Tíminn - 01.06.1988, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 1. júní 1988
llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR
Undankeppni
Ólympíuleikanna:
V-Þjóðverjar
sendu Dani
í 2. sætið
Það verða Vestur-Þjóðverjar
sem verða fulltrúar A-riðils
undankeppninnar á Ólvmpíu-
leikunum í Seoul. V-Þjóðverjar
unnu öruggan sigur á Rúmönum
í Dortmund ■ gærkvöldi, 3-0, eftir
að hafa eins marks forskot í
leikhléi. Með sigrinum tryggðu
þeir sér efsta sætið í A-riðli en
fyrir hann voru Danir í efsta
sætinu.
Júrgen Klinsmann leikmaður
Stuttgart og markakóngur v-
þýsku úrvalsdeildarinnar gerði
tvö mörk í gærkvöldi en Wolfram
Wuttke gerði fyrsta mark v-þýska
liðsins.
Lokastaðan í A-riðli varð sú að
V-Þjóðverjar hafa 12 stig, Danir
11, Pólverjar 10, Rúmenar 5 og
Grikkir reka lestina með 2 stig.
- HÁ/Reuter
Knattspyrna,
1. og 2. deild:
Breytingar
á leikjum
Þrír leikir í 1. og 2. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu hafa
verið færðir til. Leikur KA og
ÍBK sem vera átti í kvöld verður
á föstudagskvöldið kl. 20.00, leik-
ur ÍA og Vals færist frá fimmtu-
dagskvöldi til föstudagskvölds kl.
20.00 og leikur ÍBV og Tindastóls
færist fram um einn dag, frá
laugardegi til föstudagskvölds kl.
20.00. - HÁ
Vináttulandsleikur
u-21 árs:
Svíar
höfðu
sigur
Svíar sigruðu íslendinga með
þremur mörkum gegn tveimur í
vináttulandsleik knattspyrnu-
landsliða þjóðanna skipuðum
leikmönnum 21 árs og yngri.
Leikurinn fór fram í Vestmanna-
eyjum í gærkvöldi.
Svíarnir skoruðu tvö mörk
gegn engu ■ fyrri hálflcik og bættu
því þriðja við í þeim síðari en
Haraldur Ingólfsson (ÍA) og
Baldur Bjarnason (Fylki) löguðu
stöðuna fyrir íslands hönd.. HÁ
Sund:
Higson
setti nýtt
heimsmet
AHison Higson, 15 ára stúlka
frá Kanada, setti um helgina
heimsmet ■ 200 m bringusundi
þegar hún synti vegalengdina á
2:27,40 mín. á úrtökumóti Kan-
adamanna fyrir Ólympíuleikana.
Eldra metið átti Silke Horner frá
A-Þýskalandi.
Higson setti samveldismet í
undanrásum og millitími hennar
eftir 100 m í metsundinu var
undir samveldismeti hennar í 100
m bringusundi, 1:09,80 mín. Hin-
son keppir í 100 m bringusundi á
mótinu í dag. - HÁ/Rcuter
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu:
Styrkurinn kannaður
í upphitunarleikjum
Úrslitakeppnin í Evrópukeppni
landsliða í knattspyrnu nálgast nú
óðum, það er eftir 10 daga sem
flautað verður til leiks. Lokaundir-
búningur liðanna stendur sem hæst
og í kvöld verða nokkrir Ieikir sem
eru mikilvægur þáttur þar. Þetta eru
hjá flestum liðunum næst síðustu
landsleikir fyrir sjálf átökin í V-Þý-
skalandi og í kvöld verða liðin
skipuð sem flestum þeim leikmönn-
um sem hefja leik í úrslitakeppninni.
Danir keppa við Tékka í kvöld.
