Tíminn - 05.08.1988, Síða 16

Tíminn - 05.08.1988, Síða 16
16 Tíminn Föstudagur 5. ágúst 1988 lllllllllíllllllllllllli DAGBÓK . . Listasafn íslands: MYND MÁNADARINS í Listasafni fslands er vikulega kynnt i mynd mánaðarins. Par stendur nú yfir sýning á verkum rússneska málarans Marcs Chagalls. Chagall var af gyðinga- ættum, fæddur í Vitebsk í Rússlandi árið 1887. Hann settist að í Frakklandi og lést þar árið 1985 á 98. aldursári. Á sýningunni eru 41 verk, olíumálverk, vatnslitamyndir og teikningar og gefur sýningin góða mynd af listferli Chagalls og þeim viðfangsefnum er heilluðu hann mest. Mynd ágústmánaðar „Blávængjaða klukkan" er meðal verka á sýningunni. Þetta er olíumálverk frá árinu 1949. Leiðsögnin „Mynd mánaðarins" fer fram í fylgd sérfræðings alla fimmtudaga kl. 13:30. Aðgangur að sýningunni kostar kr. 300. Síðasti sýningardagur er sunnudagur- inn 14. ágúst. Listasafnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11:00-17:00. Veitingastofa safnsins er opin á sama tíma. Nína Gautadóttir í Gallerí SVART Á HVÍTU 30. júlí-14. ág. Laugardaginn 30. júlí var opnuð í Gallerí „Svart á hvítu", Laufásvegi 17, sýning á verkum Nínu Gautadóttur. Á sýningunni verða olíu- og akrýlmálverk unnin 1987-’88. Nína Gautadóttir nam myndlist í París á árunum 1969-1976. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga í Frakklandi og víðar og einnig haldið einkasýningar. Nína hefur verið búsett í París fráárinu 1969, en einnig dvalið í Nígeríu og í Kamerún. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir list sína, nú síðast á alþjóðlegri sýningu í Aþenu. Þetta er fimmta einkasýning Nínu Gautadóttur hér á landi, en fyrsta einka- sýning hennar var að Kjarvalsstöðum 1980. 1983 hélt hún sýningu í Listmuna- húsinu og aftur á Kjarvalsstöðum 1986. Þá lauk nýlega sýningu hennar í Glerár- kirkju á Akureyri. Sýning Nínu er opin alla daga nema mánudaga kl. 14:00-18:00 og stendur til 14. ágúst. f LIST A VERK ASÖLU gallerísins (efri hæð) eru til sölu verk ýmissa mynd- listarmanna og má m.a. ncfna: Karl Kvaran, Georg Guðna, Huldu Hákon, Helga Þorgils Friðjónsson, Hall- dór Björn Runólfsson, Jón Óskar, Jón Axel, Brynhildi Þorgeirsdóttur, Pétur Magnússon, Kees Visser, Ólaf Lárusson, Svanborgu Matthíasdóttur, Pétur Magn- ússon, Sigurð Guðmundsson, Sigurð Ör- lygsson, Pieeter Holstein og Tuma Magn- ússon. Listaverkasalan er opin á sama tíma og sýningarsalur gallerísins, kl. 14:00-18:00 alla daga nema mánudaga. Leiðbeiningar við þjóðvegi Bæklingurinn Leiðbeiningar við þjóð- vegi er fylgirit með 13. tbl. Freys, en Vegagerð ríkisins og Náttúruverndarráð gefa út. Einnig er í bæklingnum átta blaðsíðna efni frá Stéttarsambandi bænda. Á sl. ári urðu deilur milli Vega- gerðar ríkisins og ýmissa aðila í dreifbýli um það á hvern hátt væri leyfilegt að Benóný Ægisson ORG-útgáfan gefur út „Leirböð“ eftir Benóný Ægisson Út er komin hjá útgáfunni Org bókin Leirböð, þættir um þjóðernið eftir Benóný Ægisson. „Bókin er 64 blaðsíður og fjallar um þjóðernishyggju, þjóðremb- ing og þjóðernisfasisma," segir í frétta- tilkynningu. f bókinni eru tvær smásögur, einn ljóðleikur (óperutexti), atómljóðabálkur og ríma, og kennir þar margra grasa. Þar er m.a. fjallað um: “Hvernig var að vera á bísanum í Róm Mússólínis árið 1939 í upphafi síðari