Tíminn - 20.04.1988, Qupperneq 5

Tíminn - 20.04.1988, Qupperneq 5
Miðvikudagur 20. apríl 1988 Tíminn 5 Grái peningamarkaðurinn Bankaleynd sem opinbók Ástæða er til að ætla að upplýsingar um viðskipti leki út úr bankakerfinu og að leyndin og trúnaðurinn sem bankamir þykjast veita viðskiptavinum sínum sé meiri í orði en á borði. Tíminn hefur heimildir fyrir því að „grái peningamarkaðurinn“ á með einhverjum hætti aðgang að gögnum um innistæður í bönkum sem ekki eiga að vera í höndum annarra en banka og viðkomandi viðskiptavina. Starfsmaður fyrirtækis sem verslar með verðbréf setti sig ný- verið í samband við mann og bauð honum viðskipti. Verðbréfasalinn var með það á hreinu að þessi væntanlegi viðskiptavinur átti fé í bönkum og sýndi fram á að hans fyrirtæki greiddi mun hærri vexti en bankarnir og að miklu hag- kvæmara væri að ávaxta fé sitt þar en í bankakerfinu. En maðurinn sem gylliboðin fékk vildi heldur eiga sparifé sitt á bankareikningum en leggja það í verðbréfabrask. En verðbréfasal- inn gaf sig ekki og sparifjáreigand- anum til mikillar undrunar fór hann að telja upp innistæður hans í bönkum, á hvaða reikningum þær eru og hvaða vexti þær bæru. Þessar upplýsingar bar hann síðan saman við þann arð sem fyrirtæki hans var tilbúið að greiða fyrir upphæðirnar ef sparifjáreigandinn tæki út fé sitt úr bönkum og verði þvf til verðbréfakaupa. Allar upphæðir og tölur sem verðbréfasalinn gaf upp komu heim og saman við þær innistæður sem sparifjáreigandinn á í bönkum. Hann spurði eðlilega hvaðan sölumaður hjá verðbréfaf- yrirtæki hefði þær upplýsingar sem Framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins: Upplýsingar berast með hraða Ijóssins Framkvæmdastjóri Fjárfesting- arfélagsins var spurður um það með hvaða hætti sölumenn á verðbréfamarkaði gætu hugsan- lega fengið upplýsingar um inni- stæður og sparifjárreikninga ein- staklinga í bönkum og sparisjóð- um. „Eg kannast ekki við að slík- um aðferðum hafi verið beitt hjá okkur. Ef einhver fótur er fyrir því að þetta hafi gerst þá hefur það trúlega gerst í gegnum mannleg sambönd. Hér í þessu þjóðfélagi berast upplýsingar á milli manna með hraða ljóssins," sagði Gunnar Helgi Hálfdánarson, framkvæmda- stjóri Fjárfestingarfélagsins og Féfangs. Sagðist Gunnar helst ekki vilja tjá sig um málið þar sem hann gæti alls ekki gert sér í hugarlund að nokkur sölumaður starfaði á þenn- an hátt. Sagðist hann koma af fjöllum við að heyra þær fréttir að sölumenn á verðbréfamörkuðum stunduðu það að hringja í menn með digra sjóði og bjóða þeim betri ávöxtun á fé sitt. Eina leiðin sem farin geti verið, væri sú að einhverjir starfsmenn hjá bönkun- um væru ekki starfi sínu vaxnir. „Ég held að þetta hljóti fyrst og fremst að snúa að bönkunum en ekki fjárfestingarfélögunum,1' sagði Gunnar Helgi. KB Gunnar H. Hálfdánarson, framkvæmdastjöri Fjárfestingarfélagsins og Féfangs. hann lagði á borðið en fékk ekki svar og var spurður á móti hvort upplýsingarnar væru ekki réttar og hvort hann sæi ekki hve miklu hagkvæmara væri að leggja sparifé sitt inn í verðbréfafyrirtæki en eiga það í bönkum. Sparifjáreigandinn sem hér um ræðir er enginn viðvaningur í með- ferð fjármuna og banka- og skulda- bréfaviðskipti eru honum engin nýjung. En aldrei hefur hann orðið fyrir því áður að óviðkomandi aðili sæti uppi með nákvæmar upplýs- ingar um öll bankaviðskipti hans og á hvers konar reikningum hann kýs að ávaxta sparifé sitt. Tölvuvæddir bankar og sameig- inlegt reiknikerfi býður þeirri hættu heim að bankaleyndin fjúki út í veður og vind ef einhverjir aðilar sjá sér hag í því að brjótast inn í upplýsingakerfin. Alltaf er neitað að slíkt sé hægt en einhvers staðar leynist skýring á því hvernig starfsmaður hjá verð- bréfafyrirtæki hefur undir höndum nákvæmar upplýsingar um banka- innistæður tiltekins sparifjáreig- anda. OO Þórður Ólafsson forstöðumaður Bankaeftirlitsins: Bregðumst við af mestu hörku „Það er með ólíkindum að einstakir aðilar úti í bæ, séu með upplýsingar um stöðu eigna eða skulda einstaklinga eða fyrir- tækja í viðskiptum við banka- stofnanir, þannig að þeir geti hagnýtt sér það í sinni starfsemi,“ sagði Þórður Ólafsson, forstöðu- maður Bankaeftirlitsins. „Það er stóralvarlegur hlutur og refsi- verður. Ef við