Tíminn - 21.05.1988, Qupperneq 12
12
I
HELGIN
Laugardagur 21. maí 1988
SAKAMÁL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Morðslóðin
IMiigl—■
um morg ri
Vinir hinnar 18 ára gömlu Lisu Dunn í Sutton Bay í Michigan,
lýstu henni sem greindri og tilfínninganæmri stúlku. Hún var
af efrimiðstéttarfólki og skorti aldrei nein veraldleg gæði í
uppvextinum. Lisa útskrifaðist með Iáði úr menntaskóla og
fór í háskólann í Marquette.
Það sem vinirnir botnuðu hins vegar
ekkert í, hvað Lisu varðaði, var
vinátta hennar við Daniel Eugene
Remeta. Hann var 27 ára glæsi-
menni, með miliisítt hár og yfir-
skegg. Hann var þekktur í Sutton
Bay, kannski best hjá lögreglunni.
Sakaskrá hans náði allt aftur tii
fermingaraldurs hans.
Meðan Lisa var í háskólanum, sat
Remeta í ríkisfangelsinu í Marqu-
ette og afplánaði síðasta árið af
þriggja ára dómi fyrir bátsstuld.
Hann trúði félögum sínum innan
múranna fyrir, að hann ætti sér tvö
takmörk í lífnu: Að myrða lögreglu-
mann og fara vestur og gerast at-
vinnumorðingi fyrir skipuleg
glæpasamtök.
Vinir Lisu Dunn spáðu því, að ef
hún héldi áfram að umgangast Re-
meta, sem allir töldu hálfgerðan
óþverra, gæti hún ekki átt von á
góðu í lífinu. Þeir reyndust sannspá-
ir, en enginn af vinum Lisu, ekki
einu sinni þeir svarsýnustu, gátu
ímyndað sér, hversu slæmt það raun-
verulega varð, fyrr en það fréttist frá
Colby í Kansas, 13. febrúar 1985.
Skötuhjúin hverfa
Eftir að Remeta slapp úr fangels-
inu, starfaði hann um hríð í matvæla-
frystistöð í Sutton Bay, en hann kom
ekki til vinnu sinnar 6. febrúar.
Ástæðan kom Ijós, þegar yfirvöld í
Manistee-sýslu komu að leita hans
og vildu handtaka fyrir grun um
vopnað rán. Daginn eftir kom í ljós,
að skammbyssa var horfin frá fjöl-
skyldu Lisu Dunn.
Seinna sama dag komu fram óljós
tengsl milli byssuhvarfsins og þess,
að Daniel Remeta yfirgaf borgina
skyndilega í bílskrjóð sínum, drapp-
litum og illa útlítandi Pontiac 1970.
Tilkynnt var um rán á bensínstöð í
útjaðri Copemich, um 40 km frá
Sutton Bay. Ræningjarnir voru á
Ijósum, gömlum bfl. Pilturinn var
með axlasítt, dökkt hár og yfirskegg,
t»það bil 25 ára. Stúlkan með honum
var sögð yngri og lýsingin kom heim
við Lisu Dunn.
Tölvur glæpalögreglunnar fylgd-
ust með skötuhjúunum á suðurleið.
Sex rán á bensínstöðvum, í minni
verslunum og á veitingastöðum voru
tilkynnt í kjölfarið, í ríkjunum Indi-
an, Kentucky, Tennessee og Flór-
ída. Alls staðar kom útlit ræningj-
anna heim við fyrri lýsingu.
Mark Walter, 18 ára, hafði ferðast
á puttanum frá Sutton Bay til Flórída
í von um að fá vinnu í notalegra
loftslagi en gerðist í Michigan. Það
var ólán hans að verða á vegi Lisu
og Remeta í Tampa. Þeir fundir
leiddu til dauða hans.
Hvers vegna Mark gekk í lið með
parinu og tók þátt í glæpsamlegri
dægrastyttingu með því, verður lík-
lega aldrei ljóst. Fram til þess hafði
Mark ekki gerst sekur um alvarlegri
afbrot en stöðumælasekt.
Órlagarík afleysing
Skömmu fyrir klukkan sjö á
sunnudagskvöldið 10. febrúar, kom
18 ára stúlka í kvöldsölu í útjaðri
Waskon í Texas. Hún starfaði þar á
daginn. Sú sem nú var á kvöldvakt-
inni, bað hana að leysa sig af um
stund, meðan hún sinnti erindum.
Stúlkan játaði því fúslega.
