Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 4
4 24. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Sigurjón M. Egilsson fékk verðlaun
fyrir bestu rannsóknarblaðamennsk-
una fyrir skrif sín um efnahagsmál
í Mannlíf og fyrir útvarpsþáttinn
Sprengisand á Bylgjunni.
LEIÐRÉTTING
DÓMSMÁL Hollendingurinn Jacob
Van Hinte kvaðst fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær hafa átt
að fá 40.000 evrur fyrir að koma
húsbíl, hlöðnum fíkniefnum, hing-
að til lands. Hann er ákærður,
ásamt Þorsteini Kragh, fyrir að
hafa ætlað að smygla nær 200 kíló-
um af kannabisefnum og einu og
hálfu kílói af kókaíni til landsins
í húsbílnum.
Aðalmeðferð í þessu umfangs-
mikla fíkniefnamáli hófst í héraðs-
dómi í gær. Við réttarhöldin í gær
kvað Hollendingurinn tvo breska
menn, Bill og Jim, hafa staðið á
bak við smyglið.
Hann hefði átt að fara með hús-
bílinn á tjaldstæði, þegar til lands-
ins væri komið, og þar yrði haft
samband við hann. Í réttarsaln-
um kom í ljós að Hollendingurinn
var ákaflega „gleyminn“ á símtöl
og símanúmer. Hann sagðist hafa
verið með marga síma þegar undir-
búningur smyglsins stóð sem hæst
en myndi ekki númer þeirra. Ekki
heldur á rauðum Samsung-síma
sem hann var með á sér við hand-
töku.
Spurður um hvers vegna hann
hefði bent á Þorstein Kragh sem
vitorðsmann sagðist hann hafa
gert það til að saga sín væri trú-
verðugri, hann hefði hugsanlega
losnað úr einangrun og fengið létt-
ari dóm. Þorsteinn hefur neitað
allri sök.
Fram kom að þegar Þorsteinn og
Hollendingurinn dvöldu saman á
Litla-Hrauni breytti sá síðarnefndi
vitnisburði sínum og sagði Þorstein
saklausan. Hann hafði þó áður sagt
Þorstein ganga undir gælunafninu
„Kimmi“ og bent á mynd af Þor-
steini sem „Kimma“ hjá lögreglu.
Þá harðneitaði Hollendingurinn að
hafa vitað af kókaíninu í bílnum.
Honum og Þorsteini bar ekki
saman um hvort eða hversu oft
þeir hefðu hist í Amsterdam. Hins
vegar var Þorsteinn mættur til að
taka á móti Hollendingnum á Seyð-
isfirði. Þorsteinn kvaðst hafa talið
sig vera að taka á móti 70 til 80 elli-
lífeyrisþegum á 25 húsbílum vegna
ferðaþjónustustarfa sinna.
Í dómsal kom fram að óskráð-
ur frelsissími með tilteknu númeri
var talinn hafa verið notaður við
skipulagningu fíkniefnasmygls-
ins. Sá sími og einkasími Þor-
steins voru oft staddir á sömu slóð-
um. Þorsteinn gat ekki skýrt það.
Ekki heldur hvers vegna pin-númer
beggja símanna var 6969, það sama
og hann notaði á Skype-samskipta-
forritinu. jss@frettabladid.is
Átti að fá 40 þúsund
evrur fyrir smyglið
Hollendingurinn Jacob Van Hinte kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur hafa
átt að fá 40.000 evrur fyrir að smygla hingað tæpum 200 kílóum af kannabis-
efnum og einu og hálfu kílói af kókaíni. Þorsteinn Kragh er einnig fyrir dómi.
AÐALMEÐFERÐ Sakborningar huldu andlit sín áður en aðalmeðferð hófst í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær. Á myndinni, auk þeirra, má sjá Helga Jóhannesson hrl.
verjanda Þorsteins Kragh, Pál Arnór Pálsson hrl. verjanda Jacobs, svo og dómtúlk
lengst til hægri. FRETTABLAÐIÐ/GVA
ÞORSTEINN KRAGH
Mættur í dómsal.
