Tíminn - 12.02.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 12.02.1988, Blaðsíða 4
Föstudagur 12. febrúar 1988 4 Tíminn - Auglýsing frá Menntamálaráði íslands um styrkveitingar árið 1988 Samkvæmt fjárveitingu á fjárlögum 1988 verða á árinu veittir eftirfarandi styrkir úr Menningar- sjóði íslands: Útgáfa tónverka Til útgáfu íslenskra tónverka verða veittir einn eða fleiri styrkir en heildarupphæð er kr. 130.000.- Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um tónverk þau sem áformað er að gefa út. Dvalarstyrkir listamanna Veittir verða 8 styrkir að upphæð kr. 90.000.- hver. Styrkir þessi eru ætlaðir listamönnum sem hyggj- ast dveljast erlendis um a.m.k. tveggja mánaða skeið og vinna þar að listgrein sinni. Umsóknum skulu fylgja sem nákvæmastar upplýsingar um fyrirhugaða dvöl. Þeir sem ekki hafa fengið sams konar styrk frá Menntamálaráði síðastliðin 5 ár ganga að öðru jöfnu fyrir við úthlutun. Styrkir til fræðimanna Styrkir þessir eru til stuðnings þeim sem stunda fræðistörf og náttúrufræðirannsóknir. Heildarstyrk- upphæð er kr. 220.000.00. Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um þau fræðiverkefni sem unnið er að. Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa borist Menntamálaráði íslands, Skálholtsstíg 7, 101 Reykjavík fyrir 15. mars 1988. Nauðsynlegt er að kennitala umsækjanda fylgi umsókninni. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Menningarsjóðs að Skálholtsstíg 7, Reykjavík. Laus staða Staða kennslustjóra í uppeldis- og kennslufræðum við félagsvísindadeild Háskóla íslands er laus til umsóknar: í starfinu felast eftirtaldir þættir: 1) Umsjón æfingakennslu og kennslu sem henni tengist. 2) Skipulagning endurmenntunar framhalds- skólakennara í uppeldis- og kennslufræðum. 3) Samvinna um kennaramenntun við aðrar deild- ir háskólans og við grunnskóla og framhalds- skóla. 4) Önnur verkefni sem félagsvísindadeild kann að ákveða vegna menntunar og starfsþjálfunar kennara. Áskilið er að umsækjandi hafi full kennsluréttindi á framhaldsskólastigi og a.m.k. fimm ára starfs- reynslu sem kennari í framhaldsskóla eða grunn- skóla. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri greinargerð um náms- feril, kennslu og önnur störf skulu sendar mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10. mars nk. Menntamálaráðuneytið, 8. febrúar 1988 Framboðsfrestur Starfsmannafélagið Sókn hefur ákveðið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um stjórn trúnaðar- mannaráðs, endurskoðendurog varamenn þeirra. Framboðslistum þurfa að fylgja nöfn 100 fullgildra félaga Sóknar og skal þeim skilað fyrir kl. 12 á hádegi föstudaginn 19. febrúar 1988 á skrifstofu félagsins, Skipholti 50A, þar sem listi stjórnar liggur frammi. Starfsmannafélagið Sókn Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra, Ólafur ólafsson landlæknir og Hallur Magnússon formaður FUF í Reykjavík á opnum fundi sem ungt framsóknarfólk og framsóknarkonur héldu um sjúkdóminn eyðni. (Tímamynd Pjetur) Heilbrigðisráðherra og landlæknir á fundi um eyðni: VERÐA 2400 SMITAÐIR AF EYÐNI1992? Þrátt fyrir að árið 1992 kunni að vera að um 2400 íslendingar verði sýktir af eyðniveirunni hefur heil- brigðisráðuneytið aðeins 10 milljón- ir króna til forvarnastarfs gegn eyðni og mun þeim fjármunum verða varið til fræðslu um eyðni á vinnustöðum og í fjölmiðlum eftir því sem fjárveit- ing leyfir. Þetta kom fram hjá Guð- mundi Bjarnasyni heilbrigðisráð- herra á opnum hádegisverðarfundi sem Félag ungra framsóknarmanna, Samband ungra framsóknarmanna og Landssamband framsóknar- kvenna