Óhreinn og beyglaður, ljósdrapp-
litur bíll ók upp að bensíndælunum
framan við verslunina. Dælt var á
hann bensíni og mennirnir komu
síðan inn, þar sem stúlkan var ein
fyrir. Sá dökkhærði bauðst til að
borga bensínið með því að draga
upp stóru skammbyssuna, sem stolið
var heima hjá Lisu. Félagi hans var
með litla skammbyssu.
Þeir tæmdu peningakassann og
sögðu stúlkunni, að hún yrði tekin
með, en sleppt spottakorn frá, svo
hún næði ekki að gera lögreglunni
viðvart strax. Hún hreyfði engum
mótmælum og var færð út og látin
setjast í aftursætið, hjá annarri
stúlku á svipuðum aldri.
Síðan var ekið tvo kílómetra eftir
hraðbrautinni og numið staðar við
skóglendi. Þar var afgreiðslustúlk-
unni sagt að fara út úr bílnum. Sá
Sólarhring síðar, rétt eftir klukkan
sjö á mánudagskvöld, kom við-
skiptavinur í kvöldsölu í Dyer í
Arkansas, við landamærin að Okla-
homa. Þarna eru íbúar einungis 600
manns.
Enginn virtist vera í búðinni og
maðurinn sá að peningakassinn stóð
opinn. Hann gægðist inn fyrirborðið
og sá hina 43 ára Lindu Marvin
liggjandi þar í blóðpolli. Hún var
síðhærði sagði henni að hlaupa inn í
kjarrið og vera þar kyrr um hríð,
meðan þau hin kæmu sér í burtu.
Hún hlýddi því, en var ekki komin
langt, þegar skotin kváðu við og
hittu hana í fótleggina. Hún féll og
lá á bakinu, þegar piltamir komu að
henni. Þeir skutu hana báðir, mörg-
um sinnum í kviðinn, en snerust svo
á hæli og fóru.
Fyrir eitthvert kraftaverk hitti
engin kúlnanna mikilvægt líffæri.
Stúlkunni tókst að skreiðast út á
brautina, þar sem ökumaður fann
hana. Ekið var með hana í snatri á
sjúkrahús, þar sem gerð var á henni
mikil aðgerð og hún náði sér að fullu.
Afgreiðslustúlka myrt
Stúlkan gat sagt lögreglunni frá
málsatvikum og lýst vel bæði bílnum
og þeim, sem í honum voru. Hún
mundi meira að segja hluta af bíl-
númerinu.
Vegna þess hve mál voru nú tekin
að gerast alvarleg, var lögregla í
mörgum ríkjum beðin að vera á
verði og athuga mannrán og jafnvel
morð, þar sem enginn var til frásagn-
James Hunter, 33 ára. Hann átti
langa sakaskrá, en fannst ekki nóg
að gert, svo hann gekk til liðs við
þremenningana á beyglaða bílnum.
látin og hafði verið skotin nokkrum
sinnum í kviðinn og tvisvar í höfuð-
ið.
Lögreglunni tókst að hafa uppi á
vitni, sem séð hafði gamlan, drapp-
litan bíl með nokkrum manneskjum
í, skömmu áður en líkið fannst.
Lisa Dunn, Daniel Remeta og
Mark Walter hittu fyrir hinn 33 ára
gamla James Hunter í Oklahoma-
borg. Hann varð fjórði maður í
bílnum. Þar sem lögreglan þekkti
hann vel og hann starfshætti hennar,
stakk hann upp á að þau legðu leið
sína gegnum Colorado, þar sem
hann ætti vini.
Á miðvikudeginum voru fjór-
menningarnir enn á gamla bt'lnum,
miðja vegu milli Kansasborgar og
Denver. Klukkan þrjú var bílnum
lagt við lítið veitingahús. Skömmu
áður hafði gengilbeina á vakt beðið
yfirmann sinn, hinn 27 ára Larry
Farland um leyfi til að skreppa frá
um stund. Hann bjóst ekki við
annríki og varð því einn eftir á
staðnum.
Bíllinn auðþekktur
Rétt eftir að fjórmenningarnir og
skrjóðurinn voru farnir, kom
menntaskólanemi inn í veitingasal-
inn. Hann dvaldi þar ekki lengi,
heldur kom hlaupandi út að vörmu
spori og hrópaði að Farland væri
dáinn. Það var rétt hjá honum. Ungi
Frá vinstri: Lisa Dunn, vinur
hennar, Daniel Remeta og Mark
Walter, sem var þeim óviðkomandi.
maðurinn hafði verið skotinn tvisvar
í höfuðið og mörgum sinnum í
kviðinn.
