Tíminn - 24.03.1988, Page 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 24. mars 1988
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Garður Brynja Pétursdóttir Einholti 3 92-27177
Keflavik Guðriður Waage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Davíð Á. Guðmundsson Hjallagötu 1 92-37675
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
ísafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvik Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503
Bíldudalur HelgaGísladóttir Tjarnarbraut 10 94-2122
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavík ElísabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi BaldurJessen Kirkjuvegi 95-1368
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Dalvík Brynjar Friðleifsson Ásvegi 9 96-61214
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Húsavík Ásgeir Guðmundsson Grundargarði 7 96-41580
Reykjahlíð lllugi Már Jónsson Helluhraun 15 96-44137
Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Einar Ólafur Einarsson Hamrahlið32 97-31124
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður SigríðurK. Júlíusdóttir Botnahlíð28 97-21365
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Björgvin Bjarnason Eskifjörður
Fáskrúðsfjörður ÓlafurN. Eiríksson Hlíðargötu8 97-51239
Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 99-4389
Þorlákshöfn ÞórdísHannesdóttir Lyngberg 13 99-3813
Eyrarbakki Þórir Erlingsson Túngötu28 99-3198
Stokkseyri FriðrikEinarsson Iragerðiö 99-3211
Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir Sólheimar 99-8172
Vík PéturHalldórsson Sunnubraut5 99-7124
OLL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
Við í Prentsmiðjunni Eddu tökum að
okkur hönnun og vinnslu á stórum og
smáum prentverkefnum.
Höfum yfir 50 ára reynslu í prentverki.
Reynið viðskiptin.
i l’REN T SMI l)| AN i
Cl
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur.
Sími 45000.
yU^EPOAR
FÓLKAFERÐ!
Þegar fjölskyldan ferðast
er mikilvægt
að hver sé á sínum stað
— með beltið spennt.
ggUNFERÐAR
BILALEIGA
með utibú allt i kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi?
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Frá aðalfundi Samvinnuferða-Landsýnar:
Gróska í ferðaþjónustu
Á aðalfundi Samvinnuferða-Landsýnar, sem haldinn var á
þriðjudag, kom fram að mikil gróska er í allri starfsemi fyrirtækisins.
Þannig var heildarfjöldi farþega, sem fór til útlanda í skipulögðum
hópferðum á vegum ferðaskrifstofunnar á síðasta ári, 15.090,
samanborið við 11.833 árið áður. Fjöldi erlendra ferðamanna, sem
kom til landsins í skipulögðum hópferðum, var 8.817 á móti 7.060
árið á undan. Að meðtöldum farþegum í áætlunarflugi var
heildarfjöldi farþega á vegum skrifstofunnar tæplega 39.000 á
síðasta ári. Hefur fjöldi þeirra vaxið ár frá ári frá 1979, sem var fyrsta
heila starfsár Samvinnuferða-Landsýnar, en þá varfjöldi farþega um
5.800.
Þrátt fyrir þessa aukningu varð
tekjuafgangur á rekstrarreikningi
aðeins 1,7 miljónir. Er það talsvert
lægra en árið áður, sem stafar af
verulegum taprekstri af aukastarf-
semi. Vegur þar þyngst tap á rekstri
Hótels Selfoss sem var 7,1 miljón.
Einnig kemur þar til stóraukinn
kostnaður vegna notkunar greiðslu-
korta, en talið er að heildarkostnað-
ur Samvinnuferða-Landsýnar af
þeim sökum hafi numið 11-12 milj-
ónum króna á síðasta ári. Þrátt fyrir
þetta varð hækkun eigin fjár fyrir-
tækisins svipuð og nemur almennum
verðlagshækkunum milli ára.
Á síðasta ári keyptu Samvinnu-
ferðir-Landsýn 51% hlut í Ferða-
skrifstofu FÍB hf. fyrir 765 þús. kr.
og greiddu með eigin hlutabréfum.
Leiddi það til þess að félagsmenn í
FÍB fengu félagsréttindi í Sam-
vinnuferðum-Landsýn. Þá tók ferða-
skrifstofan þátt í að rétta við Arnar-
flug hf. með því að kaupa hlutabréf
fyrir 7,8 milj. kr. í félaginu. Á hún
nú 13,8 miljónir í því fyrirtæki.
í ár hefur verið bætt við tveimur
viðkomustöðum í hópferðum skrif-
stofunnar, Benidorm og Cala d’Or.
