Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 30
26 24. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Rennibrautin verður 80 metra löng. 2 Forstjóri Varnarmálastofnunar. 3 Steve Cosser. LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. andlegt áfall, 6. frá, 8. kúgun, 9. gogg, 11. utan, 12. slæm skrift, 14. drepa, 16. tónlistarmaður, 17. pump- un, 18. eyrir, 20. tveir eins, 21. fimur. LÓÐRÉTT 1. dangl, 3. tveir eins, 4. stífa, 5. málmur, 7. nýr, 10. flík, 13. viljugur, 15. flatormur, 16. kóf, 19. slá. LAUSN LÁRÉTT: 2. lost, 6. af, 8. oki, 9. nef, 11. án, 12. krafs, 14. stúta, 16. kk, 17. sog, 18. aur, 20. ðð, 21. frár. LÓÐRÉTT: 1. bank, 3. oo, 4. skástoð, 5. tin, 7. ferskur, 10. fat, 13. fús, 15. agða, 16. kaf, 19. rá. „Ég er opinn fyrir því að hugsan- lega hafi mér orðið þarna á mis- tök og að ég skuldi Suðurnesja- búum stig og afsökunarbeiðni,“ segir Davíð Þór Jónsson, dómari í Gettu betur. Í viðureign Menntaskólans við Hamrahlíð og Fjölbrautaskóla Suðurnesja á laugardag, sem MH sigraði örugglega, var sýnt frægt sjónvarpsviðtal við Ólaf Stefáns- son á Ólympíuleikunum þar sem hann líkti sjálfum sér við Morfe- us. Spurt var hvaða náunga Ólaf- ur hafi verið að tala um og FS fékk rangt fyrir svarið Morfeus úr kvikmyndinni The Matrix á meðan MH fékk rétt fyrir grísk- an svefnguð. Í viðtali við Fréttablaðið í haust var Ólafur spurður út í ummæl- in og þá svaraði hann: „Morfeus er held ég svefnguð. Það var ekki sá. Þaðan kemur samt Morfeus úr Matrix.“ Davíð Þór segist ekki hafa séð umrætt viðtal við Ólaf og því byggði hann svar sitt á öðru við- tali sem var tekið við skyldmenni hans. „Þar var talað um að hann væri að vísa í gríska goðafræði, að þetta væri draumi líkast og því liði honum eins og drauma- guðinum,“ segir Davíð. „Ég vissi ekki betur en spurningin væri rétt. Það má segja að svarið hjá MH hafi verið alveg hárrétt en það er hins vegar spurning hvort spurningin hafi verið rétt.“ Þrátt fyrir að Davíð hafi þarna orðið á mistök finnst honum Matrix-svar Ólafs samt frek- ar langsótt. „Ég skil ekki alveg tenginguna við þennan Laurence Fishburne-karakter í The Matrix, merkingarlega.“ Arnþór Elíasson, liðsmaður FS, varð undrandi þegar þeir fengu rangt fyrir Matrix-svarið. „Við bentum honum góðlátlega á það eftir keppnina að hann (Ólafur) hefði sagt þetta einhvern tím- ann. Hann ætlaði að tékka aðeins á þessu,“ segir Arnþór um sam- skipti sín við Davíð Þór. „En það var lítið við þessu að gera og þetta breytti stöðunni ekki mikið. Við bara bentum honum á þetta en vorum ekkert sérstak- lega fúlir.“ Honum finnst vitaskuld leitt að hafa dottið úr keppninni en játar að FS hafi einfaldlega mætt ofjörlum sínum. „Við vorum búnir að æfa í einn og hálfan mánuð fyrir keppnina en þeir hafa vænt- anlega æft aðeins meira en við. Þeir voru bara betri en við.“ freyr@frettabladid.is DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON: GERÐI MISTÖK Í DÓMARASTÓL GETTU BETUR Heimspeki Ólafs veldur usla „Já, þannig er að 1. mars. á sunnu- dag, á bjórdag, á tuttugu ára afmælisdegi staðarins býð ég öllum landsmönnum upp á hvalpip- arsteik. Opið hjá mér frá klukkan fjögur og fram eftir,“ segir Úlfar Eysteinsson vert á Þremur Frökk- um í Þingholtunum. Úlfar er einn þeirra sem fagnar mjög þeirri heimild Einars K. Guð- finnssonar, sem hann gaf út kort- eri áður en hann hætti sem sjáv- arútvegsráðherra, til veiða á 150 langreyðum á ári til ársins 2013 sem og veiðum á 100-150 hrefn- um á ári. Málið olli miklum deil- um, fjölmargir lýstu ánægju sinni með ákvörðun Einars, en aðrir for- dæmdu hana – einkum þeir sem starfa í ferðamálabransanum. En Úlfar blæs á þær raddir. „Ég er mjög ánægður með að menn séu farnir að veiða hval aftur. Mikil ósköp,“ segir Úlfar. Hann bend- ir á að hrefnukvótinn í fyrra hafi verið með þeim ósköpum að hann var farinn að leggja drög að því að kaupa kjöt frá Noregi. „Ég var að nota tíu prósent af kvótanum! Eitt lítið veitingahús með 44 sæti. Fjörutíu dýr veidd og ég nota fjög- ur. Já, blessaður. Menn gleypa þetta í sig. Útlendingarnir koma úr hvalaskoðun og svo hingað til að bragða hval.