Lögreglumennirnir komu á stað-
inn og tókst að hafa uppi á vitni, sem
séð hafði gamla skrjóðinn við
staðinn, rétt áður en morðið upp-
götvaðist.
Baum lögreglustjóri þama, gerði
félögum sínum í þeirri átt viðvart og
20 mínútum kom eftirlitslögreglu-
maður, sem var að setja bensín á bíl
sinn 60 km frá Grainfield, auga á
gamlan bíl, sem geystist f átt til hans
á furðumiklum hraða. Bíllinn ók
framhjá á meðan maðurinn talaði í
stöðina og varaði við. Hann sagðist
fara á eftir honum, strax og hann
gæti.
Lögreglumaðurinn Ben Albright
var við afleggjara nokkru vestar,
þegar hann heyrði tilkynninguna.
Hann ók strax út á hraðbrautina og
eftir andartak mætti hann gamla
bílnum á ofsahraða. Hann sneri við
og lét félaga sína vita um leið. Með
vælurnar í gangi var hann snöggur
að draga upp skrjóðinn, sem hafði
enga möguleika á að komast undan,
hraðans vegna. Gamli bíllinn ók út
á vegarbrún og nam staðar.
Albright var í talstöðinni, að til-
kynna, að hann hefði stöðvað bílinn.
Þá stökk maður út úr honum, kom
aftur fyrir, dró upp byssu og skaut
tvisvar gegn um framrúðu lögreglu-
bílsins. Albright særðist á brjósti og
handlegg. Byssumaðurinn vatt sér
aftur upp í hinn bílinn sem geystist
burtu.
Þrátt fyrir sárin, hélt Albright
áfram að tala í stöðina, kvaðst hafa
verið skotinn og gaf lýsingu á
bílnum. Hann bætti við að hann
hefði séð hann aka eftir afleggjara
sem lá til Levant.
Bófaleikur reynist alvara
f Levant stóðu þeir Glenn Moore,
55 ára og Richard Schroeder, 27 ára,
hjá nýjum, grænum sendiferðabíl
þess síðarnefnda, utan við stóran
kornturn. Þeir voru að ræða um
daginn og veginn. Moore sá um
viðhald kornlyftunnar, sem var biluð
þá stundina og Schroeder var nýbú-
inn að kaupa sér sveitabýli og hugð-
ist hefja búskap.
Gamall bíll með fjórum mann-
eskjum í, kom inn á stæðið skammt
frá og tveir menn stukku út, báðir
vopnaðir skammbyssum. - Inn á
bílgólfið og leggist niður, skipaði
annar þeirra Moore og Schroder.
- Hvern fjandann heldurðu að þú
sért að gera? svaraði Schroeder
ögrandi.
- Inn með ykkur, eða þið drepist
á staðnum, skipaði hinn aftur.
Inn á skrifstofu kornturnsins, varð
framkvæmdastjóra fyrirtækisins á
sjötugsaldri litið út um gluggann.
Hann sá bílinn koma og þá Moore
og Schroeder fara inn í hinn að
aftan. Hann velti fyrir sér, hvaða
bófaleikur væri þarna á ferðinni. Þá
kom hann auga á byssurnar í hönd-
um mannanna og ályktaði, að líklega
væri þetta eitthvað meira en leikur.
Hann greip símann til að hringja á
lögregluna. Þá var skotið inn um
gluggann og kúlurnar komu í brjóst
gamla mannsins.
Byssumaðurinn greip stein, braut
rúðuna betur og hallaði sér inn fyrir.
- Eru fleiri hér? kallaði hann, en fékk
ekkert svar. Ánægður með það, vatt
hann sér inn í græna pallbílinn, sem
ók á brott.
En það voru fleiri fyrir innan.
Starfsmaður var að koma inn úr
dyrum skrifstofunnar, þegar skotin
gullu. Hann faldi sig bak við skjala-
skáp og var þar kyrr, þar til bíllinn
var farinn. Þá hringdi hann til lög-
reglunnar og sagði, hvert bíllinn
hefði stefnt, í átt til Colby í norðri.
Tvö mannslíf fyrir bíl
Þegar þessi tilkynning kom, þótti
Ijós, að morðingjarnir hefðu ákveðið
að nú þyrftu þeir á nýjum bíl að
halda, þar sem særði lögreglumaður-
inn hefði eflaust tilkynnt um bílnúm-
erið. Bíll Schroeders var sá fyrsti,
sem þeir komu auga á. Einnig varð
ljóst, að hér var við stórhættulegt
fólk að etja.
