferðin
ef aiiirækju eins og þú.
■ Værir þú viðbúinn slíku?J
las®*-