héldu með heilbrigðisráð- herra og landlækni á Gauki á Stöng í gær. Guðmundur sagði að hér á landi fjölgi eyðnisjúklingum á svipaðan hátt og annars staðar í heiminum. Samkvæmt óstaðfestum tölum hefðu nú fundist 39 eyðnismitaðir einstakl- ingar hér á landi, þar af væru 3 látnir og 2 væru með sjúkdóminn á loka- stigi. Samkvæmt því sem fram kom á alþjóðlegri ráðstefnu sem ráðherr- ann og landlæknir sóttu á dögunum sýnir reynslan að fjöldi sýktra tvö- faldast á hverju ári. Ef miðað væri við þá sem nú hafa fundist með smit þá yrðu eyðnismitaðir íslendingar um 640 árið 1992 og ef miðað væri við að 150 einstaklingar væru í raun smitaðir eins og margir telja, þá yrðu um 2400 íslendingar eyðni- smitaðir árið 1992 og fjöldi manna látinn. Guðmundur benti á að þar sem engin lækning væri við þessum ógn- vænlega sjúkdóm, þá væri eina ráð heilbrigðisyfirvalda að fræða al- menning um hættu þá er stafar af eyðniveirunni og kynna rækilega smitleiðirnar sem væru kynmök og blóðblöndun hverskonar. Síðan væri það fyrst og fremst undir hegðun hvers og eins einstaklings komið hvort hann smitist af eyðni eða ekki. Guðmundur kynnti lauslega þær aðgerðir sem heilbrigðisyfirvöld hyggjast beita á næstunni í barátt- unni gegn eyðni. Tók hann fyrst til fyrirhugaða fræðsluherferð á vinnu- stöðum um sjúkdóminn eyðni, smit- leiðir eyðniveirunnar og varnir gegn smiti. Mun fræðsluherferðin verða unnin í samráði og samvinnu við Vinnueftirlitið. Sérstákur bæklingur i verður gefinn út og honum dreift á I vinnustaðu, samhliða því sem ■ fræðslu verður komið á framfæri á vinnustöðunum sjálfum með öllum tiltækum ráðum. Þá sagði Guðmundur að í bígerð væri að gera myndband um eyðni til sýningar í sjónvarpi og í skólum landsins, auk þess sem unnið verður fræðsluefni í formi Ieikinna útvarps- auglýsinga. Nýtt fræðsluefni verður samið fyrir skóla og heilsugæslu- stöðvar auk þess sem haldið verður uppi áróðri á fjölförnum stöðum eins og í Kringlunni og öðrum stór- mörkuðum. Lagði Guðmundur sér- staka áherslu á nauðsyn aukinnar fræðslu x skólum landsins. Á fundinum vísaði Ólafur Ólafs- son landlæknir á bug þeim ásökun- um forsvarsmanna Samtakanna 78 um að heilbrigðisyfirvöld hafi brugð- ist í forvarnastarfi gegn eyðni. Ólaf- ur sagði að samstarf hafi verið haft við samtökin frá upphafi og að heilbrigðisyfirvöld hafi veitt þeim fjárstuðning til að sinna fræðslustarfi innan síns hóps. Hins vegar væri ljóst að meiningarmunur væri milli forsvarsmanna Samtakanna 78 og heilbrigðisyfirvalda hvernig fræðslan eigi að vera. -HM Vestfjarðaleið Rvík-Búðardalur: Fleiri rútur frá Búðardal Að höfðu samráði við heima- menn í Búðardal hefur Jóhannes Ellertsson, sérleyfishafi, ákveðið að fjölga áætlunarferðum miili Búðardals og Reykjavíkur. Hafa ferðirnar verið þrjár í viku til þessa en verða núna átta í viku hverri. Ekið er úr Búðardal fimm daga vikunnar, mánudaga til föstudaga, kl. 8.00 að morgni. Auk þess verða ferðir frá Búðardal kl. 15.30 á þriðjudögum og 17.30 á fimrntu- dögum, eins og verið hefur. Á sunnudögum verður ekið frá Búð- ardal kl. 17.30, en engar ferðir verða á laugardögum. Einnig verður ekið frá Reykja- vík fimm daga vikunnar, mánu- daga til föstudaga, með brottför kl. 18.00. Auk þess verður lagt upp frá Reykjavík kl. 8.00 á þriðjudögum og fimmtudögum eins og verið hefur. Sunnudaga verður brottför frá Reykjavík kl. 18.00. Áð er í Borgarnesi í öllum ferð- um á báðum leiðum. Vonast er til að fólk kunni að meta þessa þjón- ustu og notfæri sér hana í jöfnum auknum mæli. KB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.