HOLLENDING-
URINN Mættur í
dómsal.
Könnun sem leiddi í ljós að 40
prósent Seyðfirðinga á aldrinum 20
til 65 ára hefðu háskólamenntun eða
sambærilega menntun og vitnað var
til í frétt um landsbyggðarmál var
unnin af Þekkingarneti Austurlands
en ekki Capacent.
„Ég hata sterk fíkniefni.“
Jacob Van Hinte um fíkniefna-
flutninginn.
„Um þetta eina, eina og hálfa, þá
sagðist ég ekkert vita um það,
bara svo þið vitið það.“ Jacob í
símtali við óskilgreinda Henny.
„Stundum málaði ég gólfin
fram eftir.“ Þorsteinn Kragh um
vinnutíma sinn í gufubaðinu á
Laugarvatni.
„Bæði til að hitta kærustuna mína
og vinna við að temja hesta.“ Þor-
steinn spurður um tilgang ferða
sinna til Amsterdam.
„Segðu henni bara að þeir hafi
tekið hinn gæjann líka.“ Jacob í
símtali á Litla-Hrauni.
„Ég tók upp alla puttalinga sem
ég gat tekið.“ Þorsteinn útskýrir
hvers vegna einkasími hans og
frelsissíminn hafi svo oft verið á
sömu slóðum.
„Ég man ekki eftir einstaka sím-
tölum, ekki þetta né önnur símtöl.
Það eru svo mörg símanúmer.“
Jakob spurður um símtal í frelsis-
númerið.
„Ég þekki engan sem ég gæti selt
þetta til á Íslandi.“
Jacob um fíkniefnafarminn.
80 MILLJÓNIR
Þorsteinn Kragh átti um 80
milljónir króna á reikningum og
í verðbréfasjóðum. Neikvæður
lífeyrir nam 78 milljónum króna.
Peninganna hafði hann aflað með
undanskoti á sköttum og svörtum
tekjum, með því að falsa miða á
tónleika.
800 KÍLÓ AF HASSI
Jacob Van Hinte sat í níu mánuði
í fangelsi á Spáni eftir að hann
hafði verið dæmdur þar í landi
árið 2005 fyrir að reyna að smygla
800 kílóum af kannabisefnum
þangað í seglskútu. - jss
ÚR DÓMSALNUM
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
16°
6°
7°
2°
5°
8°
5°
3°
3°
2°
20°
12°
1°
21°
-1 °
12°
11°
0°
Á MORGUN
Norðaustan 8-18 m/s, hvas-
sast nyrst.
5
FIMMTUDAGUR
Breytileg átt, 3-8 m/s
1
1
1
0
1
4
2
4
4
6
6 3
8
6
6
13
8
6
8
6
-4
-5
-2
0
1
-7
-7
-6
-4
-3
10 10
ÞRÓUNIN Í DAG
Núna með morgninum
er úrkomusvæði að
ganga inn á sunnanvert
landið með rigningu
eða slyddu og vaxandi
vindi. Framan af degi
verða stöku él nyrðra.
Þegar líður hins vegar
á daginn nær úrkomu-
loftið yfi r á landið
norðanvert og þá má
búast við ákafri snjó-
komu á Vestfjörðum,
Norður- og Austurlandi.
Samfara þessu hvessir
töluvert með ströndum
vestan og norðan til.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
STJÓRNMÁL Eftir að Jón Magnússon
gekk til liðs við Sjálfstæðisflokk-
inn hefur Sjálfstæðisflokkurinn nú
26 þingmenn. Framsóknarflokkur-
inn er með 7 þingmenn og því hafa
þessir gömlu samstarfsflokkar
samanlagt 33 þingmenn. 32 þing-
manna meirihluti þótti of ótrygg-
ur til að halda stjórnarsamstarfi
áfram eftir síðustu kosningar.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að rætt sé um það innan
þinghússins að staðan hafi breyst
við vistaskipti Jóns.
