Tíminn - 20.04.1988, Síða 14
14 Tíminn
Miðvikudagur 20. apríl 1988
FRAMSÓKNARFÉLAGANNA A SUÐURLANDI
í HÓTEL
SELFQSSI
MIÐVIKUDAGINN
20Æ88
HÚSIÐ VERÐUR OPNAÐ KL. 20.00
HEIÐURSGESTIR:
STEINGRlMUR HERMANNSSON
OG EDDA GUÐMUNDSDÓTTIR
ÝMIS SKEMMTIATRIÐI:
HLJÓMSVEITIN KARMA
LEIKUR FYRIR DANSI
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA TlMANLEGA I SlMUM:
SÖLRÚN 1835. EINAR 6723, SKRIFST. KJÖRD.SAMB. 2547
ALLIR f9f
VELKOMIMIR
SKEMMTINEFNDIN
Landsstjórn og
Landsstjórn og framkvæmdastjórn ásamt varamönnum er hér meö
boöuð til kvöldverðarfundar I veitingahúsinu Torfunni, föstudags-
kvöldiö 22. apríl kl. 19.30.
Framreiddur veröur hollur íslenskur matur og rætt veröur um starf
L.F.K. og framtíðarhorfur I þjóðmálunum.
Framkvæmdastjórn L.F.K.
Ðorgnesingar - nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu, Borgarnesi, föstudaginn 22.
apríl kl. 20.30.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness
Selfoss - félagsfundur
Framsóknarfélag Selfoss boöar til félagsfundar þriðjudaginn 26. apríl
n.k. aö Eyrarvegi 15, og hefst hann kl. 20.30.
Dagskrá:
Staöa bæjarmála.
Framsögur.
Fyrirspurnir og almennar umræöur.
Kökur og kaffi. Mætum öll.
Stjórnin
VETTVANGUR
Þorsteinn Hákonarson:
A fundi hjá
nýalssinnum
Það er dálítið merkilegt að til skuli vera félagsskapur sem
ástundar samskifti við aðra íbúa himingeimsins. Þetta félag
er félag nýalssinna. Það kom svolítið flatt upp á mig að
Guðmundur vinur minn Jónsson frá Kópsvatni af stór-
meistaraættinni bað mig að koma þar á fund og svara
nokkrum spurningum.
Ég játti því, og vissi að það sem
fyrir þeim nýalssinnum vakti væri
spurningin um hraða ljóssins. Enda
væru þau samskifti sem þeir stunda
ekki möguleg ef ljóshraðinn væri
hæsti hraðinn. Ég hafði sett tvær
auglýsingar í Dagblaðið þar sem ég
tilkynnti breytingar á svokölluðum
náttúrulögmálum, ég hef stundað
athuganir á grundvallaratriðum og
mér hafði dottið í hug í eitthvert
sinn stjórnvöld tilkynntu einhver
ólög að það gætu nú fleiri auglýst
breytingará Iögum. Ogsakirþeirr-
ar hefðar sem gildir í andlegum
efnum á fslandi, þá koma stundum
upp þau atvik eða aðstæður að
ekki er hægt að sleppa því að
bregðast við og framkvæma. Pað
varð því úr að ég augiýsti breyting-
ar á náttúrulögmálunum, kunn-
ingjum og vinum til mikillar hrell-
ingar.
Fundarboð
Mér barst í hendur fundarboð
frá þeim nýalssinnum og rak nokk-
uð í vörðurnar þar sem þar var
auglýstur dagskrárliður þar sem
Þorsteinn Hákonarson mundi
halda fyrirlestur um nýjan grund-
völl eðlisfræði. Og það sjá allir
menn að maður getur ekki vikist
undan slíkum stórmælum, hér var
komið efni í mikið karlagrobb ef
maður skyldi ná einhverjum aldri.
Mætt á fund
Þetta var alvarlegt og velviljað
fólk sem var á þessum fundi,
svolftið sér á parti eins og maður
sjálfur vegna skoðana sinna og
tæplega fólk af því sem er kallað
alþýðuskap.
Það vakti nokkra furðu mína að
þetta fólk hafði komið sér upp
styttingum í tungumáli eins og
verður meðal sérhæfðs fólks, og
gripu frammí vegna merkingar
orða eins og gerist þar sem allt er
haft á hreinu. Ég varð þess var að
munurinn á þessu fólki og því sem
við köllum vísindamenn var aðeins
einn og ég tel það merkilega upp-
götvun.