Leikurinn er Dönum mikilvægur
fyrir þær sakir að í honum kemur í
ljós hverjir það eru sem enn hafa
ekki náð sér af meiðslum. Meiðsl
hafa hrjáð dönsku knattspyrnu-
mennina marga hverja að undan-
förnu. Danirnir máttu þola 0-1 tap
fyrir Austurríkismönnum í Vín fyrir
skömmu en Piontek landsliðsþjálfari
notar sálfræðina fyrir kvöldið: „Það
spila ekki nema 11 í einu og ég lifi
alveg af ein eða tvenn meiðsl. f
þessum leik ætla ég að stilla liðinu
upp eins nálægt því sem verður í
V-Þýskalandi og mögulegt er. Það
er ekki öruggt að allir verði leikfærir
en það verður svosem ekki öruggt í
V-Þýskalandi hetdur.
í kvöld keppa líka írar við Norð-
menn sem gert hafa mörgu liðinu
skráveifu í æfingaleikjum og Spán-
verjar fá vart náðuga daga í Svíþjóð.
Loks keppa Hollendingar og Rúm-
enar.
Lokaspretturinn hafinn og vafala-
ust verður mikið spáð í spilin útfrá
úrslitunum þegar liðin eru orðin
skipuð eins og þeim er ætlað að
verða í V-Þýskalandi.
- HÁ/Reuler
Sören Lerby og félagar í danska landsliðinu keppa við Tékka ■ kvöld. Það verður vonandi hærra risið á þeim en á
Lerby á þcssari mynd.
Franz Beckenbauer landsliðseinvaldur V-Þjóðverja:
Getum hætt ef við
töpum fyrsta leik
Ef Vestur-Þjóðverjar tapa opnun-
arleik Evrópukeppninnar í knatt-
spyrnu sem verður gegn ftölum eftir
10 daga þá geta þeir allt eins hætt
keppni. Þetta sagði Franz Becken-
bauer landsliðseinvaldur V-Þjóð-
verja í viðtali sem birt var í gær.
„Fyrsti leikurinn er sá mikilvægasti,"
sagði hann í vikublaðinu Bunte, „Ef
við töpum honum getum við rétt
eins vel pakkað saman.“
Hann sagði að áherslan yrði á
agaða vörn fremur en á sóknarleik
og jafnframt að v-þýska liðið ætti
betri möguleika en liðið sem fór og
keppti á HM í Mexíkó fyrir tveimur
árum. Það lið komst reyndar í úrslit
eftir fremur ósannfærandi frammi-
stöðu framanaf. „Þegar ég fer yfir
einstakar stöður þá held ég að við
getum leikið betri knattspyrnu,"
sagði Beckenbauer. „Styrkurinn í
Mexíkó var fyrst og fremst líkamleg-
ur.“
V-Þjóðverjar keppa við ftali,
Dani og Spánverja í fyrstu umferð-
inni í V-Þýskalandi og komust þeir í
keppnina sem gestgjafar, án þess að
þurfa að leika um sæti.
- HÁ/Reuter
Pétur Guðmundsson.
Vormót Kópavogs í frjálsum íþróttum:
Pétur nærri
sínu besta
- Varpaði kúlunni 19,60 m
Pétur Guðmundsson HSK varpaði
kúlunni 19,60 m ávormóti Kópavogs
í frjálsum íþróttum sem haldið var
um helgina. Besti árangur Péturs er
19,97 m frá því fyrir skömmu.
Ólympíulágmarkið er 20,00 m og
ætti aðeins að vera tímaspursmál
hvenær Pétur kastar yfir það því á
mótinu um helgina átti hann ógild
köst talsvert lengri en lengsta gilda
kast hans í keppninni.
Árangur á mótinu var að öðru
leyti fremur slakur. Nefna má þó að
Unnar Garðarsson HSK kastaði
spjóti 68,44 m og Súsanna Helga-
dóttir FH fékk bikar sem gefinn er
til minningar um Rögnu Ólafsdóttur
sem lést í umferðarslysi fyrir nokkr-
um árum. Bikarinn er gefinn fyrir
bestan árangur í langstökki kvenna
þar sem Súsanna stökk 5,80 m.
