Tíminn - 12.02.1988, Blaðsíða 12

Tíminn - 12.02.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn K FRÉTTAYFIRLIT NIKÓSÍA — Iranar báru myndir af leiðtoga sínum Ayat- ollah Khomeini, brenndu fána Bandaríkjanna og ísraels og kölluðu „stríð, stríð, þar til sigur vinnst" í hátiðarhöldum þar sem þess var minnst að níu ár voru liðin frá þyltingu múslima í landinu. VÍNARBORG — Enn var|: saumað að Kurt Waldheim forseta Austurríkis er háttsett- ur meðlimur samsteyþustjórn- arinnar í landinu ræddi um sameiginlegar þrýstiaðgerðir til að fá hann til að segja af sér. MMABATHO — Suður-Afr- íkustjórn sagði að Afríska þjóðarráðið, hin útlægu sam- tök er berjast gegn stjorn hvíta1 minnihlutans í landinu, hefði jafnvel verið á bak við bylting- artilraunina í Bophuthatswana, einu hinna svokölluðu sjálf- stæðu heimalanda blökku- manna. Herir Suður-Afríku. handtóku í gær stjórnarands-i tæðinga þar og bunda enda á byltingartilraunina. Allt var kyrrlátt í höfuðborginni Mma- batho en Bophuthatswana er, kannski frægast fyrir að þar er skemmtanaborgin mikla Sun City. BRÚSSEL — Leiðtogar Evr- ópubandalagsríkjanna reyndu að leysa fjárhagsvandræðii bandalagsins á sérstökum fundi sínum og fulltrúar Vestur- Þjóðverja sögðu að tækist þaði ekki nú myndi allur heimurinn hlæja að þeim. BAGHDAD — Herþotur ír- aka gerðu árásir á rnikilvæg mannvirki langt inn í Iran. Þaö var talsmaður írakska hersins sem skýrði frá þessu í gær. ISLAMABAD — Háttsettur sovéskur embættismaður sagði að undirritun samkomu- lags um frið í Afganistan væri eina leiðin til að hjálpa Afgön- um að mynda ríkisstjórn erallir deiluaðilar í landinu ættu aðild að. Vorontsov, fyrst varautan- ríkisráðherra Sovétríkjanna sagði að friðarsamkomulagið væri nú tílbúið til undirritunar í Genf og eftir það væri það undir Afgönum komið að ná þjóðarsátt. GENF — Afganskur em- bættismaður sagði að það væri engin spurning að Najibullah forseti myndi láta af embætti sínu til að koma til móts við kröfur skæruliða múslima og binda enda á stríðið í landinu. MOSKVA — Sovéskur heil-' brigðisráðgjafi sagði að heil- brigðismálaráðuneytið ætti að taka yfir stjórn sérstakra geð- sjúkrahúsa sem hingað til hafa verið í umsjá lögreglunnar. ÚTLÖND Föstudagur 12. febrúar 1988 Yfirvöld í New York hafa í hyggju að útvega eiturlyfjasjúklingum sprautunálar til að hamla gegn útbreiðslu eyðni:_________________ Ætti að láta þá fá það sem þeir vilja? Yfirvöld í New York í Bandaríkj- unum ákváðu í byrjun þessa mánað- ar að útvega eiturlyfjasjúklingum dauðhreinsaðar nálar í þeim tilgangi að hamla gegn útbreiðslu eyðnisjúk- dómsins, þess illræmda sjúkdóms sem enn hefur ekki fundist lækning við. Áætlun yfirvalda gæti hafist strax í vor en miklar deilur eru þó uppi um ágæti og kannski helst um siðferðislegt gildi þessarar ákvörð- unar. „Að dreifa nálum er eins og að vinna fyrir djöfulinn. Það mun að lokum leiða til þess að heróínnoktun verður lögleg,“ segir baptistaprest- urinn Calvin Butts er starfar í Harl- emhverfi. Flestir eru sammála um að eitur- lyfjanoktun sé í sjálfu sér sjálfseyð- ingariðja en það eru þó fleiri neyt- endur sem þurfa frekar að óttast eyðni. Talið er að um 60% þeirra 200 þúsund eiturlyfjasjúklinga sem búa í New York séu smitaðir af eyðni. Aðeins 35 þúsund þeirra eru undir forsjá lækna eða á stofnunum þar sem reynt er að venja þá af eituriyfjunum. Afleiðing þessa er síðan sú að sjúkdómurinn ógnar gagnkyn- hneigðu fólki t.d. er aukinn fjöldi kvenna á barneignaraldri smitaður eftir að hafa notað óhreinar nálar eða átt mök við aðra eiturlyfjaneyt- endur. „Eiturlyfjaneytandi er sprautar sig ber sjúkdóminn til þeirra gagnkyn- hneigðu", segir einn heilbrigðisráð- gjafi borgarinnar. Yfirvöld hafa brugðist þannig við að veita undanþágu frá lögum sem segja að bannað sé að dreifa eða eiga sprautunálar án þess að vottorð liggi fyrir. Ætlunin er síðan að dreifa nálum og sprautum til eitur- lyfjasjúklinga og þannig fylgjast nán- ar með þessum hópi og hamla gegn útbreiðslu eyðni. Andstæðingar þessarar áætlunar telja ekki aðeins og hún lami siðferð- isstyrk þjóðfélagsins heldur einnig að hún geri hreinlega yfirvöld í New York sek um að hjálpa til við glæp. Sé siðferði