heimstyrjaldar? Hvernig má íslenskur ráðherra í heilögu stríði sínu við kanann og hvalastofnana? Þá er einnig reynt að upplýsa rúmlega aldar- gamalt morðmál frá fslendingabyggðum í Kaupmannahöfn." auglýsa þjónustu við ferðamenn á skiltum meðfram þjóðvegum. í framhaldi af því voru haldnir fundir með fulltrúum Vega- gerðar ríkisins, Náttúruverndarráðs og Stéttarsambands bænda, þar sem komist var að samkomulagi um reglur um leið- beiningarmerki meðfram þjóðvegum og auglýsingaskilti utan þéettbýlis, og birtast reglurnar í þessu riti. Handrit, bækur og myndir á uppboði hjá BÓKAVÓRÐUNNI Sunnudaginn 7. ágúst kl. 15:00 efnir Bókavarðan til fjölbreytts uppboðs í Templarahöllinni við Eiríksgötu. Meðal þess sem selt verður eru allir Hæstaréttardómar frá upphafi, einnig úr öðrum gömlum dómasöfnum, m.a. svo- kölluðum „fsafoldardómum", kennslu- bækur eftir Bjarna Benediktsson, gamlar fasteignabækur, allt Almanak Þjóðvina- félagsins frá 1875-1950, rit eftir Jón Bjarnasonúnítaraprest, pr. í Vesturheimi 1879, Annáll 19. aldar eftir séra Pétur í Grímsey, ýmsar bækur um sögu Reykja- víkur, gamlar handritaprentanir og heilmargar bækur úr íslenskum og nor- rænum fræðum, ýmsar frumútgáfur eftir Halldór Laxness, m.a. Kvæðakverið í alskinnsbandi og útgáfa af fslandsklukk- unni sem var tölusett í 60 eintökum. Þá verða seld bréfasöfn, m.a. bréf Ásmundar Jónssonar skálds frá Skúfs- stöðum, sem hann sendi til vina sinna frá Danmörku á stríðsárunum, og bréf sem fjalla um áform Kreugers eldspýtnakóngs um að stofna hér á landi eldspýtnaverk- smiðju með Kristjáni Torfasyni á Sól- bakka við Önundarfjörð. Einnig verða boðnar til sölu nokkrar gamlar franskar tískumyndir frá upphafi 19. aldar, gamlar myndir og stungur frá_ fslandi, nokkrar myndireftir Karl Einars; son Dunganon, hertoga af Sankti Kildu, mynd eftir Alfreð Flóka og e.t.v. fleiri myndverk. Uppboðsgripirnir verða til sýnis hjá Bókavörðunni að Vatnsstíg4 í Reykjavík laugardaginn 6. ágúst kl. 11:00-15:00, en uppboðið hefst í Templarahöllinni sunn- udaginn 7. ág. kl. 15:00 stundvíslega. Samstarfshópur friðarhreyfinga minnist Hírósíma og Nagasaki Friðarsinnar um allan heim minnast þess nú að 43 ár eru liðin frá því að Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorku- sprengjum á japönsku borgirnar Híró- síma og Nagasaki. í kjölfar þess opnuðust augu heimsinsfyrirógnarmætti kjarnork- unnar og því, að ekkert getur réttlætt notkun slíkra vopna. í kvöld, föstud. 5. ágúst, hafa íslenskar friðarhreyfingar ákveðið að fleyta kertum á Reykjavíkurtjörn og minnast um leið fórnarlamba árásanna og benda á leiðir til að hindra að slíkur harmleikur endurtaki sig. fslenskir friðarsinnar leggja einkum áherslu á nauðsyn þess að nýgerðum afvopnunarsamningum verði fylgt eftir með kjarnorkuvopnalausum svæðum og banni við tilraunum með kjarnorkuvopn. Kl. 22:30 í kvöld verður safnast saman við Tjörnina og þar verður stutt dagskrá. M.a. mun Viðar Eggertsson leikari lesa Ijóð. Flotkerti verða seld á staðnum og er ætlunin að fleyta þeim á þeirri stundu sem sprengjunni var varpað á Hírósíma. Undir fréttatilkynninguna skrifar Sam- starfshópur friðarhreyfinga, eða 7 samtök friðarhreyfinga á fslandi: Friðarhópur fóstra, Friðarhreyfing ís- lenskra kvenna, Menningar- og friðar- samtök íslenskra kvenna, Samtök