Tíminn - 05.07.1988, Qupperneq 5
Þriðjudagur 5. júlí 1988
Tírriihn 5
Gjaldmiðilsbreytingar hjálpa frystingunni:
Styrking dollarans
minnkar tap um 50%
Á síðustu vikutn hefur sú þróun orðið að doilarinn hefur styrkst
gagnvart íslensku krónunni. Þannig styrktist hann um 13 aura um
síðustu helgi. Þetta þýðir í raun og veru að við fáum færri
bandaríkjasent fyrir hverja krónu. Þessi þróun hjálpar liskvinnsl-
unni mikið, enda er stór hluti físksöiu í dollurum. Þannig segir
Bjarni Lúðvíksson, framkvæmdastjóri hjá SH að tap frystingar-
innar hafí með þessu minnkað úr 10% í 5%.
Benedikt Valsson, hagfræðíngur
Þjóðhagsstofnunar tók ekki eins
djúpt í árinnni.
„Auðvitað er þetta tekjuaukandi
eitt og sér. Það þarf hins vegar að
líta líka á annarra gjaldmiðla, en
þeir hafa veikst mikið, t.d. jap-
anska yenið og breska sterlings-
pundið. Hins végar hefur það orðið
þróunin síðustu ár að dollarinn
hefur minnkað vægi sitt í sölunni"
sagði Benedikt, í samtali við
Tímann.
Hann benti á að 1985 hefðu 58%
sjávarvara verið seldar fyrir doll-
ara, árið eftir hefði hlutfallið verið
komið í 49% og á síðasta ári hefði
það verið 46%.
„Auðvitað er þetta samt reiknis-
kúnst, því t.d. saltfiskurinn fylgir
SDR skráningu. Uppgjörið fer
fram í dollurum og er miðað við
samningstíma og þar til varan hefur
yfirgefið höfn. En dollarinn tapaði
vægi á síðasta ári. Þannig var mikið
selt af freðfiski, sem er hefðbund-
inn Bandaríkjaafurð, til Bretlands
og Frakklands" sagði Bcnedikt.
Seinheppni í
yenviðskiptum
Ef iitið er á freðfiskinn einan
sér, þá var 78% hans seldur fyrir
dollara á Jrinu 1985. Ári síðar var
hlutfallið orðið 68% og á síðasta
ári var 62% freðfisks seldur fyrir
dollara.
„Maður sér líka að hefðbundnar
afurðir sem seldar hafa verið, t.d.
til Japan eru nú seldar í yenunt í
stað dollara eins og áöur. Hvort
þeir reyni að endursemja eða hvað
veit maður ekki, en vissulega er
hægt að tala um seinheppni í þessu
sambandi, því yenið hefur veikst
aiveg gífurlega upp á síðkastið.
Við erum að tala um 10% lækkun
gagnvart krónunni meðan dollar-
inn hefur hækkað um 3-4%. Ef
ekki fást breytingar á samningun-
um, þá er þetta vissulega bakslag
fyrir þá sem hafa verið að skipta úr
doilurum í yen“ sagði Benedikt.
l’að liggur hins vegar fyrir að
búið er aðselja Rússum fiskogþað
er í dollurum. Líklegt má telja að
mjöl og lýsi verði selt í santa
gjaldmiðli og einnig má teija nokk-
uð víst að framleiðendur muni
færa sig unt set frá Evrópu.
Framleiðendur sóðla um
„Að öllu öðru óbrcyttu, þá segir
það sig sjáift að framleiðendur
hljóta að leita á dollarasvæöi. Ef
dollarinn heldur sínu striki, þá segi
ég það eðlileg viðbrögð" sagði
Benedikt.
Hann vildi hins vegar ekki segja
til unt að hve miklu leyti þetta
hjálpaði fiskvinnslunni í þeint
vanda sem hún er stödd núna.
„Þetta hjálpar óneitanlega þeim
sem selja á Bandaríkjamarkað, en
hve mikið, það er ómögulegt að
segja til um" sagði Benedikt.
50% lækkun á tapi
frystingar
Bjarni Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, sagði alvcg
Ijóst að styrking dollarans undan-
farna daga og vikur hjálpaði til.