fáum upplýsingar um það með hvaða hætti slíkar upplýsingar hafa lekið út, munum við bregðast við því af mestu hörku, hvort sem kært yrði til okkar beint eða til rannsóknar- lögreglunnar." Sagði hann að sér þætti afar slæmt að vita, ef satt væri, að menn væru svo djúpt sokknir að þeir stunduðu slíkar aðferðir. Sagðist hann eiga erfitt með að trúa því að bankakerfið væri uppfullt af njósnurum sem gerðu sér leik að því að láta upplýsingar um viðskiptavinina leka til verð- bréfasala. Sagði Þórður að engin þess háttar tenging væri á mitli tölvu- kerfa bankakerfisins og verð- bréfasala, sem gæfi ástæðu til að ætla að leka væri að finna í gegnum tölvurnar. Þórður Ólafsson sagði að engar kærur hafi borist um þessi efni og þætti sér skelfilegt til þess að hugsa að menn störfuðu á svo lágu siðferðilegu plani. Hins veg- ar er Tímanum kunnugt um að hringt hafi verið til starfsmanna Bankaeftirlitsins og spurst fyrir um hvort þessi leið væri virkilega opin fyrir sölumenn verðbréfa- markaðsins. Mun þar hafa verið um að ræða fólk sem hefði orðið vart við full mikinn kunnugleika þessara manna um bankareikn- inga sína, eignir og skuldir. KB Hrafninn floginn Ingva Hrafni Jónssyni hefur ver- ið sagt upp starfi sem fréttastjóri Ríkisútvarpsins. Er þar með til lykta leidd togstreitan sem staðið hefur milli Ingva Hrafns og Ingi- mars Ingimarssonar, aðstoðar- framkvæmdastjóra. Samnings- bundinn uppsagnarfrestur mun taka gildi en Markús Örn Antons- son, útvarpsstjóri, hefur tekið fram að þess sé ekki óskað að Ingvi Markús örn Antonsson, útvarps- stjóri RÚV. Hrafn gegni störfum á uppsagnar- tímanum. „Ástæður uppsagnarinnar eru röð atvika á löngu tfmabili, sem gera það að verkum að ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það sé óhjákvæmilegt að Ingvi Hrafn Jónsson láti af störfum sem yfir- maður fréttastofu Sjónvarpsins. Ákvörðunin er tekin með hags- muni Ríkisútvarpsins í heild í huga, og þá einkanlega fréttastofu Sjónvarpsins," sagði Markús Örn í viðtali við Tímann. „Ég hef tekið þess ákvörðun að vandiega athug- uðu máii. „Ég vildi ráðgast við fram- kvæmdastjórnina áður en ég tók þessa ákvörðun. Þar er um að ræða nánustu samstarfsmenn mína hér í stofnuninni. Niðurstaðan af þeim fundi var engin önnur en sú að þetta væri einvörðungu ákvörðun útvarpsstjóra, hvernig á þessu máli yrði tekið. Þar var engin afstaða tekin til málsins," sagði Markús Örn. Staðan verður nú auglýst og bíða menn eflaust spenntir eftir því hver verður fyrir valinu. „Ég geri ráð fyrir því að auglýsingin um stöðuna verði birt í kvöld eða á morgun,“ sagði Markús Örn. Ingvi Hrafn lét af störfum um hádegisbilið í gær og mun Helgi H. Jónsson, aðstoðarfréttastjóri, gegna störfum hans þar til ráðið hefur verið í stöðuna. JIH Ingvi Hrafn rís úr sseti fréttastjóra. Timamynd: Pjelur Hallgrímur Snorrason kjörinn bankaráðsformaður Útvegsbanka: Gísli Ólafsson hættur í ráðinu Gísli Ólafsson, fyrrverandi for- maður bankaráðs Utvegsbankans, hefur sagt sig úr ráðinu vegna þess að honum var ekki tilkynnt um að nýr bankaráðsmaður, Haligrímur Snorrason, tæki við formennsk- unni. Hallgrímur Snorrason, hag- stofustjóri, var kjörinn í bankaráð Útvegsbankans á aðalfundi hans 12. apríl sl. og kom í stað Baldurs Guðlaugssonar, hæstaréttarlög- fræðings, sem kjörinn var vara- maður. Aðrir aðalmenn voru endurkjörnir þar á meðal Gísli Ólafsson, forstjóri Tryggingarmið- stöðvarinnar, sem gegnt hafði stöðu formanns bankaráðs. Um það leyti, sem Hallgrímur var kjör- inn í bankaráðið, var það fastmæl- um bundið að hann yrði formaður þess. Hins vegar var Gisla ekki tilkynnt um þá ákvörðun, fyrr en skömmu fyrir fund bankaráðs í gær, en hann hefði ekki tekið sæti í ráðinu cf hann hefði þurft að láta af formennsku. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, var cndurkjörinn varafor- maður bankaráðs Útvegsbankans á fundi þess í gær. Enn fremur tók Baldur Guðlaugsson sæti Gísla Ólafssonar. Jón Sigurðsson, bankamálaráð- herra, sagði að úrsögn Gísla kæmi sér á óvart og að hann hefði haft traust sitt til starfans. Ráðherra telur það ekki mistök, að láta ekki Gísla vita fyrirfram um formanns- skiptin. Það sé bankaráðs að skipta með sér verkum en ekki ráðherra. w

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.