- HÁ
Úrslit leikja ■ fyrstu umferð
í Mjólkurbikarnum - bika-
rkeppni KSÍ í gærkvöldi (tölur
í svigum tákna deild viðkom-
andi félags):
Hveragerði (4)-Grótta (3)..4-3
Grindavík (3)-UBK (2)......2-0
Selfoss (2)-Haukar (4).....7-1
Reynir S. (3)-ÍK (3).......4-2
Víðir (2)-Ármann (4).......4-0
Hvöt (3)-Magni (3) ........1-3
Tindastóll (2)-Dalvík (3) .5-0
Fylkir (2)-SnæfeU (4)......6-2
Afturelding (3)-ÍBV (2)....3-5
(eftir framlengingu og vítaspymu-
keppni, lokatölur 0-0)
Blikar
úr leik
Grindvíkingar slógu Blika út
í fyrstu umferð Mjólkurbikars-
ins - bikarkeppni KSÍ í gær-
kvöldi og eru Blikarnir fyrsta
2. deildarliðið sem fellur úr
keppni. Þá bar það til tíðinda
að 4. deildarlið Hvergerðinga
sló út Gróttu sem er í 3. deild
og Eyjamenn þurftu til fram-
lengingu og vítaspyrnukeppni
áður en Mosfellsbæingar gáfu
sig.
Freyr Sverrisson og Páll Jó-
hannsson gerðu mörk Grind-
víkinga gegn UBK í gærkvöldi,
Selfyssingar skiptu mörkunum
bróðurlega á milli sín í stórsigri
á Haukum, Sævar Sverrisson
gerði 1, Jón Birgir Kristjánsson
2, Wilhelm Fredriksen 2, Guð-
mundur Magnússon 1 og citt
var sjálfsmark. Helgi Eiríksson
skoraði fyrir Hauka. Sævar
Leifsson, Björn Vilhelmsson,
Svanur Þorsteinsson og Heimir
Karlsson skoruðu þegar Víðir
vann Ármann. Á Króknum
skoruðu þeir bræður Eyjólfur
og Sverrir Sverrissynir tvö
mörk hvor gegn Dalvíkingum
og Guðbrandur Guðbrandsson
bætti því fimmta við. Þorsteinn
Jónsson (2) og Jón Ingólfsson
skoruðu mörk Magna sem
vann Hvöt. Gísli Gunnarsson
gerði mark heimamanna þar. í
Hveragerði skoruðu Jóhannes
Björnsson og Ólafur Jósepsson
sín tvö mörkin hvor en Erling
Aðalsteinsson, Valur Svein-
björnsson og Kristján Björg-
vinsson svöruðu fyrir Seltirn-
inga sem voru yfír 2-1 í leikhléi.
Sigurjón Sveinsson, Grétar
Sigurbjörnsson og Pétur
Sveinsson (2) gerðu mörk
Sandgerðinga en Úlfar Óttars-
son skoraöi bæði fyrir ÍK.
- HA
NBA-körfuboltinn:
Celtics
jöfnuðu
Boston Ccltics náðu að jafna
stöðuna ■ viðureigninni við
Detroit Pistons um fyrsta sætið
■ austurdeild bandaríska at-
vinnumannakörfuknattleiks-
ins. Celtics unnu fjórða leikinn
með 79 stigum gegn 78 í Detroit
á mánudagskvöldið og er stað-
an nú 2-2. Fimmti leikurinn
verður í Boston.
Með sigrinum bundu Celtics
endi á 9 leikja ófarir í Poniac
Silverdome, heimavelli
Pistons.
Bill Laimbeer var stigahæst-
ur í Detroitliðinu með 29 stig
en Larry Bird gerði 20 fyrir
Boston.
Pistons áttu í basli með hittn-
ina í upphafí leiksins og þeir
misnotuðu 17 skot í röð í lok
fyrsta fjórðungs. Þeir bættu
þetta þó upp með góðum varn-
arleik og staðan var 16-10 fyrir
Boston eftir fyrsta fjórðung,
ótrúlega lágt skor.
- HÁ/Reuter