her- stöðvaandstæðinga, Samtök íslenskra eðlisfræðinga gegn kjarnorkuvá, Samtök lækna gegn kjarnorkuvá og Samtök um kjarnorkuvopnalaust ísland. Heyrnar- og talmeina- stöð íslands: Móttaka á Norðurlandi vestra Móttökur verða á vegum Heyrnar-og talmeinastöðvar íslands á Norðurlandi vestra 8. til 13. ágúst. Þar fer fram greining heyrnar- og talmeina og úthlutun heyrnartækja. Áætlað er að vera á Ólafsflrði 8. ág., Siglufirði 9. ág., Sauðárkróki 10. ág., Blönduósi 11. ág. og fram til hádegis 12. ág., Skagaströnd 12. ág. frá kl. 13:00 og á Hvammstanga 13. ágúst. Sömu daga, að lokinni móttöku Heyrn- ar- og talmeinastöðvarinnar, verður al- menn lækningamóttaka sérfræðings í háls-, nef- og eyrnalækningum. Tekið er á móti viðtalsbeiðnum á viðkomandi heilsugæslustöð. Safnaðarfélag Ásprestakalls Sumarferð kórs og safnaðarfélags Ás- prestakalls verður farin sunnudaginn 14. ágúst. Lagt af stað frá Áskirkju kl. 08:30. Messað í Strandakirkju. Allar nánari upplýsingar og skráning í ferðina í síma 37788 hjá Guðrúnu, - í síðasta lagi 7. ágúst. Sumarierðalag Verkakvenna- félagsins Framsóknar Hið árlega sumarferðalag Verka- kvennafélagsins Framsóknar verður farið 7.-9. ágúst nk. Farið verður um Skaga- fjörð og gist á Sauðárkróki. Nánari upplýsingar á skrifstofu félags- ins. Sími er 688930. Leiðrétting í grein í Tímanum í gær, Kvíaeldi í sjó á Vestfjörðum, var rangt farið með nafn á forstöðumanni Lax hf. í Tálknafirði. Hann er sagður vera Árni Sigurðsson, Norðurbotni, en hið rétta er að Björgvin Sigurjónsson veitir stöðinni forstöðu. Árni er hinsvegar starfsmaður Lax hf. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þessum missögnum. Föstudagur 5. ágúst 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Gunnar Björnsson flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku að loknu fréttayfirliti kl. 7.30. Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn. Meðal efnis er sagan „Freyja“ eftir Kristínu Finnbogadóttur frá Hítar- dal. Ragnheiður Steindórsdóttir lýkur lestrinum. Umsjón: Gunnvör Braga. (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00). 9.20 Morgunleikflmi. Umsjón: Halldóra Bjöms- dóttir. 9.30 Úr sögu siðfræðinnar - Hegel. Vilhjálmur Árnason flytur sjötta og lokaerindi sitt. (Endur- tekið frá þriðjudagskvöldi). 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Niður aldanna. Sagt frá gömlum húsum á Norðurlandi og fleiru frá fyrri tíð. Umsjón: örn Ingi. (Frá Akureyri) 11.00 Fróttir. Tilkynningar. 11.00 Samhljómur. Umsjón: Daníel Þorsteinsson. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 13.35 Miðdegissagan: „Jónas“ eftir Jens Björn- eboe. Mörður Árnason les þýðingu sína (2). 14.00 Fréttir. Tilkynningar. 14.05 Ljúflingslög. Svanhildur Jakobsdóttir kynnir. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags að loknum fréttum kl. 2.00). 15.00 Fréttir. 15.00 Af drekaslóðum. Úr Austfirðingafjórð- ungi. Umsjón: Kristjana Bergsdóttir. (Frá Egils- stöðum)(Endurtekinn þáttur frá laugardags- kvöldi). 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. Meðal efnis er framhalds- sagan „Sérkennileg sveitardvöl“ eftir Þorstein Marelsson sem höfundur les. Einnig kynnt spurningakeppni Barnaútvarpsins sem hefst 7. ágúst. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir og Vernharður Linnet. