Tíminn - 19.02.1988, Qupperneq 4
4 Tíminn
Föstudagur 19. febrúar 1988
Styrkir til náms
á Spáni
Spænsk stjórnvöld bjóða fram eftirtalda styrki
handa íslendingum til náms á Spáni á námsárinu
1988-89.
1. Einn styrk til háskólanáms í 9 mánuði. Ætlast
er til að styrkþegi sé kominn nokkuð áleiðis í
háskólanámi og hafi mjög gott vald á spænskri
tungu. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en
30 ára.
2. Tvo styrki til að sækja spænskunámskeið í
„Escuela de Verona Espanola" í Madrid í júlí
sumarið 1988. Umsækjendur skulu hafa lokið
a.m.k. 3 ára námi í spænskri tungu í íslenskum
framhaldsskóla.
Umsóknir um styrki þessa, ásamt staðfestum
afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 1. apríl n.k. - Sérstök umsóknar-
eyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
16. febrúar 1988.
Þorrablót
framsóknarmanna í
Reykjavík
Þorrablótið okkarverðurhaldið í Þórscafé, Norður-
Ijósasal, föstudaginn 19. febrúar og hefst kl. 20.00.
Veislustjóri: Gissur Pétursson, form SUF.
Ræðumaður kvöldsins: Guðni Ágústsson alþingis-
maður.
Gamanvísur flytur Valur Óskarsson og leiðir
fjöldasöng.
Samkvæmisleikir í umsjón FUF.
Við skorum á alla framsóknarmenn að koma.
Miðaverð er ótrúlega lágt, aðeins kr. 2.100.
Miðapantanir í síma 24480.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík
Kjalarnes - Kjós -
Mosfellsbær
Fundur meö Jóni Helgasyni landbúnaðarráöherra
í Fólkvangi miövikudaginn 24. febrúar ki. 20.30
Kjördæmissambandið
Stjórnmálaskólinn
áhugafólk athugið!
Stjórnmálaskóli SUF og LFK hefst þriðjudaginn 23. febrúar 1988, kl.
20.00 aö Nóatúni 21.
23. febr.: Efnahagsmál, Gunnlaugur Sigmundsson.
1. mars : Umhverfis- og heilbrigöismál, Hermann Sveinbjörnsson og
Finnur Ingólfsson. Skólinn er öllum opinn
Efni skólans auglýst nánar síöar.
Stjórnmálaskóli SUF og LFK
Verðsamanburður ekki síður gróðavænlegur innan verslunar en á milli þeirra:
Upp í 38% verðmunur
innan sömu verslunar
Lægsta og hæsta verð á innkaupakörfunni
Kostakaup, Hafnarlirði Verðmunur
Lægsta verð Hæsta verð .. kr, %
4.170 kr. 5.200 kr. 1.130 kr. 25%
Hagkaup, Skeifunni, Rvik. Verðmunur
Læqsta ver 4 Hæsta verð kr. %
4.190 kr. 5.780 kr. 1.590 kr. 38%
Kjötmiðstöðin, Carðabæ
Verðmunur
Lsgsta vgrö Hæsta verð kr. %
4.200 kr. 5.510 kr. 1.310 kr. 31%
Fjarðarkaup, Hafnarfirði Verðmunur
Læasta verð Hæsta verð kr. %
4.380 kr. 5.350 kr. 970 kr. 22%
Mikligarður, Rvik. Verðmunur
Læqsta ver4 Hæsta verð kr. %
4.430 kr. 5.620 kr. 1.190 kr. 27%
Kaupstaður, Rvik. Verðmunur
Læqsta ver4 Hæsta verð kr. %
4.440 kr. 5.670 kr. 1.230 kr. 28%
JL húsið, Rvik. Verðmunur
Læqsta ver4 Hæsta verð kr. %
4.540 kr. 5.760 kr. 1.220 kr. 27%
Hólagarður, Rvik. Verðmunur
Læasta ver4 Hæsta verð kr. %
4.560 kr. 5.640 kr. 1.080 kr. 24%
Kaupf. Hafnfirðinga, Miðvangi, Hafnarfirði Verðmunur
Lægslaverð Hæsta verð kr. %
4.570 kr. 5.570 kr. 1.000 kr. 22%
Nýibær, Seitjarnarnesi Verðmunur
Læqsta verð Hæsla verð kr. %
4.720 kr. 6.030 kr. 1.310 kr. 28%
Þótt Jón og Gunna standi hlið við hliö með innkaupakörfurnar sínar í
stórmarkaði eftir að hafa valið í þær sömu vörurnar getur Jón þurft að borga
allt að 1.600 kr. hærra verð við kassann, þ.e. ef hann hefur gripið það sem
hendi var næst en Gunna hins vegar beitt stakri verðvísi. Dágott tímakaup
hjá Gunnu?
Það getur ekki síður borgað sig að
gera verðsamanburð á mismunandi
vörumerkjum á sömu vörum í sömu
búðinni heldur en á milli verslana,
samkvæmt nýjustu verðkönnun
Verðlagsstofnunar. í þetta sinn valdi
VS sér 40 algengar vörur í dæmi-
gerða „helgarkörfu" og kannaði síð-
an verð þeirra í 10 stórmörkuðum á
höfuðborgarsvæðinu - annarsvegar
ef ávallt voru teknar ódýrustu teg-
undir hverrar vöru og hins vegar ef
valdar voru dýrustu tegundir af sömu
vöru í sömu verslun. Niðurstaðan
varð sú að fram kom allt frá 22% og
upp í 38% verðmunur á helgarkörf-
unni innan sömu verslunar, en hins
vegar mest 13-16% verðmunur milli
þessara 10 markaða.
