Fréttablaðið - 24.02.2009, Blaðsíða 20
16 24. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Kvenfélagið Líkn í Vestmannaeyj-
um hefur starfað í eitt hundrað ár og
aldrei verið öflugra en nú.
„Félagar eru um 126 í Líkn og hefur
félagið mikið yngst upp síðustu tvö
árin,“ útskýrir Ágústa Árnadóttir,
formaður félagsins. Hún segir við-
horfið til kvenfélaga vera að breytast.
„Fólk hugsar ekki lengur að í kvenfé-
lögum séu bara „gamlar kerlingar“ .
Við erum að reyna að höfða meira til
yngri kvennanna því þetta er virki-
lega skemmtilegur félagsskapur. Við
fundum sex sinnum á ári og erum með
skemmtikvöld og árvissa óvissuferð á
haustin svo eitthvað sé nefnt.“
Aðalstarfsemi félagsins er eins
og nafnið gefur til kynna að hjálpa
öðrum. Það hefur verið markmið fé-
lagsins í þau hundrað ár sem það
hefur starfað. Halldór Gunnlaugsson
héraðslæknir stofnaði félagið á sínum
tíma vegna ástandsins í bænum eftir
aldamótin og var jafnframt fyrsti og
eini karlmaðurinn í félaginu. „Hall-
dór fékk í lið með sér 25 konur árið
1909 til að stofna kvenfélag en hér
var mikil fátækt og mikið um sjóslys.
Margar fjölskyldur áttu því erfitt og
kvenfélagið átti að sinna því. Það
fjölgaði hratt í félaginu fyrstu árin og
stóð svo nokkuð í stað þangað til fyrir
nokkrum árum. Félagið hefur alla tíð
verið mjög duglegt að gefa og gefur
mikið til sjúkrahússins hér í bænum.“
útskýrir Ágústa en 1. desember ár
hvert stendur félagið fyrir kaffisölu
til fjáröflunar fyrir sjúkahúsið auk
þess að standa fyrir hátíðarhöldum
á 17. júní og merkjasölu. Starfsemi
Líknar er því stór hluti félagsstarfs-
ins í bænum.
Ágústa tók við formennsku nú í
febrúar en hún gekk í félagið árið
2002 eftir að hafa, í gegnum vinnu
sína á sjúkrahúsinu, orðið áþreifan-
lega vör við mikilvægi félagsins. „Á
ferð minni hér um gangana sá ég svo
marga hluti merkta „Gjöf frá kvenfé-
laginu Líkn“. Ég varð svo stolt fyrir
þeirra hönd að ég vildi taka þátt í
starfinu,“ útskýrir Ágústa.
„Auk þess stöndum við fyrir spila-
kvöldum fyrir eldri borgara og fleiri
uppákomum og samfleytt í áttatíu ár
stóðum við fyrir nýársfagnaði eldri
borgara. Það datt upp fyrir því Félag
eldri borgara er sjálft svo öflugt að
fólkið hefur nóg að gera. Á afmælis-
árinu ætlum við okkur að vera stór-
tækar í gjöfum og vel sýnilegar. Við
bíðum bara eftir lista frá sjúkrahús-
inu yfir hvað vantar í rauninni.“
Laugardaginn 14. febrúar hélt fé-
lagið afmælishóf þar sem konur voru
heiðraðar og var Anna Þorkelsdóttir
meðal annars gerð að heiðursfélaga
fyrir vel unnin störf en hún sinnti for-
mennsku í 18 ár. Kvöldið áður stóð fé-
lagið fyrir styrktartónleikum fyrir
langveik börn í Vestmannaeyjum þar
sem komu fram listamenn af staðn-
um sem gáfu vinnu sína. Ágústa segir
félagskonur ánægðar með hvernig til
tókst og þakkar bæjarbúum gott gengi
kvenfélagsins á síðastliðnum 100
árum. „Við gætum þetta ekki nema af
því að bæjarbúar taka alltaf svo vel á
móti okkur og með þessu áframhaldi
starfar félagið áfram næstu hundrað
árin.“ heida@frettabladid.is
KVENFÉLAGIÐ LÍKN: FAGNAÐI 100 ÁRA STARFSAFMÆLI 14. FEBRÚAR
Bæjarbúar hafa staðið á bak
við kvenfélagið í heila öld
STJÓRNIN Á AFMÆLISDAGINN Kvenfélagið fagnaði 100 ára starfsafmæli laugardaginn 14.
