Tíminn - 02.06.1988, Síða 7
Fimmtudagur 2. júní 1988
Tíminn 7
Reykvísk fyrirtæki ættu að líta til nágrannanna áður en þeir flytja inn starfsfólk frá útlöndum:
Nægt vinnuafl ef fyrir-
tækið er á réttum stað
Iðnfyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hafa staðið í því að
flytja inn starfsfólk. Við höldum því hins vegar fram að það
sé nóg vinnuafl í landinu - það er bara spurningin um að
hafa fyrirtækin á réttum stöðum. Okkur flnnst að þessi
fyrirtæki mættu líta til nágrannabyggðanna áður en þeir
fara að sækja fólk til útlanda í stórum stíl. Hampiðjan er
bara eitt af þeim fyrirtækjum sem við höfum verið að renna
fyrir“, sagði Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi.
Tíminn hafði samband við Gísla
vegna fréttar í Skagablaðinu um að
bæjaryfirvöld á Akranesi hafi leit-
að hófanna hjá fyrirtækjum í
Reykjavík um að flytja starfsemi
sína til Akraness, og m.a. átt
viðræður við stjórncndur Hamp-
iðjunnar.
Gfsli tók fram að til þcssa hafi
aðeins verið um ákaflega óformlcg-
ar viðræður að ræða án nokkurra
skuldbindinga eða áætlana. En
bæjaryfirvöld tclja Akranes hafa
upp á að bjóða flesta kosti fyrir
iðnrekendur - stöðugan
mannskap, nóg húsnæði sem hent-
að geti margskonar atvinnustarf-
semi og góð skiiyrði til flutninga að
og frá staðnum. Spurður sagði
hann bæjaryfirvöld jafnframt fús
til viðræðna um einhverskonar
ívilnanir. En er Hampiðjan ekki
nokkuð stór „biti“ fyrir Akranes.
Árið 1986 var hún einn af 100
stærstu vinnuveitendunum í land-
inu, rneð rúmlcga 220 unnin
ársverk, sem var nánast sami fjöldi
og hjá Haraldi Böðvarssyni hf. á
Akranesi.
Gísli sagði aðeins rætt um af-
markaðan þátt í starfsemi Hamp-
iðjunnar. Hvað mannafla snertir
sé Ijóst, að eftir að Hcnnes hætti
starfsemi og ákveðin kreppa varð í
vinnslu sjávarafla þá séu það ekki
síst störf fyrir flciri konur sern
vantar á Akranesi.
Pað er ekki hvað síst stöðugleiki
vinnuafls á Akranesi sem bæjar-
stjóri telur að komið geti fyrirtækj-
um til góða. !>ar sé algengast að
fólk vinni í áraraðir á sama vinnu-
stað. Hjá mörgum fyrirtækjum á
höfuðborgarsvæðinu, t.d. í sælgæt-
isiðnaði, fiskiðnaði og fleiri grein-
unt sé svo aftur á móti svo mikil
hreyfing á fólki að ekki sé ótítt að
mannaflinn sé endurnýjaður í tví-
gang árlega, sem hljóti að koma
niður bæði á gæðum og afköstum.
- HEI
Albert tekur
á móti sendi-
herra Búlgaríu
Albert Guðmundsson. formaður
Borgaraflokksins, tók á dögunum á
móti sendiherra Búlgaríu á Islandi,
á einkaheimili sínu við Laufásveg.
Albert og kona hans, Brynhildur
Jóhannsdóttir buðu sendiherranum,
Georgi Andreev, og fyrsta sendi-
ráðsritara, Ljubomir Todorov, upp
á kampavín og fór vel á með þeim
Albert og Georgi. Lýsti Albert yfir
ánægju sinni með að fá tækifæri til
að endurgjalda gestrisni Búlgara, en
hann heimsótti Búlgaríu fyrirnokkr-
um árum og var þá fararstjóri fyrir
knattspyrnuflokk frá Vestmannaeyj-
um. Albert sagðist ekkert hafa nema
gott eitt að segja um Búlgaríu og
þjóðina sem landið byggir. Sendi-
herrann kom til landsins í tilefni
heimsóknar búlgarska utanríkisráð-
herrans og ræddi við fjölmarga ís-
lenska stjórnmálamenn.
Hr. Georgi Andreev sagði í sam-
tali við Tímann að hann teldi fundina
hafa verið mjög gagnlega. Send-
iherrann hafði rætt við Steingrím
Hermannsson, utanríkisráðherra,
m.a. um leiðtogafundinn í Moskvu.
Þeir hefðu skipst á skoðunum og
verið sammála á mörgum sviðum,
t.d. um bann á efnavopnum, kjarn-
orkutilraunum og fleira.
„Ég tel einnig að fundir utanríkis-
ráðherra landanna hafi verið mjög
gagnlegir. Ráðherrann fór utan
mjög ánægður, bæði með landið og
íbúa þess“ sagði sendiherrann.
Sendiherrann fer aftur til Osló í
dag, en þar hefur hann aðsetur sitt.
Frá vinstri: Ljubomir Todorov ritari
sendiherrans, Georgi Andreev
sendiherra Búlgaríu á íslandi með
aðsetur í Osló, Albert Guðmunds-
son formaður Borgaraflokksins og
kona hans Brynhildur Jóhannsdótt-
ir.
. SPARAÐU SPORIN
ÞU ÞARFT EKKILENGUR
AÐ UMSKRÁ
Frá 1. júní þarf ekki lengur að umskrá
bifreið þegar hún er seld úr einu umdæmi í
annað eða eigandi flytur á milli umdæma.
Umskráningar verða þó heimilar til 31.
desember n.k.
Við sölu á bifreið þarf því eftirleiðis einungis
að senda nákvæmlega útfyllta sölutilkynn-
ingu ásamt eigendaskiptagjaldi kr. 1.500.-
til Bifreiðaeftirlits ríkisins, eða fógeta og
sýslumanna utan Reykjavíkur.
Dómsmálaráðuneytið