Helgarkörfunni var ætlað að inni-
halda 40 vörutegundir í mismunandi
magni sem gætu verið dæmigerð
helgarinnkaup fyrir fjögurra manna
fjölskyldu. Þar voru m.a. 2 kg
lambalæri, 6 1 af mjólk, 250 g af osti,
300 g af kínakáli, 600 g af eplum,
pakki af kornfleksi, sardínudós, 300
g af frystu rósakáli, 450 g baunadós
og heildós af blönduðum ávöxtum
svo dæmi séu tekin.
Mestur verðmunur innan sömu
verslunar kom fram í Hagkaupi í
Skeifunni, þar sem hægt var að fá í
körfuna fyrir 4.190 kr. með því að
velja ódýrustu tegundir hverrar vöru
en síðan einnig á 5.780 kr. með því
að taka dýrustu tegundirnar. Munur-
inn er þarna 1.590 kr., eða 38%. En
mikill verðmunur á vörum innan
verslunar er m.a. talinn benda til
mikils vöruframboðs í þeirri búð.
Með því að velja ódýrustu tegund-
irnar og stærðareiningarnar af þess-
um 40 vörum var karfan á lægsta, og
nær sama verði (4.170-4.200 kr.) í
þrem verslunum: Kostakaupi í
Hafnarfirði, Hagkaupi í Skeifunni
og Kjötmiðstöðinni í Garðabæ. I
fjórða sæti kom síðan Fjarðarkaup
með 4.380 kr. Sýnist athyglivert að
3 af 4 ódýrustu körfunum voru í
verslunum utan Reykjavíkur. í
Miklagarði og Kaupstað var ódýr-
asta karfan á 4.430-4.440 kr., þá
komu JL-húsið, Hólagarður og Kf.
Hafnarfjarðar með nær sama verð,
4.540-4.570 kr., en í Nýja bæ var
lægst hægt að fá í körfuna fyrir 4.720
kr., eða 13% hærra verð en í Kosta-
kaupi.
Þegar dýrustu tegundir hverrar
vöru voru valdar í körfuna hljóp
verðið á bilinu frá 5.200 kr. og upp
í 6.030 kr., sem er um 16% munur.
Sömu verslanir, Kostakaup og Nýi
bær voru þar einnig í efsta og neðsta
sæti, með svipaðan verðmun (um
16%), sem gæti bent til að 13-16%
væri dæmigerður verðmunur mílli
þeirra verslana.
Verðlagsstofnun vill með þessari
könnun vekja athygli fólks á því að
mikilvægt sé að gera verðsamanburð
á vörum innan verslunar ekki síður
en milli þeirra. Stofnunin tekur fram
að ekki sé lagt mat á gæði í þessum
samanburði. -HEI
Lánasamningur Landsvirkjunar og Helsingfors:
Lækkar vaxtagjöld
um þrjátíu millj.
í gær var undirritaður lánssamn-
ingur milli Landsvirkjunar og Nor-
ræna fjárfestingarbankans Helsing-
fors, vegna láns Landsvirkjunar að
fjárhæð 30 milljónir svissneskra
franka, eða um 800 milljónir ís-
lenskra króna.
Lánið er til fjögurra ára og endur-
greiðist það f einu lagi að lánstíma
loknum. Vextir eru 4,25% á ári og
verður andvirði lánsins notað.til að
greiða upp skuldabréfalán sem tekið
var í Sviss fyrir 6 árum, til 10 ára í
sömu mynt og fjárhæð, en það lán er
með 8% ársvöxtum.
Með þessu móti lækka vaxtagjöld
Landsvirkjunar um 30 milljónir
króna á ársgrundvelli næstu fjögur
árin eftir þessa skuldbreytingu mið-
að við núverandi gengi.
Af hálfu Landsvirkjunar undirrit-
uðu lánssamninginn, þeir dr. Jó-
hannes Nordal, seðlabankastjóri og
stjórnarformaður Landsvirkjunar og
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar. Af hálfu Helsing-
fors, undirrituðu samninginn þeir
Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytis-
stjóri, sem á sæti í stjórn bankans og
Þorsteinn Þorsteinsson, svæðisstjóri
bankans fyrir ísland. - SÓL
Táknmálsfréttir færðar
Útvarpsráð hefur nú tekið undir
þær óskir heyrnarskertra að tákn-
málsfréttatími sjónvarpsins verði
færður nær aðalfréttatíma
sjónvarps, þegar sumardagskrá
tekur gildi. Slík tilfærsla hefur
verið mikið baráttumál heyrnar-
skertra allt frá því táknmálsfrétta-
tíminn var færður fram í október
1986.
Það var á útvarpsráðsfundi 5.
febrúar sl. sem tillaga þess efnis að
táknmálsfréttir færðust aftur til kl.
19:50 var samþykkt með fjórum
atkvæðum gegn tveimur. Með til-
lögunni voru flutningsmenn
hennar, þær Ásta R. Jóhannesdótt-
ir, Gerður Steinþórsdóttir, Magda-
lena Schram, og Bríet Héðinsdótt-
ir. Inga Jóna Þórðardóttir sat hjá
en þeir Guðni Guðmundsson og
Magnús Erlendsson voru á móti og
bókuðu að eðilegast væri að tákn-
málsfréttir yrðu fluttar samhliða
aðalfréttum.