Tíminn - 02.07.1988, Blaðsíða 8
18
HELGIN
Laugardagur 2. júlí 1988
SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SA
Komau
aftur
Ekki bar á öðru en Söndru Mallow
liði prýðisvel á nýjum bústað sínum
í Eastwood í Rotherham í Englandi,
eftir að hún settist þar að ásamt
eiginmanninum John og Anthony
syni þeirra.
Þau hjón höfðu verið gift í átta ár
og virtust hin ánægðustu með lífið.
Raunar var þó ekki allt sem sýndist
þar og þó að Sandra væri broshýr,
var hún ekki allskostar hamingju-
söm, hvað brátt kom á daginn.
Á leið í verslanir þurfti hún að
ganga fram hjá nokkurri röð einbýl-
ishúsa. í einu þeirra átti Richard
Pearse heima. Hann var atvinnulaus
og hélt sig heima við megnið af
deginum. Hann veitti athygli þessari
ungu konu, sem átti svo oft leið
framhjá á morgnana og brátt fór
hann að haga þannig til að vera úti í
garðinum, svo hann gæti heilsað
henni.
Fagnaði athyglinni
Söndru var talsvert í mun að
eignast einhverja vini á nýja staðn-
um og þess vegna heilsaði hún
hjartanlega, þegar hinn 41 árs gamli
Richard bauð góðan dag og brosti til
hennar.
Það sem ekki hvarflaði að henni í
fyrstu, var að hann túlkaði alúð
hennar þannig að hún vildi gjarnan
verða eitthvað meira en kunningja-
kona hans. Þess vegna tók hann upp
að eiga erindi í verslanirnar á sama
tíma og hún, í von um að koma á
nánara sambandi.
Maureen, hin 39 ára gamla eigin-
kona Richards, var bara fegin að
hann fór eitthvað í eina eða tvær
klukkustundir. í>á hafði hún stund-
arkorn út af fyrir sig.
Til að byrja með fagnaði Sandra
því að Richard Pearse sýndi henni
svo mikla athygli, en varð þess
fljótlega vör að hann sóttist eftir
meira en bara félagsskap hennar.
Þar að kom að hann greip um mitti
hennar og sagði sem svo að þau gætu
vissulega notið lífsins saman. Sandra
brást við með að vísa honum mjög
ákveðið á bug, en fann þó jafnframt
til vissrar spennu við að finna að hún
gekk í augun á karlmanni.
Ófrísk
Neistinn var að kulna í hennar
eigin hjónabandi og smávegis sak-
leysislegt daður var kærkomin til-
breyting í fremur fábreytilegt hvers-
dagslíf.
Þó að hún vissi ósköp vel, að það
var rangt að gangast upp í athygli
Richards, kærði hún sig ekki um að
hann hætti að sækjast eftir návist
hennar. Þegar allt kom til alls, þurfti
hún ekki að skammast sín fyrir neitt.
Áður en hún vissi af, var hún búin
að fá mun meiri áhuga á Richard, en
hún hafði ætlað sér og dag einn
ákváðu þau að hittast á laun.
Það gerðist heima hjá Söndru og
næstu mánuðina áttu þau þar ásta-
Sandra Mallow með sonum sínum,
Marcus og Anthony.
mann sinn, gerði honum ókleift að
treysta henni nokkurn tíma.
Vissulega urðu þetta Söndru von-
brigði og smám saman rann upp fyrir
henni að ekki stoðaði að tala hann
til. Þannig hafði hún ekki hugsað sér
að sambandið endaði. Samt vildi
hann halda áfram að hitta hana rétt
eins og áður og hafa engar skyldur
gagnvart henni. Sandra kærði sig
bara ekkert um slíkt lengur.
Þrátt fyrir það lofaði hún þessu að
halda áfram um tíma. Það hvarflaði
að henni að slíta sambandinu alveg,
en þegar hún hugsaði um það, vildi
hún ekki missa hann.
Komdu aftur
í maí 1987 fór Richard að verða
leiður á henni og kom stöðugt með
nýjar afsakanir fyrir að geta ekki hitt
hana. Fljótlega skildist Söndru hvað
var að gerast, svo hún ákvað að
reyna að vinna ást hans á ný, með
því að taka sér annan elskhuga.
Fyrir valinu varð hinn 37 ára gamli
Anthony Glebe. Sandra var ekkert
sérstaklega hrifin af honum, en taldi
hann geta þjónað tilganginum prýði-
lega.
Svo brá þó við að í stað þess að
verða afbrýðisamur, notaði Richard
kærkomið tækifæri til að slíta öllu
sambandi við Söndru. Næstu vikurn-
ar bað og þrábændi hún hann um að
koma aftur, en hvorki bænir né tár
stoðuðu hið minnsta. Til þess að
þurfa ekki að láta sér nægja aðeins
eiginmanninn, John, sem hún elsk-
fundi sína á morgnana, þegarSandra
var ein heima. Richard fannst lífið
orðið bærilegt á ný og naut þess að
geta slakað á frá þeim vandamálum
sem hann átti við að glíma vegna
atvinnuleysisins.
Sjö mánuðum síðar tilkynnti
Sandra að hún væri ófrísk og hann
ætti barnið.
Gat ekki hætt
í augum Söndru var þetta loka-
sönnun þess að hjónaband þeirra
Johns var ekki eins og það átti að
vera. Hún kærði sig ekki um að
halda áfram að fara svona á bak við
hann og stakk upp á að þau Richard
fengju bæði skilnað og færu að búa
saman.
Það tók Richard hins vegar ekki í
mál. í fyrsta lagi var hann verkamað-
ur, en Sandra dæmigerð miðstéttar-
kona. í öðru lagi hafði hann engar
tekjur og gæti því ekki séð fyrir
heimili. Loks sagði hann að það
hvernig hún kæmi fram við eigin-
Richard Pearse með konu sinni Maureen, sem hann vildi ekki yfirgefa.
Sandra Mallow var gift, en yfir sig ástfangin af
nágrannanum, Richard Pearse. Þau eignuðust
barn saman, en svo varð hann leiður á henni og
sleit sambandinu. Sandra tók sér nýjan elsk-
huga til að vekja afbrýði hans, en það hefði hún
betur látið ógert...
til mín
A ArAJk JT á. &
* ± 3