Tíminn - 07.09.1988, Qupperneq 2
\ Miðv.ikudagur 7. september;1088
2 Tíminn
Ólafur Þ. Þóröarson, þingmaöur Framsóknarflokksins, um tillögur fjármálaráöuneytisins um fjárlög næsta árs:
Sundurlaust
hænsnaspark
„Ég hcf engar tillögur séð af viti
frá fjármálaráðuneytinu. Ég hef séð
sundurlaust hænsnaspark,“ sagði
Ólafur Þ. Pórðarson, þingmaður
Framsóknarflokksins, í samtali við
Tímann í gær um þær tillögur fjár-
málaráðuneytisins sem ætlað er að
auka tekjur og skera niður útgjöld
ríkissjóðs. Þessar tillögur hafa verið
kynntar ríkisstjórninni og þingflokk-
um stjórnarflokkanpa.
„Þeir hafa aðallegla verið að dreifa
tillögum til fjölmiðja til að ná ein-
hverri athygli en égjget ekki séð að
það liggi fyrir þær upplýsingar sent
mest ríður á að fá. Ég hef t.d. ekki
séð neinar tillögur cða áætlanir um
það hverju þessi söluskattur sem á
var lagður á að skila, ef innheimtan
á honum er með eölilegum hætti.
Það er lang stærsta málið sent við
þurfum að fá að vita og það liggur
því ekkert fyrir um allar þessar
hugmyndir Jóns Baldvins um að það
vanti nýja skatta.
Við erum komnir með hæstu sölu-
skattsálagningu í heimi og menn
verða að gera sér grein fyrir því að
hann skilar sér ekki sjálfur íkassann.
Það er verkefni sem Jón hefði átt að
snúa sér að á þessu ári og þá þyrfti
hann ekki að hafa þessar áhyggjur,"
sagði Ólafur.
Aðspurður um þær tillögur sem
ncfndar hafa verið í fjölmiðlum
sagðist Ólafur telja hugmyndir um
skatt á fjármagnstekjur þær einu
sem einhver hugsun væri á bak við.
„En gjald á erlendar lántökur er
hins vegar náttúrlega bara tvöföldun
á gengi og viðhald á háum vöxtum
og hugmyndin um að selja kvótann
er viss nýlendustefna gagnvart lands-
byggðinni. Það eru margir þcgar
búnir að kaupa kvótann með skipum
á uppsprengdu verði og það hefði
verið nær að skattleggja það heldur
en að láta þá fara að kaupa hann
aftur. Menn geta rétt ímyndað sér
hvernig veð koma til með að halda
ef kvótinn verður tekinn af
mönnum. Það þýðir ekki að vera að
hringla með þetta fram og til baka,
þegar sjávarútvegurinn á í öðrum
eins efnahagsþrengingum og í dag,“
sagði Ólafur.
En hvað um tillögur um niður-
skurð á útgjöldum ríkissjóðs?
„Við höfum ekki heyrt aðrar til-
lögur frá ráðherrum nema um fram-
Ólafur Þ. Þórðarson segist ekki hafa
séð neinar tillögur - einungis sund-
urlaust hænsnaspark.
kvæmdagleði. Mér skilst að það sé
t.d. von á nýrri handboltahöll upp á
300 milljónir króna.
Svona untræður um fjárlög út um
víðan völl það gengur ekki upp. Það
er samræmið sem skiptir máli og
heildarmyndin. Ég vil fyrst fá sjá
upplýsingar um innheimtu þeirra
skatta sem á eru lagðir.
Jón Baldvin Hannibalsson, fjár-
málaráðherra, hefur lagt fram tillög-
ur sínar varðandi fjárlagagatið.
Mínar efasemdir frá því í vor eru
að koma harkaleg í Ijós. Þá var verið
að tala um efnahagsaðgerðir sem
mundu skila árangri. Ég hcld að fáir
muni halda því fram að það hafi
gerst. Það eru nú meiri merki um
það en áður að ríkisstjórnin, undir
forystu Þorsteins Pálssonar, sé að
þrotum komin,“ sagði Ólafur. jm
Hagsveifluvog iðnaðarins:
Erfiðleikar
í innheimtu
Sendinefnd er nú lögð af stað til
Búdapest í Ungverjalandi til loka-
viðræðna unt hönnunarverkefni á
sviði hitaveituframkvæmda og er
búist við undirritun rammasam-
komulags innan fárra daga og í
tengslum við opinbera heimsókn
Steingríms Hermannssonar, utan-
ríkisráðherra, til landsins um helg-
ina. Þeir sem þegar eru farnir utan
eru fulltrúar Búnaðarbankans,
Heimir Hannesson, markaðsfulltrúi,
og fulltrúar Virkis hf. þeir Svavar
Jónatansson, stjórnarformaður, og
Einar Tjörvi Elíasson, sem er fulltrúi
Orkustofnunar í stjórn Virkis hf.
Búnaðarbankinn hefur verið milli-
gönguaðili fyrir Norræna fjárfesting-
arbankann, en það er væntanlegur
fjármögnunaraðili verkefnisins að
hluta til. Háttsettur fulltrúi NF kem-
ur einnig inn í viðræður næstu daga.
Af hálfu ungverskra aðila verða
fulltrúar samvinnufyrirtækisins Ge-
othermal, ungverska viðskipta- og
orkumálaráðuneytisins og ríkis-
banka þar í landi. Ekki er gert ráð
fyrir því að íslendingar standi á
nokkurn hátt að fjármögnun á fram-
kvæmdunum, heldur verði eingöngu
um að ræða samvinnu á tæknilegum
grunni og markaðssetning á tækni-
þckkingu íslendinga í Ungverjalandi
og víðar í áframhaldandi samstarfi
þessara aðila.
