Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Námskeið Íþróttasambands fatl- aðra og Vetraríþróttamiðstöðv- ar Íslands í samstarfi við NSCD í Winter Park fór fram í Hlíðarfjalli helgina 13. til 15. febrúar. Full- bókað var á námskeiðið þar sem um tuttugu einstaklingar, bæði börn og fullorðnir, víðs vegar af landinu tóku þátt. Þeirra á meðal er Bergvin Oddsson sem er jafn- framt fyrsti blindi þátttakandinn á námskeiðinu. „Ég fór til að skíða og hafði minn aðstoðarmann,“ segir Bergvin og bætir við að hann sé þó frekar áhugamaður en iðkandi. „Ég hef bara tvisvar sinnum farið áður á skíði. Einu sinni í Bláfjöll þegar ég var í 7. bekk og hafði sjón. Svo fór ég í Hlíðarfjall í fyrra og aftur núna og fannst svolítil reynsla komin á þetta. Á sunnudegi var ég farinn að finna ryþmann. Nú lang- ar mig aftur upp í fjall til að halda mér við. Enda er þetta fínasta úti- vist.“ Að sögn Bergvins henta ekki margar íþróttir sjónskertum og blindum, kannski einna helst skíði, sund og spinning. Skíðaiðk- un veiti ágætis hreyfingu og þrátt fyrir fötlun sé hægt að ná ágæt- is hraða; dæmi séu um að blindir keppi í alpagreinum og norrænum greinum. Aðstoðarmenn séu ávallt með í för og gæti þess að ekki verði slys. „Aðstoðarmenn skíða fyrir framan byrjendur og samhliða þeim sem lengra eru komnir, það er að segja þeim sem geta beygt og stöðvað sig, og leiðbeina þeim. Gagnstætt því sem margir telja erum við ekki bundnir við aðstoð- armanninn, því báðir myndu aug- ljóslega detta ef annar gerði það. Annars er nú ekkert mál að detta í snjóinn.“ Spurður hvort hann ætli að leggja skíðaiðkun fyrir sig, segir Bergvin það ekki vera á dagskrá. „Nei, ég ætla nú bara að sitja fyrir framan sjónvarpið og fylgjast með vetrar- íþróttum,“ segir hann hlæjandi en bætir við: „Síðan er meiningin að fara bráðlega aftur upp í Hlíðar- fjall og halda sér í æfingu. En ef ég færi að æfa einhverjar íþróttir, þá yrðu það frekar frjálsar sem ég æfði á mínum yngri árum. Þá var ég aðallega í langstökki og kúlu- varpi og var bestur í þeim greinum. Ég hef reyndar um nokkurt skeið íhugað að byrja aftur.“ Allar nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á www.ifsport. is. Þá er hægt að nálgast myndir frá námskeiðinu á www.123.is/if. roald@frettabladid.is Renndi sér blint í snjóinn Bergvin Oddsson tók þátt í námskeiði sem haldið var á vegum Íþróttasambands fatlaðra og Vetrar- íþróttamiðstöðvar Íslands í Hlíðarfjalli á dögunum. Hann er fyrsti blindi þátttakandinn á námskeiðinu. Bergvin Oddsson er fyrsti blindi þátttakandinn sem mætir á námskeið Íþróttasambands fatlaðra og Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands. Hann fékk aðstoðarmann sem leiðbeindi honum og gekk vel. MYND/AKV LÍFIÐ samtök um líknandi meðferð standa fyrir námskeiðum sem bera heitið Að hefja líknarmeðferð. Næstu námskeið verða haldin 26. til 27. febrúar og 2. til 3. apríl. Námskeiðin eru haldin í Grensáskirkju og ætluð öllum sem áhuga hafa á líknandi meðferð. telpurS onuK r Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n STOTT PILATES æfingakerfið er frábær leið til að : l Móta líkamann, bæta líkamsvitund og líkamsstöðu. l Lengja vöðva og styrkja sérstaklega djúpvöðva maga og baks. l Losa spennu, auka liðleika og bæta jafnvægi milli vöðvahópa. l Losa um bakverki og hjálpa til við samhæfingu svo fátt eitt sé nefnt. Kennt er 2x í viku í 9 vikur. Þriðjudaga og fimmtudaga kl 7:30, 16:30 og 17:30. Byrjenda- og framhaldsnámskeið. Æfingakerfi byggt á pilatesæfingum Joseph Pilates. l Frjáls aðgangur að tímum í opna kerfinu og tækjasal. Barnagæsla - Leikland JSB Staðurinn - Ræktin Velkomin í okkar hóp! Innritun stendur yfir í síma 581 3730 Ný STOTT PILATES námskeið ATH höfum bætt við nýjum tíma kl. 7:30 þriðju- og fimmudaga telpurS onuK r Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Markviss uppbygging og styrking fyrir líkamann. Sérstök áhersla lögð á miðjuna – kvið og bak. Hentar öllum aldurshópum og líkamsgerðum. Þú finnur strax árangur eftir fyrstu æfinguna án þess að reyna of mikið á þig. Lokuð 9 vikna námskeið. Kennt er 2x í viku 60 mínútur í senn. Í boði eru morgun-, hádegis- og síðdegisnámskeið. l Frjáls aðgangur að tímum í opna kerfinu og tækjasal. Barnagæsla - Leikland JSB Innritun stendur yfir í síma 581 3730 Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi RopeYoga Staðurinn - Ræktin ATH höfum bætt við nýjum tímum kl. 10:00 miðviku- og föstudaga Velkomin í okkar hóp! á hluta sjúklings af verði lyfseðilsskyldra lyfja í Apótekinu Skeifunni Febrúartilboð til elli- og örorkulífeyrisþega Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Íslensk framleiðsla Íslensk hönnun Íslensk framtíð Landsins mesta úrval af íslenskum sófum Patti húsgögn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.