Tíminn - 17.03.1988, Síða 7
Fimmtudagur 17. mars 1988
Tíminn 7
Hluti nemenda Lækjarskóla við líkanið góða, ásamt smíðakennaranum, skólastjóranum Birni Ólafssyni og námsstjóra umferðarfræðslu, Guðmundi
Þorsteinssyni. Tímamyndir Pjetur
Líkan af lífríki og
umferð við Lækinn
Átak í samræmingu
námsgreina í
Hafnarfirði:
Fjöldi nemenda í Lækjarskóla
og Öldutúnsskóla í Hafnarfirði
hefur unnið af kappi frá því á
föstudaginn að samræmdu átaki í
umhverfismálum. Hafa krakkarnir
í Lækjarskóla unnið í heila viku að
undirbúningi sýningar sem verður
á föstudag og laugardag og heim-
sótti Tíminn smíðastofu Lækjar-
skóla af þessu tilefni. Þar var mikið
smíðað, teiknað og föndrað við
fallegt og stórt líkan af öllu um-
hverfi Lækjarskóla. Á þessu líkani
var hægt að sjá hvernig öll umferð-
in hafði verið skoðuð af kostgæfni,
mæld út og máluð. Ekkert var
undan skilið í umferðarmálum og
strax að lokinni myndatöku voru
þau komin á fullt skrið með að búa
til endur úr leir á Lækinn.
Lækurinn kemur einnig inn í
yfirskrift á áðurnefndri sýningu
nemenda og kennara sem opnuð
verður á föstudag kl. 14.00 - „Við
Lækinn í 60 ár“. Lækurinn heitir
reyndar Hamarskotslækur fullu
nafni og þarna var hafist handa við
að reisa skólann árið 1927.
Á þessari sýningu verður hægt
að sjá muni og myndir frá fyrri tíð
og þar á að verða hægt að sjá í
stórum dráttum alla þætti í starfi
skólans í dag. Þar verður einnig
hægt að sjá hvernig krökkunum
hefur tekist að vinna úr athugunum
sínum á umferð og umhverfi.
Verður átakið kynnt á þann hátt að
ýmsar athuganir á umhverfi verða
tengdar við líkanið og nægir að
geta þar könnunar á notkun bíl-
belta, ljósanotkun og heimsókn á
lögreglustöðina. Líkanið og tengd-
ar athuganir eru liður í tilraun með
kennsluefni í umferðarmálum fyrir
skólabörn á aldrinum 11-13 ára.
Verður námsefni fyrir verkefni
þessi gefin út innan tíðar fyrir alla
skóla landsins. Markmið þessa
námsþáttar er að tengja í einu
verkefni kennsluþætti í smíði,
teikningu og bekkjarkennslu í bók-
legum greinum.
Tíminn ræddi við þrjá af nem-
endunum um það hvað þeir höfðu
lært af vinnuvikunni. KB
Hefðu grætt 70 þúsund
„Það var skemmtilegt að vinna að þessu
verkefni en það var kalt í umferðartalningunni.
Mjög margir voru ekki með bflbelti. Svo er ég
viss um að ef lögreglan hefði verið með okkur að
fylgjast með, þá hefði hún grætt um 70 þúsund
krónur á klukkustund hjá þeim sem ekki notuðu
beltin,“ sagði Skúli Þorsteinn Norðljörð.
Hjólreiðamenn
hættulegastir
„Það var mjög gaman að vinna saman og að
vinna með krökkunum úr hinum bekkjunum.
Það höfum við ekki gert áður og það var gaman
að vera öll saman í öllum undirbúningi. Ég held
að hjólreiðarmennirnir séu hættulegastir af þeim
sem eru í umferðinni hérna við skólann okkar,“
sagði Tryggvi Freyr Georgsson.
Búin að læra reglurnar
„Við erum búin að læra umferðarreglurnar
betur. Sumir keyra hratt og gefa ekki stefnuljós
og það finnst mér óþægilegt í umferðinni þar sem
við þurfum mikið að fara um. Jú, svo var mjög
kalt þegar við vorum að fylgjast með umferðinni.
Ég fraus alveg,“ sagði Hrafnhildur Sigurðardótt-