Rammasamkomulagið felur í sér
að gengið verður frá tímasetningu
og verkaskiptingu í þeim verkefnum
sem ákveðin verða á næstunni. Til
að byrja með er stefnt að því að
íslendingar taki að sér hönnun
ákveðinnar hitaveitumiðstöðvar fyr-
ir borgarhluta í Búdapest sem er á
stærð við hálfa Reykjavík, með
áfranthaldandi samstarf hliðstæðra
verkefna utan Ungverjalands í huga.
Einnig er um að ræða annað verkefni
innan sama rammasamkomulags
varðandi markaðsetningar á tækni-
þekkingu {slendinga vegna bygging-
ar 10-15 heilsuhótela og heilsuhæla í
Ungverjalandi.
Um helgina verður Steingrímur
Herntannsson, utanríkisráðherra,
staddur í Búdapest í opinberum
erindagjörðum. Munu fylgdarmenn
hans og ráðherrann sjálfur koma inn
í viðræðurnar á lokastigi og fylgjast
með undirritun væntanlegs sam-
komulags. KB
Auknir erfiðleikar iðnrekenda á
að fá greitt fyrir framleiðsluvörur
sínar gengur eins og rauður þráður í
gegn um niðurstöður hagsvcifluvog-
ar iðnaðarins, þar sem aðstæður á 1.
fjórðungi þessa árseru bornarsaman
við síðasta fjórðung ársins 1987.
Ekki síst átti þetta við hjá frant-
leiðendum almennra neysluvara,
þ.e. matvæla, sælgætis, drykkjarvara
en einnig hjá húsgagnaframleiðend-
um, prentsmiðjum, steypustöðvum
og fleiri greinum. Sala hafði einnig
minnkað hjá mörgum, og fjöldi
þeirra sem framleiða neysluvöru
hugði á fækkun starfsmanna á 2.
ársfjórðungi. Fyrirætlanir unt fjölg-
un starfsmanna á 2. ársfjórðngi
komu nær eingöngu fram hjá fram-
lciðendum vara fyrir byggingariðnað
og í prentiðnaði.
„Það er óneitanlega ýmislegt
þarna sem bendir til samdráttar.
Grafarvogur - Breiöholt:
Ný leið
hjá SVR
Akstur á nýrri leið, Grafarvog-
ur - Breiðholt III, leiðarnúmer
15C hófst hjá SVR á mánudaginn
sl. Ekið verður á 60 mín. fresti á
þessari leið mánud.-föstud. frá
kl. 07-19. Aksturstími milli enda-
stöðva Rey kj afoldar og Álftahóla
er um 20 mín.
Akstursleiðin verður sem hér
segir: Reykjafold (tímajöfnun),
Fjallkonuvegur, Lokinhamrar,
Gullinbrú, Höfðabakki, Bílds-
höfði, Breiðhöfði, Straumur,
Strengur, Bæjarháls, Bæjar-
braut, Rofabær, Hraunbær,
Bæjarháls, Höfðabakki, Vestur-
hólar, Suðurhólar og Álftahólar
(tímajöfnun).
Akstur hefst frá Álftahólum
kl.07.18, fyrsta ferð frá Reykja-
fold verður kl. 07.40.
Þá verður einnig frá og með 5.
september ekið á leið 15A á 30
mín. fresti öll kvöld og á laugar-
dögum og helgidögum. -ABÓ
Þótt þensluáhrif sjáist enn í sumum
greinum leyna samdráttareinkenni
sér tæpast þegar litið er á þessar
niðurstöður f heild," sagði Harpa
Halldórsdóttir hagfræðingur hjá Fé-
lagi fsl. iðnrekenda.
Vinna við næstu hagsveifluvog
stendur nú yfir. Hagsveifluvogin
byggist á könnun meðal iðnrekenda
sem svara spurningum um varðandi
framleiðslu, sölu, innheimtu, mann-
ahald og fleira með; meira - óbreytt
- eða minna.
Harpa sagði niðurstöður frá 2.
ársfjórðungi ekki liggja fyrir ennþá,
en sjáanlegar breytingar bentu frem-
ur í átt til aukins samdráttar. Varð-
andi starfsmannafjölda bendi svör
iðnrekenda t.d. annaðhvort til fækk-
unar eða óbreytts mannafla, fáir ef
nokkur hyggi á fjölgun starfsmanna.
- HEI
Leiðrétting:
Rétt skal
vera rétt
Sú villa slæddist inn í frásögn
Tímans á laugardag af réttum í haust
að sagt var að Klausturhólarétt í
Grímsnesi, Árnessýslu, yrði mið-
vikudaginn 19. september. Það er
ekki rétt, enda er sá 19. ekki einu
sinni miðvikudagur. Það rétta er að
réttað verður í Klausturhólarétt
miðvikudaginn 14. september, og
leiðréttist það hér með.
Auglýsingastofur:
Sameining
Auglýsingastofurnar Octavo og
Svona gerum við, hafa sameinast og
taka til starfa undir nafninu Islenska
auglýsingastofan hf.
Með samruna þessunt telja for-
svarsmenn hins nýja fyrirtækis að
hægt verði að gera auglýsingar á
markvissari hátt en áður hafi þekkst
á íslandi með því að láta sérmennt-
aða markaðsráðgjafa kanna mark-
aðinn í samráði við auglýsendur
áður en byrjað er að birta auglýsing-
arnar. Jónas Ólafsson er fram-
kvæmdastjóri íslensku auglýsinga-
Stofunnar hf. (Úr frcttatilkynningu)