“ - jbg Gefur hvalpiparsteikur á bjórdaginn ÚLFAR MEÐ VÆNAN HVALKJÖTSBITA Í fyrra voru 40 hrefnur veiddar og af þeim notaði Úlfar á sínum litla veitinga- stað fjögur dýr. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA „Ég hlusta á Bylgjuna og Rás 2. Mér finnst þetta þægilegar stöðvar að hlusta á.“ Sigurður Oddur Sigurðsson bakari. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N MORFEUS TIL UMRÆÐU Davíð Þór Jónsson virðist hafa misskilið heimspeki landsfyrir- liðans Ólafs Stefáns- sonar. Davíð taldi að í viðtali hafi Ólafur rætt um gríska svefnguðinn Morfeus þegar hann átti í raun við Morfeus úr Matrix-myndunum. Hemmi Gunn verður eitt aðaltromp tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður um páskana. „Það er aldrei of seint að finna rokkarann í sér,“ segir Hemmi, sem ætlar að troða upp með vestfirsku hljómsveitinni Kraftlyftingu og taka sín þekkt- ustu lög. Hemmi var fyrir vestan á síðustu hátíð. „Ég og fóstra mín áttræð vorum á hótelinu að horfa á hann Ragga Bjarna vin minn og þá voru strákarnir að tuða í mér að taka lagið með sér, Högni í Hjalta- lín og fleiri. Þá fannst mér bara of kalt í skemmunni til að taka slag- inn. Nú ætla ég að mæta og standa mig.“ Sólóplata Hemma frá 1984, Frískur og fjörugur, hefur í seinni tíð orðið hálfgert „költ“ og lög eins og „Út á gólfið“, „Fallerí fallera“ og ekki síst „Einn dans við mig“ vekja jafnan upp gríðarlegt stuð þegar þau heyrast. Ljóst má vera að það verður einn af hápunktum hátíðarinnar þegar Hemmi tekur lögin „læf“. „Mér finnst gaman að vera með ungu og hressu fólki. Og mér finnst alveg frábært framtak að þessi litli staður sé að verða mekka rokksins, þökk sé hátíð- inni,“ segir Hemmi. Hann er þessa dagana fyrir vestan, „í hleðslu“, eins og hann kallar það. Dagskrá Aldrei fór ég suður er nú óðum að skýrast og verða fleiri nöfn tilkynnt í vikunni. - drg Hemmi finnur rokkarann í sér TEKUR SLAGINN Hemmi Gunn treður upp með Kraftlyftingu á Aldrei fór ég suður. Búast má við gríðarlegum hressleika. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Jóhannes Kr. Kristj- ánsson sem gjarnan er kenndur við þáttinn Kompás, reyndi mikið til að fá að hafa nafnið með sér þegar honum var sagt upp störfum á Stöð 2. En hann kom að lokuðum dyrum hjá Ara Edwald, forstjóra 365, sem telur nokkur verðmæti fólgin í nafni og merki þáttarins. Jóhannes og Kristinn Hrafnsson hafa fullan hug á að finna fréttamennsku sinni annan vettvang og eru að vinna áfram í málum sem voru á teikniborðinu þegar þátturinn var tekinn af dag- skrá fyrir um mánuði. Gríðarleg eftirvænting var meðal veiðimanna þegar dregin voru út heindýraleyfi um helgina. Kvótinn nemur 1.333 dýrum og var um einn á móti þremur að menn fengju. Meðal þeirra nafna sem komu úr pottinum var athafnamað- urinn Engilbert Runólfs- son og sá sem ekki hefur fjallað hvað minnst um hann á síðum DV, eða fyrrverandi ritstjóri þar á bæ, Mikael Torfason. Listamenn hjá Kimi-útgáfunni, til að mynda Benni Hemm Hemm, Hjaltalín og FM Belfast, ákváðu að sniðganga íslensku tónlistarverð- launin í fyrra, aðallega vegna þess að þeim fannst óboðlegt að þurfa að greiða fyrir möguleikann á að hljóta tilnefningu. Sigríður Thorlacius og aðrir listamenn Kimi þurfa ekki að hafa áhyggjur af þessu næst því Jakob Frímann tilkynnti á hátíðinni í síðustu viku að hér eftir þyrfti ekki að greiða fyrir þátt- tökuna. - jbg, drg FRÉTTIR AF FÓLKI Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á morgun Hvaða banki stóð verst ? Hvernig vinnum við okkur út úr kreppunni? Jeffrey Sachs les í stöðuna. Í Markaðnum á morgun

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.