Tíminn - 02.07.1988, Blaðsíða 11

Tíminn - 02.07.1988, Blaðsíða 11
Laugardagur 2. júlí 1988 HELGIN I 21 I BETRI SÆTUM LUJ Critical Condition: Á fall- andi fæti hjá kall- greyinu Stjömugjöf = ★ Aðalhlutverk: Richard Pryor, Rachel Ticotin, Ruben Blades Leikstjóri: Michael Apted Það er nú hreint og beint sorglegt að fylgjast með Ric- hard Pryor og hvernig honum hnignar með hverjum deginum sem líður. Maðurinn sem Eddie Murphy dáði og dýrk- aði, er nú algjört hræ sem selur sálu sína hæstbjóðanda og það sést kannski best á nýjustu afurð hans á íslenska mynd- bandamarkaðnum, Critical Condition, sem Regnboginn sýndi hér fyrir ári. Myndin segir frá misheppn- uðum kaupsýslumanni, Lenni- han, sem leitar aðstoðar okrara og krimma, Mazzini að nafni, þar sem allt er komið í hönk hjá honum. Löggan hefur hins vegar komið fyrir míkrafóni á honum til að klófesta okrar- ann. Lennihan lendir því í súpunni þegar handtakan fer fram. Löggan heldur að hann sé krimmi og Mazzini að hann sé svikari. Hann er dæmdur í eins árs fangavist, í sama fang- elsi og okrarinn. Sá kemur honum í skilning um að þar bíði hans ekkert nema dauð- inn. Pryor bregður á það ráð að reyna að láta dæma sig geð- veikan og þar upphefjast hin ýmsu ævintýri. En eins og allar amerískar myndir, þá endar þessi mynd alveg afskaplega vel. Þetta er hreint og beint af- skapleg b-mynd. Frumleikinn er ótrúlega lítill og maður hef- ur séð öll þessi atriði í mörgum myndum áður. Það sést vel að Pryor er kominn í mikla klemmu á andlega og peninga- lega sviðinu og hann er fallinn í sömu gryfju og margir aðrir Hollywood leikarar, að leika í öllum myndum sem honum bjóðast. Pessi mynd er uppfull af aulahúmor og leiðindum og ekkert annað. -SÓL Myndbandaleigur hækka verö á spólunum: FARA ÚR 250 í 300 KRÓNUR Myndbandaleigur innan Sam- bands íslenskra myndbandaleiga og einnig hluti annarra leiga, hafa ákveðið að hækka verð á útleigu á spólum og gekk hækkunin í gildi í gær. Par með hækkaði verðið unt 50 krónur, úr250 krónum í 300 krónur. Að sögn starfsmanns SÍM eru þetta ekki saniræmdar aðgerðir, né heldur gerðar í nafni samtakanna. heldur hafi mönnum einfaldlega fundist vera kominn tími til að hækka. Hækkanirnar hafi venjulega fylgt í kjölfarið á hækkun bíómið- ans, sem nú stendur í tæplega 300 kallinum. Þá sagði starfsmaðurinn að myndbönd hefðu ekki hækkað síðan á síðasta ári og hækkunin væri því ekki nema eðlileg með tilliti til annarra hækkana í þjóðfclaginu. ____________ -SÓL Mikið að gera á myndbandaleigum Yfirleitt eru sumarmánuðirnir erfiðir fyrir eigendur myndbanda- leiga. Oft er þá mjög lítið að gera og fólk notar blíðviðrið og birtuna til að spóka sig úti. Á suð-vesturhorni landsins hefur þetta hins vegar ekki verið raunin í sumar og reyndar sjaldan verið jafn mikið að gera á sumum myndbanda- leigum og einmitt nú í júnímánuði. „Pað er ekki nema von, þetta hefur ekki verið neitt sumar hér í júní. Petta er búið að vera mildur vetur,“ komst eigandi einnar myndbanda- leigunnar að orði í samtali við Tím- ann í gær. „Það er alltaf mest að gera þegar veður er slæmt, hvort sem það er vetur eða sumar,“ sagði starfsmaður á Myndbandaleigu kvikmyndahús- anna og bætti því við að í byrjun vikunnar hefði strax orðið vart við breytingu en þá gægðist sólin fram úr skýjunum í fyrsta skipti í lengri tíma og leiga á myndböndum datt niður að sama skapi. Starfsmenn annarra myndbanda- leiga tóku í sama streng. Sögðu júnímánuð hafa verið mjög góðan en hins vegar var víða lítið að gera í maí. IDS „TOPP TUTTUGU“ Það Itala ekki orðið miklar Itreylingar á toppi listans þessa vikuna. Kjórar vinsælustu inyiuliruar eru á síniini stað, óhagganlegar. Linimgis þrjar nyjar niyndir komu inn á listann og er það óvenjii litið. Kn svona lítur liann út. 1. ( 1) Innerspace (Steinar) 2. ( 2) Dirty Dancing (J.B. Heildsaia) 3. ( 3) Something Wild (Skífan) 4. ( 4) Raising Arizona (Steinar) 5. ( 6) TheJerk (Laugarásbíó) 6. ( 5) No