Tíminn - 01.06.1988, Page 19
Miðvikudagur 1. júní 1988
Tíminn 19
SPEGILL
Að sigra í baráttunni
við Bakkus
Það getur verið gott að taka sér
glas í hönd og vinna bug á streit-
unni sem fylgir stjörnulífinu í
Hollywood. En oft fylgir böggull
skammrifi
Margir öfunda Hollywoodstjörn-
urnar af því sem þær bera úr býtum
eins og ríkmannlegum heimilum,
bílunum og öllum tekjunum. En
hvað með það neikvæða sem gjarn-
an fylgir hinu ljúfa lífi, eins og
stressið og það sem svo margir
nota til að róa sig, lyfin og áfengið?
Þær eru ekki svo ófáar stjörnurn-
ar sem hafa átt við slík vandamál
að stríða og horfst í augu við þau.
Þeirra á meðal er Sharon Gless
annar helmingur sjónvarpsþátt-
anna Cagney and Lacey, nánar
tiltekið sú ljóshærða. Hún útsk-
rifaðist fyrir skömmu frá Hazelden
meðferðarstofnuninni í Bandaríkj-
unum sem margir íslendingar
kannast trúlega við.
Ástæðuna fyrir sínu vandamáli
Hver veit nema einhver íslendingurinn hafi verið í meðferð á Hazelden
með Sharon Gless.
taldi hún vera ruglað og storma-
samt ástarsamband við hinn 44 ára
Hector Figueroa sem hún sleit eftir
meðferðina en tók þess í stað upp
samband við framleiðanda þátt-
anna um Cagney and Lacey.
Susan Dey ljóshærða leikkonan
sem leikur einn lögfræðinganna í
L.A.Law var hótað uppsögn af
framleiðendum þáttanna ef hún
hætti ekki neyslu. Hún sá þann
kostinn vænstan, en var ekki tilbú-
in að fara inn á afvötnunarstöð.
Þess í stað naut hún dyggrar að-
stoðar hjá ástmanni sínum, Bern-
hard Sofronski sem hún nýlega
giftist eftir árs bindindi.
Susan segir það tímabil sem hún
drakk og neytti lyfja hafa verið
ömurlegt og þegar hún skildi við
fyrri mann sinn eftir þriggja ára
hjónaband bá hafi fyrst keyrt um
þverbak. „Eg er ekki tilbúin til að
fórna því hamingjusama lífi sem ég
lifi í dag fyrir glasið", segir hún.
Rogue Bruce Willis, mótleikari
Cibyl Sheppard í Moonlighting,
hefur dregið verulega úr drykkju
eftir að hann kvæntist leikkonunni
Demi Moore í nóvember. Hann
segist hafa drukkið við öll tækifæri
áður fyrr, en nú skálar hann aðeins
við hátíðleg tækifæri. Demi setti
honum skilyrði og segist ekki hafa
viljað eignast fyllibyttu fyrir mann
Susan Dey sá þann
kostinn vænstan að
hætta áður en hún
missti vinnuna.
'né kæra sig um slíkan mann sem
föður barns síns.
Annar harður drykkjumaður
Jan-Michael Vincent úr Airwolf,
hefur einnig gefist upp fyrir Bakk-
usi. Hann hafði verið handtekinn
tvisvar fyrir að aka drukkinn og
þrisvar fyrir slagsmál. Nú tveim
árum seinna segir hann sína
drykkjudaga liðna og kókaínið lagt
á hilluna.
Gamanleikkonan Mary Tyler
Moore sem nú stendur á fimmtugu
hefur drukkið óhóflega um árarað-
Moonlighting-stjaman Brace Willis lyftir nú aðeins glasi við hátíðleg
tækifxri.
John Hurt byrjaði aftur eftir með-
ferð og segist einfaldlega ekki vera
tilbúinn að hætta.
ir þrátt fyrir að vera haldin sykur-
sýki, en það tvennt saman hefði
getað komið henni í gröfina. Það
var nýr eiginmaður, hjartaskurð-
læknirinn Robert Levine sem
þurrkaði hana upp. „Ég er of
ástfanginn af henni til að vilja
verða ekill“ segir hann alsæll með
Mary edrú.
En það gengur ekki eins vel hjá
leikaranum enska John Hurt.
Hann fór í meðferð í þeirri trú að
honum tækist að eignast barn með
konu sinni, en ekki dugði það og
hefur hann snúið sér að flöskunni
aftur, konu sinni til sárra von-
brigða. Hann heldur því fram að
hann geti hætt þegar honum sýnist
svo og segist einfaldlega hafa gam-
an af að fá sér í glas.
Eins og afi Margaux Heming-
way, rithöfundurinn Ernest Hem-
ingway, hefur Margaux átt við
drykkjuvandamál að stríða. Hún
segist ekki hafa viljað enda sitt líf
eins og afinn og sá sína sæng upp
reidda ef hún gerði ekki eitthvað í
málinu. Margaux fór því í meðferð
á Betty Ford stofnunina og segir
það hafa verið stókostlegustu
reynslu lífs síns, sem hún sjái ekki
eftir að hafa gefið sér tíma í.
Hún er alsæl í sínu bindindi, sem
hún vill meina að hafi bjargað lífi
sínu, en áður en hún fór var hún
orðin mjög illa farin, með tvö
misheppnuð hjónabönd að baki og
hennar fagra útlit svipur hjá sjón.
Margaux Hemingway langaði ekki
að enda líf sitt á sama hátt og afinn.
Þess í stað leitaði hún aðstoðar á
Betty Ford stofnuninni.
Mary Taylor Moore ásamt bjargvættinum; eiginmanni sínum.