Þá vaknaði sú spurning, hvort
Moore og Schroeder yrði sleppt
lifandi. Verið gat að þeim yrði
haldið sem gíslum, ef ske kynni að
bíllinn yrði króaður af. En einnig
mátti álykta, að ef fjórmenningarnir
ætluðu að halda bílnum til frekari
ferðalaga, þyrðu þeir ekki að sleppa
mönnunum lifandi, af ótta við að.
lögreglunni yrði gert viðvart.
Svar fékkst við spurningunni inn-
an skamms. Lík Moores og Schroed-
ers fundust við veginn, 10 km utan
við Levant. Báðir lágu á bakinu og
höfðu verið skotnir mörgum sinnum
í andlitið.
Ungt par hvarf frá heimabæ sínum og tó^
meö sér byssu. Brátt fréttist um rán
mannrán og morö. Tveir til viðbótar gengi
til liðs við þau, annar týndi lífinu fyrir vikið
hinn glataði frelsinu.
Laugardagur 21. maí 1988
'AMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Þá tók Tom Jones lögreglustjóri í
Thomas-sýslu við eftirförinni. Hann
lét setja upp vegatálma um allt
svæðið í kring um Colby og bað
lögreglumenn að vera vel á verði
gagnvart grænum sendiferðabíl og
gömlum Pontiac. Lögreglumenn
skyldu vera viðbúnir vopnuðum
átökum, ef bílarnir yrðu stöðvaðir.
Flatlent er á þessum slóðum og titlar
li'kur til að bílarnir slyppu óséðir
norður til Nebraska.
Jones vildi notfæra sér landslagið
og grunaði svo sem glæpahyskið um
að vita af því. Þrennt kom til greina:
annaðhvort skildu bílarnir tveir að
skiptum, eða fólkið næði sér aftur í
nýjan bíl. Þá var hugsanlegt að það
leitaði skjóls á einhverju hinna fjöl-
mörgu bændabýla á svæðinu, þar til
leitinni linnti.
Eltingaleikurinn
Jones lét senda út viðvörun til
almennings um, að morðingjar væru
lausir á svæðinu og bað fólk að læsa
vandlega að sér og gera lögreglunni
þegar viðvart, ef vart yrði grunsam-
legra mannaferða, eða bílanna, sem
var lýst eftir.
Ekki leið á löngu, uns viðbrögð
komu við þessu. Margir höfðu séð
græna bílinn á ógnarhraða á ýmsum
fáförnum vegum. Jones vonaði, að
Daniel Rcmeta kemuraf sjúkrahúsi,
eftir að byssukúla var fjarlægð úr
óæðri enda hans. Takmörk hans í
lífinu voru að drepa lögreglumann
og gerast atvinnumorðingi.
fjórmenningarnir héldu sig við
bílinn, þá næðust þeir frekar, án
þess að til blóðsúthellinga kæmi.
Biðin var erfið þeim sem vöktuðu
vegatálmana og vissu að fjórmenn-
ingarnir svifust einskis og væru vel
vopnaðir. Ólíklegt var að þeir gæfust
upp mótþróalaust. Ýmsar áætlanir
um viðbrögð voru gerðar, ef til
kæmi.
Mark Conboy, úr vegalögregl-
unni, var við tálma skammt frá
Atwood, við Nebraskalandamærin,
ásamt tveimur lögreglumönnum frá
Colby. Þeir höfðu lagt bílum sínum
þvert yfir veginn, svo allir urðu að
hægja verulega á sér til að komast
framhjá.
Klukkan var að verða fimm, þegar
þeir sáu sendiferðabílinn koma á
fleygiferð. - Þetta gætu verið þau,
kallaði Conboy.
Ökumaður græna bílsins sá lög-
reglubílana, steig á hemlana og sneri
bílnum við á veginum. Conboy stökk
upp í sinn bíl og ók á eftir. Hinir
fylgdu á eftir, um leið og þeir
tilkynntu hvað var að gerast. Tálmi
var settur upp við Colby, til að tefja
undanhaldið.
Einhver aftur f græna bílnum tók
nú að skjóta og braut framrúðuna
hjá Conboy. Hann særðist ekki, en
átti erfitt um útsýni eftir þetta. Hinir
gátu ekki svarað skothríðinni, þar
sem Conboy var fyrir framan.
25 kílómetrum utan við Colby
neyddist græni bíllinn til að hægja
ferðina, þegar hann náði hægfara
flutningabíl og komst ekki fram úr,
vegna mótumferðar. Skyndilega
beygði hann út af veginum og upp
afleggjara af bóndabæ. Conboy var
fast á eftir og bílarnir stöðvuðust
með ískri miklu við bæjarþilið.
