Tíminn - 12.02.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.02.1988, Blaðsíða 2
2 Tíminn Föstudagur 12. febrúar 1988 Bæjarráð Kópavogs notar forkaupsréttinn: Frá undirskrift kaupsamningsins í gærkvöldi. Kl. hálf níu í gærkvöldi vargengið frá kaupum Hagkaups, Byggingar- vöruverslunar Kópavogs og Frjáls framtaks á landi því sem Samband íslenskra samvinnufélaga var áður búið að kaupa í Smárahvammi. Þá undirrituðu fulltrúar hinna nýju kaupenda samkomulag við Kópa- vogsbæ, sem áður hefur neytt for- kaupsréttar síns. Talsmenn Kópavogs sögðu í gær að ástæðan fyrir því að forkaupsrétt- arins var neytt væri sú að þeir hefðu ekki fengið nægjanlega skýr svör um það hvað Sambandið hygðist gera á þessu landsvæði. Þeir hefðu fengið upplýsingar um að þarna risi bensín- stöð og stórmarkaður en lítið meira. Auk þess væri ljóst að aðalstöðvar Sambandsins yrðu á Kirkjusandi í Reykjavík í fyrirsjáanlegri framtíð. Með undirritun þessari hefur bæjarráð Kópavogs lokað fyrir þær áætlanir sem SÍS hefur verið að vinna að. Hugmyndir Sambands- manna gengu m.a. út frá samningi sem stjórnin hafði gert við Hagvirki hf. um þróun og not á svæðinu. Að sögn Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra SÍS, hafði Sambandið m.a. boðið bæjarstjórn að þeir gætu neytt forkaupsréttar síns á hluta af um- ræddu landi, en þeirri leið hefur nú verið hafnað með þessum nýjasta samningi. Sagði Guðjón B. Ólafsson að þeir Sambandsmenn væru afar óhressir með málalok þessi og sagði hann að SfS, sem kaupandi að landinu, hafi fyrst allra vakið á því athygli og komið því inn á landakort- ið, sem einu besta verslunar og athafnasvæði Stór-Reykjavíkur- landsins. Taldi hann að siðferðilega hafi verið gengið nærri þeim Sam- bandsmönnum, þó að ekki væri efast um lagalega heimild bæjarfé- lagsins í málinu. í tilkynningu frá Sambandi ís- lenskra samvinnumanna segir m.a.: „Sambandið telur sig í öllum atrið- um hafa komið til móts við óskir bæjarins um uppbyggingarhraða Smárahvammslandsins. Þessi ákvörðun bæjarráðs kemur því mjög á óvart og eru mikil vonbrigði, þar sem Sambandið telur að forsendur bæjarins fyrir þessari ákvörðun standist ekki, þ.e. að áform um byggingarhraða séu ekki viðunandi. Sambandið bendir á að það þjónar tæplega hagsmunum Kópavogs- kaupsstaðar að fara þessa leið, því eitt af þeim fyrirtækjum sem ætlunin er að selja landið (BYKÓ) er þegar með atvinnurekstur í Kópavogi og hitt (IKEA) hafði þegar fengið út- hlutað lóð eða vilyrði fyrir lóð annars staðar í Kópavogi." KB Áburðarverksmiðja ríkisins: Áburður hækkar um 22,5% Tilbúinn áburður frá Áburðar- verksmiðju ríkisins mun hækka um 22,5% að meðaltali á næst- unni. Stjórn Áburðarverksmiðj- unnar hafði farið fram á þessa hækkun og samþykkti landbún- aðarráðuneytið tillögu stjórnar verksmiðjunnar í gær. Hækkun einstakra áburðartegunda er mis- mikil og er að mestu komin til vegna minnkandi niðurgreiðslna frá ríkinu, en í ár fara I00 milljón- ir í niðurgreiðslur en í þær fóru 120 milljónir í fyrra. Haukur Halldórsson formaður Stéttarfélags bænda hafði ekki fengið þessar tölur inn á borð til sín svo að hann gat ekki úttalað sig um hækkunina. Haukur sagði þó að þessi hækkun virtist vera í samræmi við verðlagsþróun í landinu. Hækkunin væri