„ Við erum raunar að tala um 3%
liækkun fyrir fiskvinnslunna frá
gengisfellingu. I’etta lagar stöð-
una, en ekki nóg. Við höfum sagt
að það hafi verið með uppundir
10% tap á frystingunni, en ætli það
sé ekki komið niður í um 5% eftir
þessa hækkun. Minna er tapið
ekki" sagði Bjarni í samtali við
Tímann í gær.
Hann sagði að þeir væru nær
uppiskroppa með flök á Evrópu-
rnarkað, en ættu hins vcgar birgðir
í Bandaríkjunum.
Fiskur og ullarsokkar
„Það er ekki svo auðvelt að
keyra upp magn nema menn séu
tilbúnir til að eiga birgðir. Ástand-
ið er hins vegar þannig að menn
velta frekar fyrir sér hvar er hægt
að fá fyrst borgað, frekar en hvar
langtíniagróðinn er. Menn vilja
koma peningum í einhverja sem
eru að glefsa í þá“,sagði Bjarni.
Bjarni benti ennfrentur á að
söiutíminn í Bandaríkjunum væri
ekki ýkja góður núna. Nú stæðu
yfir sumarfrí, hitar væru ntiklir, og
„raunar er þctta cins og að vera
með ullarsokka. Það talar enginn
um fisksölu við þig" cins og Bjarni
orðaði það.
Hann sagði hins vegar að línur
ntyndu skýrast seinni part ágúst-
mánaðar og fyrri part septémber.
-SÓL
Vel heppnað
fjórðungsmót
Nokkrir vígreifir verðlaunahafar á Fjórðungsmótinu. (Ljósm. Kari Höskuidur Guaiaugssun)
Alls 5000 manns sóttu fjórðungs-
mótið á Kaldármelum um helgina
sem fór mjög vel fram í alla staði, að
sögn Tryggva Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra mótsins.
„Við hefðum að vísu getað verið
heppnari með veðrið en það var
norðangustur," sagði Tryggvi.
Sjö hestamannafélög stóðu að
mótinu í sameiningu.
Tryggvi sagði að fjöldinn sem sótti
mótið hefði farið fram úr öllum
vonum, en áður en það hófst höfðu
forráðarmenn þess gert sér vonir um
að,í það minnsta 3000 manns myndu
sækja mótið.
Dagskráin á fjórðungsmótinu var
fjölbreytt. Á daginn kepptu knapar
og hestar, en þegar sól tók að hníga
var haldið uppi kvöldvökum, dans
var stiginn og ýmsir skemmtikraftar
sáu um að halda uppi fjörinu.
Björgunarsveitir héldu uppi gæslu
á mótinu, en að sögn Tryggva mæddi
ekki mikið á þeim því mótið fór
mjög vel fram.
Helstu úrslit á mótinu voru eftir-
farandi:
A-flokkur gæðinga:
1. Fengur (Snæfellingur) 8.50
Eigandi: Gunnar Jónasson
Knapi: Sigurbjörn Bárðarson
2. Drottning (Dreyri) 8.29
Eigendur: Ómar Marteinsson og
Dóra L. Hjaltalín
Knapi: Gísli Gíslason
3. Höldur (Dreyri) 8.26
Eigandi: Bjarni Guðmundsson
Knapi: Jón Árnason
B-flokkur gæðinga:
1. Sörli (Faxi) 8,48
Eigandi: Þorsteinn Valdemarsson
Knapi: Ragnar Hinriksson
2. Óðinn (Snæfellingur) 8.44
Eigandi: Hjörtur Sigurðsson
Knapi: Guðmundur Bæringsson
3. Frami (Snæfellingur) 8.38
Eigandi: Ásbjörn K. Pálsson
Knapi: Olil Amble
Gæðingakeppni unglinga:
1. Ármann Ármannsson (Dreyri)
8.43
á Glampa Jóns Sigurðssonar
2. Þorkell Kristinsson (Stormur)
8.29 á Fálka sínum.
3. Bjarni Jónsson (Kinnskæ) 8.41 á
Geisla Bergljótar Bjarnadóttur
Gæðingakeppni barna:
1. Reynir Áðalsteinsson (Dreyri)
7.94 á A1 Hörpu Finnbogadóttur.
2. Halldór Kristjánsson (Snæfelling-
ur) 8.13 á Funa sínum.
3. íris H. Grettisdóttir (Glaður) 7.95
á Grána sínum.
