Tíminn - 12.02.1988, Síða 6
6 Tíminn
Föstudagur 12. febrúar 1988
Laust embætti
Staða prófessors í íslensku og íslenskum fræðum
við Kennaraháskóla íslands er laus til umsóknar.
Meginverkefni væntanlegs prófessors eru kennsla
og rannsóknir á sviði íslensks nútímamáls og
hagnýtrar málfræði. Auk viðurkennds háskóla-
prófs í grein sinni skal hann hafa próf í uppeldis-
og kennslufræðum ásamt þekkingu á og reynslu
af íslenskukennslu.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Gerð er ráð fyrir, að staðan verði veitt frá 1. ágúst
1988.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa
unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil
og störf. Umsóknir skulu hafa borist menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir
15. mars nk.
Menntamálaráðuneytið,
8. febrúar 1988
Orðsending til launagreiðenda
frá fjármálaráðuneytinu
Samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra
gjalda skal launagreiðandi skila mánaðarlega því
staðgreiðslufé sem honum bar að halda eftir á
greiðslutímabilum síðasta mánaðar.
Gjalddagi skilafjár vegna janúarmánaðar 1988 var
1. febrúar sl. Eindagi greiðslunnar er 15. febrúar
nk.
Athygli er vakin á því að hafi greiðsla ekki borist
viðkomandi gjaldheimtu eðainnheimtumanni ríkis-
sjóðs í síðasta lagi á eindaga reiknast álag á
vanskilin.
Fjármálaráðuneytið
10. febrúar 1988
Laus staða
Starf fjármálastjóra (rekstrarstjóra) við Kennara-
háskóla íslands er laust til umsóknar. Fjármála-
stjóra er ætlað að hafa í umboði rektors og
skólaráðs umsjón með gerð fjárhagsáætlana,
rekstri og fjármálum skólans.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um náms-
feril og störf skulu hafa borist menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 7. mars
nk.
Menntamálaráðuneytið
8. febrúar 1988
Tilkynning til launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
eindagi launaskatts fyrir mánuðina nóvember og
desember er 15. febrúar nk. Sé launskattur
greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til
viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með
gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra,
og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Tilboð
Óska eftir skiptum á fullvirðisrétti úr sauðfé í mjólk.
Um er að ræða 100 til 150 ærgildi.
Þeir sem hefðu áhuga, hafið samband við Auglýs-
ingadeild Tímans merkt „Fullvirðisréttur 2“.
Sigurður Þórólfsson, bóndi Innri- Fagradal
á ráðunautafundinum á Hótel Sögu:
Viljum reka smærri
sláturhús í friði
í framsöguerindi á ráðunauta-
fundi RALA og Búnaðarfélags ís-
lands ræddi Sigurður Þórólfsson,
bóndi Innri-Fagradal Saurbæjar-
hreppi í Dalasýslu, m.a. um upp-
byggingu sláturhúsa hér á landi
undanfarin ár og hugmyndir nú um
að leggja niður smærri sláturhúsin.
Orðrétt sagði Sigurður: „Ég er þeirr-
ar skoðunar að sú bylting sem gerð
var í sláturhúsabyggingum á 7. og 8.
áratugnum hafi ekki verið raunhæf
við okkar aðstæður. Og mér er ekki
grunlaust um að fyrirmyndin hafi
verið sótt til landa þar sem slátrunar-
tími er mun lengri en hér á landi og
nýting þessara fjárfestinga því mun
betri. Ég sé ekki betur en að sú
hagræðing og sparnaður sem átti að
verða með þessum framkvæmdum
hafi ekki skilað sér sem skyldi og
a.m.k. í sumum tilfellum hafi fjár-
magnskostnaður orðið erfiður
baggi."
Sigurður sagði það sína skoðun að
ekki hafi verið réttlætanlegt í sumum
tilfellum að ráðast í byggingu stórra
sláturhúsa og miða þá við hugsanleg-
an útflutning. „Ég er ekki sáttur við
það að nú sé komið til forsvars-
manna litlu sláturhúsanna og sagt;
Nú hættir þú slátrun, við erum með
stórt hús og mikla fjárfestingu, sem
við þurfum að nýta betur, og því
tökum við að okkur slátrun á ykkar
fé,“ sagði Sigurður.
