Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 26
22 24. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Biðin er á enda og Meist- aradeild Evrópu fer aftur í gang í kvöld með fjórum leikjum í sextán liða úrslitum keppninnar. Eru það fyrri leikir liðanna í sextán liða úrslitunum. Augu flestra verða á San Siro- leikvanginum í Mílanó þar sem Evrópumeistarar Man. Utd sækja Inter heim. Kljást þar enn á ný stjórarnir Sir Alex Ferguson og Jose Mourinho sem háðu marga hildina er Mourinho stýrði Chel- sea. „Þetta verður algert stríð meðan á leiknum stendur. Eftir leikinn er alltaf gleði og við Alex eyðum tíma saman. Ég vil alls ekki sjá það breytast, sama hvor okkar vinnur og hvor okkar tapar,“ sagði Mour- inho sem hafði oftar en ekki betur gegn United er hann stýrði Chel- sea. „Ég á margar mjög góðar minn- ingar frá leikjum mínum við Unit- ed. Mér tókst að leggja liðið er ég stýrði Porto, er við unnum í und- anúrslitum deildarbikarsins og svo á Stamford Bridge er við unnum deildina annað árið í röð. Þið getið líka talið með sigurinn í bikarn- um árið 2007. Minn persónulegi árangur gegn United færir mér mikið sjálfstraust fyrir leikinn,“ sagði Mourinho kokhraustur eins og venjulega. Sir Alex er í vandræðum með varnarlínuna sína fyrir kvöldið. Nemanja Vidic er í banni og Jonny Evans haltraði af velli um helg- ina. Wes Brown og Gary Neville eru einnig meiddir og svo er John O´Shea slæmur í hælnum. Mour- inho segist ætla að nýta sér fjar- veru Vidic. „Við munum reyna að gera Unit- ed-vörninni erfitt fyrir án hans. Það eru nánast allir heilir hjá okkur og með stuðningi áhorfenda og reynslu okkar manna eigum við að geta gert kvöldið erfitt fyrir United,“ sagði Mourinho í pistli sínum í Daily Telegraph og bætti við að Zlatan Ibrahimovic þyrfti að sýna sinn besta leik í kvöld. Ferguson hefur eðlilega mestar áhyggjur af því hverjum hann eigi að stilla upp í miðju varnarinnar. „Þetta er martröð og einhvers staðar verð ég að finna tvo mið- verði,“ sagði Ferguson en Evans og O´Shea flugu með liðinu til Mílanó og kemur eflaust ekki í ljós fyrr en í kvöld hvort þeir geti spilað. Arsenal verður án Rússans Andrey Arshavin í leiknum gegn Roma í kvöld en Rússinn má ekki spila þar sem hann lék með Zenit St. Petersburg í keppninni fyrr í vetur. Emmanuel Adebayor og Eduar- do eru þess utan meiddir. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, treystir á að Denilson verði lykilmaðurinn hjá Arsenal á miðjunni. henry@frettabladid.is Sir Alex og Mourinho mætast á ný Sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu hefjast í kvöld með fjórum leikjum. Mesta spennan er fyrir leik Inter og Man. Utd á San Siro. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er í miklum vandræðum með vörnina. FJENDUR OG FÉLAGAR Jose Mourinho segir að það sé stríð á milli hans og Fergusons meðan á leik stendur en eftir leiki eru þeir alltaf góðir félagar. NORDIC PHOTOS/AFP MEISTARADEILD EVRÓPU Leikir kvöldsins: Inter - Man. Utd Stöð 2 Sport Arsenal - Roma Sport 3 Lyon - Barcelona Sport 4 Atletico Madrid - Porto Mikilvægt skref í átt að þínum frama Marketing Management Möguleg störf: Markaðsstjórnun, auglýsingaráðgjöf, viðskipta- Námsstaður: Esbjerg eða Sønderborg – Tungumál: Enska eða danska. Computer Science Námsstaður: Esbjerg eða Sønderborg – Tungumál: Enska Multimedia Design & Communication skipulagning auglýsingamála, ráðstefnustjórnun Námsstaður: Esbjerg – Tungumál: Enska. Fashion Design Möguleg störf: Skipulagning og eftirfylgni verkferla framleiðslu og kaup & sölu. Námsstaður: Sønderborg – Tungumál: Enska. Technical Manager Offshore Vertu með til að byggja upp íslenskan olíuiðnað. Námsstaður: Esbjerg – Tungumál: Danska STUDY IN DENMARK ESBJERG SØNDERBORG ESBJERG Sp. Kirkevej 103 DK-6700 Esbjerg Tel + 45 7613 3200 SØNDERBORG Grundtvigs Alle 88 DK-6400 Sønderborg Tel + 45 7412 4141 Nánari uppl. www.easv.dk BUSINESS ACADEMY SOUTHWEST AP Degree & Bachelor Programme - we offer