Tíminn - 20.04.1988, Síða 12
12 Tíminn
FRÉTTAYFIRUT
WASHINGTON - Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti vill
bætt samskipti viö Sýrlendinga
og hefur sent Hafez Al-Assad
forseta Sýrlands orðsendingu
þess efnis.
TÚNIS - Ríkisstjórn Túnis
hefur farið fram á það að
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna kalli saman fund til að
ræða morðárás ísraela á yfir-
herforingja PLO Al-Wazir i
Túnis á laugardag. Kallaði
Túnisstjórn verknaoinn „ísra-
elsk hryðjuverk".
HÖFÐABORG - Kröftug
sprenging rauf gat á veggi
banka í nánd við þinghús Suð-
ur-Afríku í Höfðaborg.
NEW YORK - New York
búar mættu vel í forkosningar
fyrir forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum í gær, en þá
var einmitt kosið í New York
ríki. Þessar forkosningar gætu
ráðið úrslitum um það hver
verður útnefndur forsetaefni
demókrata fyrir forsetakosn-
ingarnar.
SAN JOSE, COSTA RICA
- Heimasmíðuð sprengja
sprakk fyrirframan Menningar-
stofnun Bandaríkjanna í San
Jose á Costa Rica. Fjórir menn
særðust þar á meðal einn
Bandaríkjamaður sem særðist,
mjög illa á fæti.
TEL AVIV - Forsætisráð-
herra ísraels, Yitzhak Shamir
sagði að allir gyðingar hlytu að
gleðjast yfir því ao ísraelskur
dómstóll hafi komist að þeirri
niðurstöðu að John Demjanjuk
sé hinn illræmdi „Ivan grimmi“
og ákært hann fyrir stríðs-
glæpi.
HAAG - Hinir sjö fulltrúar I
varnarmálanefndar Evrópu-
bandalagsins ítrekuðu þann
rétt ríkja að verja olíuflutninga-
skip sín á Persaflóa fyrir árás-
um. Þá buðu þeir Spánverjum
og Portúgölum formlega til við-
ræðna um að þær þjóðir taki i
þátt í störfum nefndarinnar.
LIBANON - ísraelsmenn
hafa flogið með fimmtán Pal-
estínumenn í þyrlum út af,
svokölluðu örygaissvæði sem;
Israelsmenn hafa lýst yfir og
skilið þá eftir I suðurhluta Líb-
anon.
ÚTLÖND
Miövikudagur 20. apríl 1988
Khameini forsætisráðherra írana hótar
Bandaríkjamönnum öliu illu á meðan Reagan segir spennuna minnka:
Bandaríkjamenn komnir
í lífshættulegt kviksyndi
Reagan Bandaríkjaforseti er
að draga þjóð sína inn í kvik-
syndi sem er mun lífshættulegra
en Víetnam eða Líbanon. Þetta
voru orð Khameinis forsætisráð-
herra írans í gær eftir hernaðar-
átök Bandaríkjamanna og írana
á Persaflóa á mánudag.
Ronald Reagan Bandaríkjaf-
orseti sagði hins vegar að ástand-
ið á Persaflóa væri að róast eftir
striðsátökin og sagðist forsetinn
vona að Bandaríkjamenn þyrftu
ekki að beita vopnavaldi gegn
írönum á nýjan leik. Bandarísk-
ir hernaðarsérfræðingar eru þó
mjög uggandi um að Banda-
ríkjamenn eigi sér enga undan-
komuleið úr því sem komið er
og muni dragast að nýju inn í
Persaflóastríðið innan skamms.
Khameini forsætisráðherra írans
sagði Bandaríkjamenn vera
„heimskulega einfeldninga" fyrst
þeir réðust á Irani og sagði að
afleiðingarnar yrðu biturlegar þján-
ingar fyrir Bandaríkjamenn. Kham-
eini sagði að íranir litu ekki þannig
á að átökunum væri lokið fyrr en
hörðum hefndarárásum á hinn
glæpsamlega óvin væri lokið. Því er
greinilegt að íranir hafa ekki sagt sitt
síðasta orð.
Bandaríkjamenn misstu að líkind-
um eina þyrlu með tveimur mönnum
innanborðs í átökunum við frani, en
tjón írana var mun meira. Auk
olíuborpallanna tveggja sukku eða
löskuðust mjög sex írönsk skip í
átökunum, þar af löskuðust tvær af
fjórum freigátum írana mikið.
Fjörutíu Iranar létu lífið í átökun-
um.
Grunur leikur á að íranir hafi
notað svokölluð silkiormaflugskeyti
í árásum sínum á bandarískar flug-
vélar og skip, en þau flugskevti eru
kínversk að gerð.
í gær gerðu franir árás á enn eitt
olíuflutningaskipið frá Sameinuðu
arabísku furstadæmunum og lösk-
uðu það nokkuð. Önnur átök urðu
ekki á flóanum.