febrúar. Ágústa Árnadóttir formaður í miðið. MYND/LÍKN
OSCAR DE LA HOYA
ER 36 ÁRA
„Það er alltaf hægt að
bæta sig, sama hversu
lengi maður hefur verið
í bransanum.“
Hnefaleikakappanum
Oscar De la Hoya hefur
verið líkt við hnefaleika-
meistara á borð við Sugar
Ray Leonard og er jafnan
nefndur „Gulldrengurinn“
í boxheiminum.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
systir og amma,
Sólborg Marinósdóttir
lést á Landspítalanum hinn 23. febrúar síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Rudolf Ásgeirsson
Ásgeir Marinó Rudolfsson
Sverrir Þór Rudolfsson
Anna Rudolfsdóttir
tengdabörn, systkini og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Gunnlaugur Þorláksson
stýrimaður, Grundarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 22.
febrúar. Sérstakar þakkir til Karítas og líknardeildar
Landspítalans fyrir góða umönnun. Útförin auglýst
síðar.
Þórdís Jeremíasdóttir
Þorlákur Ó. Snæbjörnsson
Agnar Þór Gunnlaugsson Ingileif Ágústsdóttir
Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir Friðjón A. Marínósson
Steinunn Marta Gunnlaugsdóttir Styrmir Kristjánsson
Kristófer Andri, Róbert Aron, Sara Rut, Helena,
Gunnlaugur,
systur og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
auðsýnduð okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
Jóhönnu Margrétar
Björgólfsdóttur
Sörlaskjóli 94,
síðast til heimilis að dvalar- og hjúkrunarheimil-
inu Grund. Alúðarþakkir færum við öllu starfsfólki
Grundar en þó sérstaklega þeim sem starfa á deild V-2
fyrir frábæra umönnun og elskulegt viðmót.
Guð blessi ykkur öll.
Hulda Filippusdóttir
Ingirós Filippusdóttir
Sveinn Filippusson Steinunn Erla Marinósdóttir
María Björg Filippusdóttir Brynjólfur Jóhannesson
Sigurður Pálsson
Jóhann Filippus Filippusson Anna Emilía Nikulásdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Magnúsdóttir
Fellsmúla 22,
lést hinn 16. febrúar á hjúkrunarheimilinu Eir.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
24. febrúar kl. 15.00.
Björn Sigurður Benediktsson Margrét Kristín
Finnbogadóttir
Haraldur Benediktsson Brynja Halldórsdóttir
og aðrir ástvinir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir,
mágur og afi,
Albert Leonardsson
Hjallalundi 18, Akureyri,
lést mánudaginn 16. febrúar. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn 26. febrúar kl. 13.30.
Ásthildur Albertsdóttir Said Hasan
Ásta Albertsdóttir Ólafur Friðfinnsson
Karoline Leonardsson
Halldór G. Guðjónsson Ulla-Brit Guðjónsson
Björgvin Leonardsson Natsha Yfnova
Guðrún Lóa Leonardsdóttir Birgir Stefánsson
og barnabörn.
Móðir okkar,
Pálína Halldórsdóttir
frá Ólafsvík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 20. febrúar.
Jarðsett verður frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
28. febrúar kl. 14.00.
Börn hinnar látnu og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinbjörn Guðbjarnason
Vesturvangi 22, Hafnarfirði,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 19. febrúar. Jarðarförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 27. febrúar kl. 15.00.
Sigríður Magnúsdóttir
Magnús Sveinbjörnsson Ingibjörg Steina
Eggertsdóttir
Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson Dagbjört Lára
Helgadóttir
Vilhjálmur Davíð Sveinbjörnsson Elísa Kristinsdóttir
Viðar Freyr Sveinbjörnsson Eva Hauksdóttir
afabörn og langafabörn.
Buckinghamhöll til-
kynnti um trúlofun
Karls Bretaprins, erf-
ingja bresku krúnunn-
ar, og Díönu prins-
essu af Wales þenn-
an dag fyrir 29 árum.
Parið gekk í það heil-
aga 29. júlí sama ár
með pomp og prakt
og er jafnan talað
um brúðkaup aldar-
innar. Þau eignuðust
drengina William og Harry en hjónabandið varð ekki hamingju-
ríkt. Karl sleit aldrei sambandi sínu við fyrrverandi vinkonu sína,
Camillu Parker Bowles, og svo fór að Karl og Díana skildu árið
1995. Díana lést sviplega í umferðarslysi árið 1997 ásamt ást-
manni sínum og var syrgð um allan heim. Karl opinberaði sam-
band sitt við Camillu og giftist henni árið 2006.
ÞETTA GERÐIST: 24. FEBRÚAR ÁRIÐ 1981
Tilkynnt um trúlofun
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.