I samtali við Tímann sagði Sigurð-
ur að hann hafi í erindi sínu verið að
benda á að ekki væri réttlætanlegt að
þau sláturhús, sem bændur hefðu á
sínum tíma byggt upp og miðað við
ákveðinn heimamarkað, væru lögð
niður og slátrun fjárins færð til stóru
húsanna, til þess að greiða úr rekstr-
arvanda þeirra. „Mitt sjónarmið er
þetta: Við sem höfum byggt upp
fyrirtæki, sem ekki hefur á nokkurn
hátt íþyngt öðrum, eigum að fá að
reka það áfram í friði. Við viljum
ekki hafna samstarfi við aðra, en
teljum hinsvegar að við eigum að fá
að reka eigið fyrirtæki á meðan það
er unnt. í sjálfu sér er mjög slæmt að
illa skuli ganga hjá stóru sláturhús-
unum. Slíkt er mjög slæmt í hverju
byggðarlagi, en það er ekki hægt að
réttlæta það að fólk í öðrum byggð-
arlögum þurfi að borga þann halla úr
sínum vösurn," sagði Sigurður.
óþh
Samúel Smári Hreggviðsson gjaldkeri, Einar Sigurðsson stjórnarmaður, Guttormur Sigurbjörnsson formaður, Freyr
Jóhannesson varaformaður og Sverrir Kristinsson rítari.
Matsmannafélag
Eftir að Fasteignamat ríkisins var
gert að sjálfstæðri stofnun fyrir tólf
árum var hafist handa um nám-
skeiðahald í hefðbundnum mats-
fræðum. Þessi námskeið hafa verið
eitt til tvö á ári og þau hefur sótt auk
starfsmanna Fasteignamatsins nokk-
ur hópur manna, sem hefur mats-
störf að atvinnu í meira eða minna
mæli.
Nú hefur verið stofnað sérstakt
Þeir voru ekki margir fslending-
arnir sem seldu afla sinn á erlendri
grund í síðustu viku. Aðeins eitt
skip, Viðey RE, seldi afla sinn í
Þýskalandi, ekkert skip seldi í Bret-
landi, en þó voru seld tæp 750 tonn
af fiski í gámum til Bretlands.
Viðey RE landaði rúmum 174
tonnum í Bremerhaven og fékk fyrir
rúmar 10,3 milljónir króna. eða
meðalverð upp á 59,92 krónur. Mik-
ill hluti aflans, eða tæp 132 tonn, var
karfi og var meðalverð hans 60,60
krónur. Þá voru rúm 19 tonn af
þorski, sem seldist á tæpar 57 krónur
félag matsmanna, Matsmannafélag
íslands. Er félaginu ætlað að vinna
að eflingu hlutlauss mats fasteigna
og annarra verðmæta sem til mats
koma. Þá mun félagið vinna að því
að hæfir matsmenn annist starfið.
Auk þess er ætlunin að vinna að
eflingu sameiginlegra áhuga- og
hagsmunamála félagsmanna og
góðri samvinnu þeirra á milli.
Inntökuskilyrði í félagið eru sú að
kílóið, tæp 18 tonn af ufsa, sem
seldist á 47,12 krónur kílóið og rúmt
hálft tonn af ýsu, sem seldist á tæpar
87 krónur kílóið.
Rétt tæp 750 tonn voru seld í
gámum til Bretlands í vikunni sem
leið. 368 tonn voru af þorski, sem
seldist á 80,12 krónur kílóið, 240
tonn af ýsu, sem seldist á 81,70
krónur kílóið og 44 tonn af kola.
sem seldist á 79,51 krónu. Samtals
söluverð var rétt tæpar 58 milljónir,
og íslenskir aðilar seldu því fyrir
tæpar 70 milljónir í vikunni sem leið.
- SÓL
félagi þarf að hafa unnið sem mats-
maður eigi skemur en þrjú ár og hafa
sótt matsmannanámskeið.
Breytingar á Laugavegs-
akstri strætisvagna:
Enginn strætó
á sunnudögum
Nýverið tóku gildi breytingar á
akstri strætisvagna borgarinnar
niður Laugaveg.
Breytingarnar eru í því
fólgnar, að leiðir 2,3,4,5 og 15a
munu aka niður verslunargötuna
til klukkan 13 mánudaga til föstu-
daga, og til klukkan 11 á laugar-
dögum, eins og verið hefur.
Hins vegar munu þeir aka frá
Hlemmi niður Skúlagötu að
Lækjartorgi án viðkomu eftir
klukkan 13.
Sérstakur Hlemmur-Miðborg-
ar vagn mun aka niður Laugaveg-
inn frá ofangreindum tímum til
klukkan 18.30 mánudaga til
föstudaga og til klukkan 17.00 á
laugardögum.
Eftir að akstri Laugavegs-
vagnsins lýkur, svo og á sunnu-
dögum og öðrum helgidögum,
munu engir vagnar aka niður
Laugaveg frá Hlemmi. -SÓL
Ferskfisksölur erlendis:
70 MILLJÓN
KRÓNA SALA