Tíminn - 02.07.1988, Page 4

Tíminn - 02.07.1988, Page 4
14 HELGIN Laugardagur 2. júlí 1988 Ethel Kennedy talar við mann sinn á hverju kvöldi þó að 20 ár séu liðin frá dauða hans Um þessar mundir eru 20 ár liðin síðan Robert Kennedy féll fyrir morðingjahendi. Ekkja hans, Ethel, er þó ekki enn búin að komast yfir áfallið. Hún hefur litað á sér hárið í mörg ár en það var orðið snjóhvítt. Hins vegar koma djúpar andlitshrukkurnar upp um aldur hennar. Ethel Kennedy varð sextug í maflok. í tilefni afmælisins komu saman börn hennar, þau 10 sem eftir lifa, tengdabörn og barnabörn og héldu henni góða veislu á fjölskyldusetr- inu Hickory Hill í Virginiafylki. Börnin höfðu lagt sig í líma við að gleðja ættmóðurina en hún lagði fátt annað til málanna en að segja utan við sig „Ef bara pabbi ykkar væri enn á lífi“. Það nægði til þess að dóttir henn- ar Kerry grét af reiði. Öll vonbrigð- in sem hafa hlaðist upp innra með henni brutust út þegar hún sagði: “í 20 ár hefur móðir okkar talað í bæn við látinn föður okkar. f hennar aúgum á hann hamingjusama til- veru á himnum og bíður bara eftir að fá hana til sín einn góðan veður- dag. Við börnin hennar erum varla til í augum hennar." í þessum orðum dóttur Ethelar felst talsverður sannleikur. Hinn hræðilegi og óvænti dauðdagi manns hennar fyrir 20 árum gekk líka af tilfinningalífi hennar dauðu, henni er jafnvel sama um börnin sín. „Guð minn góður hvað við vor- um hamingjusöm," hefur hún sagt. Einhverja albestu stund lífs síns upplifði Ethel Kennedy kvöldið 4. júní 1968 í danssal Hótels Ambass- ador í Los Angeles. Robert Kennedy hafði unnið tilnefningu demókrata til forsetaframboðs og honum og konu hans var fagnað ákaft af viðstöddum en Ethel var Það gladdi Ethel mikið þegar elsti sonur hennar, Joe Kennedy, náði kosn- ingu til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Hin syrgjandi ekkja Ethel Kennedy 1968 með tveim barna sinna. Robert Kennedy liggur hér í blóði sínu á Hótel Ambassador í Los Angeles. Þrem stundum síðar var hann liðið lík. BÆNDUR - HELGARÞJÓNUSTA Varahlutaverslun okkar Ármúla 3, verður opin á laugardögum í sumar frá kl. 10.00 f.h. til kl. 14.00 e.h. Komið eða hringið Beinn sími við verslun 91-39811 Greiðslukortaþjónusta BÚNADARDEILD SAMBANDSINS ÁRMULA3 REVKJAVlK SlMI 38900

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.