Það er svo með eðlisfræði að hún
fjallar um atriði og lýsingu á eðli í
náttúrunni sem við getum ekki
skynjað beint. Til þess að vera viss
um að lýsing okkar á náttúrunni sé
rétt beitum við tilraunum og gerum
kröfu til þess að þær séu endur-
tekningarhæfar og séu skynjanleg-
ar skynfærum okkar. Og í því efni
viðurkennum við hin fimm hefð-
bundnu skynfæri, en ekki önnur.
Það sem nýalsinnar gera er
hinsvegar það að þeir viðurkenna
eitt skynfæri í viðbót, það er allur
munurinn. Það er skynfæri fjar-
áhrifa. Að öðru leyti var augljóst
að vinnuaðferðir til þess að þekkja
sannleikann frá hisminu voru eins
og hjá vísindamönnum.
Enn ekki hægt að sleppa
Mér kom í hug að ég gæti líkt
eftir Galileo og sýnt fram á tilraun
mjög líkri þeirri sem hann vildi
sýna kardínálunum á sínum tíma.
Galileo bauð þeim ágætu mönn-
um að kíkja í kíki og sjá tungl
Júpíters, en þeir vissu úr fræðum
Aristotelesar en ekki kristni vel að
merkja, að það þyrfti ekki, því yfir
flatri jörðinni var festing með
stjörnum eins og jólaskraut f sam-
komuhúsi.
Ég benti því á þá einföldu tilraun
að beina línuhraðli að himintungl-
um eins og til að draga úr hraða
einda sem þaðan bærust, en línu-
hraðall er tæki sem getur bæði
hraðað og hægt á eindum eftir því
hvernig honum er beitt í beina línu.
Það sem mundi gerast er að fram
kæmu eindir sem annars mældust
ekki og það væri vegna þess að þær
væru á hraða yfir ljóshraða.
Gott ef eru ekki einhver dæmi
um veik orkuskifti á undan merki
frá púlsurum sem væntanlega
mundu koma fram sem sterk ef
hægt væri á þeim.
Það eru flókin og einföld fræði á
bak við þetta, en menn sjá náttúr-
lega að ekki er hægt að sleppa því
að bera þetta fram eins og söguleg
atriði hafa þróast. Það er nefnilega
svo að okkar ágætu vísindamenn
eru sammála um það að það sem
flytur ljós sé ekkert, það sem er
miðill orkuskifta sé ekkert. Og allt
vegna fallegrar stærðfræðilegrar
útgáfu. En það er eins aristoteliskt
og grautarskál á hvolfi yfir flatri
jörð sem kallaðist festing.
Önnur tilraun
Hugsum okkur venjulegan raf-
segul, látum leysigeisla fara við
enda hans, tvo eða fleiri, þvert á
pólstefnuna. Þegar við hleypum
straumi á þá hefur segullinn áhrif á
geislana, en fyrst á þann sem er
næstur og ekki með hærri hraða en
ljóssins.
Þetta má mæla.
Hvað segir þetta okkur? Það
segir okkur að rafhleðsla berst
með ákveðnum hraða, og það segir
okkur að þessi rafhleðsla getur
ekki ýtt neinu hraðar en hún sjálf
fer. Þetta er eins og bíll sem getur
aðeins farið á 100 km hraða getur
ekki ýtt á bíl sem fer hraðar í sömu
átt. Þess vegna geta hraðlar aldrei
ýtt neinni eind hraðar en því sem
nemur hraða rafhleðslu.
Og þegar við vitum að rafeindir
hafa tíðni, það er að segja einstak-
ar sveiflur, þá er nokkuð Ijóst að
þessum sveiflum fylgir hreyfing,
hreyfingu fylgir hraði, hraði sveifl-
unnar er takmarkaður og það er
eitthvað sem takmarkar hann og
það er ekki öðru til að dreifa en
rúminu sjálfu. Það er því ekki um
annað að ræða en að rúmið sjálft
sé þeirra eiginleika að í svokölluðu
inertíalkerfi verður hraði ekki
meiri en Ijóshraðinn, en hver segir
að heimurinn allur sé sama inert-
íalkerfið.