Bandaríkjamenn hafa ákveðið að
láta herskip sín ekki fylgja olíuflutn-
ingaskipum Kúvæta fyrst um sinn
vegna ástandsins sem nú ríkir.
Bandaríkjamenn hafa 29 herskip að
staðaldri á Persaflóa, bæði til vernd-
ar olíuskipum og til að sýna mátt
sinn og megin.
Pravda fordæmdi árásir Banda-
ríkjamanna á írönsku olíuborpall-
ana á mánudag og kallaði þær byssu-
bófaleik.
íranir misstu ekki aðeins olíu-
borpalla sína á mánudag. frakskar
hersveitir náðu hinum hernaðarlega
mikilvæga Faw skaga á vald sitt að
nýju eftir harðar orrustur. íranir
höfðu náð Faw skaga á vald sitt fyrir
tveimur árum og hafa meðal annars
gert eldflaugaárásir á Kuwait frá
skaganum.
franir sökuðu Bandaríkjamenn
um að hafa stutt hersveitir íraka
með herþyrlum, en Bandaríkja-
menn hafa vísað því á bug. Þá
sökuðu íranir Kúvæta um að hafa
leyft frökum að nota Bubyianeyju
sem liggur undan Faw skaga, sem
stökkpall inn á skagann. Kúvætar
hafa neitað þessum ásökunum.
Um leið og Saudiarabar for-
dæmdu frani fyrir árás á olíuflutn-
ingaskip frá Sameinuðu arabísku
furstadæmunum óskuðu þeir frök-
um til hamingju með að hafa náð
Faw skaga á vald sitt á ný. Frekar
hefur andað köldu milli Saudiaraba
og írana eftir blóðsúthellingarnar í
Mekka á síðasta ári þegar þúsundum
íranskra pílagríma lenti saman við
arabíska öryggislögreglu.
Khameini forsætisráðherra írana
hótar Bandaríkjamönnum öllu illu.
En Reagan Bandaríkjaforseti segir
ró vera að komast á í Persaflóanum.
Mun þetta verða hlutskipti banda-
rískra sjóliða við Persaflóa á næstu
vikum?
Poul Schluter boðar kosningar í Danmörku 10.maí:
Stef nan gagnvart NATO
aðal kosningamál Dana
Poul Schluter forsætisráð-
herra Danmerkur hefur boðað
til kosninga í landinu þann
lO.maí. Þessi ákvörðun kemur
í kjölfar þess að minnihluta-
stjórn hans varð að lúta í lægra
haldi í atkvæðagreiðslu í
danska þinginu þegar sam-
þykkt var að skipherrum allra
erlendra herskipa sem koma í
höfn í Danmörku yrði tilkynnt
skriflega að ekki væri leyfllegt
að flytja kjarnorkuvopn um
danska lögsögu á fríðartímum.
Þetta telur Schluter að ógni
stöðu Dana innan Nato.
„Niðurstaða þingsins stofnar
fullri aðild Danmerkur að Nato í
hættu“ sagði Schluter í danska
þinginu þegar hann tilkynnti um
kosningarnar. “Undir þessum
kringumstæðum teljum við nauð-
synlegt að kjósendur fái að sýna
afstöðu sína til fullrar aðildar Dan-
merkur að Nato“.
„Ríkisstjórnin gengur sameinuð
til þessara kosninga og sækist eftir
auknum styrk til að fylgja stefnu
sem tryggir áframhaldandi aðild
okkar að Nato og einnig til að
framfylgja þeirri efnahagsstefnu
sem hefur verið grunnur athafna
ríkisstjórnarinnar frá því 1982“
sagði Schluter.
Schluter hefur verið forsætis-
ráðherra Danmerkur frá því árið
1982 þegar hann myndaði sam-
steypustjórn hægri og miðjuflokk-
anna í Danmörku. Ríkisstjórnin
missti meirihluta sinn í kosningum
á síðasta ári, en starfaði áfram þar
sem stjórnarandstaðan náði ekki
meirihluta.
Kjarnorkuvopn hafa verið bönn-
uð á dönsku yfirráðasvæði í þrjátíu
ár, en hingað til hafa dönsk yfirvöld
ekki grennslast eftir því hvort herir
Natoríkja hafi virt þetta bann.
mjög hvekktir yfir þessari ákvörð-
un danska þingsins enda játa þeir
hvorki né neita hvort herskip
þeirra séu búin kjarnorkuvopnum
eður ei.
Sagði Sir Geoffrey Flowe utanrík-
isráðherra Breta að þessi ákvörðun
danska þingsins gæti orðið til þess
að veikja mjög varnarmátt flota
Nato við Skandinavíu og þannig
veikt öryggi Skandinavíu á ófriðar-
tímum.
Það fór sem á horfði. Poul Schluter boðaði til þingkosninga eftir að hafa
Bandaríkjamenn og Bretar eru orðið undir í atkvæðagreiðslu sem snerti aðild Dana að Nato.