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Rameau, Ponchielli, Borodin og Bizet. a. Fimm dansar úr „Les Boréades“-svítunni eftir Jean-Philippe Ram- eau. 18. aldar hljómsveitin leikur; Frans Brugg- en stjórnar. b. Stundadansinn eftir Amilcare Ponchielli. Fílharmoníusveit Berlínar leikur; Herbert von Karajan stjórnar. c. „Polovtsian“- dansar úr óperunni Igori fursta eftir Alexander Borodin. Suisse Romande hljómsveitin leikur; Kór útvarpsins í Lausanne syngur; Ernest Ansermet stjórnar. d. Barnaleikir eftir Georges Bizet. Parísarhljómsveitin leikur; Dan- iel Barenboim stjórnar. 18.00 Fréttir. 18.03 Hringtorgið. Sigurður Helgason sér um umferðarþátt. Tón'ist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynningar. 19.35 Náttúruskoðun. Jóhann Pálsson garðyrkju- stjóri talar um reskiplöntur. 20.00 Litlí barnatíminn. Umsjón: Gunnvör Braga. (Endurtekinn frá morgni). 20.15 Blásaratónlist. a. Konsert fyrir blásara og ásláttarhljóðfæri eftir Pál P. Pálsson. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur; höfundur stjórnar. b. Kons- ertpolki fyrir tvær klarinettur og blásarasveit eftir Pál P. Pálsson. Gunnar Egilson og Vilhjálmur Guðjónsson leika á klarinettur með Lúðrasveit Reykjavíkur; höfundur stjórnar. c. Kvintett fyrir málmblásara eftir Keith Jarrett. Bandaríski málmblásarakvintettinn leikur. 21.00 Sumarvaka a. Faðir Siglufjarðar. Birgir Sveinbjörnsson tekur saman þátt um séra Bjama Þorsteinsson tónskáld, ævi hans og störf. Rætt er við séra Vigfús Þór Árnason, Þorstein Hannesson og Óla Blöndal. (Frá Akur- eyri) b. Karlakór Reykjavíkur syngur lög eftir Bjama Þorsteinsson. Páll P. Pálsson stjómar. Kynnir: Helga Þ. Stephensen. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Vísna- og þjóðlagatónlist. 23.10 Tónlistarmaður vikunnar - Páll Pampic- hler Pálsson. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir. (Endurtekinn Samhljómsþáttur frá febrúar sl.) 24.00 Fréttir. 00.10 Píanótríó í a-moll op. 50 eftir Pjotr Tsjaík- ovskí. Itzhak Perlman leikur á fiðlu, Vladimir Ashkenazy á píanó og Lynn Harrell á selló. 01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. 01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. 9.03 Viðblt - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri) 10.05 Miðmorgunssyrpa - Eva Ásrún Albertsdótt- ir. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Á milli mála - Sigurður Gröndal. 16.03 Dagskrá Dægurmálaútvarp. 18.00 Sumarsveifla með Gunnari Salvarssyni. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi. 22.07 Snúningur. Pétur Grétarsson ber kveðjur milli hlustenda og leikur óskalög. 02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,10.00,11.00,12.00,12.20, 14.00,15.00,16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands 18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir. SJÓNVARPIÐ Föstudagur 5. ágúst 18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir. 19.00 Sindbað sæfari. Þýskurteiknimyndaflokkur. Leikraddir: Aðalsteinn Bergdal og Sigrún Waage. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 19.25 Poppkorn. Umsjón Steingrímur Ólafsson. Samsetning Ásgrímur Sverrisson. 19.50 Dagskrárkynning. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Basl er bókaútgáfa. (Executive Stress) Breskur gamanmyndaflokkur um hjón sem starfa við sama útgáfufyrirtæki. Aðalhlutverk Penelope Keith og Geoffrey Palmer. Þýðandi Ýrr Bertelsdóttir. 