Skotbardagi
Fólkið í bílnum hóf nú skothríð á
lögreglubílinn, en Conboy opnaði
bíldyrnar, renndi sér út og komst
aftur fyrir, í skjól. Félagar hans
komu honum nú til aðstoðar. Á
miklu reið að gefa fjórmenningunum
ekki tækifæri til að komst inn í
húsið. Þar gætu þeir tekið gísla og
vandræðin ykjust til muna.
Fjórmenningarnir gerðu sér ljóst,
að þeir voru í miklum vanda. Ekki
var hægt að komast framhjá lög-
reglubílunum, sem eflaust myndi
fjölga á næstu mínútum. Eina ráðið
var að komast inn í húsið, taka þar
gísla og freista þess að semja um
framhaldið.
Dyrnar ökumannsmegin á sendi-
ferðabílnum opnuðust. Mark Walter
hafði ekið. Hann steig út og ætlaði
sér að skjótast að húsinu. Honum
tókst það ekki. Hann fékk kúlu í
höfuðið og var látinn, þegar hann
féll.
Annar maður stökk út farþega-
megin og skaut í ákafa að lögregl-
unni á hlaupunum. Það var James
Hunter. Þegar skothríðinni var
svarað, valt hann um og missti
byssuna, án þess að reyna að ná
henni aftur.
Þá var röðin komin að Daniel
Remeta. Hann steyptist fram yfir sig
með kúlu í óæðri endanum. Lisa
Dunn var síðust. Lögreglu-
mennirnir skutu ekki, meðan hún
hljóp að húsinu. - Láttu okkur ekki
þurfa að skjóta þig, stelpa, kallaði
einn lögreglumannanna. - Þessu er
lokið.
Lisa nam staðar. Hún var lítillega
særð á handlegg, eftir skot, sem
hljóp af inni í bílnum.
Þegar lögreglunni barst liðsauki,
var byssubardaganum lokið. Mark
Walter var látinn, Remeta særður,
Lisa Dunn með skrámu og James
Hunter alls ómeiddur.
Æstur múgur
Farið var með Lisu og Remeta á
sjúkrahús, en Hunter var færður í
fangelsi. Bundið var um skrámu
Lisu og hún síðan einnig færð í
fangelsi. Gerð var aðgerð á botni
Remetas undir lögregluverði. Lækn-
ar gátu fært Conboy og mönnum
hans þær fréttir, að bæði fram-
kvæmdastjóri kornturnsins og Al-
bright lögreglumaður myndu ná sér
að fullu af sárum sínum.
Þegar fréttist um málalok, safnað-
ist æstur múgur að fangelsinu. Einn
maður heyrðist segja: - Það er
kominn tími til að gera eitthvað við
svona fólk. Fyrst lögin megna það
ekki, veit ég um ágætis tré, þar sem
framfylgja má gömlum lögum í
hvelli.
Vinur Schroeders sagði: - Hann
var svo góð sál, sem aldrei gerði
neinum neitt. Hver á að hugsa um
konu hans og börn? Þetta pakk á
ekki meiri rétt til lífsins en hann. Ég
vil láta taka þau af lífi.
Lisa, Remeta og Hunter voru
ákærð fyrir ótal sakir, mannrán, rán
og morð í mörgum liðum. Lík Marks
Walter var sent fjölskyldu hans í
Sutton Bay. Þar kom öllum á óvart
að hann skyldi hafa tekið þátt í
þessu. - Hann var ekki alinn þannig
upp, sagði einn ættingja hans. -
Hann lenti aldrei í vandræðum.
Hvað kom eiginlega yfir hann?
Vegna þess hve málið er flókið og
tekur til margra liða í mörgum
ríkjum, hefur enn ekki verið dæmt í
því, þegar þetta er skrifað. Hitt er
áreiðanlegt, að þremenningarnir
sem lifðu af, verða ekki frjálsir ferða
sinna í mörg ár, hvar og hvenær sem
þeir verða dæmdir.
Söludeild • Sími 666200
_
Hvort sem þú ætlar aö veita vatni um lengri eða skemmri veg
er varlatil auðveldari og ódýrari leið
en gegnum rörin frá Reykjalundi.
Rörin frá Reykjalundi eru viðurkennd fyrir gæði
og auðvelda meðferð.
Flestar stærðir vatnsröra, kapalröra, frárennslisröra
og hitaþolinna röra eru jafnan til á lager og
með tiltölulega stuttum fyrirvara er hægt að afgreiða sverari rör.
Sérstök áhersla er lögð á mikla og góða þjónustu.
Rörin frá Reykjalundi
- rör sem duga.
HELGIN I 13
VATN
glörðu
svo vel