Tíminn - 05.11.1988, Qupperneq 2
2
HELGIN
Laugardagur 5. nóvember 1988
I
Riðið til
brúðkaups
í Vatnsfjörð
Til gamans sýnd yður, góði vin:
Reisa mín vestur að ísafjarðar-
dúpi MDCCIX með séra Birni Þórð-
arsyni og Vigfúsi Jónssyni, hver þá
giptist Kristínu Guðbrandsdóttur í
Vatnsfirði, en þar var þá prestur séra
Hjalti Þorsteinsson. Reistum vér á
stað dag 26. Augustii á þriðjudag að
Þingnesi í Borgarfirði 4 saman, en
Monsér Vigfús var undan oss kom-
inn með þriðja mann og átti mót
vera á Kvennabrekku. En Sigurður
Jónsson sýslumaður, var þá ei á stað
reistur vestur; fór hann að ekta
Ólöfu á Eyri í Scyðisfirði það sama
sinn og nær samferða að segja.
Grjótbrú slæm
Nú er þar að byrja söguna, er vér
tókum oss upp úr tjaldstað við
Þingnes miðvikudag; eg náttaði þar
og fjórðu nótt á heimreisunni frá
ísafirði einn. Eyjarvað á Hvítá er
sagt reitt, meðan að sér smáeyrar
sunnan fram, og norður yfir má
slarka, meðan stóra eyrin er uppi;
það er riðið á snið yfir ána til vesturs,
suður yfir mót straum; svo að
Hamraendum, þar vestur er gömul
grjótbrú slæm, vandriðin og vatns-
mikil; svo cru holt og sund að
Hjarðarholti, slæmt fyrir vestan
túnið. Riðum vér með ánni og að
Spóamýri, og svo yfir hálsinn að
Glýsstöðum í Norðurárdal. Þá koma
sléttar engjar með ánni upp hjá
Desey um miðjan dalinn. Riðum vér
svo Bjarnadal vestan undir Baulu-
fjalli, berjum þakinn, mjög slæman
veg og langan undir Bröttubrekku.
Þá vestur hallaði, kom Sökkólfsdal-
ur, djúpur, skuggalegur, óbyggður
að Breiðabólsstað, þar er þá bjó
Sigurður Pálmason; þar náttaði cg á
heimreisu 3. nótt. Svo er riðið með
sömu á, að bæir eru á báðar hendur
og byggð í hlíðum tveim meginn, allt
að Sauðafelli og Hamraendum,
stefnt í útnorður á Breiðafjörð eður
Hvammsfjörð, óbyggðafjöll fyrir
norðri, til austur og suðaustur sú
stóra hciði, en fyrir vestan Snóks-
dalsmúla er Hörðadalur, þá með sjó
vestur eptir Skógarströnd, svo cr
Helgafellssveit, Eyrarsveit og Nes-
hreppur undir Jöklinum.
Nú tjölduðum vér á Kirkjunesi
hjá Barðaskála við Miðá í Kvenna-
brekkulandi í Miðdölum í Náhlíð,
skammt frá Sauðafelli, uppfrá
Snóksdalspollum, við ármótin; þar
lágum vér og kyrrir í 4 daga, bíðandi
eptirMons. Vigfúsi úrStykkishólmi.
- Jón biskup og Ari lögmaður og
séra Björn voru teknir í kirkju á
Sauðafelli og síðan hálshöggnir í
Skálholti. - Barði var drepinn hjá
tjaldstað vorum í skála sínum á
Kirkjunesi. Séra Gísli S. var þá
prestur að Kvennabrekku og Vatns-
horni í Haukadal. En Sauðafells-
kirkja og Snóksdalskirkja fengu á
þeim dögum ungan prest, áður í
auðn frá bólutíðinni. Dag 20. sept-
ember, er eg reið suður um, var tún
enn óslegið á Sauðafelli og Kvenna-
brekku, lýðvana.
Þá er að ferðast að Kambsnesi
réttleiðis úr Pollum, en vér fórum
ofan yfir hálsinn hjá Stóruskógum
og fyrir munnann á Haukadal, -
hann gengur austsuöur langt í heið-
ina, - riðum Haukadalsá yfir á
hálsinn í millum hans og Laxárdals,
fórum yfir Laxá, svo og gengur sá
dalur austnorður í fjöll langt; þar er
að ríða fjöruveg fyrir framan með
Hvammsfirði, en vér fórum að fjöru
við þá fögru Ljárskóga, allt nær að Ás-
garði; þar er kirkja, og þá er komið
í Hvammssveit, og gengur megin-
byggð hennar vestur með því langa
fjalli og annesi, sem gár langt fram í
Breiðafjörð. Að sunnan er
Féllsströnd, en norðan Skarðsströnd
á þessu nesi. En vegur er yfir fjallið
þvcrt vestur við heiðina í Saurbæinn,
dalur eður skarð, greitt og langt með
götuslóðum frá Leysingjastöðum í
Hvammssveit að Bessatungu í Saur-
bæ. Frá Sælingsdalstungu má og
ferðast norðurað Hvítadal; þar situr
nú séra Árni Jónsson prestur í
Saurbænum, að HvoliogStaðarhóli.
Hjá honum þágum vér greiða til og
frá í Hvítadal. Séra Magnús prófast-
ur var þá að Hvammi; hann er bróðir
herra eðla sekreterans Árna Magn-
ússonar. Hans gott benefic[ium)
Hvammur, annexurnar í Ásgarði og
Sælingsdalstungu; þar bjó Snorri
goði forðum og svo Guðrún Ósvíf-
ursdóttir.
Þar var drukkið vei
Nú um reisuna yfir tjáðan fjallveg
frá Leysingjastöðum (þar náttaði eg
heimleiðis aðra nótt). Á þeim
Svínadal var Kjartan Ólafsson drcp-
AlELAtZ
Á þessu korti má sjá í grófum
dráttum leið þá er þeir félagar
fóru.
Vatnsfjörður, hið forna höfuðbói við Djúp. Lýsing höfundar á kirkjunni þar, sem þá var þriggja alda gömul og reist af Birni
Jórsalafara, þykir hin merkilegasta. (Ljósm. Einar Laxness).
inn við Kjartansstein, þar er stórt
bjarg, en flatur halli þar hann var
deyddur, og Bolli sat undir höfði
hans. Þar var drukkið vel, og þar hjá
áðum vér ölvaðir, svo rákuni vér að
Hvítadal, og svo þaðan um sólarlag
ofaneptir dalnum eða sveitinni.
Saurbærinn er líkur Norðurárdal,
utan yfrið há fjöll eru á báðar síður,
og ekkert sést, utan upp í himinn og
í fjörur vestur. Á fellur að miðjum
dal og eru sléttar og loðnar engjar
með henni, en bæir til hlíða tveim
megin. - Rákum vér nú á nótt fram
með ánni og að Hvoli: þar er kirkja
og fögur jörð, önnur á Staðarhól;
hann er suður við hálsinn upp frá
Tjaldanesi, en þar er sú nafnkunna
sölvafjara að Holtum og Brunná við
sjómálið.
Sölvamannagata er mér sagt liggi
þar úr Saurbæ til norðurbyggða; þar
kól herra Einar junk(ara) í hel við
tólfta mann; hann var son Björns
ríka sem Englendingar drápu í Rifi
og 7 menn hans; sonur Ólafar ríku
var Einar junkari; sú hélt 50