Upphaflega skyssan mun sú að
gera ráð fyrir eiginleikum rúmsins
eins og bylgjueiginleikum vatns,
en það var gert við svokallaða
Michelsons-Morely tilraun. Og
þegar vatnseiginleikarnir komu
ekki fram, þá kom Albert Einstein
fram með það að að aðeins afstæð
hreyfing væri af eðlisfræðilegri
þýðingu. Síðan var gert ráð fyrir að
ljóshraðinn væri mestur og þá kom
fram náttúrulýsing sem var háð
ákveðinni vísitölu sem var afstæði
hraðinn. Þannig tókst að láta
gömlu lögmálin gilda við litla
hraða, en fá ný við hærri hraða.
Það var hinsvegar engin skýring á
því hversvegna ljós hreyfist yfir-
leitt, en það hreyfist vegna þess að
það myndast við áreiti rafeindar á
rúmið og er orkutilfærsla yfir í
rúmið með hleðslumyndunarhraða
þannig að ein tegund hleðslu
myndast í hreyfingaráttina og
gagnstæð í öfugu áttina. Þessi
hreyfing getur því ekki orðið af-
stætt kyrr í inertíalkerfi nema með
því að gagnverkun rúmsins sé næg
til þess að mynda kyrrt kerfi, það
er að segja tíðnin orðin nægilega
Sumarleiga
Þeir sem huga að sumarbúðarekstri, íþróttanám-
skeiðum eða orlofsdvöl í fögru og hrífandi um-
hverfi, ættu að kynna sér aðstöðu Laugargerðis-
skóla, Snæfellsnesi.
• Skólinn er í ca. 160 km fjarlægð frá Stór-
Reykjavík.
• Heimavist tekur allt að 52 í rúm.
• Ágætt eldhús og matsalur.
• Setustofa og samliggjandi kennslustofur.
• Sundlaug, nýtt íþróttahús og útileiksvæði.
Allar upplýsingar gefur skólastjóri í símum 93-
56600 og 93-56601.
Hugleiðing að páskum 1988
Kristið samféiag, hvar sem það
fyrirfinnst í veröldinni, býr yfir
margvíslegum siðum, sem einkenn-
ast af hugsunarhætti og menningar-
venjum á sérhverjum stað, þó all-
víða megi finna samtengsl meðal
sumra þátta - menningartengsl, sem
varðveist hafa í margar aldir og eiga
eftir að gera það, samkvæmt líkum,
á ókomnum tímum -enda þótt þessi
tengsl við fortíðina séu orðin nokkuð
margtvinnuð, sum hver ólíkt íburð-
armeiri í tímans rás, þó á öllum
tímum finnist sameiginleg, sterk og
áberandi einkenni, ef þeir sem hafa
lagt sig eftir því, fyrir örófi, leitað
friðar og sannleika í orðum meistar-
ans. Já, vissulega þykir þetta krydd
lífsins í tilverunni fyrir marga og
ómissandi þáttur í daglegum fram-
gangi þeirra, einkennir samfélags-
munstrið, á hverjum stað, enda
þótt hvert fyrir sig, byggist upp á
annars ólíkum hugsunarhætti og
mismunandi tíðaranda hverju sinni,
eins og gengur.
Þannig er það og íslenskt þjóðfé-
lag hefur ekki farið varhluta af þessu
- kristinni trú og siðvenjum í tímans
rás og löngu vitað af gömlum bók-
fellum, að svo virðist, sem hún hafi
komið mörgum vel, í margvíslegri
þrengingu hér áður fyrr, sumsstaðar
í þjóðfélagsþróuninni - reyndar
mýmörg dæmi um það í samtíman-
um meðal einstakra hópa, ef cyrun
eru lögð við.
Næst síðasti dagur dimbilviku að
kvöldi kom inn - föstudagurinn
langi, sem hefur haft sinn sígilda
boðskap í skauti sér frá örófi, en
síungan og traustan fyrir marga
- einn þáttur af mörgum í daglegum
framgangi öllum, sem gerir það að
betri hópum en áður - og að þessu
kvöldi er þessi grein er skrifuð, sem
minnir á og vekur kannski þig
- lesandi góður, til umhugsunar fyrir
því, að þrátt fyrir mismunandi
skoðanir hvað snertir menn og mál-
efni í samfélaginu, hverjum tíma sé
að ræða og sumt verði úrelt, eins og
gengur, virðast hin margvíslegu og
mismunandi trúarmunstur lengstum
ætla að halda velli við hliðina á
margvíslegum raunvísindum og
tækni, í samfélaginu, reyndar sem