Tíminn - 20.04.1988, Qupperneq 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 20. apríl 1988
Hringskyrfi útrýmt undir Eyjafjöllum:
Unnið að sýkingu
ósýktra nautgripa
Þessa dagana er verið að athuga
girðingarstæði kringum þá fjóra bæi
sem sveppasjúkdómurinn hring-
skyrfi hefur fundist á undir Vestur-
Eyjafjöllum í því skyni að einangra
sýkta gripi. Samhliða því er verið að
vinna að því að sýkja þá gripi sem
enn eru ósýktir til að útrýma sjúk-
dómnum. Þegar hefur 44 hrossum,
nokkrum nautgripum og 650 kindum
verið lógað vegna hringskyrfis.
Aðalsteinn Sveinsson, héraðs-
dýralæknir á Skógum, sagði í samtali
við Tímann, að eins og staðan væri
í dag hefðu ekki fundist nein merki
þess að sjúkdómurinn hefði borist á
fleiri bæi en þá fjóra sem þegar er
vitað um, og því sé nauðsynlegt að
einangra þá. Meiningin væri sú að
geldneyti gengju ekki úti í sumar,
heldur aðeins mjólkurkýr. Vel er
fylgst með öllum bæjum í kring, og
verður líklega gripið til slátrunar
uppgötvist sjúkdómurinn á fleiri
bæjum.
Ósýktir gripir verða, eins og áður
sagði, sýktir á næstunni, ýmist með
því að láta sýkta gripi ganga innan
um ósýkta, eða með því að bera
sjúkdóminn hreinlega á milli með
áhöldum. Þar með er tryggt að
sjúkdómurinn gangi fyrr yfir en ella,
og gripirnir síðan allir meðhöndlað-
ir. Líklega verður notað joð í þeim
tilgangi að útrýma honum.
Hringskyrfi er ekki hættulegur
nautgripum. Sjúkdómurinn lýsir sér
í blettamyndum, og þar detta hárin
af dýrinu. Hann er hins vegar öllu
skeinuhættari mönnum, en hann fer
aðallega á staði þar sem mikill
núningur á sér stað, eins og úlnliði,
mitti og skeggrót, og veldur þar
kláða og útbrotum.
Þegar allir gripir eru orðnir sýktir,
verður unnið að því að sótthreinsa
fjós og önnur útihús, svo og áhöld,
föt og aðra þá hluti sem sjúkdómur-
inn getur leynst í. -SÓL
Hríngskyrfi í naurgripum.
Verslað ■ þrjár körfur.
Tfminn Gunnar
Þjóðin byrgir sig upp fyrir VR-verkfall:
Allar kistur
fullar matar
Fólk ætlar greinilega ekki að
svelta þótt til verkfalls komi hjá
Verslunarmannafélagi Reykjavík-
ur. Mjög mikið var að gera í
stórverslunum borgarinnar í gær.
„Það er allt kolvitlaust," sagði Karl
West verslunarstjóri Hagkaups í
Kringlunni í samtali við Tímann.
„Fólk er greinilega búið að taka
það í sig að það verður verkfall og
ekki bara í einn, tvo daga. Fólk
verslar eiginlega ekki fyrir minna
en 20.000 krónur. Við þurfum
alltaf að hringja í VISA og EURO-
KORT til að fá heimild fyrir því
sem fer yfir 10.000 krónur og það
erbaraein stúlka í því að hringja."
„Við vorum búin að undirbúa
okkur mjög vel, tókum föstudags-
pantanir í öllu en við reiknuðum
ekki með því að svona mikið yrði
að gera í dag. Við héldum að það
yrði ekki fyrr en á rnorgun," sagði
Karl. „Mjólkurvörurnar renna út
eins og gull. Líka frosinn fiskur,
frosið kjöt, allt sem er fryst. Djús
líka. Miðvikudagurinn fyrir páska
er nú stórdagur yfirleitt, þá sér
maður einn og einn með tvær
kerrur. En ég sá einn með þrjár
kerrur hérna í morgun."
Karli leist ekki vel á daginn í
dag. Hann átti von á því að unnið
yrði langt fram á kvöld í gær til að
fylla búðina. „En þegar fólk stend-
ur með þrjá vagna fyrir framan
kassana þá tekur tíma að afgreiða
það. Það verða því langar biðrað-
ir.“
Karl átti von á því að til átaka
kæmi milli verkfallsvarða VR og
sumra verslunareigenda í kvöld,
því sumir hygðust hafa opið lengur
en venjulega.
Góð sala var líka í Miklagarði og
átti Jón Sigurðsson framkvæmda-
stjóri von á því að hún færðist í
aukana, þá sérstaklega í dag, mið-
vikudag. JIH
Skákeinvígi Jóhanns og Karpovs:
Tilbod frá
Frakklandi
Verið er að kanna tilboð frá ferðinni.“
Frakklandi í skákeinvígi Jóhanns Tilboðið frá Seattle í Bandaríkj-
Hjartarsonar og Anatólí Karpovs. unum er líka ennþá í athugun.
Engar frekari fréttir hafa borist af Frestur til að gera tilboð í einvígið
þessu tilboði, að sögn Friðriks hefur enn ekki verið tilkynntur en
Ólafssonar. „Fað er verið að kanna • Friðrik sagðist vona að niðurstöðu
hvort þar sé eitthvað bitastætt á væri að vænta fljótlega. JIH
Heimtir af hálendi
Frakkarnir þrír, sem bjargað var
af hálendinu í fyrrinótt, eru komnir
til Reykjavíkur. Flugbjörgunarsveit-
in á Hellu sótti þá um 100 kílómetra
leið, þar sem þeir höfðust við í skála
í Nýjadal. Sjö sveitarmenn lögðu af
stað á tveimur vélsleðum, torfærubíl
og snjóbíl undir stjórn Gylfa
Garðarssonar, formanns sveitarinn-
ar, á mánudagskvöldinu. Pað var
snjóhríð og fárra metra skyggni alla
leið og því ekið eftir leiðsögn miðun-
artækja. Þrír menn fóru með snjó-
bílnum alla leið, en vélsleðar og bíll
fluttu eldsneyti og annað, sem með
þurfti, eins langt og mögulegt var.
Þegar hjálpin barst voru Frakk-
arnir í fastasvefni, en tóku brátt við
sér. „Sá, sem kalinn var á tveimur
fingrum, var handlama, annar var
aðframkominn af þreytu og komst
ekki óstuddur upp í bílinn, en sá
þriðji, sem hafði snúið sig á ökkla
var brattastur," sagði Gylfi.
Flugbjörgunarsveitin kom aftur
til byggða klukkan 13:30 í gær og var
mönnunum þegar komið undir
læknishendur. Hinn örmagna þurfti
á meðferð að halda, en sá sem kól,
missir framan af tveimur fingrum.
Búið var um ökkla á þeim þriðja, en
hann kenndi sér ekki meins að öðru
leyti.
Hópurinn, sem lagði upp frá Ak-
ureyri á leið til Skóga, hafði verið
sex daga á leiðinni og látið fyrir
berast í ofsaveðri og hríð í snjóhúsi
þrjár nætur, - síðustu nóttina aðeins
10 kílómetrum frá skálanum í Nýja-
dal. Þá þegar þótti sýnt, að mennina
þrjá yrði að skilja eftir. Fararstjóri
hópsins gekk því rösklega upp að
Kerlingum á Vatnajökli, þar sem
hann náði símasambandi og gat
kallað á hjálp. þj