150 metra skeið:
1. Smári 15,5 sek.
Eigandi og Knapi: Guðmundur
Ólafsson
2. Lýsa 16,1 sek.
Eigandi og knapi: Þorgeir Guðlaugs-
son
3. Draumur 16,3 sek.
Eigandi ogknapi: ErlingKristinsson
250 metra skeiö:
1. Börkur 23,8
Eigandi og knapi: Tómas Ragnars-
son
2. Glaumur 24,4 sek.
Eigandi og knapi: Guðlaugur Ant-
onsson.
3. Snarfari 24,7 sek.
Eigandi og knapi: Sigurbjörn Bárð-
arson
300 metra brokk:
1. Svarri 34,9 sek.
Eigandi: María Eyþórsdóttir
Knapi: Marteinn Valdemarsson
2. Lukka 43,0 sek.
Eigandi: Ólafur Jónsson
Knapi: Jens P. Högnason
3. Glófaxi 44,6 sek.
Eigandi: Högni Högnason
Knapi: Lárus Hannesson
250 metra stökk:
1. Elías 18,9 sek.
Eigandi:Guðni Kristinsson
Knapi: Magnús Benediktsson
2. Blossi 20,0 sek.
Eigandi: Pétur Kjartansson
Knapi: Ólafur Björnsson
3. Andvari 20,3 sek.
Eigandi: Jens P. Guðnason
Knapi: Ómar Grímsson
300 metra stökk:
1. Valsi 26,5 sek.
Eigandi: Guðni Kristinsson
Knapi: Magnús Benediktsson
2. Kolbrún 26,8 sek.
Eigandiogknapi: Sigurlaug A. Auð-
unsdóttir
3. Gustur 27,4 sek.
Eigandi: Gísli Einarsson
Knapi: Gunnar Guðmundsson
800 metra stökk:
1. Lýsingur 62,5
Eigandi: Fjóla Runólfsdóttir
Knapi: Magnús Benediktsson
2. Lótus 62,6 sek.
Eigandi: Kristinn Guðnason
Knapi: Jón Guðmundsson
3. Léttir 63,0 sek.
Eigandi: Guðbjörg Þorvaldsdóttir
Knapi: Sigurlaug A. Auðunsdóttir.
IDS
VEIÐIHORNIÐ'
Umsjón Eggert Skúlason
Glaðnar yfir Grímsá
Á sunnudagskvöld voru komnir
um 280 laxar úr Grímsá. Eftir
mjög góða byrjun þegar áin var
opnuð, gekk heldur treglega, en
nú virðist ætla að verða bót á því.
Sturla Guðbjarnarson í Fossatúni,
sem hefur umsjón með ánni sagði
í samtali við Tímann að loks virtist
fiskurinn vera að dreifa sér um alla
á. Að sögn Sturlu gekk óhemju
mikið af fiski í ána og var hún blá
af fiski neðan til, en laxinn fór sér
hægt á leið upp. Þó sagðist Sturla
nú sjá þess merki að fiskurinn
hefði dreift sér.
Þessi þróun hcfur eðlilega gert
það að verkum að lítið hcfur veiðst
ofan til í ánni. Þó hefur þessi
tregða ekki verið alslæm, því nýir
veiðistaðir hafa litið dagsins Ijós.
Hefðbundnir stoppstaðir laxins
hafa hreinlega ekki getað tekið við
öllum fiski sem neðst var í ánni og
hefur hann leitað á önnur mið.
Uppistaðan í fískinum sem
veiðst hefur til þessa er sntáiax. Sá
stærsti vó sautján pund og var það
Kristmundur Jónsson sem dró
hann á maðk.
Aðspurður um áframhaldandi
gengi í sumar, sagðist Sturia vera
mjög bjartsýnn.
Eins og lesendur Veiðihornsins
rekur minni til var viðtal við Runólf
veiðivörð í Langá í síðustu viku.
Þar tók hann stórt upp í sig og
spáði BINGO veiði um hclgina.
Stóru orðin reyndust rétt og á
fimmtudag fór að veiðast á neðsta
svæðinu. Þrjátíu fiskar á neðsta
svæðinu á fimmtudag, fjörutíu á
föstudag, sextán á laugardag, 29 á
sunnudag og fimmtán fyrir hádegi
í gær. 130 fiskar í aflahrotu er
stendur enn.
Samtals voru komnir um 250
fiskar úr Langá á hádegi í gær.
Veiði á iniðsvæðinu var að taka við
sér.