Allt í einu hafi sá möguleiki
orðið raunhæfur að flokkarnir
tveir tækju upp fyrra samstarf.
Stjórnarþingmaður sem ekki vildi
láta nafns síns getið segir allt hafa
breyst þegar Jón gekk í Sjálfstæð-
isflokkinn. Síðan þá hafi Fram-
sókn stoppað allt og stjórnin verið
illa starfhæf.
Sú staðreynd að Höskuldur
Þórhallsson greiddi atkvæði með
frestun frumvarps til laga um
Seðlabankann í viðskiptanefnd í
gær, líkt og fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, gaf þessum sögusögnum
byr undir báða vængi.
Birkir Jón Jónsson, varaformað-
ur Framsóknarflokksins, segir það
af og frá að viðræður séu í gangi
við Sjálfstæðisflokk.
„Það stendur sem við höfum
sagt að við verjum ríkisstjórnina
vantrausti og við styðjum hana til
allra góðra verka.“ - kóp
Pískrað innan þings um stjórnarmyndun Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks:
D og B með 33 menn á þingi
ALÞINGI Bent er á þá staðreynd innan
þings að Framsóknar- og Sjálfstæðis-
flokkur hafa nú 33 manna meirihluta
á þingi eftir að Jón Magnússon gekk til
liðs við Sjálfstæðisflokk.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEÐUR Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins (SHS) hefur gefið út
samræmdar reglur fyrir grunn-
skóla og foreldra um viðbrögð við
því þegar skólastarf á höfuðborg-
arsvæðinu raskast vegna veð-
urs og ófærðar. Reglurnar hafa
verið gefnar út á íslensku, ensku,
pólsku, rússnesku, spænsku og
taílensku.
Hvatinn að gerð reglnanna var
endurtekin illviðri á höfuðborgar-
svæðinu veturinn 2007 til 2008 og
ítrekaðar raskanir á samgöngum
og skólastarfi vegna þeirra.
Reglurnar eru birtar á vefsíðum
SHS og skólanna og eru foreldrar
beðnir að kynna sér þær vel. - kg
Viðbrögð við óveðri:
Foreldrar kynni
sér reglurnar
DÓMSMÁL Ungur piltur hefur
verið dæmdur í fjögurra mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir kyn-
ferðisbrot. Pilturinn var sakfelld-
ur fyrir að hafa í að minnsta kosti
fjögur skipti, á árinu 2007, þuklað
á brjóstum og efri hluta líkama
stúlku, innanklæða. Einnig þukl-
að á rassi hennar innanklæða og
í öðru tilviki þuklað við kynfæri
hennar innanklæða. Hann var þá
fimmtán ára og stúlkan tólf ára.
Piltinum var gert að greiða
stúlkunni 250 þúsund krónur í
miskabætur. - jss
Dæmdur fyrir kynferðisbrot:
Fimmtán ára
þuklaði tólf ára
BYGGÐAMÁL Alls fluttu 1.485 til
Suðurnesja frá öðrum landsvæð-
um árið 2007. Þetta kemur fram í
nýjum tölum Hagstofunnar.
Á sama tímabili fluttu 343 burt
af höfuðborgarsvæðinu. Mesti
brottflutningur fólks var hins
vegar frá Vestfjörðum en alls
fluttu 404 manns úr fjórðungnum
til annarra landsvæða.
Þegar horft er á millilandaflutn-
inga hefur höfuðborgarsvæð-
ið hins vegar enn þá vinninginn
með 6.017 manns umfram brott-
flutta. Alls fluttu 2.432 frá Aust-
urlandi til útlanda. - óbf
Búferlaflutningar hér á landi:
Fjölgar mest á
Suðurnesjum
GENGIÐ 23.02.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
177,9534
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
112,22 112,76
164,2 165
143,95 144,75
19,318 19,432
16,5 16,598
12,918 12,994
1,1838 1,1908
166,49 167,49
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR