Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 10
10 24. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR Setti slys strik í þinn reikning? Við könnum rétt þinn á bótum! Slys breyta aðstæðum í lífi okkar og starfi. Fáðu greiddar þær bætur sem þú átt rétt á. Fulltingi þér við hlið / www.fulltingi.is / sími 533 2050 / Suðurlandsbraut 18 Rvk. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Auglýsingasími – Mest lesið MUNKAR DANSA Munkar frá Shaolin- klaustrinu í Kína sýna listir sínar á dans- og bardagalistasýningu í Sydney í Ástralíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LETTLAND, AP Forseti Lettlands, Valdis Zatlers, sagði í gær að svo kunni að fara að flýta verði kosn- ingum til að koma aftur á pólitísk- um stöðugleika í landinu. Ríkis- stjórnin hraktist frá völdum fyrir helgi vegna óánægju almennings með það hvernig hún hefur tekið á efnahagskreppunni sem hrjáir nú Letta með hliðstæðum hætti og Íslendinga. Leiðtogar flokkanna sem sæti eiga á lettneska þinginu eru að reyna að koma saman starfhæfri stjórn eftir að samsteypustjórn miðju- og hægriflokka, sem Ivars Godmanis fór fyrir, liðaðist í sundur. En Zatl- ers forseti sagði í gær að slíkar tilraunir gætu verið til lítils, þar sem vafi léki á því að þær væru til þess fallnar að endurreisa traust almennings á stjórnvöldum. „Enginn veit hvort þessi (nýja) stjórn verður fær um að ná árangri á næstu mánuðum, og sé hún það ekki, þá … þurfum við á kosning- um að halda og endurnýja umboð og samsetningu stjórnmálaafl- anna á þingi,“ tjáði Zatlers AP- fréttastofunni. Að gefa fólki færi á að kjósa myndi að sínu mati vera til þess fallið að „tappa reiðinni af samfélaginu, að gefa því tækifæri til að veita löggjafarsamkomunni nýtt umboð“. Traust til ráðamanna í Lettlandi hefur fallið niður úr öllu valdi í kjölfar þess að stjórnvöld hafa reynst ófær um að stöðva hrað- an snúning neikvæðs vítahrings kreppunnar. Fram undir það síð- asta var Lettland meðal þeirra landa í hópi nýjustu aðildarríkja Evrópusambandsins þar sem hag- vöxtur var mestur, en nú er það landið með mesta samdráttinn. Á síðasta ársfjórðungi nýliðins árs var samdrátturinn yfir tíu prósent miðað við sama tíma árið áður. audunn@frettabladid.is Forsetinn og þingið glíma Forseti og þjóðþing Letta takast á um hvort það taki því að reyna að mynda nýja stjórn án þess að efna fyrst til kosninga. Mikil reiði er meðal almennings. KÍNA, AP Sjötíu og fjórir námu- verkamenn fórust í gas- sprengingu í kolanámu í Guji- ao í Norður-Kína á sunnudag. Aðstandendur námuverkamanna streymdu að í gær til að grennsl- ast fyrir um afdrif sinna. Af þrjú hundruð manns sem bjargað var úr námunni voru 114 enn á sjúkrahúsi í gær, þar af fimm mjög þungt haldnir. Talsmaður héraðsstjórnar Shanxi-héraðs sagði alla fundna sem voru í námunni þegar slys- ið varð. Þetta er mannskæðasta námu- slys í Kína það sem af er árinu en slík slys eru tíð í landinu. - aa Námuslys í Kína: Mannskæðasta slysið í ár EGYPTALAND, AP Hópur franskra táninga á skólaferðalagi varð illa úti er sprengja var sprengd á frægum útimarkaði í egypsku höfuðborginni Kaíró í fyrrakvöld. Sautján ára stúlka dó og á annan tug félaga hennar særðust, mis- alvarlega. Tilræðið veldur áhyggjum af því að enn dragi úr ferðamanna- straumi til Egyptalands, en efna- hagur landsins á nú þegar í alvar- legum kröggum vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar. Talsmaður yfirvalda sagði að sprengjunni hefði verið komið fyrir undir bekk á kaffihúsi, sem var fullt af ferðamönnum er hún sprakk. - aa Hryðjuverk á útimarkaði í Kaíró í Egyptalandi: Franskur ferðamaður deyr HERMDARVERK Egypskur lögreglumaður hefur vökult auga með ferðamönnum í grennd við tilræðisstaðinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNARKREPPA Valdis Zatlers Lettlandsforseti, t.h., og fráfarandi forsætisráðherr- ann, Ivars Godmanis, eftir að forsetinn féllst á afsagnarbeiðni Godmanis. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VINNUMARKAÐUR „Sjávarútvegsfyrirtækin klára sig flest og það þurfa að vera einhverjar sérstakar aðstæður ef þau klára sig ekki. Ég á alls ekki von á því að verði fleiri gjaldþrot þar en í öðrum greinum,“ segir formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson. Þótt vitanlega verði erfiðleikar í sjávarútvegi sem annars staðar, þá verði þeir bundnir við um 30 pró- sent fyrirtækja. Um 70 prósent þeirra séu hins vegar betur stödd. Verst sé óvissan, meðan ekki er gert upp við fyrirtækin um gjaldmiðlaskiptasamninga. Samkvæmt nýrri könnun samtakanna stefna 53 prósent fyrirtækja, sem eiga aðild að samtökunum, á óbreyttan rekstur en 17 prósent hyggjast bæta við sig fólki. Um 30 prósent ætla að fækka starfsmönnum. Vilhjálmur segir þetta svipaðar niðurstöður og komu fram í könnun sem gerð var í fyrrasumar. Hann getur ekki sagt til um hvaða fyrirtæki það eru sem ætla að bæta við sig starfsfólki, en telur líklegt að ferðaþjónustan komi þar við sögu ásamt útflutn- ingsiðnaði. Samkvæmt könnun SA verða allt að 19.000 manns atvinnulausir á Íslandi í maí. - kóþ Niðurstöður könnunar Samtaka atvinnulífsins svipaðar og þær voru í fyrrasumar: Útvegsfyrirtæki klára sig flest FISKVINNSLA Formaður Samtaka atvinnulífsins á ekki von á að gjaldþrot verði fleiri í sjávarútvegi en öðrum greinum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.