Þegar hafa um 9.000 manns látið
bóka sig í hinar ýmsu ferðir næsta
sumars, flestir til Mallorca og
Hollands. Tveir síðast nefndu stað-
irnir nutu einnig áberandi mestra
vinsælda á liðnu ári. en þá fóru á
vegum skrifstofunnar rúmlega 4.000
manns til Mallorca og rúm 2.000 í
sumarhúsin í Hollandi.
Á fundinum var samþykkt að gefa
út jöfnunarhlutabréf til eigenda að
því hámarki sem skattalög heimila.
Hækkar hlutaféð við það úr 21,8
miljónum í 27,2. Einnig var ákveðið
að greiða ekki arð af hlutafé að
þessu sinni.
Ingi Tryggvason hvarf nú úrstjórn
Samvinnuferða-Landsýnar, og í stað
hans var kosinn Haukur Halldórs-
son. Að öðru leyti var stjórnin
endurkjörin, en hana skipa Vil-
hjálmur Jónsson formaður, Axel
Gíslason, Ásmundur Stefánsson,
Guðjón B. Ólafsson, Páll Leósson
og Sigrún Aspelund. Framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar er Helgi
Jóhannsson. —esig
Teiknisamkeppni Þjóðminjasafns íslands:
Nýjar
teikningar
í gömlu
safni
í Bogasal Þjóðminjasafns ís-
lands verður n.k.laugardag opnuð
sýning á teikningum skólabarna,
sem tóku þátt í teiknisamkeppni í
tilefni 125 ára afmælis Þjóðminjá-
safnsins.
Til samkeppninnar bárust á ann-
að þúsund myndir. Þær rúmast
ekki allar í Bogasalnum og því
aðeins hægt að sýna lítinn hluta
þess fjölda, en allar verða myndirn-
ar varðveittar í safninu. Verðlaun
eru veitt fyrir níu bestu myndirnar
og verður tilkynnt um verðlauna-
liafa við opnun sýningarinnar.
Nemendum grunnskóla og að-
standendum þeirra er boðið að
vera við opnun sýningarinnar, eftir
því sem húsrúm leyfir, eða skoða
hana við annað tækifæri. Sýningin
mun standa fram í maí og er opin
á sama tíma og Þjóðminjasafnið,
þ.e. laugardaga, sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga kl.
13:30 til 16:00.
Aðgangur er ókeypis.
Takni'am e.ffn
Islenskur markaður
hf. tekur við rekstri
Álafossverslunar
Ákveðið hefur verið, að íslenskur
markaður hf., sem rekur ferða-
mannaverslun í Flugstöð Leifs Eir-
íkssonar á Keflavíkurflugvelli, taki
við rekstri Álafossverslunarinnar að
Vesturgötu 2 frá og með 1. apríl
n.k., af Álafossi hf.
Stjórnir beggja félaganna sam-
þykktu þessar rekstrarbreytingar og að
hinir nýju rekstraraðilar noli áfram
Álafoss-nafnið á verslunina. Um
þessar mundir er verið að gera
umtalsverðar breytingar á húsnæð-
inu á Vesturgötu 2, en unnið er að
því að færa húsnæðið, jafnt að utan
sem innan, í því sem næst sitt
upprunalega horf. Breytingunum á
að ljúka fyrir maíbyrjun.
íslenskur markaður mun áfram
reka verslunina sem ferðamanna-
verslun. sem leggur höfuðáherslu á
íslenskar ullarvörur. Auk þess verð-
ur á boðstólum annar léttur helgar-
og útivistarfatnaður, sem að jafnaði
er notaður með ullarflíkum. Það er
stefna Álafoss hf. að reka ekki
smásöluverslun, heldur einbeita sér
alfarið að band- og ullarvörufram-
leiðslu.
Sælgætisverksmiöjan
r Freyja:
Islensk
sælgætis-
brauð
Sælgætisverksmiðjan Freyja í
Kópavogi hefur nú hafið fram-
leiðslu á tveimur nýjum tegund-
urn sælgætis. Er annars vegar um
að ræða Marsipanbrauð. sem er
eins og nafnið bendir til súkkti-
laðihúðað marsipanstykki. Hins
vegar er um að ræða Kókosbrauð
sem er súkkulaðihúðaður kók-
osmassi. Þyngd stykkjanna er 35
gr. sem framleiðendur munu telja
hentuga stærð fyrir þá sem langar
í sæiindi milli mála, nóg til að
svala lönguninni án þess að hita-
einingarnar verði alit of margar. 's
Þessu sælgæti cr ætlað að keppa
við innflutt sælgæti af svipaðri
gerð sem notið heftir vtnsælda
sælkera. !