Mercy (Steinar) 7. ( 8) Roxanne (Skífan) 8. ( 7) Hands of a Stranger (J.B. Heildsala) 9. (10) Otto #2 (Myndbox) 10. (11) WiseGuy (J.B. Heildsala) 11. (13) Dudes (Steinar) 12. (17) Critical Condition (Háskólabíó) 13. ( 9) Rent-A-Cop (J.B. Heildsala) 14. (18) Whistle Blower (J.B. Heildsala) 15. (-) White Water Summer (Skífan) 16. (-) Amazing Stories #4 (Laugarásbíó) 17. (-) He’s My Girl (Myndbox) 18. (15) Lady Beware (Myndbox) 19. (19) PositivelD (Laugarásbíó) 20. (16) CaseClosed (Steinar) Spurningaleikur „í betri sætum“: Nöfn vinningshafanna Dregið hefur verið í spurningaleik „í betri sætum“. Upp komu þrjú nöfn og reyndust allir hafa rétt svör. Spurt var um mynd Stanley Kubrick, Skothylkið. Vinningshaf- arnir reyndust allir vera karlkyns, og getur verið að kvenþjóðin hafi ekki haft mikinn áhuga á myndinn: sökum innihalds. En nóg um það Hér eru rétt svör: 1. 2001, A Space Oddity, Lolita, Shining, Dr. Strangelove, A Clockwork Orange. 2. Nýbýlavegur 4 3. Skothylkið 4. Born to kill (Fæddur til að drepa) 5. Matthew Modine, Adain Baldwin, Vincent D'Onofrio, Dorian Harewood, Lee Ermey. Hér birtum við... Hér birtum við nöfn vinningshaf- anna: Ágúst Jónsson Sigluvík II V-Landeyjum Garðar H. Magnússon Giljahlíð Borgarfírði Gunnar Stefánsson Breiðagerði 17 Reykjavík Tíminn óskar vinningshöfunum til hamingju og vonast til þess að áhugafólk um myndbönd fylgist áfram með myndbandasíðunni því fleiri spurningaleikir eru á döfinni. Við erum búnir að heyra hljóðið í vinningshöfunum og óska þeim til hamingju með vinninginn. Sem nærri má geta voru þetta ánægjuleg samtöl á báða bóga. Þá vill Tíminn jafnframt þakka Steinum hf. fyrir að gefa verðlaun í spurningaleiknum. Fjöldi úr- lausna barst og það þýðir ekkert að gefast upp þó þitt nafn hafi ekki verið dregið út núna. Það verða fleiri tækifæri. íbúi bar kennsl á hann seint og síöar: Þjófur að nóttu flúði yfir þökin Það gerðist fyrir nokkru að kald- ur trekkur vakti Reykvíking af svefni. en hann hafði gleymt að loka svaladyrunum. Hann bjó á annarri hæð í húsi í gömlu hverfi í borginni og hirti því ekki alltaf um að loka dyrunum. En nú var kalt og því snaraðist hann fram úr rúminu og tiplaði á náttfötunum fram í stofu til að loka kuldagjóst- inn úti. Þá sér hann hvar maður stendur fast að veggnum úti á svölum og lætur lítið fyrir sér fara í rökkrinu. Ibúinn hrekkur í fyrstu við, en stekkur svo til og skellir aftur svalahurðinni. Um leið gat hann virt manninn á svölunum fyrir sér stutta stund. Svo gerði hann lögreglu viðvart. En maður- inn var sporlaust horfinn á braut. Þessa nótt ók lögreglan um hverfið í leit að grunsamlegum tnanni og eftir nokkra eftirgrennsl- an var maður tekinn til yfirheyrslu á lögreglustöðinni, sem ckki gat gert grein fyrir sínum ferðum. íbúinn var kallaður á stöðina til að bera kennsl á hann. Þegar þangað kom sat maðurinn úti í horni og fól andlit sitt í höndum sér, en þcgar hann færði þær frá, þótti íbúanum ólíklegt, að þar væri kominn sami maður og hafði verið á svölum hans áður. Við svo búið var manninum sleppt. Hann var þá hinn glaðasti og sagði íbúanum að hann taldi sig vita hvernig þetta hefði borið að og bauðst til að skýra nánar fyrir honum hvað hann ætti við. Hann fylgdi honum því heim og sýndi hvernig þjófi tækist að komast cftir húsþökunum á svalirnar og sömu leið til baka. Þetta þótti íbúanum líkleg kenn- ing og hugsaöi ekki mcira um það að sinni. Það er svo nokkrum dögunt síðar, þegar íbúinn er á gangi í nágrenninu, að hann sér mann álcngdar og kennir þar manninn á svölunum. Með hrópum tók hann á rás í átt að manninum, sem skaust inn í söluturn og sncri sér þar út að vegg. Þegar fbúinn kom þar inn var hann ekki í neinum vafa. Hann haföi fundið manninn. Og þegar maðurinn sneri sér vtð, sá hann, að þar var kominn sami maður, og áður hafði fylgt honum heim af lögregiustöðinni. íbúinn lét því kyrrt liggja. þj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.