meiri en menn hjá Stéttarfélagi bænda hefðu vonast til að yrði, en en hins vegar hefði hækkunin getað orðið meiri. Haukur sagði að hækkun áburðarverðs um 22,5% myndi að líkindum valda búvöruhækk- un til að vega upp kostnaðarauka hjá framleiðendum. Það hefði hins vegar verið von Stéttarfé- lagsins að fá ákveðið fjármagn til reksturs Áburðarverksmiðjunnar eins og verið hefði undanfarin ár, til að ekki þyrfti að hækka áburð- arverð svona mikið. Hins vegar varð framlag ríkisins lægra en vonir stóðu til. -HM Háskólapólitíkin: Félagshyggjuöfl sameinast Tónleikunumfrestaötil 20. nk.: Bassinn lagðist í rúmið Paata Búrtsúladse, hinn mikli rússneski bassi frá Grúsíu, gat ekki sungið á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar íslands í gær. Frá því hann kom til íslands á sunnu- dag hefur hann verið sjúkur og er nú rúmliggjandi. Tónleikunum varð því ójákvæmilega að fresta til 20. febrúar, en á meðan er þess beðið að Paata batni. þj Félagshyggjuöflin í Háskóla ís- lands hyggjast nú sameina krafta sína og stofna nýtt félag sem bjóða mun fram lista á breiðum grundvelli, bæði í háskólaráðskosningum og stúdentaráðskosningum. í vetur hef- ur Félag umbótasinnaðra stúdenta og Félag vinstri manna starfað sam- an í meirihluta stúdentaráðs. Að sögn Ágústs Ómars Ágústssonar for- manns Félags umbótasinna, hefur samvinna þeirra verið góð, enda ekki verið ágreiningur þeirra í milli um helstu baráttumál stúdenta. Því munu þessi félög ekki bjóða fram í komandi kosningum, heldur leggja áherslu á að skapa nýtt afl félags- hyggjufólks á breiðum grundvelli með nýju félagi, svo hægt verði að vinna af auknum krafti að málefnum stúdenta með félagshyggju og sam- vinnu að leiðarljósi. Að undanförnu hafa Umbótasinn- ar og vinstrimenn sem skipa meiri- hluta stúdentaráðs, átt í baráttu gegn því að meðlagsgreiðslur til einstæðra foreldra teljist til tekna og skerði þannig námslán þeirra, en samkvæmt nýjum úthlutunarreglum Lánasjóðs hafa námslán cinstæðra foreldra verið skert af þessum sökum. Lagði meirihlutinn fram lögfræði- álit Lagastofnunar Háskólans, sem kveður skýrt á um að meðlag skuli ekki teljast til tekna í úthlutun námslána. Að sögn Ólafs Darra Andrasonar fulltrúa stúdentaráðs í Lánasjóði íslenskra námsmanna, virðist sigur vera að nást í þessu máli, þar sem menntamálaráðherra hefur þrýst á Lánasjóðinn um að þetta ákvæði falli úr gildi. Félagshyggjufélögin tvö hafa einnig lagt áherslu á að ekki verði lagðir vextir á námslán, en hug- myndir þess efnis hafa verið uppi hjá sjálfstæðismönnum, en nú er verið að vinna í menntmálaráðuneytinu að frumvarpi að nýjum lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna og óttast meirihluti stúdentaráðs að þar verði ákvæði um vexti á námslán. Telja félagshyggjuöflin í Háskólan- um mikilvægt að eining ríki meðal félagshyggjufólks í baráttunni gegn vöxtum á námslán. Einnig veiti ekki af sameinuðum kröftum þeirra í uPPbyggingu stúdentagarða og ann- arra félagslegra baráttumála stúd- enta, en á þessu ári munu 90 náms- mannaíbúðir verða teknar í notkun. Stofnfundur hins nýja félags verð- ur haldinn í Stúdentakjallaranum í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 19.30. -HM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.