21.00 Pilsaþytur. (Me and Mom) Bandarískur myndaflokkur af léttara taginu um mæðgur sem reka einkaspæjarafyrirtæki í félagi við þriðja mann. Aðalhluverk Lisa Eiibacher og Holland Taylor. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. 21.50 Farandsöngvarar. (The Night the Lights Went Out in Georgia). Bandarísk bíómynd frá 1981. Leikstjóri Ronald F. Maxwell. Aðalhlut- verk Kristy McNichol, Mark Hamill, Denis Quad, Sunny Johnson og Arlen Dean. Framagjörn sveitasöngkona á í erfiðleikum með bróður sinn sem syngur með henni vegna sífelldra vand- ræða hans í kvennamálum. Þýðandi Þorsteinn Þórhallsson. 23.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Föstudagur 5. ágúst 16:10 Gigot Gamanmynd um mállausan húsvörð í París sem tekur að sér vændiskonu og barn hennar. Aðalhlutverk: Jackie Gleason og Kathe- rine Kath.Leikstjóri: Gene Kelly. Framleiðandi: Kenneth Hyman. Þýðandi: Tryggvi Þórhallsson. 20th Century Fox 1962. Sýningartími 100 mín. 17.50 Silfurhaukarnir. Teiknimynd. Þýðandi: Bolli Gíslason. Lorimar. 18.15 Föstudagsbitinn. Vandaður tónlistarþáttur með viðtölum við hljómlistarfólk, kvikmyndaum- fjöllun, og fréttum úr poppheiminum. Þýðandi: Ragnar Hólm Ragnarsson. Musicbox 1988. 19.19 19:19. Fréttir og fréttaskýringaþáttur ásamt umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á baugi. 20.30 Alfred Hitchcock. Nýjar, stuttar sakamála- myndir sem gerðar eru í anda þessa meistara hrollvekjunnar. Þýðandi: Ragnar Hólm Ragn- arsson. Sýningartími 30 mín. 21.00 í sumarskapi. Meðöldruðum. Stöð2, Stjarn- an og Hótel ísland standa fyrir þessum skemm- tiþætti í beinni útsendingu. Gamla fólkið verður í öndvegi á Hótel íslandi í kvöld. Kinnir: Bjarni Dagur Jónsson ásamt fleirum. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Stöð2/Stjarnan/Hótel ísland. 22.00 Sérsveitarforinginn. Commando. Schwarzenegger birtist hér í hlutverki ofursta sem er nauðbeygður til að takast á hendur hættumesta leiðangur lífs síns. Rae Dawn Chong er mótleikari hans í gervi flugfreyju, sem reynist honum erfiður samstarfsmaður. Aðal- hlutverk: Arnold Schwarzenegger, Rae Dawn Chong og Dan Hedaya. Leikstjóri: Mark L. Lester. Framleiðandi: Peter Yates. Þýðandi: Snjólaug Bragadóttir 20th Century Fox 1985. Sýningartími 90 mín. 23.25 Við rætur lífsins. Roots of Heaven. Myndin Við rætur lífsins greinir frá erfiði hugsjónar- manns við að bjarga fílum í útrýmingarhættu af völdum veiðimanna. I för með honum er marglit- ur hópur, þar á meðal örlagafyllibytta og nætur- klúbbasöngkona. Aðalhlutverk: Trevor Howard, juliette Grecko, Errol Flynn, Herbert Lom og Orson Wlles. Leikstjóri: John Houston. Fram- leiðandi: Daryl F. Zanuck. Þýðandi: Snjólaug Bragadóttir. 20th Century Fox 1958. Sýningar- tími 120 min. 01.30Staðinn að verki. Eye Witness. Spennu- mynd um húsvörð sem stendur morðingja að verki án þess að sjá andlit hans. Morðingjann grunar að unnt verði að bera kennsl á hann og gerrir sínar ráðstafanir. Aðalhlutverk: William Hurt, Christopher Plummer og Sigourney We- aver. Leikstjóri: Peter Yates. Framleiðandi: Peter Yates. Þýðandi: Björgvin Þórisson. 20th Century Fox 1981. Sýningartími 105 mín. 02.55 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.