Tíminn - 02.07.1988, Blaðsíða 5
Laugardagur 2. júlí 1988
Stór og hamingjusöm fjölskylda fyrir 20 árum. Eilefta barnið var á leiðinni
þegar Robert Kennedy var drepinn.
David Kcnnedy fylgdist með því í
sjónvarpi ellefu ára gamall þegar
pabbi hans var drepinn. Hann
komst aldrei yfir þann skelfilcga at-
burð og 1984 dó hann af völdum
citurlyfjaneyslu.
Tuttugu ár eru liðin frá því Robert Kennedy var skotinn
til bana en Ethel kona hans talar við hann á hverju kvöldi.
AFMÆLISTILBOÐ
í tilefni þess að 1 ár er liðið frá
því við fluttum í Borgartún 28,
bauð Blomberg okkur takmarkað
magn af úrvals tækjum á hreint
ótrúlegu verði.
Láttu þessi einstöku kaup
ekki fram hjá þér fara
OM 620 uppþvottavélin
• Þvær fyrir 12 manns
• 50-65° hiti, val
• rafþurrkun
• lækkanleg efri grind
• 5 þvottakerfi
• íslensk handbók
• aqua-stop flæðiöryggi
• mjög lágvær
• fæst alhvít og í litum
• 2jaáraábyrgö
Gufugleypir E 601
• Kraftmikill gufugleypir
• hámark 375 m3/klst.
• 3 hraöar
• fitusía sem má þvo
• glergufuhlif
• stillanlegurfráblásturað
framan eða aftan
• kolasía fæst aukalega
• aðeins 43 db á mesta
hraöa
• passarslétt undirskápa
• 5 litir
Blomberq Blomberq
Afmælistilboð
kr. 41.900,-
kr. 39.900,- stgr.
Afmælistilboð
kr. 6.195,-
kr. 5.900,- stgr.
Afmæliskjör á uppþvottavél
kr. 8.000,* við útborgun,
eftirstöðvar á 10 mán.
Einar Farestveit&Co.hf.
BORCARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OO 622900 - NÆG BILASTÆÐI
þá vanfær að ellefta barni þeirra
hjóna. t>au þurftu að fá sér rudda
brautina gegnum fagnandi mann-
fjöldann og Ethel hrópaði stöðugt:
„V'ið höfum unnið, við höfum
unnið.“
Skömmu eftir miðnættið drundi
skothríðin. Skotin hittu Bobby
Kennedy á þessari sigurstundu,
rétt eins og bróðir hans, John F.
Kennedy forseti hafði orðið skot-
spónn morðingja 5 árum áður. Et-
hel lagði blóðugt höfuð manns síns
í kjöltu sér, rétt eins og svilkona
hennar, Jacqueline hafði hagrætt
sínum manni í Dallas 23. nóvemb-
er 1963.
Bobby láágólfinu. Hann varenn
á lífi. Þrír læknar, sem voru meðal
viðstaddra, veittu skyndihjálp.
Prestur þrýsti talnabandi í hönd
hans. Þrem stundum síðar fjaraði
líf hans út vegna innvortis blæð-
inga.
Sex af börnum Kennedy-hjón-
anna sváfu á hótelinu þegar tilræð-
ið var framið. Yngri börnin höfðu
verið skilin eftir heima, auk
Davids, sem þá var ellefu ára.
Hann hafði einmitt að morgni
þessa sama dags, 4. júní, verið því
sem næst drukknaður í sjónum
þegar straumur hreif hann með sér.
Faðir hans hafði þá stokkið á eftir
honum og dregið hann í land. Peg-
ar árásin var gerð á pabba hans lá
hann í rúminu og fylgdist með be-
inni útsendingu frá atburðunum í
Los Angeles. Hann var því vitni að
dauða föður síns. Hann komst ald-
rei yfir það skelfilega augnablik og
árið 1984 dó hann af völdum of
stórs skammts eiturlyfja.
En nú segir systir hans Kerry
bitur: „Hann dó vegna þess að
móðir okkar kærði sig ekkert um
okkur. Hún var alltof upptekin af
sjálfri sér til að skipta sér nokkuð af
okkur.“
Erfiðasta tímabil systkinanna
var þó á meðan mamma þeirra
reyndi að slæva sorg sína með eilífu
dúndrandi veisluhaldi á Hickory
Hill. Nýir og nýir menn gengu inn
og út úr húsinu en enginn þeirra
settist þó að.
Eftir að David dó hefur hins veg-
ar ekki verið haldin nema ein veisla
á Hickory Hill, að undanskilinni
sextugs afmælisveislu Ethelar. Það
var þegar Joseph, elsti sonur Ro-
berts og Ethel Kennedy var kosinn
til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
í kjördæminu Boston. Þá sýndi Et-
hel að henni er ekki alveg sama um
öll börnin sín. „Faðir þinn væri
mjög hreykinn af þér,“ sagði hún
við nýbakaða þingmanninn, son
sinn.
Jeep
IJeep Wagoneer og Cherokee
- ekki bara glæsilegir
heldur gæðin í gegn
- fyrir þá sem vilja það besta
TIL
AFGREIÐSLU
STRAX
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smidjuvegi 4, Kópavogi, simar 77200 - 77202