legum og lögfræðileg- um atriðum sleppt sýnir þó reynslan annars staðar eins og t.d. í Hollandi, Skotlandi og Ástralíu að áætlunin getur að minnsta kosti gert yfirvöld- um kleift að fylgjast nánar með eiturlyfjasjúklingum og hvort þeir séu smitaðir af eyðni eða ekki. Hinsvegar telja margir að of seint sé farið af stað með þessar aðgerðir í New York til að hamlað verði gegn útbreiðslu eyðnisjúkdómsins. Time/hb Almennilegt landakort: Sovétríkin á stærð við fótboltavöll Verið er að vinna að nýju landakorti af Sovétríkjunum sem verður á stærð við fótboltavöll. Það var Trud, dagblað sovéska verkalýðssambandsins, sem skýrði frá þessu í gær. Mælikvarðinn 1 sentimetri á móti 250 metrum er notaður á þessu korti og er það víst svo nákvæmt að flest hús í landinu ættu að finnast á þvt. Talsmaður þeirra kortagerða- manna sem unnið hafa að þessu mikla verki sagði að landakortið nýja yrði það nákvæmasta sem nokkru sinni hefði verið gert. Kortagerðamenn hafa unnið við skráninguna síðustu 25 árin. Dagblaðið hafði eftir tals- manninum að ef allir hlutar landakortsins yrðu lagðir saman yrði það á stærð við Luzhniki knattspyrnuvöllinn í Moskvu- borg. hb Sjálfseyðingariðjan: Hana á að gera hreinlegri í New York Brasilía: „Því verra þjóðfélagsástand því betri kjötkveðjuhátíð“ Skipuleggjendur kjötkveðjuhá- tíðarinnar í Ríó de Janeiró eru sannfærðir um að hátíðin nú verði sú viðamesta og glyslegasta til þessa. Þeir segja að öll vandræðin sem hrjá þjóðina, efnahagsörðugleikar, út- breiðsla eyðnisjúkdómsins og nátt- úruhamfarir, muni aðeins gera hina 140 milljón íbúa landsins enn á- kveðnari í að lyfta sér upp úr dróma hversdagsleikans þá fimm daga sem hátíðin stendur. „Því verra þjóðfélagsástand því betri kjötkveðjuhátíð. Fólkið býr við svo mörg vandamál sem það þarf að gleyma að það leggur sig miklu meira fram í hátíðarhöldunum," segir Joao Rosendo sem stjórnar einum sömbuskólanum er verður í eldlínunni í Ríóborg. Rosendo og flokkur hans munu taka þátt í sömbudansinum ásamt fleiri hópum á sunnudags- og mánu- dagskvöld og meðal áhorfenda verða um 30 þúsund erlendir ferðamenn sem búist er við að haldi til í Ríóborg, næst stærstu borg Brasilíu, þá daga sem hátíðin stendur. Kjötkveðjuhátíðir setja svip á fleiri borgir Brasilíu t.d. í Salvador og Recife í norðausturhluta landsins. íbúar þeirra borga halda því raunar fram, að hátíðarhöldin þar tengist betur þeirri ótrúlegu blöndu af kristinni trú og afr'ískum venjum sem þau byggja á, heldur en gerist í Ríó de Janeiró. Það er engu að síður glaumurinn í Ríóborg sem flestir beina augum sínum að. Hátíðarhöldin hefjast á morgun þegar borgarstjórinn Sat- urninó Braga afhendir „Rei Momo“ eða trúðakónginum lyklana að borg- inni. Síðan tekur við fimm daga sömbudans og gleðskapur sem lýkur á öskudag. „Bæði þeir ríku og fátæku geta gleymt öllurn slæmu fréttunum í nokkra daga,“ segir Rosendo. Og sannarlega hafa Brasilíumenn fengið nóg af slæmum fréttum að undanförnu. Gífurleg verðbólga hefur farið illa með margar fjölskyldur landsins, sérstaklega þær efnaminni en einnig hefur hagur fólks úr millistéttum Gráma hversdagsleikans kastað fyrir róða á kjötkveðjuhátíð í Brasilíu. versnað umtalsvert. Brasilíumenn eru skuldugastir þjóða þriðja heimsins, skulda um 113 milljarða Bandaríkjadala og það kemur svo sannarlega við ríkiskass- ann þrátt fyrir að afborgunum hafi verið hætt í eitt ár. Reyndar lauk því tímabili í síðustu viku. Fjöldi heimilislausra hefur aukist og segja sumir að tala þeirra sé orðin hættulega há. Þeir heimilislausu halda oftast til á strætum stórborg- anna eða við baðstrendur þar í grennd. Fleiri slæmir atburðir hafa sett svip sinn á Ríóborg t.d. flóð og aurskriður norður af borginni í síð- asta mánuði er urðu 183 mönnum að bana. Hátíðarhöldin virðast því ætla að verða með villtara móti ef taka má mark á orðum Rosendo. Einn er þó sá skuggi sem gæti eitthvað haldið aftur af mönnum en það er eyðni- sjúkdómurinn illræmdi. Um 2.500 tilfelli sjúkdómsins hafa verið skráð í Brasilíu og yfirvöld hafa beitt sjónvarpinu mjög undanfama daga til að vara við kæruleysi í kynlífi á meðan á hátíðarhöldunum stendur. hb

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.