you the following programmes: challenge & innovation Kynning á hótel Hilton - Nordica í dag kl. 18.00 > Fínn árangur hjá júdófólkinu Íslenskir júdókappar gerðu það gott í Danmmörku þar sem þeir tóku þátt í Matsumae Cup. Tæplega 200 kepp- endur frá tólf þjóðum voru mættir til leiks og þar af tíu keppendur frá Íslandi. Anna Soffía Víkingsdóttir stóð sig best íslensku keppendanna en hún fékk gull í opnum flokki kvenna. Þormóður Árni Jónsson stóð sig einnig geysilega vel en hann fékk tvenn silfurverðlaun á mótinu. Íslenska liðið fékk síðan bronsverðlaun í liða- keppninni. FÓTBOLTI Steven Gerrard, fyrir- liði Liverpool, er í leikmannahópi liðsins fyrir leikinn gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á mið- vikudag. Gerrard hefur verið fjarver- andi síðan hann tognaði aftan í læri í bikarleik gegn Everton fyrr í mánuðinum. Jafnvel var búist við honum um helgina en það gekk ekki upp. Hann æfði með liðinu í gær og ætti að vera leikfær á miðviku- dag. „Það var ekkert vesen á æfing- unni. Reyndar var þetta sérstök æfing þannig að við reyndum hann ekki að fullu en við sjáum hvað setur,“ sagði Rafa Benitez, stjóri Liverpool. - hbg Steven Gerrard: Er í hópnum gegn Real STEVEN GERRARD Mun hugsanlega spila á miðvikudag. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES Aron Einar Gunnarsson hefur verið orðaður við fjölda stórliða undanfarna daga og vikur, ekki síst eftir að hann skoraði eitt mark í 2-2 jafnteflisleik gegn Blackburn í ensku bikar- keppninni. Liðin mætast á nýjan leik í kvöld og er Aron vongóður um að spila þó svo að hann hafi fengið gubbupest í fyrrinótt. Meðal þeirra félaga sem Aron hefur verið orðaður við í enskum fjölmiðlum eru Black- burn, Liverpool, Celtic og Atletico Madrid. „Það er nú bara hún mamma sem hefur verið að segja mér frá þessu. Ég hef lítið verið að fylgjast með þessu sjálfur,“ sagði Aron. „En auðvitað er gaman að sjá nafnið sitt í svona samhengi enda engin smá lið í umræðunni. Slíkar umræður koma oft upp þegar maður stendur sig vel og ég veit svo sem af því að útsendarar einhverra liða hafa verið að fylgjast með mér. En hvort það sé eitthvað tilboð á leiðinni er annað mál.“ Aron hefur rætt við forráðamenn félagsins sem fullvissa hann um að þeir ætli sér ekki að selja hann. „Mér skilst að mér verði boðinn nýr samningur í sumar. Mig sjálfan langar til að vera hér í eitt ár í viðbót og sjá svo til. Ég hef bætt mig mjög mikið sem leikmaður síðan ég kom hingað þó ég segi sjálfur frá. Ég er líka búinn að fá miklu meiri reynslu en ég hefði fengið hefði ég hoppað beint í úrvals- deildina. Ég er því sáttur.“ Óneitanlega vekur athygli að Atletico Madrid sé að fylgjast með Aroni en sjálfur segir hann efast um að spænski boltinn henti sér. „Það væri örugglega afar spennandi að fara til Madrídar. En satt best að segja efast ég um að það sé mikið fyrir mig hvað knattspyrnuna varðar.“ Coventry er nú í þrettánda sæti ensku B-deildarinnar og segir Aron að þar á bæ séu menn yfirleitt sáttir. „Liðið var í ruglinu á síðasta tímabili. Félagið rambaði á barmi gjaldþrots og liðið bjargaði sér frá falli í síðasta leik. Menn eru því sáttir við stöðu mála nú enda er markmiðið að byggja upp lið til framtíðar.“ ARON EINAR GUNNARSSON: ORÐAÐUR VIÐ FJÖLDA STÓRLIÐA BÆÐI Á BRETLANDI OG Á SPÁNI Langar að vera hjá Coventry í eitt ár í viðbót FÓTBOLTI Einn leikur fór fram í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Hull tók á móti Totten- ham en Hull hafði ekki unnið í tíu leikjum í röð fyrir leikinn í gær. Gestirnir frá London byrj- uðu betur því Aaron Lennon kom þeim yfir á 17. mínútu. Hull var þó ekki slegið út af laginu því Michael Turner jafnaði metin tíu mínútum síðar. Jonathan Woodgate kom Spurs yfir fimm mínútum fyrir leikslok og þar við sat. Spurs í 13. sætið en Hull í því 14. - hbg Enska úrvalsdeildin: Sigur hjá Spurs NETTUR Phil Brown, stjóri Hull, sýndi lipra takta á hliðarlínunni í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.